Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.02.1986, Qupperneq 4

Helgarpósturinn - 13.02.1986, Qupperneq 4
INNLEND YFIRSYN Hinar pólitísku flokksmaskínur um land allt eru þessa dagana að leggja drög að fram- boðslistum vegna sveitarstjórnakosninga í maílok. Töluverðar umræður hafa aö undan- förnu farið fram um tilhögun við samsetn- ingu lista fyrir sveitarstjórna- og þingkosning- ar og hefur mjög borið á þeirri skoðun manna að prófkjör í núverandi mynd séu að ganga sér til húðar. Ekki síst hefur þessi skoðun verið áberandi í röðum kvenna, þar sem það þykir hafa sýnt sig að karlar búa yfir meiri styrk í prófkjörsbaráttu en konur og út- koma kvenna því lök í samræmi við það. Áhyggjur kvenna af stöðu sinni í stjórn- málum eru til staðar innan allra flokka, þó svo að í kvennalistanum beinist þær vita- skuld út fyrir flokkinn, en ekki inn á við. Á fundi, sem haldinn var í gær, miðvikudag (12. febrúar) að frumkvæði Kvenréttindafélags íslands, mættu konur úr öllum stjórnmálaöfl- um og ræddu sín á milli um það hvar skórinn kreppti og hvað væri helst til ráða. Esther Guðmundsdóttir, formaður KRFÍ, lýsti þarna þeim vonbrigðum, sem konur hefðu orðið fyrir þegar Ijóst varð hve hlutur þeirra var rýr eftir prófkjör Sjálfstæðisflokks- ins í haust. Sagðist hún telja nauðsynlegt að komið yrði í veg fyrir að sú reynsla endur- tæki sig við val á lista úti á landi, en þar eru framboðsmál yfirleitt ekki eins langt komin og á höfuðborgarsvæðinu. Þessi „kvenna- fundur" var ekki síst haldinn í þeim tilgangi að stappa stálinu í konur, þvert á öll flokks- bönd, og leggja á ráðin um það hvernig best væri að tryggja jafnari dreifingu kynjanna á framboðslistum til sveitarstjórna. Virtust allar fundarkonur sammála um að ákveðin fyrir- staða væri í þjóðfélaginu gegn því að konur tækju yfir höfuð þátt í stjórnmálastarfi. Þessa fyrirstöðu töldu þær bæði að finna meðal karla og kvenna. Framsóknarflokkurinn hefur ófeiminn dustað rykið af gömlu, góðu uppstillingar- nefndinni. Áslaug Brynjólfsdóttir, sem sæti á í nefndinni, telur fullvíst að réttur kvenna verði tryggður með þessu móti, þó svo konur séu þarna í miklum minnihluta. Segir Áslaug unga framsóknarkarlmenn skilningsríka á nauðsyn þess að hlutur kvenna verði ekki fyrir borð borinn við listasamsetninguna, Kvenfólk er greinilega búið að fá sig fullsatt af hinum klassísku fram- boðslistum með einum huggulegum „fulltrúa tegundarinnar". Konur í vígahug svo nú verður spennandi að sjá hvort „nýja línan“ hefur roð við gamla karlaveldinu. Meginrökin fyrir því að höfð væri uppstill- ingarnefnd í stað prófkjörs voru þau, að með því móti væri hægt að sjá til þess að konur skipuðu örugglega fremstu sæti listans. Framsóknarkonur hafa undanfarið haft í misdulbúnum hótunum við karlana í flokkn- um, eins og kunnugt er, og látið í það skína að þær myndu ekki lengur sætta sig við jafn- rýran hlut og áður. Samkvæmt því skipulagi, sem nú er verið að reyna, gefst öllum flokks- bundnum framsóknarmönnum kostur á að senda tillögur til uppstillingarnefndar. Nefndin á síðan að hafa hliðsjón af ábending- unum við röðun á lista, þó á henni séu hins vegar engar kvaðir. Konum innan Alþýðubandalagsins finnst mörgum hjákátlegt að komið hafi verið á kvótareglu kynjanna innan flokksins — að framboðslistum undanskildum! Kristín Olafsdóttir, varaformaður og