Helgarpósturinn - 12.12.1985, Page 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea J. Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471)
Afgreiðsla:
Berglind Björk Jónasdóttir
Ritstjórn og augiýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Dagur í þinginu
Þingumræðurnar sem fram
fóru sl. þriðjudag utan dagskrár
í sameinuðu þingi um málefni
Hafskips og Útvegsbankans,
voru um margt forkostulegar.
Skeleggasti gagnrýnandi á
mesta gjaldþrotamál þjóðarinn-
ar er nú orðinn Ólafur Ragnar
Grímsson. Eignaryfirtaka Al-
þýðubandalagsins og Þjóðvilj-
ans í Hafskipsmálinu er á
margan hátt skondin. Sannleik-
urinn er nefnilega sá, að stærsti
hluti skýringarinnar á því hvern-
ig Hafskipshneykslið gat orðið
að veruleika, felst í hinum póli-
tísku forsendum sem tryggja
fyrirgreiðslur og aðhald hjá rík-
isbönkunum. Þótt árásir Ólafs
Ragnars í þingsölum séu rétt-
mætar, ber ekki að gleyma því,
að í bankaráði Útvegsbankans
sat Garðar Sigurðsson, fulltrúi
Alþýðubandalagsins og hvorki
æmti né skræmti meðan fjár-
magnið lak úr bankanum í
botnlausa hít Hafskips. Og því
ber heldur ekki að gleyma, að
það var m.a. Ólafur Ragnar
Grímsson auk annarra fulltrúa
þáverandi stjórnarflokka, þ.e.
Alþýðubandalags og Fram-
sóknarflokks auk hluta Sjálf-
stæðisflokks, sem þrábað Al-
bert Guðmundsson að taka að
sér formennsku bankaráðs Út-
vegsbankans. En það er ekki
aðeins Ólafur Ragnar Grímsson
sem nú vill slá sig til riddara á
Hafskipshneykslinu. Þjóðvilj-
inn reynir ennfremur á brosleg-
an hátt að gera sig að þeim fjöl-
miðli sem upplýsti misfellurnar
í rekstri Hafskips. En það að
brengla söguna er nú einu sinni
hluti af menningararfi Alþýðu-
bandalagsins.
Matthías Bjarnason við-
skiptaráðherra á sérstaka orðu
skilið fyrir að varpa allri sök Haf-
skipsmálsins og annarra
hneykslismála úr viðskipta-
heiminum á fjölmiðla. Slík
ræða myndi eflaust fleyta
Matthíasi inn í miðstjórn
kommúnistaflokksins ef hann
væri sovéskur pólítíkus. En
Matthías er nú einu sinni ís-
lendingur og þar að auki sjálf-
stæðismaður og því hljóta orð
hans að vekja furðu allra lands-
manna. Að leyfa sér að þylja
upp helstu hneykslismál við-
skiptaheimsins á þessu hausti
og vetri og skella síðan skuld-
inni á „skipulagðan rógburð í
fjölmiðlum" og klykkja út með
því að biðja menn að minnast
Geirfinnsmálsins, hlýtur að telj-
ast lægsta þrep þingmennsku í
lýðræðisríki. Og það eitt að for-
sætisráðherra tók undir þessi
orð Matthíasar, er alvarleg að-
vörun til almennings hvernig
þingið og stjórnarforystan
höndlar mál sem snúa beint að
stjórnarskrá landsins.
S
þ
Wr að hefur vakið athygli
margra þingglöggra manna, að stór-
skotaárás Olafs Ragnars Gríms-
sonar á Albert Guðmundsson,
iðnaðarráðherra bæði í sjónvarpi og
á Alþingi komi einmitt upp þegar
Ólafur Ragnar hitar þingsæti
Guðmundar J. Guðmundssonar.
Gvendur jaki hefur nefnilega verið á
þingi Sameinuðu þjóðanna og
Ólafur Ragnar varaþingmaður tekið
sæti hans á meðan. Telja margir að
þarna hafi Alþýðubandalagið verið
heppið, því seint myndi Guðmundur
J. hafa gagnrýnt vin sinn og vildar-
mann, Albert Guðmundsson. Er
skemmst að minnast aukafjárveit*
ingar Alberts til Verkamannasam-
bandsins sem hristi verkalýðssam-
tök og önnur launamannasamtðk
landsins svo grunnmúrar skulfu. Þá
sitja þeir Albert og Guðmundur J.
saman í Hafnarstjórn og þar að auki
eru þeir mjög nánir vinir og hafa
nánast daglegt samband. Það þykir
einnig athyglisvert að Guðmundur
J. er nú kominn heim frá Sameinuðu
þjóðunum en Ólafur Ragnar fékk að
íeika lausum hala í þingsölum engu
að síður. Spurning er því þessi: Var
Guðmundur of vankaður eftir ferð-
ina til að taka sæti sitt aftur á þingi
eða beið Alþýðubandalagsforystan
með að sleppa Jakanum inn á góif
Alþingis þangað til Ólafur Ragn-
ar hefði lokið sér af og framkvæmt
verk flokksins sem Guðmundur J.
hefði ekki getað unnið vegna vina-
og hagsmunatengsla...
ATHUGASEMD
Blaðamaður HP fjallaði í síðasta
tölublaði nokkuð um smákökusam-
keppni morgunþáttar rásar tvö í
liðnum Útvarpi. Til að forðast allan
misskilning situr hvorki starfsfólk
né dagskrárgerðarmenn í Efstaleit-
inu þessa dagana í kaffistofunni og
maular smákökur frá hlustendum.
Keppnin tengist á engan hátt starfs-
fólki rásar tvö, nema hvað tækni-
maður stöðvarinnar, Georg
Magnússon, hefur af Ijúfmennsku
sinni fallist á að sitja í dómnefnd
hennar. Hinir tveir sem tengjast
þessari umræddu smákökukeppni
eru Asgeir Tómasson og Páll Þor-
steinsson. Hvorugur þeirra er starfs-
maður rásar tvö, heldur eru þeir að-
eins lausráðnir dagskrárgerðar-
menn.
Að öðru leyti var grein blaða-
manns HP í góðu lagi.
Asgeir Tómasson,
í fél. lausrádinna dagskrárg.manna
LAUSNÁ
SKÁKÞRAUT
33. Eftir 1. Re5! er svartur í kostu-
legri leikþröng. Hann á um 18 leiki
að velja — en hver og einn þeirra
leiðir til máts í næsta leik.
34. Sé skoðað hvað svartur gæti
gert ef hann ætti leik, kemur í Ijós
að það er ekki margt: 1. -Bxg6 2.
Hh8 mát (biskupinn er leppurl), 1.
-gh4 (eða g4), 2. Bf4, 1. -f4 2.
Rg4, 1. -Rh5 2. Rxf5.
1. -Re6 veltir þessari spilaborg og
veitir þá bendingu sem dugir: 1.
Hf6 og mátar í næsta leik hvað
sem svartur gerir.
wvi
SCHIMMEl:
INTERNATIONAL
Vanti ykkur falleg og
vönduö Ijós ó heimili eöa
gler á lampa leitiö þá til
okkar. Fengum nýja
sendingu af handgerðum
„Tiffany” Ijósum
MOITÓ
Lampar&glerhf
Suöurgata 3, 101 Reykjavík. Pósthólf 541, 121 Reykjavík.
Sími 91-21830 Telex: Lampar
REYRHÚSGÖGN
FRÁSPÁNI NÝKOMIN
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sími 10600
HELGARPÓSTURINN