Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 31.07.1986, Blaðsíða 30
LEIÐARVÍSIR HELGARINNAR SÝNINGAR ÁRBÆJARSAFN Jan Ingi Júlíusson form. Fél. Harmon- ikkuunnenda leikur í Dillonshúsi á sunnu- dag kl. 15-17. ÁSGRÍMSSAFN Sýning í tilefni Listahátíðar. Aðallega myndir málaðar á árunum 1910—1920. Opið út ágústmánuð kl. 13.30—16 nema laugardaga. ÁSMUNDARSAFN Reykjavíkurverk Ásmundar til sýnis fram á haustið kl. 10—17 alla daga. GAFÉ GESTUR Ingibjörg Rán sýnir. Yfirskrift sýningarinn- ar er „Látið myndirnar tala". GALLERl BORG Sumarsýning virka daga kl. 10—18. Reglulega skipt um verk. GALLERÍ GANGSKÖR Sumarsýning um þessar mundir, opið virka daga kl. 12—18. GALLERf LANGBRÓK Textíll. Opið kl. 14—18 virka daga. GALLERf iSLENSK LIST Sumarsýning listmálarafélagsins verður opin í sumar virka daga kl. 9—17. Sýnd um 30 verk eftir 15 félaga. KJARVALSSTAÐIR Picasso-sýningin á vegum Listhátíðar og sýningin Reykjavík í myndlist þar sem 60 Reykjavíkurverk eru sýnd eftir 33 lista- menn. Sýningarnar opnar kl. 14—22. LISTASAFN ASl v/Grensásveg Sýnd 40 verk f eigu safnsins til 24. ágúst. LISTASAFN HÁSKÓLA ÍSLANDS, í Odda Til sýniseru90 verk safnsinsaðallegaeft- ir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur ókeypis. MOKKA KAFFI Georg Guðni sýnir vatnslitamyndir og teikningar. SEÐLABANKINN Sýning gjaldmiðils og sögu þess frá land- námi til nútíma stendur yfir á vegum Landsbankans og er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14—22. SKOPTEIKNINGAR Menningarmálastofnun Bandaríkjanna stendur þessa dagana fyrir sýningu á frummyndum skopmynda úr „The New Yorker" því fræga tímariti. Opin alla virka daga milli 8.30 og 17.30, og stendur út júlí. Síðustu forvöð. ÞJÓÐVELDISBÆRINN Þjóðveldisbærinn Þjórsárdal verður op- inn til skoðunar í sumar kl. 13—17. ÓLAFSVlK Kaldilækur Jóhanna Bogadóttir heldur sýningu á litógrafíum í kaffihúsinu Kaldalæk til 10. ágúst. Sýnt er fimmtudaga—sunnudaga frá 15-23. STOKKSEYRI Elfar Guðni Þórðarson sýnir smámyndir í Grunnskóla Stokkseyrar. Sýningin er opin 14 — 22 um helgar og 20—22 virka daga. ÞRASTALUNDUR OG FERSTIKLA Björg ivarsdóttir sýnir kolteikningar og ýmislegt forvitnilegt annað daglega. HLAÐVARPINN Edna Cers sýnir batik í myndlistarsalnum að Vesturgötu 3. Að auki er „Hin sterkari" sýnd kl. 16 laugardaga og sunnudaga. Kaffisala og tónlist á undan. AKUREYRI i afgreiðslusal Verkalýðsfélagsins Einingar að Skipagötu 14 stendur yfir sýning á 27 olíumálverkum eftir Þorvald Þorsteinsson, myndlistamann. Hún mun standa fram f miðjan september. NÝLISTASAFN ISLANDS Vatnsstfg 3b Á föstudag kl. 20 verður opnuð sýning á vegum Boekie Woekie, en það er búð í Amsterdam sem sýnir og verslar með bækur, innbundin verk og grafík eftir að- standendur. Þeir eru: Hettie van Egten, Jan Voss, Kees Visses, Fétur Magnús- son, Rúna Þorkelsdóttir, og Saskfa de Vriendt. Einkasýning Péturs Magnússonar er svo (neðri sal. Safnið er opiö kl. 14—20 um helgar en 16—20 virka. VIÐBURÐIR FÉLAGSMIÐSTÖÐIN FELLAHELLIR Engin ástæða ætti að vera fyrir þollaus- um Breiðhyltingum f sumar. Nú býður Fellahellir upp á trimm-aðstöðu þ.e. þrek- æfinga- borðtennis- og baðaðstöðu. Til að bæta upp kaloríu- og vökvatap eru kaffiveitingar á staðnum. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Ferðir um helgina — Brottför föstudag kl. 20: 1. Fjöllin upp af Kálfafellsdal. 