Helgarpósturinn - 12.12.1985, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 12.12.1985, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST Skáldskapargyðjan hefur verið talsvert á ferðinni að undanförnu vegna Hafskips/Útvegsbankamáls- ins. Þessi vísa er um Albert Gudmundsson, fyrrverandi for- mann stjórnar Hafskips og for- mann bankaráðs Útvegsbankans: Allir lýsa nú á hann frat, allt jafnt vondir, góðir, báðum megin við borðið sat, bankans tæmdust sjóðir. Og önnur staka um „Engilbert" hljóðar svo: Hann hefur fengið afslátt af öllu sem hann greiddi Haf- skip há eff er gnægð af gaf gæðapilti — en bankinn svaf. í þessari vísu er verið að fjalla um þá staðreynd, að áhrifamiklir hluthafar í Hafskipi fengu árlegan afslátt hjá félaginu í hverjum desembermánuði og munu það oftast hafa verið feitir tékkar. Annars mun Hafskipsmálið hafa haft slæm áhrif á skaplyndi iðnaðarráðherra og birtist það t.d. um daginn á Hótel Borg, þegar Albert strunsaði í burtu frá borði í salnum vegna þess, að við það borð sat maður, sem Albert telur, að hafi stundað rógsherferð gegn sér. Á eftir honum fylgdu nokkrir smákaupmenn. Þá varð þessi vísa til: Eyðilögðu öll hans heit yfirlæti og hroki. Svo er hann eins og alþjóð veit einskær fýlupoki. Sá, sem Albert líkaði svona illa við er Bogi Ingimarsson lögfræð- ingur í Útvegsbankanum, sem við vitum ekki til að hafi talað neitt á bak Albert. Miklu fremur leyft honum að heyra skoðanir sínar hispurslaust. Eftir að Albert hafði strunsað á braut varð til nýtt fyrir- tæki við borðið. Það nefnist íslenska fýlupokafélagið og var Albert Guðmundsson strax gerður að stjórnarformanni. Já, það má segja með sanni, að þetta séu erfiðir tímar fyrir suma Hafskips- menn, einkum þegar pólitísk framtíð manna er í veði... Ósamkomulag tveggja helstu forystumanna Alþýðubandalags- ins, annars vegar á vettvangi stjórnmálanna og hins vegar á verkalýðssviðinu, þeirra Svavars Gestssonar formanns og Ásmundar Stefánssonar forseta ASÍ, var eitt skýrasta einkenni upplausnarinnar innan flokksins. Um tíma var ágreiningurinn orðinn að persónulegri óvild sem m.a. birtist í því að þeir Svavar og Ásmundur töluðust helst ekki við. En nú er hafið nýtt tilhugalíf milli þessara tveggja dánumanna. Til marks um það er árshátíð Alþýðu- bandalagsins í Bolungarvík á dögunum. Þangað mætti að sjálf- sögðu leiðtoginn Svavar, en það þótti hins vegar tíðindum sæta að Ásmundur Stefánsson gerði sér sérstaka ferð af fundi AJþýðu- sambands Vestfjarða á ísafirði til að taka þátt í hátíðarhöldunum með Svavari. Lék Ásmundur á als oddi og komst ekki hnífurinn á milli þeirra Svavars. ASÍ-forsetinn dansaði manna mest á ballinu, þótt ekki hafi hann tjúttað við Svavar formann. Þykir ljóst að nú er hafinn nýr pólitískur vangadans hjá fjandvinunum tveimur... Sjónvarpsáhorfendur hafa tekið eftir því að fréttadeild sjónvarps hefur tekið nokkurn fjörkipp, þótt ekki séu allir á einu máli um ágæti kippsins. Hvað sem líður breyttum vinnubrögðum á frétta- stofunni er ljóst að hún hefur meiri fjárráð og mannafla en áður. Menn sem þekkja til í sjónvarpinu halda því hins vegar fram að hin auknu umsvif fréttastofunnar muni áður en yfir lýkur birtast í bak- slagi fyrir aðra innlenda dagskrár- gerð. Því er haldið fram að Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri sé að nota sömu fjármuni og Hrafn Gunnlaugsson yfirmaður dag- skrárgerðar átti að hafa til umráða þegar hann kemur til starfa um áramótin — þetta sé sem sagt sameiginlegt fjármagn dagskrár- deildanna. Bíða menn nú spenntir eða jafnvel örlítið kvíðnir eftir því hvað gerist þegar Hrafnarnir tveir slást um þá aura sem eftir eru til dagskrárgerðar á næsta ári... Frásögn Helgarpóstsins af söng Hafskipsmanna til sjálfssefjunar, Áfram Kristsmenn krossmenn, undir kórstjórn Björgólfs Gud- mundssonar forstjóra vakti geysi- lega athygli og kátínu um síðustu helgi, þótt vitaskuld sé um grafal- varlegt mál að ræða. Menn sem eru kunnáttusamir í mannkyns- sögu voru snöggir að koma auga á hliðstæður við þessa makalausu