Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 7
NÆRMYND
Hallvarður Helgi Ein-
varðsson er fæddur 2.
desember 1931 í Reykja-
vík. Foreldrar hans eru Einvardur
Hallvardsson, fyrrverandi starfs-
mannastjóri Landsbankans og
Seðlabankans, Einvarðssonar
bónda í Skutulsey á Mýrum og
kona hans Vigdís Jóhannsdóttir
Hafliðasonar, húsasmíðameistára
í Reykjavík.
Einvarður faðir Hallvarðs var
bankamaður mest alla sína starfs-
tíð, en á hinn bóginn sveif mikill
lagaandi yfir vötnunum í „Hall-
varðssonaættinni" svo kölluðu.
Segja má með sanni að Hallvarður
hafi fæðst inn í veröld dóms og
laga; föðurbróðirinn Jón Hall-
varðsson var um árabil sýslumað-
ur í Snæfells- og Hnappadalssýsl-
um. Föðurbróðirinn Jónatan Hall-
varðsson var lögreglustjóri í
Reykjavík þegar Hallvarður fædd-
ist og síðar sakadómari og hæsta-
réttardómari. Og enn einn föður-
bróðirinn Sigurjón Hallvarðsson
var skrifstofustjóri lögreglustjóra-
embættisins í Reykjavík.
Hallvarður ólst upp í Vestur-
bænum. Hann er elstur þriggja
systkina; sjö árum yngri er bróðir
hans Jóhann Einvarðsson, núver-
andi aðstoðarmaður félagsmála-
ráðherra, en áður þingmaður fyrir
Framsóknarflokkinn, bæjarstjóri í
Keflavík og á ísafirði. 15 árum
yngri er hins vegar systirin Sigríð-
ur Einvarðsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík.
Iæsku var Hallvarður iðu-
lega prúður og stilltur
drengur sem lærði sínar
heimalexíur. Þannig segir Bjarni
Bragi Jónsson, aðstoðarbanka-
stjóri í Seðlabankanum og ná-
frændi Hallvarðs: ,,Hann var alltaf
mjög aðsjáll í orðum og verkum.
Að þessu leyti var nokkur munur
á þeim bræðrum, honum og Jó-
hanni. Hallvarður, sem kallaður
var Bóbó, var fremur hæglátur og
passasamur, en Jóhann, sem kall-
aður var Diddi, var hins vegar ör
og fyrirferðarmikill. Hallvarður
og frændi okkar Halldór Jóna-
tansson, voru leikbræður og þeir
voru góðu strákarnir, tóku nám
sitt alvarlega og hafa síðan enda
reynst seiglunnar menn í starfi".
Halldór Jónatansson segist vel
muna hversu ólíkir þeir bræður
voru. „Jóhann var þessi mikli fjör-
kálfur og sprellikarl, en Hallvarð-
ur aftur á móti hægari í fram-
göngu“. Sjálfur tekur Hallvarður
ekki undir þessa tvískiptingu.
„Ætli við höfum ekki báðir verið
ærslabelgir". Bróðirinn Jóhann
tekur hins vegar undir það að
Hallvarður hafi verið rólegi bróð-
irinn. „En annars gat og getur enn
verið glatt á hjalla hjá honum og
hann er kátur á góðri stund, þótt
hann beri ekki tilfinningarnar á
torg,“ segir Jóhann.
Eins og fjöldamörg íslensk börn
fyrr og síðar kynntist Hallvarður
sveitinni á sumrin. Hann var í sveit
á Litlu-Þúfu í Miklaholtshreppi á
sunnanverðu Snæfellsnesi hjá
bóndanum þar, Jóhanni S. Lárus-
syni. Það hafði mikil áhrif á Hall-
varð að kynnast sveitalífinu, að
eigin sögn. „Þarna var sannarlega
gott að vera og þar öðlaðist ég
reynslu og þroska sem ég er ekki
einn um að hafa notið“.
