Helgarpósturinn - 31.10.1985, Blaðsíða 9
YFIRHEYRSLA
nafn: Davíð Oddsson fæddur: 17. 1. 1948 í Reykjavík staða. Borgarstjóri læun: 117.
heimili: Lynghagi 5 heimilishagir: Kvæntur Ástríði Thorarensen, 1 sonur og kisa
bifreið: Engin, en lagt til embættisbifreiðir áhugamál Skriftir, skák, spil og veiði
Sameiningin er hreinn bissness
ehir Sigmund Erni Rúnorsson, myndir Jim Smart
Davíð er í Yfirheyrslu um ísBúr-málid og þann pólitíska fnyk sem sumum mðnnum
finnst leggja af því. Hann svarar og spurningum um meinta einræðishneigð sína í
stjórnun borgarinnar, og því Uka hvort hann ætli að steypa Þorsteini af formanns-
stólnum ...
— Hvernig í ósköpunum stendur á því,
Davíð Oddsson, að þú ert búinn aö fá á
þig það orð að vera voðalega sterkur
leiðtogi Sjálfstæðisflokksins og helsti
vonarpeningur hans?
„Ég hef nú út af fyrir sig ekki heyrt þetta
og aldrei í svona löngu máli. Hinsvegar tel ég
að stjórn Sjálfstæðisflokksin s í Reykjavík hafi
verið markviss og örugg. Ég er með mjög
traustan meirihluta með mér, fólk sem vinn-
ur með mér þó svo það komi síðan í minn
hlut að skýra frá ákvörðunum og niðurstöð-
um út á við. Áhrif ákvarðananna hafa því
kannski lent meira á mínum herðum ..."
— Einmitt, en áður en við höldum
lengra í þessum dúr, skulum við víkja að
sameiningu BÚR og ísbjarnarins. Það er
náttúrlega ekki minnsti pólitíski fnykur
af því máli?!
„Ekki í mínum huga, ég skal ekki segja
hvað öðrum finnst. íslendingar eru óvenju-
lega pólitískt fólk ... en mér hefur fundist
að langflestir hafi innst inni haft skilning á
því að það væri kostur að sameina þessi
stóru fyrirtæki."
— Flokksbræður þínir eru að segja
mér að fsBúr hafi verið þín hugmynd.
Fara þeir með rétt mál?
„Já, þetta var upprunalega mín hug-
mynd."
— Aðrir fullyrða að Jónas Haralz hafi
komið grátklökkur til þín og beðið þig
um þennan greiða sem úrlausn á lána-
mistökum Landsbankans, en vangoldn-
ar skuldir ísbjarnarins í þeim banka
nálgast 300 milljónir!
„Eg ræddi við Jónas Haralz um samein-
ingu á Bæjarútgerðinni og ísbirninum þrem-
ur mánuðum eftir að ég varpaði þessari hug-
mynd fram, en Landsbankinn er viðskipta-
banki allra hlutaðeigandi aðila, borgarinnar
og þessara tveggja útgerðarfyrirtækja sem
nú verða að einu ...“
— Þannig að þú fórst til Jónasar en
hann ekki til þín?
„Ekki man ég hvar við hittumst, en ég
hafði frumkvæðið að þeim fundi. Það er á
hreinu."
— Nú þótti mörgum fullljóst að ís-
björninn ætti stutt eftir í greiðslustöðv-
un og litlu skárra væri ástandið hjá BÚR.
Er ekki vafasamt að pólitískur meiri-
hluti sveitarstjórnarmanna taki að sér
að bjarga einkafyrirtæki fiokksbræðra
sinna?
„Bæjarútgerðin var búin að fá úr borgar-
sjóði 147 milljónir á verðlagi hvers árs frá
1947. Þetta eru gífurlegar upphæðir. Ég
myndi frekar segja að þetta væri mjög vafa-
samt...“
— En af hverju kom aldrei til greina að
sameinast öðru fyrirtæki en einmitt ís-
birninum, einu skuldugasta fyrirtæki í
geiranum, sem jafnframt er að sigla inn
í málaferli vegna innbyrðis deilna hlut-
hafa um rekstrarafkomu og rekstrar-
stjórn síðustu ára?!
