Helgarpósturinn - 12.12.1985, Qupperneq 31
Jóhann Helgason: „Þetta kemur ekki eftir pöntun."
/
Eg a auðveld-
ara meö aö tjá
enska texta
— segir Jóhann Helgason, sem gefiö hefur út
plötu um ástina
Hinn gamalkunni poppari, Jó-
hann Helgason, hefur nýveriö sent
frá sér hljómplötu, sem helguð er
ástinni í ýmsum myndum. A plöt-
unni, sem nefnist einfaldlega
Astin .. . eru tíu lög og textar eftir
Jóhann sjálfan, en þad uekur óneit-
anlega athygli manns ad allir text-
arnir eru á engilsaxneskri tungu.
Vid inntum Jóhann eftir ástœöunni
fyrir þessu..
„Ég á auðveldara með að tjá
enska texta en íslenska, finnst mér,
en ástæðan fyrir því að þessi lög eru
öll með erlendum texta er sú, að
þau voru öll samin á árunum 1970
til '74. Þá var þetta meiri lenska en
núna. Þetta er að minnsta kosti ekki
gert til þess að auka söiuna, því það
er staðreynd að plötur með íslensk-
um textum seljast yfirleitt betur en
hinar.
Ég prófaði að vísu að þýða text-
ana, en fannst enskan falla betur að
efni þeirra. Hins vegar á ég íslenskt
efni, sem ég hef hug á að koma á
plötu innan tiðar.“
— Er samkeppnin hörö?
„Já, ég held að það hafi sjaldan
komið út í einu jafnmargar plötur og
núna fyrir jólin. Ég gef mína hljóm-
plötu út sjálfur og það fylgja þessu
óneitanlega nokkrar áhyggjur af
fjárhagshliðinni."
— Ætlaröu aö senda inn lag
uegna þátttöku íslands I Eurovision-
keppninni?
„Ef ég dett niður á eitthvað gott
lag, þá geri ég það. Annars kemur
þetta ekki eftir pöntun.“
— Geturöu lifaö af tónlistinni,
Jóhann?
„Mér hefur tekist það svona nokk-
urn veginn frá því að við Magnús
Þór fórum að vinna saman hérna
um árið. I augnablikinu er ég hins
vegar einnig í eins konar dag-
mömmu-hlutverki, því það var
kveikt í leikskólanum, sem dóttir
min átti að fara að byrja í. Það verð-
ur sem sagt einhver bið á því að hún
komist þar að, svo ég sé um gæsluna
þar til úr rætist."
Að svo mæltu klæddi Jóhann
yngri dóttur sína í útigallann af mik-
illi fagmennsku og við þökkuðum
honum fyrir spjallið.
-JL
T AXI
\ UD CU nI / / er tengstærsta \ " t i i ILL / bifreiðastöð borg- \ /|Q Fjp áP%&% / arinnar með flesta \UÖ JJ ÍX / 7farþega bíia.
l rAX 1 Ftjót og góð afgreiðs/a
GILDIHF
Er ekki kominn tími til að halda árshátíðina,
starfsmannahófið eða tækifærisveisluna í
glæsilegum veislusal með þjónustu eins og hún
gerist best?
Reyndu Átthagasal Hóteis sögu og
þú átt í vændum ógleymanlegt kvöld þar sem
veislugestir njóta þess besta sem 1. flokks hótel
býður upp á í mat, drykk, þjónustu og umhverfi,
- fyrir ótrúlega hagstætt verð.
Eitt símtal og þú ert laus við frekari
áhyggjur af undirbúningnum, hvort sem veislan
er 20 eða 200 manna, og getur einbeitt þér að
ræðu kvöldsins!
Við sjáum um allt:
• Matur og drykkur að eigin vali, í öllum
verðflokkum.
• hjónusta faglærðra manna.
• Hljómsveit, einsöngvari, plötusnúður,
harmóníkuleikari... við útvegum allt sem
henta þykir á góðu kvöldi.
• Skemmtikraftar af öllum stærðum og
gerðum.
• Skemmtilegt kvöld í fallegu umhverfi.
Petta kostar allt minna en þig grunar
- og það sem meira er; þú þarft ekki
að greiða sérstakt leigugjald fyrir salinn!
Hafðu samband sem fyrst í síma 29900
HELGARPÓSTURINN 31