Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 2
UNDIR SÖLINNI Ungir menn og atvinnulausir „Innantómar glyssýningar, skrúð- göngur með kórónum og konungs- djásnum, bjöllum og böglum, gulllykl- um og veldisprikum, loðkápum og silkiklæðum, korðum og hárkollum, eru afkáralegar þegar runnin er upp öld upplýsingarinnar, þegar menn eru orðnir vísari um það að hið eiginlega hlutverk stjórnvalda er að útdeila sem mestri hamingju til þegnanna, með sem minnstum tilkostnaði." Eitthvað á þessa leið, þýðingin er raunar lausleg, skrifaði engilsaxnesk- ur hugsjónamaður snemma á öldinni nítjándu í rit sem var gefið út undir nafninu Svartabókin, mikinn ádeilu- pésa. Líklega eru menn vanir að ætla, án þess að leiða nánar hugann að því, að þetta sé sá tími þegar hvað mestum ljóma stafaði af kóngaslekti álfunnar, þegar réttbornir handhafar konung- dóms nutu óskoraðrar virðingar og aðdáunar. En kannski var þetta á nokkuð ann- an veg, kannski má leiða að því getum að öll virðingin og aðdáunin lifi eink- um í vitund kynslóðanna sem á eftir komu, að meðtöldum þeim kynslóð- um sem nú eru á dögum — að öll þessi forgylling konungdómsins sé síðari tíma tilbúningur. Að minnsta kosti er það nokkuð víst að á sínum tíma þótti krýning Viktoríu drottningar lítt áhugaverður atburður og reyndar heldur mislukkaður; kórinn söng átakanlega falskt, tveir burðarkarl- anna töluðu saman í síbylju meðan at- höfnin fór fram og erkibiskupinn af Kantaraborg átti í mestu brösum með að þræða hring uppá digran drottn- ingarfingur. Blöðin fóru heldur ekki alltaf fögrum orðum um þennan smá- vaxna þjóðhöfðingja; í götupressunni var hún iðulega kölluð „Frú Brown“, líklega vegna þess að hún átti sér frið- il, garðyrkjumann úr hallarportinu; hún var eftirlætis efniviður ósvífínna skrípamyndateiknara og slúðurskríb- enta; og sonur hennar, sjálfur prinsinn af Wales, gekk undir þeirri háðulegu nafnbót „ungmennið atvinnulausa“. Þegar frænka hennar andaðist, prins- essan Karlotta, voru greftrararnir svo víðáttuvitlausir af drykkju að þeim ætlaði varla að takast að hola kistunni ofan í jörðina. Og þegar áðurnefndur prins af Wales, hinn argasti drabbari, loks lét undan þrálátu nöldrinu í móð- ur sinni og kvæntist, var allt með slíku sleifarlagi að forsætisráðherrann Disraeli mátti nauðbeygður sitja í kjöltu konu sinnar á lestarferðalaginu heim. Glæsibragurinn var sumsé ekki ýkja mikill, enda fór Viktoría þessi lengst af með veggjum og forðaðist opinberar samkomur og athafnir — svo mjög að forsætisráðherrann Gladstone hafði á orði að drottningin væri ósýnileg en ríkisarfinn rúinn æru. En nú er öldin sannarlega önnur. Núorðið þykir mestur landaljómi að ungum atvinnulausum prinsum, sem aldrei hafa unnið ærlegt dagsverk, heldur þvælast um í einskærum leið- indum og fánýtisstandi, með hersingu af ljósmyndurum sem elta þá á rönd- um; og þar í flokki menningarritstjóri Dagblaðsins, sem var gerður sérstak- lega út af örkinni þegar prinsinn Andri Ioks tók sönsum og gekk í hnapphelduna. Og eru nú betri tímar en þegar Andri þessi gerði hosur sínar grænar fyrir klámmyndaleikkonunni Koo Stark, enda „hin rauðhærða, kotroskna og hvatvísa" Sara ólíkt betri kvenkostur, þótt ekki hafi hún fengið að gifta sig í hvítu. En hallarlífið er ekki tómur dans á rósum, einsog menningarritstjóri Dagblaðsins orðar það svo réttilega. Hin hvatvísa prinsessa, Sara, neyddist til dæmis til að selja sportlega BMW bílinn sinn og fá sér Jagúar í staðinn. Hún má líka bíta í það súra epli að þurfa að fórna stóra leðurjakkanum sínum fyrir kerlingarlega kjóla og draktir sem hæfa giftri konu; og ekki má hún lengur setja tepoka í vatn — nei, það telst vera starfi hins fjöl- menna þjónaliðs hallarinnar. Það hlýtur þó altént að vera einhver bót í máli fyrir stúlkutetrið að prinsinn á það til að klípa hana ástúðlega í rass- inn. Og kannski er Andri prins heldur ekki jafnmikill ónytjungur og af er lát- ið; Dagblaðið upplýsir nefnilega líka að einhvern tíma hafi hann hjálpað bónda á Falklandseyjum við að moka skít einn dagpart. Það fer víst ekki á milli mála að nú, á ofanverðri tuttugustu öldinni, nýtur kóngafólk almennrar elsku og virð- ingar, og enginn viðvaningsbragur Iengur á serimóníunum sem spretta af hátignarleik þess. Sá sem hélt á penna á öndverðri nítjándu öldinni og taldi allt kóngastand afkáralegt á tíma upp- lýsingar gat náttúrlega ekki séð fyrir þau undur og ævintýri þegar bróðir Andra prins „litli hesturinn“ svokall- aður, gekk loksins út og tók sér til konu Ungfrú Díönu, að ásjáandi fjöl- menni og stórmenni og bróðurparti heimsbyggðarinnar sem sat við sjón- varp og felldi tár yfir dýrðinni og tildr- inu, og því hvað ómengað iðjuleysið er í senn einfalt og fagurt. eftir Egil Helgason HAUKUR í HORNI Að Hafskipi sokknu „Þeir virðast þó hafa tóneyra þarna í Útvegsbankanum .. 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.