„Það eru öll fyrirtæki í þessari grein skuld-
ug, eða að minnsta kosti langflest þeirra. En
það sem vó þyngst í þessu máli var að þetta
eru tvö langstærstu fyrirtækin á þessu svæði
sem eru með aðstöðu á sömu slóðum. Það lá
því beinast við að sameina þau ...“
— Ertu að reyna að segja mér að lngv-
arssynir hafi ekki hreyft sig; þeim hafi í
það minnsta ekki létt þegar þú fékkst
þessa hugmynd?
„Nei. Upphaf þessa máls var reyndar það
að ég óskaði eftir fundi með þeim, bauð
þeim reyndar í léttan hádegisverð hérna hjá
mér uppi á lofti, og þá vissu þeir ekkert hvað-
an á sig stóð veðrið ..
— Þannig að sameiningin er bara eins
og happdrættisvinningur í þeirra huga?
„Ekki held ég það nú .. . Ég held þvert á
móti að þeim sé frekar tregt um að láta þetta
fyrirtæki frá sér. Pabbi þeirra byggði það upp
af myndarskap og þeir síðan með honum og
gerðu þetta að glæsilegasta firma í þessum
geira. En þeir sjá líka að ef þessi grein á að
geta staðist á þessu svæði, þá verða þessir
tveir stærstu aðilar að leggja saman."
— Hefði ekki verið stórum sniðugra að
leyfa ísbirninum að fara á hausinn og
kaupa svo upp leifarnar og sameina
BÚR?
„Ég held að það sé nú aldrei gott að iáta
fyrirtæki fara á hausinn; ekki svo að skilja að
ég hafi álitið að ísbjörninn færi á hausinn á
næstunni, ekki á næstu árum að minnsta
kosti...“
— Sem sagt Davíð, í einlægni: Þú kann-
ast ekkí við minnsta pólitískt plott við-
víkjandi sameiningunni, ekkert flokks-
bræðralag og engan þrýsting frá félaga
Haralz og kó. Barasta tandurhreinan
bissness!?
„í mínum huga er þetta hreinn bissness. I
mínum huga er þetta leið fyrir mig til að
koma Bæjarútgerðinni af borgarsjóði, að
skapa hlutafélag sem muni lúta lögmálum
markaðarins í stað þess að fjarstýrast pólit-
ískt héðan frá borgarskrifstofunum."
— Heldur ekki seinna vænna að dæla
i þetta firma tugmilljónum: Þú lofaðir
fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar
að ef þú kæmist að yrði þegar í stað hætt
að borga tap BÚR úr borgarsjóði. Síðan
liðu 3 ár?
„Ekki seinna vænna, nei, þáð er rétt. Ég
fór þegar að vinna að þessum málum. Og því
er lokið núna. Þetta höfðu margir reynt, tal-
að um hlutina, nú fyrst er framkvæmt. A að-
eins þremur árum."
— Aftur aö þér og þínum ferli: Þegar
þú lítur yfir þetta fyrsta kjörtímabil þitt
sem borgarstjóri, finnst þér þá að sú
taktík þín að leika leiðtoga borgarinnar
á kostnað annarra borgarstjórnarmeð-
iima flokksins hafi tekist?
„Ég hef nú ekki búið mér til neina taktík
í þessum efnum. Ég vinn mjög vel með borg-
arfulltrúunum, ekki síst þeim sem styðja mig
vel. En ég hef talið að í fyrirtæki eins og
borginni sem hefur 7000 manns í vinnu, þýði
ekkert að hafa gjörsamlega valdalausan
mann á toppnum. Það var einn svoleiðis
hérna á síðasta kjörtímabili, ágætis maður út
af fyrir sig, en það gjörsamiega misheppnað-
ist. Það verður að vera einhver endapunktur,
einhver staður þar sem menn fá að lokum
svar."
—Er ekki erfitt aö vera svona einræð-
ishneigður en búa við lýðræðisskipu-
Iag?