Námsferill Hallvarðs hófst
í gamla Miðbæjarskól-
anum, en síðan lá leiðin
í Laugarnesskólann og þaðan í
gagnfræðaskólann sem kenndur
var við Ingimar Jónsson. Ekki fer
miklum sögum af Hallvarði á þess-
um árum; hann var prúður og
stilltur og alltaf var námið í for-
grunni. Til marks um þetta er að
íþróttirnar fönguðu aldrei hug
hans. „Ég var ósköp vesæll í allri
leikfimi og íþróttum," segir hann
sjálfur. Þó innritaðist hann síðar
meir í glímufélagið Ármann, en
ílengdist stutt í glímunni. „Hann
datt fljótlega út úr henni. Ég segi
nú ekki að hann hafi verið anti-
tengsl sem vara ævilangt," segir
Hallvarður. Sem fyrr segir fer ekki
mörgum sögum af Hallvarði í
menntaskólanum, námið hafði al-
gjöran forgang. Meðal þeirra sem
hins vegar létu mikið að sér kveða
á þessum árum í M.R. voru þeir
Már Egilsson, viðskiptafræðingur,
forstjóri Egils Árnasonar hf. og
Magnús Þórðarson, starfsmaður
upplýsingadeildar NATO.
Að stúdentsprófi loknu lá leið
Hallvarðs svo í Háskóla ísiands.
Áður var minnst á þann anda
dóms og laga er sveif yfir vötnun-
um í ættinni og það hefur vart
komið á óvart að laganámið skyldi
verða fyrir valinu hjá Hallvarði.
Sjálfur segir hann: „Því er ekki að
leyna að athyglin beindist tiltölu-
lega fljótlega að Iaganámi og
óneitanlega dró það ekki úr áhug-
anum að föðurbræður mínir voru
á þessu sviði. Það hafði sín áhrif,
en réð þó ekki úrslitum."
Ilagadeildinni bar ekki mikið
á Hallvarði fremur en áður.
Hann stundaði námið sam-
viskusamlega og lét félagslífið
mikið til fram hjá sér fara. Hann
útskrifaðist sem candidat júris í
maí 1958 með I. einkunn og með-
aleinkunnina 11,45. Svo vill til að
meðaleinkunn þeirra 10 laga-
nema sem útskrifuðust þetta vor
var einmitt 11,45 og því ef til vill
rétt að segja að Hallvarður hafi
verið „Meðal-Jóninn“ í sínum ár-
gangi. Ýmsir þeirra sem útskrifuð-
ust sama ár og Hallvarður eru nú
nafntogaðir einstaklingar í þjóðfé-
laginu — eins og reyndar gjarnt er
með lögfræðinga! Við nefnum
þessa: Jón Abraham Ólafsson,
sakadómari, Jón Olafsson, hæsta-
réttarlögmaður, Ragnhildur
Helgadóttir, ráðherra, Bragi
Hannesson, Iðnaðarbankastjóri,
Guðjón Styrkársson, hæstaréttar-
lögmaður, Lúðvík Gizurarson,
hæstaréttarlögmaður og áður-
nefndur Örn Vilhjálmsson Þór
hæstaréttarlögmaður. Árin áður
höfðu útskrifast t.d. Matthías Á.
Mathiesen, ráðherra, Sigurður
Helgason, hæstaréttarlögmaður,
Jón G. Tómasson, borgarlögmað-
ur og Þór Vilhjálmsson, hæstarétt-
ardómari og árinu eftir Hallvarð
útskrifuðust t.d. Ólafur Walter
Stefánsson, skrifstofustjóri, Gauk-
ur Jörundsson, prófessor, Sigurð-
ur Líndal, prófessor, Einar Odds-
son, sýslumaður og áðurnefndur
Jón Thors í dómsmálaráðuneyt-
inu.
Samhliða laganáminu, eða frá 1.
febrúar 1954 til 1. febrúar 1955,
starfaði Hallvarður í varnarmála-
deild utanríkisráðuneytisins, en þá
var þar deildarstjóri Tómas Árna-
son, síðar þingmaður, ráðherra og
nú Seðlabankastjóri. Þar var einn-
ig Páll Ásgeir Tryggvason, sendi-
herra og Hörður Bjarnason, húsa-
meistari. Þetta er á árum sam-
starfsstjórnaFramsóknarflokksins
og SjáÞstæðisflokksins (1950—
1955). Varnarmáladeildin var þá
nýtilkomin og var lögsögn utan-
ríkisráðuneytisins yfir Keflavíkur-
flugvellinum og varnarsvæðinu
öllum bitbein á þessum tíma. Ut-
anríkisráðherra var dr. Kristinn
Guðmundsson í ráðuneyti Ólafs
Thors.