borgarstjórnar- frambjóðandi, er mjög mótfallin hugmynd- um um uppstillingarnefndir. Hún vill fyrir alla muni halda forvali í einhverri mynd, en þó með þeirri nýbreytni að tryggt sé nokkuð jafnt hlutfall kynjanna. Kristín telur það áhyggjuefni hve illa laun- uð sveitarstjórnastörf eru, þar sem það stuðli að því að útivinnandi konur telji sig ekki hafa efni á að leggja á sig þá vinnu, sem sé þessu samfara. Sjálfstæðiskonur eru gjarnan tregar til að gagnrýna eigin flokk í viðurvist fólks úr öðr- um pólitískum girðingum og því hafa óánægjuraddir þeirra eftir prófkjörið í Reykjavík vakið meiri athygli en ella. Björg Einarsdóttir hefur lengi barist hatrammri jafnréttisbaráttu innan Sjálfstæðisflokksins, með misjöfnun árangri, en hún er síður en svo ein um að tjá vonbrigði sín á síðustu vik- um. Á fyrrnefndum fundi Kvenréttindafélags- ins kom greinilega í ljós að Þórunn Gestsdótt- ir, blaðamaður og prófkjörsframbjóðandi, átti erfitt með að sætta sig við það hlutskipti að hafa hlotið þrisvar sinnum fleiri atkvæði í prófkjöri en Kristín Ólafsdóttir, en komast hvergi nærri því að ná inn í borgarstjórn. Því stærri sem flokkurinn er, þeim mun erfiðara er að rjúfa gat á þann varnarmúr, sem karlar hafa byggt um veldi sitt, sagði hinn von- svikni frambjóðandi. Þórunn viðurkenndi, að flokkssystur hennar á Norðurlöndunum hefðu náð tölu- verðum árangri með því að fá kvótareglu innleidda í flokkana, án þess að hún virtist persónulega ýkja hrifin af þeirri lausn. Henni, og eflaust fleiri sjálfstæðiskonum, finnst það ódýr lausn að fara í framboð með áherslu á kynferði fremur en einstaklinga. „Konur eiga að fara fram af styrk, en ekki reyna að vekja samúð!“ sagði Þórunn Gests- dóttir. Eins og fram hefur komið, er karl í fyrsta sæti og kona í öðru sæti á borgarstjórnarlista Alþýðuflokksins. Ekki hefur enn verið raðað í aftari sæti listans, en óskráð vinnuregla inn- an flokksins kveður á um að karlar og konur eigi alltaf að vera til skiptis í sætunum, þannig að aldrei séu tveir karlar eða tvær konur hlið við hlið. Þetta ætti því að þýða að karlmaður væri sjálfskipaður í þriðja sætið, fyrir aftan Bryndísi Schrani, þó eitthvað séu menn að láta sig dreyma um „sterka konu“ í þetta sæti. Það yrði þá væntanlega gert í von um að ná atkvæðum vonsvikinna sjálf- stæðiskvenna, sem refsa vildu sínum flokki — þó ekki væri nema í þetta eina sinn. Ekki er von á neinni grundvallarbreytingu þó Kvennaframboðið breytist í Kvennalista í borgarstjórn, enda munu margar af „gömlu“ baráttukonunum halda starfinu áfram undir nýjum formerkjum. Til dæmis mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ein frambærilegasta Kvennaframboðskonan, alls ekki hafa hugs- að sér að yfirgefa borgarmálavettvanginn. Um hugsanlegt framboð í nafni Bandalags jafnaðarmanna er enn allt á huldu. Yfirleitt er þó talið heldur ólíklegt að þar verði látið til skarar skríða að þessu sinni. Konur innan allra stjórnmálaflokka virð- ast herskáar þessa dagana og í miklum víga- hug. Þær eru greinilega búnar að fá sig full- saddar af hinum klassísku framboðslistum, þar sem einn huggulegur „fulltrúi tegundar- innar" er hafður með til þess að skreyta list- ann. Karlmenn mega því vara sig — hvar svo sem þeir skipa sér í flokk! Fall olíuverðs og dollars skapa skilyrði til hagvaxtar YFIRSYN Hafi olíuframleiðsluríkin í OPEC horfið