Helgarpósturinn - 31.10.1985, Blaðsíða 24
áfangaskýrsla með tillögu um sam-
einingu Isbjarnarins og BÚR og
drög að stofnsamningi er víðs fjarri
að þetta mál sé komið í höfn. Enda
þótt bræðurnir Jón og Vilhjálmur
Ingvarssynir séu mjög áfram um
sameininguna, þá verða þeir að
taka tillit ti! óska systur sinnar
Sigríðar Ingvarsdóttur, sem á
einn fjórða í Isbirninum. Hún vill fá
botn í fjármál fyrirtækisins og hefur
því krafist bókhaldsrannsóknar.
Hún vill fá klárar upplýsingar um
það hvernig það megi vera, að jafn
stórt og öflugt fyrirtæki og ísbjörn-
inn skuli komið i svaðið. Af þessum
ástæðum hefur Sigríður neitað að
samþykkja sameiningu fyrirtækj-
anna. Davíö Oddsson borgarstjóri
mun hafa látið þau orð falla á fyrstu
stigum málsins, að hann vildi fá
samþykki allra hluthafa fyrir breyt-
ingunni. Þá var hann búinn að
gleyma Sigríði og hennar hlut. En
þegar málið var komið á verulegan
rekspöl og jafnframt orðið óþægi-
legt í pólitísku tilliti söðlaði Davíð
um og kveðst nú ætla að keyra sam-
eininguna í gegn hvað sem tautar
eða raular. En nú er málið komið á
alvarlegt stig og fjandskapur risinn í
fjölskyldunni, þar sem lögfræðingar
aðila reyna að bera klæði á vopnin.
Haldnir hafa verið margir árangurs-
lausir fundir. Sigríður stendur á þvi
fastari fótunum, að henni beri skýr-
ingar á því hvað varð um þær tug-
milljónir, ef ekki hundruð, sem hún
taldi sig eiga tryggar í ísbirninum.
Nú er hlaupinn hundur í bræðurna
og málið stendur sem stál í stál...
S _
verður auglýst laus til umsóknar 1.
nóvember, en líklega veitt 1. des-
ember. Margir eru um hituna, enda
stór og feit staða hjá því opinbera.
Helstu menn sem við heyrum að
fyrirhugi að leggja inn umsóknir:
Gestur Ólafsson, Gudrún Jóns-
dóttir, Sigurður Thoroddsen,
Stefán Thors, Bjarki Jóhannes-
son og Trausti Valsson. Allt eru
þetta þekktir arkitektar og skipu-
lagsfræðingar. Stöðuna veitir hins
vegar Alexander Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra og framsóknar-
maður. Hins vegar er enginn fram-
sóknarmaður af lífi og sál meðal of-
angreindra manna. En kannski fleiri
bætist í hópinn. . .
A
^^^■lþýðubandalagið undirbýr
nú landsfund sinn af kappi. Víst er
að miklar umræður verða á fundin-
um eins og búist var við i kjölfar
„mæðraskýrslunnar" svonefndu.
Hins vegar er ljóst að Svavar Gests-
son verður endurkjörinn formaður
og engin framboð önnur verða gegn
honum. Varaformaðurinn Vilborg
Harðardóttir mun hins vegar ekki
gefa kost á sér til endurkjörs og lík-
legast talið að Kristín Ólafsdóttir
taki við varaformennskunni. Þá er
víst að Helgi Guðmundsson gefi
ekki kost á sér aftur í ritarastöðu
flokksins. Helsti kandídatinn í þá
stöðu er Grétar Þorsteinsson, for-
maður Trésmiðafélags Reykjavíkur
og starfsmaður Alþýðubandalags-
ins...
24 HELGARPÓSTURINN
iklir flutningar eru á
toppmönnum Flugleiða þessa dag-
ana. Einar Olgeirsson sem verið
hefur hótelstjóri á Hótel Esju verður
nú hótelstjóri á Hótel Loftleiðum.
Við Hótel Esju tekur Hans Indriða-
son sem verið hefur markaðsstjóri
Flugleiða. Emil Guðmundsson
sem verið hefur hótelstjóri á Hótel
Loftleiðum leggur hins vegar land
undir fót og tekur við sölusvæðis-
stjórn Flugleiða í Kaupmannahöfn.
