Helgarpósturinn - 31.07.1986, Síða 29
lægri gráðum. Stórmeistari Stór-
stúkunnar svokölluðu er Indriði
Pálsson, forstjóri Skeljungs. Sérstök
Stúart-stúka er á Akureyri og er
Þórdur J. Gunnarsson, umboðs-
maður Brunabótafélagsins, stór-
meistari hennar. í Reykjavík er
Sankti Andrésar stúkan Helgafell og
er þar stórmeistari Werner Ivar
Rassmusson, apótekari og reglu-
bróðir af níundu gráðu. Sankti
Andrésar stúkan Huld er á Akureyri
og þar er stórmeistari Agúst Olafs-
son, húsgagnasmíðameistari.
Stórmeistarar áður upptaldra
Sankti Jóhannesar stúkna eru eftir-
farandi: í Eddu Gudmundur S. Jóns-
son, en fyrsti varameistari Steinar J.
Lúövíksson. í Rún Valur Arnþórs-
son, kaupfélagsstjóri, en fyrsti vara:
meistari Gunnar Bergur Arnason. í
Mími Jón Birgir Jónsson, verkfræð-
ingur, en fyrsti varameistari Ragnar
Júlíusson skólastjóri. í Njálu á ísa-
firði Jóhann Tómas Bjarnason, en
fyrsti varameistari er Gudmundur
Gudmundsson framkvæmdastjóri. í
Gimii Jón Rafn Gudmundsson, fv.
framkvæmdastjóri líftryggingafé-
lagsins Andvöku, en varameistarar
Skúli Sigurdsson og Bruno Hjalte-
sted. í Hamri er stórmeistari Eggert
Isaksson hjá Hval hf., en fyrsti vara-
meistari er Guömundur Elías Árna-
son. í Akri á Akranesi er stórmeist-
ari Baldur Trausti Eiríksson, en
fyrsti varameistari Svanur Geirdal.
Stórmeistari Glitnis í Reykjavík er
Sigurður Örn Einarsson, skrifstofu-
stjóri, en fyrsti varameistari Baldur
Sveinsson. Stórmeistari Sindra í
Keflavík er Jóhann Líndal Jóhanns-
son rafveiturekstrarstjóri og fyrsti
varameistari Gunnlaugur Karlsson
skipstjóri. Stórmeistari Röðuls er
Páll Jónsson, en fyrsti varameistari
Kjartan T. Olafsson.
Fræðslustúkur eru starfræktar á
nokkrum stöðum um landið. Á Sauð-
árkróki er fræðslustúkan Mælifell
.og henni stýrir Árni Ásgrímur
Blöndal. Á Húsavík er fræðslustúk-
an Draupnir og henni stýrir Sigurö-
ur Guömundsson prófastur. Á Siglu-
firði er fræðslustúkan Dröfn og
henni stýrir Þorleifur Ragnar Jónas-
son. 1 Vestmannaeyjum er starfrækt
bræðrafélag frimúrara og því stýrir
Guðmundur H. Guðjónsson. Þá er
loks bræðrafélag í Stykkishólmi og
því stýrir Jónas Gestsson. Fræðslu-
stúkur og bræðrafélög eru ekki full-
gildar frímúrarastúkur og tilheyra
meðlimir þeirra Sankti Jóhannesar
stúkunum.
Hér verður ekkert fullyrt um eðli
eða tilgang Frímúrarareglunnar á
íslandi. Margir vilja taka undir þá
niðurstöðu Ulfars Þormóðssonar að
innri samtrygging þar sé á stundum
veigameiri regiubræðrum en pólitík
og flokkadrættir og að þar sé mikil-
vægum málum oft ráðið á bak við
tjöldin. Aðrir telja að á ferðinni sé
tiltöluiega saklaus karlaklúbbur og
benda á að samkvæmt reglum fé-
lagsskaparins sé bannað að tala um
stjórnmál á fundum. Samsetning
reglunnar er öðruvísi nú orðið en
þegar reglan var hvað sterkust fyrir
30—40 árum. í henni eru nú færri
menn í lykilstöðum þjóðfélagsins og
þarna eru menn úr öllum stéttum að
því er virðist. Þó er þarna talsvert
um ýmiss konar stjórnendur og það
má heita allathyglisvert að um tíma
voru saman á toppi reglunnar for-
stjórar allra þriggja olíufélaganna;
Indriði fíálsson, Vilhjálmur Jónsson
og Önundur Ásgeirsson. Þá hafa
margir guðsmenn komist á toppinn,
en víða erlendis hefur einmitt verið
deilt um réttmæti þess að prestar
séu í leynifélögum.
Sennilega verður spurningunni
um eðli, tilgang og áhrif Frímúrara-
reglunnar á íslandi aldrei svarað til
fulls. Samstaða reglubræðra er vafa-
laust nokkur, en hið sama má segja
um pólitíska flokksbræður, meðlimi
annarra leyndra og ljósra félaga,
fylgjendur ákveðinna íþróttafélaga,
stéttarbræður, ættingja og persónu-
lega vini. Sá leyndarhjúpur sem
hvílt hefur yfir þessari reglu hefur
hins vegar fætt af sér samsæris-
kenningar sem erfitt er að henda
reiður á, sanna eða afsanna. Ljóst er
þó, að það virðist mjög eftirsóknar-
vert að komast í regluna og til þess
þarf talsverð fjárhagsleg útgjöld. Og
færri komast að en vilja; þegar nýir
meðlimir eru bornir upp fer fram at-
kvæðagreiðsla og verður hún að
vera einróma, annars er nýgræðing-
urinn úti í kuldanum!
sem lauk um síðustu helgi, þótti víst
takast bærilega og vel það. Einn
maður var þó ekki ánægður með
allt þetta tilstand — nefnilega Knut
Ödegard, forstjóri Norræna húss-
ins. Staðsetning sirkustjaldsins, sem
reist var á Háskólavellinum í Vatns-
mýrinni, mun einkum hafa verið
þyrnir í augum Knúts. Hann hefur
nú sent borgarráði og einhverjum
stofnunum borgarinnar bréf, þar
sem hann kvartar yfir því að tjaldið
hafi skyggt á Norræna húsið. Þar
vísar hann meðal annars í arkitekt
hússins, þann fræga Alvar Aalto,
sem mun hafa mælt svo fyrir að
ekkert mætti reisa sem skyggði á
bygginguna. En það skyldi þó aldrei
vera að N'art hafi skyggt á Norræna
húsið í fleiri en einum skilningi. . .
GÓÐAFERÐÍ
KongoROOS
w
SKONUM MEÐ VASANUM
útilJf
Glæsibæ, sími 82922.
\ . ■■■' " 1 m/mmmmmA.