Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 10
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Ingólfur Margeirsson og Halldór Halldórsson Ritstjórnarfulltrúi: Sigmundur Ernir Rúnarsson. Blaðamenn: Egill Helgason, Friðrik Þór Guðmundsson, Jóhanna Sveinsdóttir, Jónína leósdóttir og G. Pétur Matthíasson. Útlit: Jón Oskar Hafsteinsson. Ljósmyndir: Jim Smart. Útgefandi: Goðgá h/f. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garðar Jensson. Auglýsingastjóri: Steinþór Ólafsson. Auglýsingar: Hinrik Gunnar Hilmarsson Sigurður Baldursson. Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471). Berglind Björk Jónasdóttir. Afgreiðsla: Ólöf K. Sigurðardóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sími 68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36. Sími 68-15-11. Setning og umbrot: Leturval s/f. Þorsteinn skattakóngur Þegar formaður Sjálfstæðis- flokksins var inntur eftir því í viðhafnarviðtali við Mogga á síðasta ári hvaða leið hann teldi farsælasta til raunhæfra kjara- bóta fyrir launþega, benti hann meðal annars á umtalsverða lækkun á tekjuskatti. Hann hélt því þá fram að óhæft væri að einstaklingar væru margskatt- lagðir af ríkinu. Það samrýmd- ist altént ekki höfuðkenningum sjálfstæðisstefnunnar. Það blasir kaldhæðnislegur raunveruleiki við Þorsteini Páls- syni þessa dagana. Ári eftir þessi ummæli er hann orðinn fjármálaráðherra og sá maður í því embætti sem hefur aukið skattbyrði einstaklinga milli ára um hvað flestar prósenturn- ar — og hafa þó margir fyrir- rennarar hans í því starfi lagt hart að sér í efnunum þeim. Þetta er kaldhæðnislegt fyrir flokksformanninn, kjaftshögg á þjóðfélagið. Greiðslubyrði einstaklinga vegna beinna skatta mun að lík- indum aukast um nærri tuttugu prósent á þessu ári, en það mun skila ríkissjóði eitthvað á níunda hundrað milljóna í auknar tekjur. Þetta er kjara- skerðing, því nokkuð Ijóst er að launþegar munu ekki fá þessa auknu skattbyrði bætta upp með launahækkunum. Kaup- gjaldsvísitalan tekur ekki tillit til beinna skatta. Þorsteinn gat vel séð þetta fyrir. Þessi aukna skattbyrði var augljós strax í upphafi þessa árs, á meðan formaður Sjálfstæðisflokksins var enn ferskur í ráðherrastólnum. Eftir á er reynt að láta í það skína að Þjóðhagsstofnun sé um að kenna, spár hennar um tekju- breytingar á árinu hafi ekki gengið eftir og skattahlutfallið af launum hafi hækkað til sam- ræmis við það. Þetta er fyrir- sláttur. i mars síðastliðnum lá fyrir, meðal annars hjá Þjóðhags- stofnun, að skattvísitalan var of lág og því Ijóst að skattþrepin þyrftu að hækka verulega til að koma í veg fyrir aukna skatt- byrði. Ríkisstjórninni var í lófa lagið að leiðrétta þessi mál þá, en einhverra hluta vegna þagði Þorsteinn. Fyrir bragðið er hann fallinn á einstaklings- hyggjuprófinu. „Byggingar- sjódurinn gerir full skil á greidslum“ Reykjavík, 23. júlí 1986. Hr. rilstjóri. Athygli mín hefur verið vakin á grein í Helgarpóstinum hinn 26. júní sl., er fjallar um það nýja húsnæðis- lánakerfi, sem alþingi samþykkti sl. vor að skyldi taka gildi hinn 1. sept- ember nk. Þar er m.a. viðtal við dr. Pétur Blöndal, formann Landssam- bands lífeyrissjóða, undir fyrirsögn- inni „Byggingarsjódur borgar aldrei krónu til baka". í því segir m.a., að „núna sé farið að lána sífellt stærri hluta af ráðstöfunarfé (lífeyris)sjóð- anna til Byggingarsjóðs (ríkisins) og barin hefur aldrei borgad krónu til baka. Hann hefur alltaf fengið