Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 39

Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 39
FRÉTTAPÓSTUR Hvalveiðamálið Hvalveiðum í vísindaskyni hefur verið hsett í bili, að minnsta kosti til 20. ágúst nk. Sagt er að sumarfrí starfs- manna Hvals hf. standi yfir. Forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, segir þó að hugsanlegt sé að hvalveiðum verði frestað fram til næsta árs náist ekki samkomulag á fyrirhuguðum fundi Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegs- ráðherra, og bandaríska viðskiptaráðherrans, Baldridges 18. júlí sl. tilkynnti Baldtridges að ef íslendingar myndu ekki hætta veiðum þá þegar eða þegar 60 dýr væru komin á land mundi hann grípa til lögboðinna gagnráðstafana, þ.e. staðfesta við Bandaríkjaforseta að íslendingar færu ekki eftir alþjóðlegum samþykktum um fiskveiðar. Það þýddi að Bandaríkjamenn myndu ráðleggja Japönum að kaupa ekki hvalkjöt af íslendingum. Þremur sólarhringum síðar var hvalveiðum hætt. íslendingar hafa litið á þetta sem hótanir Bandaríkjamanna um viðskiptaþvinganir á hendur íslend- ingum. Því hafa Bandaríkjamenn mótmælt. Vegna þess hef- ur Steingrímur Hermannsson birt gögn frá Bandaríkja- mönnum sem hann telur sýna svo ekki fari milli mála, að viðskiptaráðherra Bandaríkjanna hafi verið búinn að ákveða að leggja fram kæru varðandi hvalveiðar íslendinga. Ónafngreindir embættismenn bandarískir segja hluta þess- ara gagna vera trúnaðarskjöl og hefur birting gagnanna vakið hneykslan og reiði nokkurra ónafngreindra embætt- ismanna að sögn fréttastofunnar Reuters. Fundur Halldórs og Baldridges verður í næstu viku. Skatturinn kominn Skattbyrði einstaklinga í ár eykst um 0,5—0,8% miðað við árið í fyrra. Tekjur ríkissjóðs aukast af þeim sökum um 650 milljónir króna umfram áætlun fjárlaga og um aðrar 150 milljónir króna vegna meiri tekjuskatts af félögum en gert var ráð fyrir. Þessum 800 milljónum króna hefur þegar verið ráðstafað. 500 milljónir fara til að mæta launahækk- unum opinberra starfsmanna og 300 milljónum verður var- ið til niðurgreiðslna á landbúnaðarvörum. Fjármálaráðu- neytið gefur þrjár meginskýringar á þessari hækkun: í fyrsta lagi er bent á að skattvísitalan var hækkuð um 36% milli áranna 1985 og 86 en tekjur hækkuðu hinsvegar um 42—43% að meðaltali. í öðru lagi hefur stærra hlutfall af tekjum skattþega farið í hærra skattþrep. Loks er sú skýr- ing gefin að hert skattaeftirlit og aðgerðir skattayfirvalda hafi haft þau áhrif að tekjur manna skili sér betur til skatts en áður. Bergstaðastræti 15 Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra felldi á dögun- um úr gildi byggingaleyfi sem meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hafði veitt fyrir byggingu fjögurra hæða húss á lóðinni Bergstaðastræti 15. Þar stóð áður elsti steinbær landsins. íbúar í Bergstaðastræti 17 höfðu kært ákvörðun bygginganefndar borgarinnar til ráðherra. Úrskurður ráð- herra byggist á því að skipulagsstjórn ríkisins hafði mælt með því að leyfið yrði afturkallað þar sem teikningar sam- rýmdust ekki aðalskipulagi á svæðinu. Bins er í úrskurði ráðherra tekið fram að nýtingarhlutfallið sem gert var ráð fyrir sé of hátt og þar að auki liggi deiliskipulag ekki fyrir. Það hefur ekki gerst áður að ráðherra hafi tekið ákvörðun gegn ályktunum borgarinnar. Fréttapunktar • Um síðustu helgi átti lögreglan úti um allt land náðuga daga. Svo virðist sem fólk sé að spara og hvíla sig fyrir Versl- unarmannahelgina. • Jafnréttisráð hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að jafnréttislög hafi verið brotin við ráðningu lögregluþjóna til sumarstarfa á Akureyri í april sl. Brlingur Pálmason yfir- lögregluþjónn var dæmdur fyrir að brjóta jafnréttislög. Hann telur það fara illa saman að vera lögbrjótur og lög- regluþjónn. • Tæpar 270.000 krónur söfnuðust á tónleikum sem Bubbi Morthens og félagar héldu til styrktar Kvennaathvarfinu í Reykjavík. Troðfullt var útúr dyrum á tónleikunum. 