frá að stýra olíuverðinu með framleiðslutak- mörkunum, þýðir það að hráolíuverð fellur til botns, niður í sex dollara oliufatið. Þetta sýnir reynslan af öðrum hráefnamörkuðum, segir Erling Moxnes, rannsóknastjóri við Chr. Michelsens stofnunina i Bergen. Líkurnar á því að spádómur Moxnes, sem áður hefur reynst sannspár um sveiflur á olíuverði, rætist eru máske ekki enn yfir- gnæfandi, en verða þó að teljast miklar. Inn- an OPEC er það Saudi-Arabía sem ræður ferðinni, vegna þess að þar eru í jörð mestu olíulindir jarðar, og þar er framleiðslukostn- aöur lægstur. Moxnes bendir á, að út á eitt kemur fyrir Sauda, hvort þeir selja tvær milljónir olíufata á dag á 25 dollara fatið eða átta milljón föt á sex dollara hvert. Ágóðinn er í báðum tilvikum nálægt fimmtíu milljón- um dollara á dag. En á leiðinni niður í sex dollara verð fyrir hráolíufatið hefur ýmislegt afdrifaríkt gerst. Framleiðendum kola, vatnsafls og annarra orkulinda er í stórum stíl ýtt út af markaðn- um með ódýrri olíu. Leit að olíulindum á lág- framleiðslusvæðum leggst niður í slíkum mæli, að birgðirnar í jörðu í löndum við Persaflóa verða enn stærri hluti en áður af þekktum olíuforða, því ört gengur á Iindirn- ar á lágframleiðslusvæðum, svo sem í Bandaríkjunum. Þar á ofan eru takmörk fyr- ir því, hve lengi er unnt að halda uppi fram- leiðslu með tapi, hvort heldur er í Texas eða Norðursjó. Afleiðingin er, hvernig sem allt veltist, að Saudi-Arabía kemur út úr umbrot- unum með enn sterkari stöðu en áður á olíu- markaði. Ákvörðun Saudi-Araba að verja markaðs- hlutdeild sína á olíumarkaði en ekki verðið, beinist að því í bráð að þrýsta á stórframleið- endurna í Norðursjó, Bretland og Noreg, að taka upp samráð ef ekki samstarf við OPEC. Um þetta hefur síðan verið tekist á, og tog- streitan bitnar að svo stöddu fyrst og fremst á norsku ríkisstjórninni. Komið er á daginn, að milli flokkanna sem að stjórninni standa ríkja skiptar skoðanir. Káre Kristiansen olíu- málaráðherra lét að því liggja um áramótin, að vel væri hugsanlegt að taka upp samráð við OPEC. Það var eins og við manninn mælt, olíuverð á Rotterdammarkaði tók kipp upp á við. Fallið varð svo því meira, þegar Káre Willoch forsætisráðherra tók nafna sinn til bæna og aftók allt samráð við OPEC. í þessum mánuði ætlaði Kristiansen olíu- málaráðherra að halda árlegan samráðsfund olíuframleiðenda við Norðursjó, en þegar fréttist að þangað kæmu fulltrúar frá OPEC bannaði Thatcher olíumálaráðherra Bret- lands að sækja fundinn í Noregi, svo hann fór að mestu út um þúfur. Nú nýskeð hefur tals- maður bandaríska utanríkisráðuneytisins lýst því, hversu Bandaríkjastjórn hafi þurft að leggja sig í framkróka við að þrýsta á Norðmenn og hindra þá í að taka höndum saman við araba að halda uppi verði hráolíu. Kaldhæðni örlaganna hagaði málum svo, að þessi yfirlýsing kom sama daginn og Bernard Rogers, bandarískur yfirhershöfð- ingi NATO, var á Norðurlöndum að ávíta Dani og Norðmenn fyrir að svíkjast um að leggja fram réttmætan skerf til varna banda- lagsins. Sérstaklega var hershöfðinginn gramur norsku íhaldsstjórninni, og þótti hart að NATO-ríkið með næsthæstu þjóðartekjur á mann skyldi vera aftast í röðinni með hluta ríkisútgjalda til landvarna. Krafðist Rogers, að norska stjórnin bætti ráð sitt og tvöfaldaði landvarnaframlag á fjárlögum. Lækkunin á olíuverði