uppákomu. Það var þegar Nixon Bandaríkjaforseti var að sökkva á kaf í Watergatefenið. Þá kallaði hann til sín Henry Kissinger utan- ríkisráðherra og hélt sá síðar- nefndi að til sín yrði leitað um hagnýtar ráðstafanir til að leysa þann mikla vanda sem forseta- embættið var komið í. En nei, — Nixon bað Kissinger um að biðja með sér og lögðust þeir á bæn og vísuðu málinu til upphæða. Eða eins og haft var eftir Hafskips- forstjóranum í síðasta HP — guð- leg forsjón kemur ævinlega til hjálpar... Ertu farinn að dansa trylltan íhaldsdans? Ingvi Hrafn Jónsson „Ég vona að Guð gefi að svo sé ekki!" — Finnst þér þá bókun útvarpsráðs óréttmæt? „Ja, ég er henni ekki sammála. Auðvitað finnst mér sjálfsagt að hlusta á og taka við slíkri gagnrýni frá lýðræðislega kjörnu útvarpsráði. Það gegnir mjög mikilvægu aðhaldshlutverki innan stofnunarinnar. Vonandi verða þessi viðskipti mín og ráðsins til þess að sanna það að fall er fararheill. Mér fannst hins vegar ekki ástæða til þess að biðja forráða- menn Arnarflugs afsökunar vegna umrædds fréttaflutnings og ég vísa því á bug að um „fádæma vinnubrögð" hafi verið að ræða í þessu tilviki. Nú á síðustu dögum er líka að koma í Ijós, að við höfðum rétt fyrir okkur hvað varðar fjárhagsstöðu Arnar- flugs." — Þessi viðbrögð útvarpsráðs hafa ekki sett ykkur út af laginu? „Við, sem á fréttastofunni vinnum, erum auðvitað ekkert full- komin, en við reynum alltaf að vinna vel og samviskusamlega. Okkur er síður en svd kappsmál að svipta menn ærunni, en við getum ekki heldur setið undir óheiðarleika af neinu tagi." — Mun þessi reynsla verða til þess að þið hugsið ykk- ur tvisvar um í f ramtíðinni? „Það erum við náttúrulega alltaf að gera, því við gerum okk- ur grein fyrir því hve mikil ábyrgð fylgir því að vinna við jafn mikilvægan miðil og sjónvarpið er. Á fréttastofunni er unnið undir mikilli pressu og þó gaman sé að fá hrós, þá viljum við líka heyra þegar miður tekst til." — Finnst þér útvarpsráð eiga rétt á sér í núverandi mynd? „Mér finnst að útvarpsráð, sem tilnefnt er af lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum og vinnur af heiðarleika, eigi fullkom- lega rétt á sér. Það á að hafa með höndum eftirlit og hafa góða yfirsýn yfir það sem fram fer innan stofnunarinnar, og það á að geta „tekið menn á beinið" ef svo ber undir. Hins vegar finnst mér ráðið ekki eiga að hafa með ákvörðun dagskrár að gera, nema þá I undantekningartilvikum þegar um mjög umdeild atriði er að ræða. Eftirlit og aðhald á að mínu mati að vera meginhlutverk útvarpsráðs." — Hve náið fylgist þú með vinnslu fréttanna? „Ég reyni að hafa fingurinn á púlsinum frá því fyrst á morgn- ana og þar til fréttirnar eru sendar út. Helst vildi ég skoða öll viðtöl og fréttir fyrir útsendingu, en það er auðvitað ekki alltaf hægt að koma því við. Fréttastofan er líka sem betur fer alveg einstaklega vel mönnuð og ég treysti mínu fólki fullkomlega. Ef fréttamaður er t.d. sannfærður um að hægt sé að treysta þeim heimildum, sem hann byggir á, færi ég fremur í fangelsi en að Ijóstra því upp hvaðan upplýsingarnar voru fengnar. Þetta tjáði ég útvarpsstjóra og útvarpsráði á þessum margumrædda fundi." — Er hægt að sýna fullkomið hlutleysi í fréttaflutn- ingi? „Það er auðvitað mannleg tilhneiging að fara mýkri höndum um það, sem er manni hjartans mál. Hins vegar er það einkenni góðs fréttamanns að sýna jafnvægi og öryggi I fréttaflutningi, þegar litið er til langs tíma." Nýlega var samþykkt bókun í útvarpsráði, þar sem fréttastofa sjónvarps var vítt fyrir „fádæma vinnubrögð" í fréttaflutningi af fjárhagsvanda Arnarflugs. Skömmu áður höfðu farið fram umræður á sama vettvangi um nokkur fréttaviðtöl við frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins þegar kosningaslagurinn stóð sem hæst. Þótti sumum fulltrúum ráðsins þessi viðtöl nálgast það að vera innlegg í kosningabaráttuna. Þvl slógum við á þráðinn til Ingva Hrafns Jónssonar, hins nýja fréttastjóra sjónvarps. UÓSMYND JIM SMART HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.