765 miðar seldust og þess voru dæmi að menn kæmu til þess eins að kaupa miða. • Eignir þrotabús Þörungavinnslunnar á Reykhólum hafa verið auglýstar til sölu en verksmiðjan er nú starfrækt af heimamönnum sem hafa hana á leigu til 1. september næst- komandi. • Lögreglan hefur verið iðin við að mæla hraða bifreiða um allt land að undanförnu og bætist sífellt við fjölda þeirra sem kærðir eru fyrir of hraðan akstur. Á þriðjudag höfðu 210 verið kærðir og 1413 ökumenn fengið áminningu frá lög- reglunni. • 18. ágúst næstkomandi eru 200 ár liðin síðan Vestmanna- eyjar fengu kaupstaðarréttindi. Ekki er fyrirhugað á neinn hátt í Vestmannaeyjum að minnast afmælisins. En hinn 18. ágúst 1776 fengu sex bæir kaupstaðarréttindi: Reykjavík, ísafjörður, Eskifjörður, Grundafjörður, Vestmannaeyjar og Akureyri. • í vikunni komu fyrstu íslensku kartöflur sumarsins á markað úr Mýrdalnum og úr Þykkvabæ. Útlit er fyrir nokk- uð góða uppskeru kartaflna í haust. • Kennslumálaráðherra Danmerkur kom til landsins í vik- unni í opinberri heimsókn. Hann mun, ásamt menntamála- ráðherra íslands, undirrita á Þingvöllum hinn 1. ágúst formlega lausn handritamálsins svokallaða. • Ríkisstjórn íslands samþykkti á fundi í vikunni að setja á laggirnar starfshóp sem á að gera tillögur um hvernig efla skuli innra öryggi ríkisins og uppræta ólöglega starfsemi sem gæti skaðað ríkið og öryggi þess. Andlát Guðrún Þórðardóttir heiðursborgari Húsavíkur andaðist sunnudaginn 27. júlí tæpra 107 ára. Hún var íslendinga elst. W Á tímabilinu 1. mal til 30. sept. Á tímabilinu 1. júnl til 31. ágúst Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk. Þriðjudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00 eftir komu rútu. Frá Brjánslæk kl. 18.00 Til Stykkishólms kl. 21.30 Fimmtudaga Föstudaga: Sama tímatafla og mánudaga. Frá Stykkishólmi kl. 14.00, eftirkomu rútu. Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Sigling um suðureyjar. Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00 Viðkoma i inneyjum. Á timabllinu 1. iúlí tll 31. áaúst Frá Brjánslæk kl. 19.30 Til Stykkishólms kl. 23.00 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00, fyrir brottför rútu. Viðkoma er áuallt i Flatey á báðum leiðum. Bílaflutnlnga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara. Frá Stykkisholmi: Hjá afgreiðsiu Baldurs Stykkishólmi, s.: 93-8120 Frá Brjánslæk: Hjá Ragnari Guðmundssyni Brjánslæk, s.: 94-2020. VELKOMIN I VÍÐIGERÐI í VÍÐIDAL 1Hi wé IHH VIÐIGERÐI r-~ ö. miðja vegu milli Brúar og Blönduóss, við þjóðveginn Veitingar og gisting Bifreiðaverkstæðið veitir alhliða bifreiða- og hjólbarða- þjónustu. Nýr og endurbættur veitingaskáli býður upp á Ijúffengar veitingar. Opið alla daga kl. 9:00 til 23:30 Seljum veiðileyfi í Hóp, Vestur-Hóp og fleiri staði VÍÐIGERÐI SF STÓRMARKAÐUR Lóuhólum 2—6, sími 74100 Nýtt í Hólagarði CHICK King kjúklingabitar á frábæru verði. Nautahakk 198kr.kg. Wamborgarar m/bra«ði rOkhStk. ivttat Vtf- Fyrir Verslunarmannahelgina stórkostlegt úrval af grillmat STÓRMARKAÐUR í BREIÐHOLTI Kryddlegnar lambagrill kótelettur 269 kr. kg. Libby’s tómatsósa stór kr. 50,80 HELGARPÖSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.