gerist á sama tíma og gengi Bandaríkjadollars fellur. Gengisfall, dollars hófst fyrir alvöru eftir að fjármálaráð- herrar fimm helstu iðnríkja ákváðu að taka upp samvinnu á gjaldeyrismarkaði um að keyra ofmetinn dollar niður í sannvirði. I þessu fólst kúvending fyrir stjórn Reagans Bandaríkjaforseta, sem hafði stært sig af há- gengi dollars. En annað hljóð kom í strokkinn, þegar aft- urkippur kom á síðasta ári í efnahagsbatann í Bandaríkjunum samfara methalla á vöru- skiptum við önnur lönd. Stjórn Reagans vill nú fyrir hvern mun halda vöxtum niðri og helst lækka þá, og eina ráðið til þess sem henni stendur til boða er að láta dollarann lækka. Með því móti ættu líka utanríkisvið- skiptin með tímanum að þokast nær jafn- vægi. Mál málanna er nú, hver áhrif lækkun olíu- verðs og betra jafnvægi helstu gjaldmiðla á gjaldeyrismarkaði hafa á heimsviðskipti og hagþróun. í International Herald Tribune leitast Carl Gewirtz við að ráða í þau mál. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, að nú gef- ist tækifæri til að hrinda af stað nýrri hag- vaxtarbylgju, sem samtímis dragi úr atvinnu- leysi í iðnríkjum og hjálpi þróunarlöndum að krafla sig upp úr skuldafeni. En til þess að svo megi verða þurfa að koma til markvissar að- eftir Magnús Torfa Ólafsson: gerðir af hálfu stjórna iðnríkja Vestur- Evrópu og Japans. Hættan er sú að þær þekki ekki sinn vitjunartíma, heldur láti við það sitja að fleyta rjómann af batnandi við- skiptakjörum. Helstu heimildarmenn Gewirtz eru áætl- anagerðarmenn um alþjóðlega efnahags- þróun, bersýnilega þeir sem starfa hjá Efna- hags- og framfarastofnuninni í París. Reikni- regla hagfræðinganna er sú, að við hver 10% sem olíuverð lækkar, dragi úr verðbólgu um hálfan hundraðshluta tvö ár í röð í iðnríkjum. Hagvöxtur aukist jafnframt um fjórðung hundraðshluta. Með virkum viðbrögðum ríkisstjórna ætti þetta að duga til að koma hagvexti í iðnríkj- um Vestur-Evrópu yfir þrjá af hundraði. Sú tala er mikilvæg, því hún er mörkin þar sem hagvöxtur tekur að vinna bug á atvinnuleysi svo um munar. Áætlanamenn OPEC telja að framhaldið velti á því, að ríkisstjórnir í þessum löndum fylgi batanum eftir með virkri stefnumótun. Fyrir þeim sem svo hugsa vakir ekki fyrst og fremst hagvaxtaraukningin ein, heldur áhrif- in út í frá, sérstaklega á fjárhag illa stæðra hráefnaframleiðslulanda í þriðja heiminum, og þá alveg sér í lagi olíulanda í skuldaklafa eins og Mexíkó. Menn þessir beina augum alveg sérstak- lega að Japan og Vestur-Þýskalandi. Bæði ríkin hafa greiðsluafgang í utanríkisviðskipt- um langt umfram það sem nokkur þörf eða sanngirni mælir með. Lækkun olíuverðs leiðir að öðru óbreyttu til að greiðsluafgang- ur Japans getur hæglega farið úr tæpum 50 milljörðum dollara í fyrra upp í 65 milljarða í ár. Ríkisstjórnir beggja landa hafa þráast við að taka upp þenslustefnu innanlands með tii- vísun til halla á ríkissjóði, en breytt við- skiptakjör gera að verkum að nú getur hvort- tveggja farið saman, þenslustefna í atvinnu- lífi og jöfnuður á ríkissjóði. Ríði Japan og Vestur-Þýskaland á vaðið, eru Frakkland og Ítalía í aðstöðu til að fylgja á eftir. Síðan myndu áhrifin breiðast út. I pen- ingamálum væri óhætt að stefna að lækkun vaxta, en það er áhrifaríkast til að bæta hag skuldugra þróunarlanda. 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.