„Eg er ekki einræðishneigður, því fer
fjarri. Mest af mínum tíma fer í það að ræða
við fólk og samræma skoðanir þess. Það
kemur að vísu iðuiega fyrir og ótrúlega oft
miðað við það sem kannski þekkist út á við
að mínar hugmyndir verða undir í mínum
hópi. Eftir að hópurinn kemst hinsvegar að
niðurstöðu um ákveðnar hugmyndir, hver svo
sem komið hefur fram með þær, þá fylgi ég
þeim fram. Ég er þeirrar skoðunar að byrji
maður verk verði að klára það.“
— Hverju svararöu þeirrl gagnrýni að
þú sért frekur, stjórnsamur og útdeilir
ekki valdi, treystir hreinlega ekki sam-
starfsmönnum þínum, sért í raun aö lýsa
vantrausti á þá með því háttalagi að deila
og drottna!?
„Ég er kannski ekki góður í því að gefa
sjálfum mér einkunnir. Það verða aðrir
menn að gera. En ég kannast nú ekki við að
ég líði ekki að aðrir menn hafi aðrar skoðan-
ir en ég. Hinsvegar líð ég það ekki, að eftir
að ákvörðun hefur verið tekin, taki menn að
flökta til og frá. Þá vil ég að menn haldi fast
við það sem þeir eru að gera.“
— Er klárt mál að þú verðir borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins í næstu
kosningum?
„Það hefur nú ekki verið ákveðið form-
lega, en það hefur aldrei gerst hjá flokknum
að starfandi borgarstjóri sem gefur áfram
kost á sér, nái ekki fram. Ég sé engin teikn á
iofti um annað."
— Þad er altalað í Valhöll, sem annar-
staðar í innsta hring flokksins, að þú
viljir fá ákveðna menn efst við hlið þér á
framboðslistanum, til dæmis Vilhjálm
Vilhjálmsson. Viltu nefna fleiri?
„Ut af fyrir sig vil ég ekki nefna nein nöfn.
Það er nú einu sinni svo að prófkjörið gerir
það að verkum að þessi einræðishneigði
maður sem þú varst að lýsa áðan, hefur
minni áhrif en ailir aðrir hvernig þessi iisti
verður skipaður, að minnsta kosti livað varð-
ar efstu sætin. Ég get kannski haft áhrif á
hvernig listinn mun endanlega líta út, en
ekki hvað efstu sætin varðar."
— Þú lofar sem sagt að hjálpa ekkert
nánustu flokksbræðrum þínum?
„Já.“
— Hvernig túlkarðu þá ákvörðun
Alberts Guðmundssonar að taka ekki
þátt í prófkjöri flokksins í nóvember?
„Hann er nú búinn að vera í borgarstjórn
í 16 ár og standa sig ágætlega. Það er nú ekki
algengt að menn séu mikið lengur í borgar-
stjórn"
— Sérðu á eftir manninum úr borgar-
stjórn?
„Já, enda hefur hann stutt mig mjög vel í
borgarstjórn ...“
— Hann er nú fráleitt einn af þessum
meðfærilegu, eins og sagt er að þú viljir
helst hafa þá?
„Hann hefur verið mjög meðfæriiegur við
mig.“
— Ottastu sérframboð hans?
„Nei, það er fjarri öllu lagi."
— Aðeins um stólamálið hans Þor-
steins. Hver var þáttur þinn í þeim leik?
„Hann var ótrúlega lítiil. Ég var erlendis
þegar þessi umræða átti sér stað. Ég kom
heim þegar allt var í rauninni afráðið í þessu
máli. Það var þingflokksfundur daginn eftir
þar sem átti að upplýsa þessa ákvörðun. Ég
sat hérna á skrifstofu minni íramyfir mið-
nætti kvöldið áður og samdi dægurlaga-
texta."
— Hvenær ætlarðu annars að fara að
hugsa þér til hreyfings inn á þing og
steypa Þorsteini úr formannsstólnum?
„Ég hugsa mér alls ekki til hreyfings inn á
þing. Mér líður mjög vel sem borgarstjóri.
Hér á skrifstofunni vil ég vera.“
— En þú getur ekki neitað því að þessi
hugsun um formennsku hefur flökrað
að þér?
„Aldrei."
— Býstu við að einhver trúi þessu? Er
ekki málið að þú þorir ekki að styggja
félaga Þorstein strax, en stekkur svo
seinna á hann úr góðu færi?
„Nei, aldrei. Þetta er hreinlega raunsæi."