lán- að fyrir afborgunum og vöxtum. Það hefur meira að segja komið bréf frá Byggingarsjóði þar sem óskað er eftir að lífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf fyrir þá upphœð, sem þeir eiga að fá í afborganir og vexti frá Byggingarsjóði. Þessi sjóður hef- ur aldrei borgað krónu til baka af því, sem hann hefur fengið lánað og það er spurning hvort hann muni nokkuð frekar gera það í framtíð- inni“. (lbr. mín). Um áratugaskeið hefur Húsnæð- isstofnun ríkisins tekið stórlán hjá ýmsum aðilum til að fjármagna að hluta til lánveitingar sínar úr Bygg- ingarsjóði ríkisins og Byggingar- sjóði verkamanna. Lán þessi hafa verið fengin hjá ríkissjóði íslands, Seðlabanka íslands, viðskiptabönk- unum, tryggingafélögum, opinber- um fjárfestingalánasjóðum, öðrum opinberum stofnunum og lífeyris- sjóðunum i landinu. Ætíð og œvin- lega hefur stofnunin gert full skil á umsömdum greiðslum á réttum gjalddögum. Það hefur gerst án undantekningar og það geta allir þeir aðilar vottað, sem að ofan eru nefndir. Margir þeirra hafa einmitt frekar viljað eiga slík viðskipti við Húsnæðisstofnun ríkisins en aðra aðila vegna þess, að þeir hafa ára- og áratugalanga reynslu af því, að þeir hafa œtíð getað til fulls treyst á umsamdar endurgreiðslur á réttum gjalddögum. Og þar af leiðandi full ástæða til að ætla að svo verði áfram, ekki síst þar sem byggingar- sjóðir Húsnæðisstofnunar eru i reynd ríkistryggðir. Ofangreindar staðhœfingar Péturs Blöndal stang- ast gjörsamlega á við veruleikann og eru út í hött. í tilvitnuðum orðum Péturs Blön- dal er reynt að gera það tortryggi- legt, að Húsnæðisstofnunin skuli hafa óskað eftir því við Iífeyrissjóð- ina í landinu, að þeir tækju við nýj- um skuldabréfum í stað endur- greiðslna af eldri bréfum. Þetta hef- ur stofnunin gert árum og áratugum saman og aldrei verið að því fundið, enda ekki athugavert. Pétri Blöndal hlýtur að vera um það kunnugt, að slíkt og þvílíkt er alsiða um allan heim og hefur ætíð tíðkast. Hitt er annað mál, að lífeyrissjóðirnir hafa oftsinnis skorast undan þessum er- indum og hafa þá endurgreiðslurn- ar að sjálfsögðu undantekningar- laust verið reiddar þeim í hendur í reiðufé og á réttum gjalddögum. Þar sem hér er um mikilvægt mál að ræða er nauðsynlegt að biðja um birtingu á ofangreindri athugasemd hið allra fyrsta, svo að enginn velk- ist í vafa um hið rétta. Með þökk, Sigurður E. Guðmundsson framkvœmdastjóri. LAUSN Á SPILAÞRAUT Þannig voru öll spilin: 4> Á-7-3 9 8-2 ❖ K-10-8-4-3 + 9-6-3 * 10-9-8-4 + G-6-2 D-7-5 9 9-6-4-3 ❖ 7-2 •9 Á-G-6-5 + K-D-8-4 + 10-7 ♦ K-D-5 9 Á-K-G-10 9 D-9 + Á-G-5-2 Ef við spilum tígulníu fyrst, þá þvingast austur til þess að nota eitt af sínum tígulháspilum og þá er vandinn lítill að spila tígulinn fríann. Alveg s|álfsagt Öllum finnst okkur sjálf- sagt að hafa rafmagn. Það er svo snar þáttur í lífi okkar að við veitum því varla athygli. Við þrýstum á hnapp og heim- ilistækið eða vélin á vinnustað er reiðubúin til þjónustu við okkur. Rafmagnsveita Reykjavíkur leggur metnað sinn í að dreifa rafmagni til notenda sinna stöðugt og hnökralaust. Dreif- ingarkostnaður greiðist af orkugjaldi. Ógreiddir orku- reikningar valda auknum lán- tökum og hærri rekstrar- kostnaði. Jafnsjálfsagt og það er að hafa stöðugt rafmagn ætti að vera sjálfsagt að greiða fyrir það á réttum tíma. Láttu orkureikninginn hafa forgang! V) RAFM4GNSVEITA REYKlÁVlKUR SUDURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.