Helgarpósturinn - 31.10.1985, Page 14
HILMAR JONSSON STORTEMPLARI
■■■■■■■■■■■■■■■ii^^■■■■■l^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■^■■■■■■■■ eftir Guðmund Arna Smart ■
Bæjarbókavörður í Keflavík í meira en aldarfjórðung, en fæddur og upp-
alinn fyrir austan, í Jökulsárhlíð á Héraði. Hefur víða látið til sín taka á Suð-
urnesjum; komið nálægt byggðasafninu, æskulýðsmálum, stjórnmálum,
leiklistarmálum og með þessu öllu skrifað einar sjö bækur og eitt leikrit,
og er einmitt um þessar mundir að setja saman sitt annað leikrit. Og síðast
en ekki síst hafa bindindismálin verið ofarlega á baugi; barnastúkan, stór-
stúkan og barátta gegn brennivíninu almennt.
Hilmar Jónsson er æðsti embættismaður Stórstúku íslands. Hann er stór-
templar. Og hann fyrirhugar stofnun kristilegs stjórnmálaflokks.
Það er þannig meö Hilmar Jónsson, aö hvar
sem hann kemur nærri, þá er það venjulegast
ekki með neinu hálfkáki. Allt eða ekkert. Ekki
þar fyrir að maðurinn fari mikinn og sé frekur
til orðs og æðis. Langt í frá, því Hilmar Jónsson
er einkar rólegur í fasi. En leynir á sér. Menn
átta sig fljótlega á hinni innri seiglu. Hann kemst
þótt hægt fari.
Gott dæmi um þetta er sagan af því, þegar
Hilmar Jónsson gekk í Leikfélag Keflavíkur fyrir
tæpum 10 árum. Þá var verið að endurreisa fé-
lagið eftir að það hafði legið í dvala um skeið. En
Hilmar varð engin varaskeifa.
,,Eg lenti í því strax þarna fyrsta veturinn að
leika. Ég gerði mér nú ekki grein fyrir því fyrr
en búið var að lesa og velja, að hlutverkið sem
sett var á mig var aðalhlutverk og ég var inni á
senunni svo til allan tímann," segir Hilmar, þeg-
ar hann rifjar upp fyrstu kynni sín af leiklistar-
gyðjunni. „Þetta var leikritið ,,Er á meðan er“
og hafði verið leikið í Þjóðleikhúsinu, en ekki
gengið afskaplega vel þar. En við vorum með 10
sýningar á þessu stykki og hættum fyrir fullu
húsi.
Þetta er dálítið sérkennilegt verk. Þessi ftiaður
sem ég lék, hann var við aldur, afi. Dálítið skrýt-
inn kannski, eins og sumir segja að ég sé. Ég hef
því ef til vill ekki þurft að taka svo mjög mikið
á — ekki þurft að hafa hamskipti. En ég hafði
gaman af þessu. Og ég held að allir hafi gott a’f
því að leika. Mér hafði aldrei dottið það í hug að
ég ætti eftir að leika á sviði."
— Af hverju hefur fólk goll af þuí ad leika?
„Ekki síst upp á tjáninguna að gera. Ég hef séð
fólk alveg gerbreytast, hvað framgöngu þess og
lífsstíl snertir, eftir að það hefur komið og leikið.
Áður var það innibyrgt og átti erfitt með að tjá
sig, en eftir að það komst yfir sviðsskrekkinn og
hafði leikið, þá var eins og það blómstraði.
Þetta er það sem vantar í skólakerfinu. Ævar
Kvaran á mikið hrós skilið fyrir hvað hann hefur
gagnrýnt skólakerfið fyrir skort á kennslu í
framsögn. Og kannski eru einu aðilarnir sem
eitthvað hafa gert í þessu við í barnastúkunni.
Við erum alltaf að reyna að láta krakkana koma
fram með eigið efni og túlka það eftir því sem
þeim býr í brjósti. En skólinn er með afskaplega
litla tilsögn í þessu og það er ákaflega slæmt.“
— En erum uiö ekki öll ad leika daginn út og
inn — huert okkar í sínu afmarkaöa hlutverki í
lífinu?