Þar var fyrir Vilhjálmur Guð-
mundsson sem nú tekur við mark-
aðsstjórn Flugleiða af Hans Indriða-
syni...
Ísigendaskipti eru væntanleg
hjá Töggi hf. (SAAB-umboðinu).
Fyrirtækið hefur verið í eigu barna
og skyldmenna Sveins Björns-
sonar sem áður var með SAAB-
umboðið. Stjórnarformaður og for-
stjóri Töggs hf. er Ingvar Sveins-
son. Fyrirtækið mun hafa verið í
rekstrarerfiðleikum undanfarin
misseri og hlutafjáraukning því fyr-
irhuguð til að bæta fjárhaginn. Ingv-
ar mun vera sá eini sem leggja ætlar
fé af mörkum í hlutafjáraukninguna
og auk þess segir sagan að hann fyr-
irhugi að kaupa hlutabréf fjölskyld-
unnar og gerast einkaeigandi Töggs
hf. Til að fjármagna þessi miklu
kaup hefur Ingvar nýverið selt sum-
arbústað sinn á Þingvöllum. Sumar-
bústaðurinn er á besta stað við vatn-
ið og réttara að tala um einbýlishús
en bústað. Davíð Scheving Thor-
steinsson hefur nú keypt bústað-
inn fyrir nokkrar milljónir...
M
■ W Wargir velta vöngum yfir
því hvers vegna Albert Guð-
mundsson iðnaðarráðherra ætlar
ekki að taka þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins vegna sveitar-
stjórnakosninganna í vor. Sumir
vilja halda því fram, að Albert ætli í
sérframboð og sýna forystusveit
flokksins þannig styrk sinn. Aðrir
telja þetta fráleitt og benda á, að
Albert hafi lítt hirt um sína dyggustu
stuðningsmenn og tengslin þar á
milli rofnað. Þannig hafi kappinn
ekki tilbúið nauðsynlegt lið til þess
að sigrast á ofurefli flokksmaskín-
unnar, hvort sem væri í prófkjöri
eða sérframboði. Þá er það talið há
iðnaðarráðherra mjög, að hafa ekki
hjá sér á landinu dugmesta stuðn-
ingsmanninn, nefnilega Helenu
dóttur sína, sem nú býr í Bandaríkj-
unum...
S sasa _, _
heiminum, og er okkur sagt, að hún
sé sönn, þess efnis, að Guðlaugur
Bergmann kaupmaður í Karnabæ
ráði engan nýjan starfsmann án
þess að viðkomandi hafi farið til
„stjörnuspekingsins" Guðlaugs
Guðmundssonar og fengið
stjörnukort út úr tölvunni hans
(Gulla Bergmann). Hvort Guðlaugur
kaupmaður hefur hafnað tilvonandi
starfsmanni vegna óhagstæðrar
stöðu himintunglanna á kortinu vit-
um við ekki. Hitt vitum við, að fyrir
Karnabæjarkaupmanninn eru
stjörnukortin sem heilagt orð. . .
K
■l^^lofningurinn er í algleym-
ingi í Bandalagi jafnaðarmanna.
Nýjustu fréttir eru þær að Valgerð-
ur Bjarnadóttir, sem var helsta
framboðsvon BJ í næstu þingkosn-
ingum, er búin að vísa BJ á bug og
hefur sagt skilið við flokkinn fyrir
fullt og allt. Kristófer Már Krist-
insson mun hins vegar halda áfram
sem þingmaður meðan Guðmund-
ur Einarsson er á þingi Sameinuðu
þjóðanna. Hvort Kristófer Már fylg-
ir síðan Valgerði er enn óvíst...
SmáMál er gómsæt og hressandí
nýjung frá MS sem þú getur notíð við
stærstu sem mínnstu tækífærí.
Hvort sem þú vilt SmáMál með
jarðarberjabragðí eða vaníllubragð;
þá er það ekkert stórmál.
SmáMál
-Ijúffengasta málið í dag.
nms-
50ARA
>
c
w
x*
o>