Alla jafna mótast pólitísk-
ar skoðanir manna
mjög í menntaskóla og
háskóla. Mikið var um framsókn-
armenn í ætt og umhverfi Hall-
varðs, en hann hefur hins vegar
sjálfur aldrei gefið sig að flokks-
störfum. „Hann var ekki farinn að
mynda sér pólitískar skoðanir á
þessum árum og mér vitanlega
hefur hann ekkert blandað sér í
pólitík né flíkað sínum pólitísku
skoðunum síðan," segir einn sam-
ferðamaður hans og vinur á þess-
um árum. „Ég veit ekki til þess að
Hallvarður hafi nokkurn tímann
flegið pólitískan kött. En faðir
hans var framsóknarmaður og svo
Jóhann bróðir hans og ég hygg að
skoðanir hans liggi einna næst
Framsóknarflokknum ef eitthvað
Hallvardur
Einvarðsson
Hallvarður Helgi Einvarðsson lét nýverið af störfum rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins eftir nær áratug í Auðbrekkunni. Hann hefur nú tekið við embætti Þórðar
Björnssonar sem ríkissaksóknari. bað var einmitt við sama embætti að hann hóf
sinn aldarfjórðungs langa feril í þágu ákæru- og rannsóknarvaldsins. Við þessi
tímamót er ekki úr vegi að líta um öxl og leitast við að fá Nærmynd af Hallvarði.
Hér segir frá hæglátum manni, farsælum í námi og starfi. Manni sem þykir litlaus
og áhugalítill um félagslíf, en hefur þó lifað og starfað í hringiðu íslenskra þjóðmála
og umgengst marga af mestu þungavigtarmönnum íslenska þjóðfélagsins.
EBBSSBEHHHHBBBEEBBERBBHeftir Friðrik Þór Guðmundsson teikning ingólfur MargeirssonBHBBBflflflBBBHBBBBBBBH
sportisti, hann var svona mitt á
milli," segir bróðirinn Jóhann, sem
sjálfur lét mikið að sér kveða í
íþróttunum.
Og það var nokkuð sjálfgefið að
Hallvarður færi menntaveginn.
Menntaskólaferillinn hófst fyrir
norðan, í Menntaskólanum á Ak-
ureyri. Þeir urðu samferða norður,
hann, Guðlaugur Gunnarsson og
Örn Vilhjálmsson Þór, sonur Vil-
hjálms Þórs fyrrum ráðherra og
síðast Seðlabankastjóra. Heima-
vistarleysi varð hins vegar til þess
að náminu var framhaldið fyrir
sunnan, í Menntaskólanum í
Reykjavík. Ekki sóttist Hallvarður
eftir metorðum í skólanum og
hann var aldrei áberandi í félags-
lífinu. Bestu vinir hans á þessum
árum voru Þórir Helgason læknir
og Sverrir Bjarnason, barnageð-
læknir. „Hallvarður var góður
námsmaður og nokkuð jafngóður
í námsgreinum máladeildarinnar,
en ég man að honum þótti sérlega
gaman að frönsku," segir Þórir.
Hallvarður og Árni Þorgrímsson,
flugumferðarstjóri, lásu mikið
saman fyrir stúdentsprófið. „Hann
var afskaplega þægilegur í við-
kynningu og góður námsmaður.
Ég myndi segja að hann hafi verið
farsæll í námi og síðan í starfi,"
segir Árni.
argir nú nafntogaðir
menn útskrifuðust
sem stúdentar með
Hallvarði 1952. Meðal bekkjar-
bræðra í 6-B má nefna þessa; auk
Þóris Helgasonar, Sverris Bjarna-
sonar og Árna Þorgrimssonar: Dr.
Jón P. Ragnarsson, sagnfræðing,
Jón Thors, skrifstofustjóra í dóms-
málaráðuneytinu, Sigurð E.
Guðmundsson, fv. borgarfulltrúa
og núverandi forstjóra Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins, Ólaf St.
Sigurðsson, sparisjóðsstjóra í
Keflavík, Braga Björnsson, lög-
mann í Landsbankanum, Ríkharð
Kristjánsson, verslunarmann,
Hannes Pétursson, skáld, séra
Kristján Búason, dósent, Ríkharð
Pálsson, tannlækni og læknana
Þór Halldórsson, Konráð Magnús-
son og Konráð Sigurðsson. „Þetta
var góður félagsskapur og þarna
mynduðust góð og sterk vina-
HELGARPÓSTURINN 7