Helgarpósturinn - 13.02.1986, Blaðsíða 40
þjóðafyrirtækisins og mun starfa
sem slíkt. Fyrirtækið mun t.d. taka
að sér að kom§ á framfæri málstað
íslenskra einstaklinga og fyrirtækja
svo þeirra hlið á einhverju máli, eins
og t.d. hvalveiðum, megi heyrast um
heim allan. Ekki er ólíklegt að fyrir-
tæki þeirra Jóns Hákonar og Ind-
riða G. eigi eftir að vera tengt ís-
lensku ríkisstjórninni í utanríkis-
málum, landhelgismálum og út-
flutningi, og boða stefnu hennar og
málstað á erlendri grundu. Það má
því segja í heild um þessa nýju ís-
lensku upplýsingaþjónustu á al-
þjóðamarkaði, að Jón Hákon Magn-
ússon og Indriði G. Þorsteinsson séu
fyrstu íslensku gervihnettirnir. . .
S
firmenn Hafskips sáluga eru
nú farnir að hugsa sér til hreyfings á
nýjan leik í atvinnulífinu. Jón
Hákon Magnússon sem var yfir-
'igurgeir Jónsson hefur
unnið í Seðlabankanum í um 20 ár
og verið þar aðstoðarbankastjóri frá
1972. Hann þykir mjög hæfur
maður markaðsdeildar Hafskips
hefur nú stofnað fyrirtæki með eng-
um öðrum en Indriða G. Þor-
steinssyni rithöfundi og fjölmiðla-
mógúl. Fyrirtækið heitir „Kynning
og markaður" og mun einkum taka
að sér að koma íslenskum málefn-
um á framfæri erlendis. Hér mun
ekki vera um hefðbundna vöru-
kynningu að ræða, heldur er fyrir-
tæki þeirra félaga í tengslum við
bandarísk fjölþjóðafyrirtæki, Hill
and Morton, sem sjá um að mark-
aðssetja og kynna hugmyndir, stefn-
ur og málstað skjólstæðinga sinna.
Hér er því um að ræða eins konar
áróðursfyrirtæki sem er hluti af al-
þjóðlegri keðju. „Kynning og mark-
aður“ er hluti af Evrópudeild fjöl-
bankamaður og sérgrein hans verið
alþjóðasamskipti. M.a. hefur Sigur-
geir séð um allar erlendar lántökur
fyrir ríkissjóð. Sigurgeir hefur nú
verið ráðinn sem ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytisinsirá og méö 1.
apríi. Það hefur valdið mönnum
nokkrum heilabrotum hvers vegna
jafnhæfur bankamaður sem Sigur-
geir hafi söðlað yfir í fjármálaráðu-
neytið þar sem bíður hans strit, van-
þakklátt starf og sennilega verr
borgað en aðstoðarbankastjóra-
staðan. Því hefur verið fleygt að
með uppsögn sinni hafi Sigurgeir
viljað undirstrika óánægju sína með
að enn einu sinni hafi verið gengið
framhjá bankamanni þegar ráðið
var í stöðu bankastjóra Seðlabank-
ans. Á stuttum tíma hafa tveir pólí-
tíkusar gengið inn í bankann og sest
í bankastjórastóla. í fyrra skiptið
varð Tómas Árnason bankastjóri,
þegar Gudmundur Hjartarson
hætti, en í síðara skiptið varð Geir
Hallgrímsson bankastjóri, þegar
Davíð Ólafsson lét af störfum. Þá
er ekki talið ólíklegt að Sigurgeir
hafi illa getað hugsað sér að starfa
undir hinum -nýráðna Geir vegná
vanþekkingar hins síðarnefnda á
bankamálum. Sigurgeir hefði með
öðrum orðum orðið að vinna mest-
alla bankastjóravinnu Geirs meðan
Geir hefði tekið heiðurinn (og laun-
in) af vinnu Sigurgeirs. Margir menn
í bankakerfinu spyrja sig ennfremur
þessa dagana hvort Seðlabankinn
(og aðrir ríkisbankar) sé að verða
pólitískt elliheimili...
Gabriel
HÖGGDEYFAR
I MIKLU
ÚRVALI
13
MATSEÐILL
MARSBÚA?
Nei, ekki alveg, en matseðill Krákunnar er alveg sérstakur.
Þar er að finna rétti víðsvegar að úr heiminum og
þessa dagana matreiðir Krákan mexíkanskan
og indverskan mat. Fullt af girnilegum
réttum, mildum, sterkum, sterkari
og enn sterkari. Hvernig væri
að brenna bragðlaukana
hjá Krákunni.
FJOLRITTA
ÁTVEISLA
Jú, einmitt það sem hefur alltaf
vantað. Að geta bragðað á 10—12
réttum hverjum á fætur öðrum í góðri
stemningu og veigarnar renna
Ijúflega. Fjölréttq átveislan
takmarkast við minnst 4 manns og
borðið verður að panta með tveggja
daga fyrirvara.
VINBAR
í REYKJAVÍK
Já, Krákan breytist í „vínbar" eftir
klukkan 22 og þá bjóðum við uppá
sérlega gómsæta smárétti. Tortillas
de Mole, heimabakað brauð með
chili og hnetusósu, Tzatziki, Tarra-
masalada, nýstárlegar ídýfur, frábær
salöt, ýmisskonar paté og margt
fleira forvitnilegt.
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Náðirðu þessu öllu? Lestu það bara aftur. Nú, eða komdu.
^Krákan
veitingahús Laugavegi 22 sími 13628
40 HELGARPÓSTURINN