„Jú, vafalaust er það. Og það er allt i lagi. Bara
að menn leiki svona hæfilega mikið — ofleiki
ekki.“
TRÚBOÐ
— Hvert er þitt hlutverk íþuí stóra stykki?
„Þetta er erfið spurning. Ég veit það ekki, en
ég hef viljað vera svona mátulega hamingju-
samur maður í lífinu og kannski stundum viljað
þröngva skoðunum upp á samferðafólk mitt.
Hef álitið að ég hefði eitthvað fram að færa, sem
hefði einhvern tilgang fyrir mig og ekki síður
aðra. Þessi atriði hafa sennilega verið aðalþung-
inn í mínu hlutverki í lífinu.
Ég hef stundum sagt að ég væri í trúboðsferð-
um, þegar ég hef verið að fara fyrir barnastúk-
una um landið. Það má til sanns vegar færa. Við
erum náttúrlega angi af trúboði."
— Tókstu frá hlutverk handa Hilmari Jóns-
syni, þegar þú skrifaöir leikrit þitt á sínum tíma
— var frátekiö hlutuerk fyrir sjálfan þig?
„Nei, ekki var það nú. Ég skrifaði leikrit um
herstöðina á Keflavíkurflugvelli. Það hét „Útkall
í klúbbinn". Marktækir menn sögðu það nokkuð
gott. Ég fékk hins vegar ákaflega slæma gagn-
rýni í Morgunblaðinu. Það fannst mér nú allt í
lagi. Að mínum dómi er þetta leikrit eitt af fáum
verkum, sem hafa verið skrifuð um Keflavíkur-
flugvöll, sem fjalla um raunverulega atburði þar
og draga upp raunsanna mynd af ástandinu. Mér
finnst að yfirleitt hafi verið dregin upp skekkt og
draumkennd mynd af Vellinum. Skriffinnar á
vinstri kantinum, sem hafa verið að skrifa um
þetta, hafa tekið þetta vettlingatökum. Eins og
t.d. hið ágæta verk Jóhannesar úr Kötlum, Sól-
eyjarkvæði. Þar er rómantískt skáld að skrifa
um þetta í rómantískum búningi nítjándu aldar.
Það gengur ekki. Eini maðurinn sem mér finnst
hafa skrifað marktækt um Vallarmálin, er Björn
Bjarman. Sumar smásögur hans eru nokkuð
góðar að þessu leytinu til, enda var Björn Bjarm-
an lengi á Keflavíkurflugvelli og þekkir því lífið
þar töluvert.
Ég kom sjálfur til Keflavíkur eftir stríðsárin og
þekkti því ekki aðdraganda þessara mála, upp-
hafið. Hinsvegar vann ég smátíma á Keflavíkur-
flugvelli sem sópari og síðan kynntist ég tölu-
vert þessu lifi, sem nábýli Keflavíkur og Vallar-
ins skapar. Ég held að það séu talsverð meðmæli
með þessu verki mínu, að maður sem þarna er
uppalinn í Keflavík og þekkti náttúrulega lífið
frá hernámsárunum hafði áhuga fyrir þessu
verki og setti það upp og leikstýrði. Hér er ég að
tala um Gunnar Eyjólfsson.
Það var hvorki ætlun mín eða Gunnars leik-
stjóra að ég léki í þessu verki. En mál æxluðust
þó þannig að hlutverk hershöfðingja í stöðinni
kom í minn hlut. Það var einn af forystumönn-
um Alþýðubandalagsins þarna á Suðurnesjum,
Gylfi Guðmundsson núverandi skólastjóri í
Njarðvíkum, sem átti að leika þetta hlutverk;
var alveg kjörinn í það. Hefði áreiðanlega gert
þetta miklu betur en ég, en hann lenti í ein-
hverju framboðsveseni þarna á þessum tíma og
tók það fram yfir hlutverk hershöfðingjans. Því
miður.
