Helgarpósturinn - 13.02.1986, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 13.02.1986, Blaðsíða 23
varningi sem berst til landsins, bæði löglegum og ólöglegum. Það hefur stundum farið fyrir brjóstið á land- anum að honum er ekki leyft að koma með eina litla pylsu til lands- ins, þótt hún sé keypt í lofttæmdum umbúðum í verslunum erlendis. Sérstaklega pirrar þetta mörland- ann þegar honum er hugsað til þeirra tonna af kjötvöru sem banda- rískum hermönnum berast til Kefla- víkurflugvallar frá Bandaríkjunum, svo ekki sé talað um allt smyglaða kjötið sem lekur inn í landið. Nema hvað. Tollgæslumennirnir verða að vinna sitt verk samkvæmt laga- bókstafnum og gera það með mikilli prýði. Um daginn hafði ónefnd kona samband við Tollgæsluna og benti yfirvaldinu á þá hroðalegu staðreynd að danskar pylsur og dönsk skinka væri á boðstólum í Vörumarkaðnum. Voru þegar þrír tollverðir gerðir út af örkinni og mættu þeir borðalagðir og elegant í Vörumarkaðinn og ráku strax aug- un í dönsku pylsuna og skinkuna sem búðarmenn fullyrtu að væri ís- lensk vara. Var verslunarstjóra gert að opna umbúðirnar og smökkuðu verðir laganna á pylsunni eins og Mikki refur á piparkökunum í Dýr- unum í Hálsaskógi. Eftir að hafa bragðað vel og lengi á kjötvörunni sannfærðust tollverðirnir um að þetta væri innlend vara og að ís- lenskur matvælaiðnaður væri orð- inn geysilega háþróaður. Tollverð- irnir lýstu því meira að segja yfir að íslenskar pylsur stæðu þeim dönsku ekkert að baki og einn tollvarðanna lét þau orð falla að ,,nu má dansk- erne vare sig“. Þessi setning mun vera notuð þessa dagana sem sölu- slagorð Vörumarkaðarins. .. ■ yrir alllöngu sögðum við frá því í þessum dálkum, að Útvegsbank- inn, sem ætti í sárum erfiðleikum, og á væntanlega enn eftir hundruð milljón króna skeli, ætlaði að færa út kvíarnar niðri í aðalbanka með því að brjóta niður vegg á milli bankans og efstu hæðarinnar á Austurstræti 17. Eftir að Hafskips- mál komust í hámæli var tekin sú „taktíska ákvörðun" að láta vind- ana lægja. Nú virðist það vera mat Tökum hunda í gæslu til lengri eða skemmri dvalar. HUNDAGÆSLUHEIMILI Hundavinafélags íslands o° Hundaræktarlélags íslands ARNARSTÖÐUM, Hraungerðishreppi 801 Selfoss - Simar: 99-1031 og 99-1030 bankastjórnarinnar, að óhætt sé að demba sér í framkvæmdir. Öllum leigjendum efstu hæðarinnar í húsi Silla og Valda hefur verið sagt upp húsnæðinu og raunar er sá fyrsti, Óttar Möller, fyrrverandi forstjóri Eimskips, búinn að rýma til. Smiðir eru farnir að mæta reglulega á svæðið og um mánaðamótin næstu verða leigjendurnir á hæðinni að vera farnir. Til húsa þarna núna eru m.a. Jón Hjaltason Óðalsbóndi, nokkrir læknar og Ásgeir Hannes Eiríksson pylsusali, sem situr reyndar í nokkuð merkri kompu. Herbergi hans mun vera hið minnsta í húsinu og var hugsað sem kompa, en Valdi var nægjusamur maður, eins og alþjóð veit og kaus sér þessa kompu af öllum þeim fínu vistarverum, sem buðust í húsi þeirra Silla. Nú er bara spurningin hvort einhver bankastjóranna sér ekki sóma sinn í því að taka kompu nægjusama peningamannsins á meðan bankinn er að ná sér upp úr öldudalnum. Annars má bæta því við, að á þriðju hæðinni hafa nokkr- ir lögfræðingar Útvegsbankans haft aðsetur um skeið. .. Ertu ekki búinn að finnaþaðennþá? CO stu veriðslæmt að týna kvittun.. Hjá Pennanum finnur þú allt, sem þarf til aö skiþuleggja heimilisöók- haldið, — möppur, geymslubindi, tímaritagáma, gatara, límmiða, teygjur, bréfaklemmur, o.s.fr. Hjá Pennanum finnur þú allt, sem þú þarft til að finna þína eigin pappíra á augabragði. Komdu og finndu okkur í Hallarmúla! rmrri OKKAR SILD HEITIR TKúíUr siM Bragðgóð — holl - ódýr Ljúfmeti á hvers manns disk HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.