Helgarpósturinn - 12.12.1985, Page 15
1977. Um svipað leyti var Pétur Þor-
steinsson, hinn seljandinn, að flytj-
ast búferlum frá Dallandi til Reykja-
víkur. Áður mun nágranni hans, Ein-
ar Tryggvason í Miðdal, hafa haft
samband við hann og þrýst á um
það að Pétur veitti sér námaréttind-
in í Búrfellslandinu. Pétur lét undan,
lá reyndar sjúkur uppi á spítala þeg-
ar hann reit undir leyfisveitinguna,
en þetta var rétt eftir að Rikharður
andaðist. Bú þeirra — Miðland 2 —
var þá ennþá óskipt og hafði Pétur
þannig ekkert umboð til þess að
veita Einari leyfið.
Þáttur hins opin-
bera
Að því er best verður séð, er réttur
Almenna námufélagsins því enginn
til rannsókna eða námavinnslu í
Búrfellslandiriíi eða Miðlandi 2.
Samt hefur félagið staðið að rann-
sóknunum í að minnsta kosti tvö ár
án þess svo lítið sem láta eigendur
landsins vita, hvað þá að biðja þá
leyfis. Jafnframt hefur HP heimildir
fyrir því að Gísli Friðjónsson hafi
haft samband við gatnamálayfir-
völd í Reykjavík oftar en einu sinni
og talið sér fært að selja borginni
efni úr landi Búrfells og lagt fram
leyfisheimildina því til staðfestingar.
Rannsóknirnar í landi Búrfells og
Miðdals 2, hafa verið á vegum jarð-
fræðinga Rannsóknarstofnunar
byggingaridnaöarins að Keldna-
holti, lengst af undir stjórn Hregg-
vids Nordal jarðfræðings. Rann-
sóknirnar fóru þannig fram að bæði
voru tekin yfirborðssýni og sýni
með kjarnaborun. Alnáma borgaði
og sýnist á öllu að þessar rannsóknir
hafi kostað firmað hátt í hlutafé
þess. Hér var aðeins um forathugun
að ræða, en ef hún reyndist jákvæð,
var áætlað að fara út í milljóna
króna rannsóknir til að komast til
botns í umfangi steintegundarinnar
á staðnum.
Niðurstöður forathugunarinnar
lágu fyrir í vor og voru frekar já-
kvæðar, sem kom fyrir ekki, þar eð
innanlandsmarkaðurinn var hrun-
inn af framangreindum ástæðum.
Hrefna Bjarnadóttir frétti af þessum
rannsóknum í janúar í ár. Hún hafði
þá þegar samband við jarðfræðinga
Rannsóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins. Hreggviður varð fyrir
svörum og kvaðst ekkert vilja gefa
henni upp um eðli rannsóknanna á
landi hennar, eða þá hvað væri þar
svo dýrmætt að það væri rannsókn-
arvirði. Það var síðan eftir króka-
leiðum að HP komst að því núna í
vikunni, að hér muni vera um sér-
staklega harða tegund af graníti að
ræða sem er afskaplega fágæt í
landinu. Á jarðfræðingamáli er jafn-
framt sagt um hana: „blöðrulítil og
þéttvaxin".
Ekki efni á lög-
banni!
Hrefna Bjarnadóttir hafði fullan
hug á því að reyna að stöðva þessar
rannsóknir á landi sínu og Sigfúsar
og hugsanlega námavinnslu í kjöl-
far þeirra. í því sambandi hafði hún
meðal annars samband við Einar
Ingimundarson sýslumann í Hafnar-
firði en lögsaga hans nær yfir Mos-
fellssveit. Hrefna segir HP að Einar
hafi bent sér pent á þá skoðun sína
að þar sem hún hefði örugglega
ekki efni á lögbanni fyrir það fyrsta,
fyndist sér réttast að hún léti málið
kyrrt liggja. Ef ekki, þá væri á það
að benda, að samþykki Sigfúsar
þyrfti líka fyrir lögbanninu af því að
Búrfellsjörðin er í óskiptri sameign
þeirra. Um þetta leyti var Sigfús hins
vegar á ferðalagi um Kenya og var
ekki búist við honum í símasam-
band fyrr en eftir nokkrar vikur.
Um lagalegan rétt Almenna
námufélagsins til rannsókna og
hugsanlegrar námavinnslu í landi
Búrfells og Miðdals 2 í ljósi leyfis-
heimildar þeirrar sem Pétur Þor-
steinsson lét Einar Tryggvason hafa,
vildi Othar Petersen lögfræðingur
Alnámu ekkert segja. Orðrétt segir
Othar Örn: „Ég hvorki vil né má láta
nokkuð hafa eftir mér í þessu máli.
En auðvitað er það svo að alltaf má
deila um ýmisleg mannanna verk.“
Og lýkur þar með umfjöllun Helgar-
póstsins um Almenna námufélagið,
Alnámu, GMC, eða hvað menn vilja
kalla þetta athyglisverða fyrirtæki
að pósthólfi 874 í Reykjavík, íslandi.
BÖRN í BÍLUM
ÞURFA VÖRN
- sama
hve gömul eru.
HANSKAR OG TÖSKUR íÚRVALI
Teg. 6951
Kr. 2.300.-
Litir: Grátt, svart.
Hanskar
Skinn
Frá kr. 1.195.-
Litur: Svart, brúnt, beige.
Teg. 6952
Kr. 1.850.-
Litir: Grátt, svart.
PÓSTSENDUM
Teg. 6985
Kr. 2.300.-
Litur: Grátt, svart.
Hanskar
Rúskinn
Kr. 796.-
Litur: Svartur, brúnt, bíátt.
VERSLUNIN JÓJÓ AUSTURSTRÆTI8 sími 13707.
Fram a& jólum
bjóSum viS COMMODORE 64
heimilistölvuna á sérstöku jólatilboði:
A3 sjálfsögðu fylgir segulband meS í kaupunum.
ÁRMÚLA11 SlMI 81500
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK: Þór hf„ Armúla 11
HAFNARFJÖRÐUR:
KEFLAVÍK:
VESTMANNAEYJAR:
SELFOSS:
HVOLSVÖLLUR:
Bókabúð Braga vlð Hlemm
Kf. Hafnfirðlnga
Stapafell hf.
Kjarnl sf.
Radlo & Sjónvarpsstofan
Kf. Rangæinga
HÖFN:
EGILSSTAÐIR:
REYÐARFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
HÚSAVfK:
Kf. Austur-
Skaftfelllnga
Kf. Héraðsbúa
Kf. Hóraðsbúa
Stálbúðin
Bókav. Þórarins
Stefánssonar
AKUREYRI:
SAUÐÁRKRÓKUR:
BLÖNDUÓS:
ÍSAFJÖRÐUR:
BOLUNGARVfK:
BORGARNES:
AKRANES:
KEA - Hljómdeild
Kf. Skagflrðlnga
Kf. Húnvetninga
Pólllnn
Ljósvaklnn
Kf. Borgflrðlnga
Bókaskemman
HELGARPÓSTURINN 15