Ég neita því ekki að ég dreg upp dökka mynd
af nábýlinu við varnarliðið þarna suðurfrá. Fjár-
málasukkið sem hefur fylgt Vellinum er gífur-
legt. Ég er að vísu, að því leytinu, herstöðvar-
sinni að á meðan ástand mála i heiminum er
eins og það er, þá er nauðsynlegt að hafa her, en
er aftur á móti algjörlega mótfallinn því að
blanda þessu saman við okkar fjármál. Af því
hefur alltof mikið verið gert. Spillingin hefur
verið geysilega mikil og þögnin í kringum þetta
verið hreint æpandi. Það hefur nánast ekki mátt
tala um þessa hluti. Ég veit að fjármálaspillingin
á Suðurnesjum sem hefur orðið til vegna sam-
skiptanna við Völlinn fer mjög í taugarnar á
mörgum, jafnt hægri mönnum sem vinstri.
Svo er hitt, að siðspillingin á ýmsum sviðum,
sem þessu nábýli fylgir, er mér ósköp ógeðfelld.
Það hefur verið hægt að fá brennivín ofan af
Velli mjög ódýrt og landinn hefur legið þarna í
klúbbum. Og svo er það þessi undirlægjuháttur
margra Islendinga í garð Kanans. Það er á marg-
an hátt hægt að þekkja þá Suðurnesjamenn úr,
sem vinna uppi á Velli. Þeir einhvern veginn
fjarlægjast atvinnulíf og pólitískt líf. Ég sagði
það einu sinni við pólitískan samherja, að ég
væri prinsispíelt á móti mönnum sem ynnu á
Keflavíkurflugvelli vegna þess að þeir voru svo
fjarlægir okkur í hugsunarhætti og öllum lífs-
máta.“
„GOTT FÓLK"
— Þú fœrö sennilegc engar þakkir frá mörg-
um sueitungum þínum fyrir þessi orö. Er þér al-
veg sama — segir þú allt sem þér liggur á hjarta?
„Ég hef yfirleitt ekki verið dulur á skoðanir
mínar. Og mér hefur því miður fundist að margir
mínir skoðanabræður í bindindismálum fari of
mikið með veggjum og láti ekki nægilega vel til
sín heyra. Það er eins og sumir séu hreinlega
hræddir við að hafa þær skoðanir i áfengismál-
um, sem við stúkumenn erum að boða. Eg kalla
þetta aumingjahátt.
Hitt er svo annað mál, að viðtökur þær sem
við bindindismenn fáum frá ráðamönnum eru
oft ekki upp á marga fiska. Ég sagði áðan, að af
mörgum væri ég stundum álitinn skrýtinn. Það
fer svo sem ekkert í taugarnar á mér. Aftur á
móti er það út í hött, þegar ráðamenn reyna að
afgreiða okkur bindindismenn þannig, að við
séum einhver sértrúarsöfnuður. Björn Friðfinns-
son, formaður Samtaka íslenskra sveitarfélaga
sagði oftar en einu sinni í fjölmiðlum, þegar
áfengisvarnanefndirnar og vald þeirra var
nokkuð umrætt fyrir skömmu, að það væri ekki
ástæða fyrir sveitarstjórnarmenn að taka of
mikið mark á áfengisvarnafólki, vegna þess að
þetta væri „gott fólk". Ég veit ekki hvað hann
átti við með „góðu fólki“, en var hann ekki
þarna að skilgreina bindindisfólk sem skrýtið
fólk, sem ekki væri ástæða til að taka mark á?
— Það held ég.“
— Hefuröu aldrei smakkaö brennivín,
Hilmar?
— Jú, jú, ég smakkaði brennivín. Ég var aldrei
neinn ofdrykkjumaður, drakk lítið, það er þó
ekki óalgengt að kona mín sé spurð, hvort ég
hafi átt við áfengisvandamál að stríða áður fyrr.
Það er langt síðan ég smakkaði víndropa síð-
ast. Ég gekk í stúku 1958.
Það er dálítið Skondin saga af því, þegar ég
hætti alveg að smakka það. Ég hætti nefnilega
að drekka í Frakklandi — í því mikla vínlandi.
