Helgarpósturinn - 13.02.1986, Blaðsíða 19
ritsmiðju með þekktum kvenrithöf-
undum í broddi fylkingar. . .
sem eiga fyrirtækið. Eins og alþjóð
veit, dró DV sig út úr risafyrirtækinu
og bæði SÍS, Morgunblaðið, Al-
menna bókafélagið og Reykjavíkur-
borg hafa verið tvístígandi hvað ger-
ist næst. Hjörleifur Kvaran hefur
sagt upp störfum sem framkvæmda-
stjóri Isfilm og hefur þegar tekið til
starfa á sínum gamla vinnustað, hjá
borgarverkfræðingi. Stjórnarmenn
ísfilm leita nú logandi Ijósi að nýjum
framkvæmdastjóra og hefur Krist-
jáni Jóhannssyni framkvæmda-
stjóra AB verið falið að finna verð-
ugan framkvæmdastjóra' ísfilm.
Hins vegar hafa verið teknar ýmsar
ákvarðanir varðandi framtíðar-
rekstur ísfilm. Þannig hefur félagið
til dæmis ákveðið að hætta öllum
áformum um sjónvarpsrekstur en
einbeita sér að rekstri útvarps-
stöðvar. . .
H
I ■ laðvarpakonur eru dálítið
áhyggjufullar þessa dagana, og ekki
að ósekju. Húsakaupin fyrir kven-
menningu hafa kostað kvenmenn-
ina meira í vexti en þær gerðu ráð
fyrir og hlutafjársöfnun ekki gengið
jafn greiðlega og þær áttu von á.
Þann 22. febrúar nk. verður haldinn
aðalfundur í Hlaðvarpanum og
teknar ákvarðanir um áframhald-
andi aðgerðir. Konurnar greiða nú
um 1,3 milljónir á mánuði en fast-
eignaverð húsanna mun vera rúmar
16 milljónir. Annars er ýmisleg iðja
farin af stað í Hlaðvarpanum. Þann-
ig eru konur að hefja myndlistar-
námskeið fyrir konur og börn (ekki
bara telpur), og hugmyndir hafa
verið uppi um að setja á laggirnar
l^landi um Hlaðvarpann:
Viðar Eggertsson er að fara af
stað með leiksýningu hjá leikhúsi
sínu, Egg-leikhúsinu. Verður sýn-
ingin til húsa í svonefndu Kjallara-
leikhúsi Hlaðvarpans og hefur
Viðar fengið írskan leikstjóra hing-
að til lands til að leikstýra verkinu.
Meira vitum við ekki að sinni en
lesið HP í næstu viku.. .
Bílbeltin
hafa bjargað
||
■ ingað til hafa Samvinnu-
ferðir og Útsýn ekki sýnt sólar-
blettunum Mallorca og Ibiza á Spáni
sérlegan áhuga, en nú virðist hafa
orðið breyting þar á, því nú bjóða
bæði Útsýn og Samvinnuferðir ferð-
ir til þessara staða. Af sumum er
þetta túlkað þannig, að þessar
ferðaskrifstofur ætli að drepa í fæð-
ingu tilraun Karls Sigurhjartar-
sonar hjá Ferðaskrifstofunni
Pólaris til að rífa fyrirtækið upp, en
þangað er Karl nýkominn frá Úrvali.
Þaðan fór Karl eftir að Erling
Aspelund var sendur frá aðalskrif-
stofum Flugleiða og settur yfir Karl.
Sagan segir, að Erling hafi þurft að
víkja fyrir yngri manni, Guömundi
Pálssyni, gegn vilja sínum. Þegar
Karl fór frá Urvali hafði hann með
sér öll sambönd sín á Mallorca og í
Ibiza og hefur Pólaris, sem Karl og
Páll G. Jónsson í Pólaris eiga sam-
an, stefnt að því að ná fótfestu á
þessum tveimur stöðum. En sagan
segir, að stærri ferðaskrifstofurnar
hafi tekið sig saman um að reyna að
drepa þá tilraun í fæðingu...
V,
ið höfum sagt frá raunum ís-
film og sundrungu hinna stóru aðila
BILALEIGA
REYKJAVIK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRDUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTÁÐIR:
VOPN AFJÖRÐU R:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
HÖFN HÖRNAFIRDI
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
8. sýn. fimmtud. 13. febr. kl. 20.30.
9. sýn. föstud. 14. febr. kl. 20.30.
10. sýn. laugard. 15. febr. kl. 20.30.
11. sýn. sunnud. 16. febr. kl. 20.30.
MiAasala opin í Gamla Bfói frá kl.
15.00-19.00 alla daga, frá kl.
15.00-20.30 sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.00-15.00
alla daga í sima 11475.
Allir íleikhús!
Minnum á simsoluna með Visa.
Munið
NIS5AN CHERRY
Tökum flesta
notaða bíla
upp í nýja.
HELGARPÓSTURINN 19