Helgarpósturinn - 13.02.1986, Page 12
Kínversk myndlist að Kjarvalsstöðum:
ANDIOG
KRAFTUR
80 verk í hefðbundnum stíl eftir
11 núlifandi listamenn
Sýning á heföbundinni kín-
uerskri myndlist veröur opnuö á
Kjarvalsstööum laugardaginn 15.
febrúar kl. 14. Sýningin er haldin á
vegum menntamálaráöuneytisins
og sendiráös Ktnverska alþýöulýö-
veldisins og Flytja Sverrir Her-
mannsson menntamálaráöherra og
Li Quinping sendifuUtrúi Kína stutt
ávarp við opnunina. Á sýningunni
eru um 80 myndir eftir II núlifandi
listamenn.
Sýningin kemur hingað frá
Shaanxi-fylki og eru flestir lista-
mennirnir, sem sumir hverjir eru í
hópi þekktustu listamanna Kínverja
í dag, tengdir myndlistarstofnun
Shaanxi i Xian, höfuðborg fylkisins
og hinni fornu höfuðborg Kínaveld-
is. Myndirnar, sem lýsa fólki og
landslagi, blómum og fuglum, eru í
hefðbundnum stíl og þar beitt æva-
fornri tækni. Menn hafa ástæðu til
að ætla, að málaralistin sé jafn-
gömul kínverskri menningu, og
þegar fyrir um 6000 árum voru
menn þar í landi farnir að skreyta
keröld og önnur búsáhöld manna-
og dýramyndum. Nýlega hafa og
fundist dæmi um myndir málaðar á
silki á 5.-3. öld f. Krist.
Á þriðju til sjöttu öld eftir Krist
þróaðist málaralistin mikið. Manna-
myndir, sem eru elsta form hinnar
fornu kínversku myndlistar, tóku nú
skýrum breytingum og fengu skarp-
ari og tjáningarfyllri svip, en jafn-
framt fór að bera á landslagsmynd-
um.
Á sama tíma fóru menn að þróa
með sér listgagnrýni. Litlu síðar
komust svo blóma- og fuglamyndir í
tísku.
Þessi hefð hefur verið óslitin síðan
og hafa Kínverjar átt marga meist-
ara á þessu sviði. Flestir hafa málað
á silki eða Xuan-pappír, en önnur
grein þessarar listar voru veggmynd-
ir, einkum í höllum og hofum og
sóttu efni i rit taoista og búddatrúar-
manna.
Nákvæm eftirlíking náttúrunnar
og fyrirbrigða hennar var aldrei
lokatakmark þessara listamanna.
Það er andi og kraftur þess sem lýst
er, sem skiptir máli, innri einkenni
hlutanna ekki síður en auðlegð þess
sem augað sér. Listamennirnir not-
uðu oft sömu tæki og skrautritar-
arnir og því var þeim tamt að nota
vatn og blek og teikningin byggist
iíkt og skriftin upp á línum og punkt-
um fremur en andstæðum lita og
ljóss.
Hér er um háþróaða listgrein að
ræða og margvíslegri tækni þurfa
málararnir að ná valdi á, áður en
þeir geta komið „mynd á skáld-
skapinn og skáldskap í myndiná'
eins og skáldið og málarinn Su
Dongpo á Song-tímabilinu komst að
orði. Oft renna líka skáldskapur,
myndlist og skrautritun saman í
einu og sama verki.
Síðan Kínverska alþýðulýðveldið
var stofnað, hefur verið lögð mikil
rækt við þessa gömlu listgrein, bæði
að halda henni við og leita nýrra
leiða. í myndlistarstofnuninni í Kína
er hún kennd eigi síður en nýrri að-
ferðir til myndsköpunar og hefur á
síðustu árum náð nýju blómaskeiði,
og er sú sýning sem hingað er kom-
in til marks um það.
Ein myndanna
sem sýndar verða
á sýningunni á
Kjarvalsstöðum:
Teikningin byggist
á línum og punkt-
um fremur en á
andstaeðum lita og
Ijóss.
Sýningin er á ferð um Norðurlönd
og var síðast í Ráðhúsinu í Kaup-
mannahöfn. Hún verður eins og
áður segir opnuð laugardaginn 15.
febrúar og stendur til sunnudags-
kvölds 23. febrúar. Steinþór Sigurðs-
son myndlistarmaður hefur séð um
uppsetningu hennar hér.
Nú býöur Samvinnubankinn tvo
nýja og glæsilega kosti:
★ Verðtryggðan reikning, bundinn
í 18 mánuði. Vextir eru 7,5%
umfram verðbætur.
★ Verðtryggðan reikning, bundinn
í 24 mánuði. Vextir eru 8,0%
umfram verðbætur.
Vaxtahækkun sem breytir öllu
dæminu.
SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.
12 HELGARPÓSTURINN