Það var kannski helst af heilbrigðisástæðum,
sem ég tók í upphafi þá ákvörðun að steinhætta
því að setja áfengi inn fyrir mínar varir. Ég var
að drepast í maga á þessum árum og einn skóla-
bróðir minn og vinur, Þorvarður Helgason
kennari og doktor í leikhúsfræðum, ráðlagði
mér að stúdera bækur Áre Verlands og verða
náttúrulækningamaður. Ég myndi laga á mér
magann með því. í Frakklandi byrjaði ég á því
HP-VIÐTALI
að lifa eins og Frakki og drakk rauðvín með öll-
um mat, en magakvalirnar héldu áfram. Ég fór
því að kíkja í þessar bækur og hagaði mér alveg
eins og Verland sagði. Fastaði því í heilar þrjár
vikur og hljóp einn hring í kringum Luxem-
borgargarðinn á degi hverjum. Ég held að allir
í íslensku nýlendunni þarna ytra hafi álitið mig
algjörlega snælduvitlausan. En þetta heppnað-
ist. Ég lagaðist í maganum og kom frelsaður
náttúrulækningamaður til baka. Og bindindis-
maður.
Þegar ég kom svo aftur i mína heimabyggð, þá
komst ég í kynni við skólamenn eins og Hall-
grím Th. Björnsson, sem var ritstjóri tímaritsins
Faxa, og hann hvatti mig úr því ég drykki ekki,
að koma í raðir þeirra stúkumanna.
Og það varð úr að ég gekk í stúku.“
— Fannstu fljótlega fyrir þeirri þörf aö boöa
bindindissemi?
,,Já, víst er það eitt að vera bindindissamur og
annað að vera líka trúboði. En einhvern veginn
þróuðust mál þannig að ég varð fljótlega leið-
andi maður í stúkunni og gerðist talsvert róttæk-
ur á þessum sviðum.“
FELLDI LÖGREGLUSTJÓRANN
,,Ég býst t.d. við að fólk muni það sumt hvert,
að ég felldi þarna lögreglustjórann úr embætti í
Keflavík, vegna þess að hann hafði ekki staðið
sig í stykkinu við sín embættisverk. Hann hafði
ekki látið fullnægja dómum, sérstaklega í
brennivínsmálum. Það voru skiptar skoðanir
um mínar baráttuaðferðir í þessum efnum, en
við höfðum farið bónarveginn til að byrja með
og það ekki dugað, þannig að mitt mat var það,
að ekkert dygði minna en stálin stinn. Þetta var
geysiharður slagur, en lögreglustjórinn Alfreð
Gíslason hrökklaðist úr embætti.
Hann fékk svo stöðuna aftur eftir skringilega
atburðarás og ég segi það fullum fetum, að tíma-
bilið eftir að Albert kom aftur og þar til hann dó,
var staðið mjög vel að þessum málum. Við unn-
um vel saman. Þetta var besti tíminn í lögreglu-
málum okkar í Keflavík."
— Segir þetta, aö illt uerði meö illu út aö reka
— þaö verði að láta hart mœta höröu í barátt-
unni gegn Bakkusi?
„Já, það er mín skoðun. Og ekki síst þurfa lög-
reglu- og dómsyfirvöld að sýna hörku í þessum
málaflokki. Það verður að berjast með hörku
gegn sprútti og ekki síst eiturlyfjum. Og í þeim
efnum er ástandið í minni heimabyggð ekki állt-
of björgulegt. Það er nefnilega sog af brennivíni
og eiturlyfjum út af Vellinum. Ég hef vissu fyrir
því.
En það eru margir sem berjast gegn þessu
með oddi og egg. Ég nefni sem dæmi Kristján
Pétursson í Tollinum uppi á Velli. Hann er sko
aldeilis betri en enginn og ástandið væri senni-
lega óviðunandi ef þar væri einhver drusla í
hans stað.“
— Fœröu aldrei á tilfinninguna, Hilmar, aö þú
sért aö berjast viö vindmyllur — áfengi veröi
áfrum til og notaö af þorra fólks?
„Ég held að þetta sé ekki vindmylluslagur. Því
við skulum ekki gleyma því að ástandið hér á
landi er þrátt fyrir allt furðu gott miðað við
ófremdarástandið víða í öðrum löndum."
— Hvenœr ueröur ástandiö gott, viöunandi,
aö þínu mati og ykkar stúkumanna?
„Það þarf að minnka neysluna mjög mikið."
ÁFENGISBANN
— Hversu mikiö? Viljiö þiö þurrka þjóöina
upp?