2. Skaftafell — Þjóðgarðurinn. 3. Þórsmörk — bæði dagsferð og lengri ferð. 4. Landmannalaugar — Langisjór — Eldgjá. 5. Álftavatn — Strútslaug — Hólmsár- lón. 6. Sprengisandur — Skagafjörður — Kjölur. HANA NÚ Vikuleg laugardagsganga verður farin sem endranær nú um helgina. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Rölt verð- ur um bæinn í klukkustund og eru allir aldurshópar velkomnir. Markmið göng- unnar er: Samvera, súrefni, hreyfing. ÚTIVIST Ferðir um helgina — brottför föstudags- kvöld kl. 20. 1. Þórsmörk — lengri og styttri ferðir. 2. Núpsstaðaskógur — Lómagnúpur. 3. Eldgjá — Landmannalaugar — Fjallabaksleiðir. 4. Snæfellsnes — Breiðafjarðareyjar — Flatey. LEIKHÚS SÖGULEIKARNIR Hin magnaða uppfærsla á Njáls sögu er enn sýnd og verður vonandi um skeið. 12 leikarar taka þátt í sýningunni sem tekur um 90 mín. í flutningi. Sýningar eru mið- vikudags- og fimmtudagskvöld kl. 21 og tvisvar á laugardögum og sunnudögum kl. 14.30 og 17. Verkið er flutt á íslensku, en útdrættir hafa verið útbúnir og fást á ís- lensku, ensku, dönsku og þýsku. TJARNARLEIKHÚSIÐ Ferðaleikhúsið/Light Nights sýna fjórum sinnum í viku, fimmtudaga—sunnudaga kl. 21. Þær eru sérstaklega ætlaður enskumælandi ferðamönnum til fróð- leiks og skemmtunar. BÍÓIN ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg O léleg AUSTURBÆJARBlÓ Salur 1 Lögmál Murphy's ★★ Nokkuð glúrinn Bronson-þriller sem er vel skrifaður og ágætlega leikinn. Aðal- hlutverk: Charles Bronson og Kathleen Willhoite. Leikstjórn: J. Lee-Thompson. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 2 Flóttalestin (Runaway Train) ★★★ Meitluð túlkun helstu leikara — John Voight hreinn og beinn viðbjóður — á einn stærstan þátt f að gera þessa mynd sterka. Leikstjórn: Andrei Konchalowski. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 3 Leikur við dauðann (Deliverance) Spennumynd Johns Boorman. Voight fjölgar sér á sali — hér ásamt Burt Reyn- olds hinum loðna. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. BÍÓHÚSIÐ Allt f hönk (Better Off Dead) ★ Geðveikur grlnari meö John Cusack f að- alhlutverki. Leikstjóri: Savage Steven Hol- land. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Skógarlff Sýnd kl. 3 á sunnudag. BiÓHÖLLIN Salur 1 Lögregluskólinn III (Run for Cover) ★★ Léttgeggjuð ærslamynd sem hefur þann sjaldgæfa eiginleika framhaldsmynda að vera besta eintakið. Aðalhlutverk: Steve Guttenberg og Bubba Smith. Leikstjórn: Jerry Paris. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 2 9% vika (9 Vá Weeks) ★★★ Dúndurvel og fallega kvikmyndaðar og leiknar upp- og ofanferðir. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05. Bönnuð börnum innan 16 ára. Salur 3 Skotmarkið (The Target) ★★ Hnökralaus njósnamynd — en lognmolla þrátt fyrir fagmennskuna. Sýnd kl. 5 og 9. Út og suöur f Beverly Hills (Down and Out in Beverly Hills) ★★★ Prófessfónell og skemmtileg gaman- mynd með Dreyfus, Nolte og hundinum Mika. Leikstjóri: Paul Mazursky. Sýnd kl. 7 og 11. Youngblood ★★ Myndarleg Rocky-mynd á skautum. Fteter Markle leikstýrir og Robert Lowe leikur. Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. Saiur 5 Nflargimsteinninn (The Jewel of the Nile) ★★ Douglas jr. og Kathleen Turner í skemmti- legri og hreint ekki viöburðasnauðri æv- intýramynd. Sýnd kl. 5 og 9. HÁSKÓLABÍÓ Ottó ★★★ — sjá umsögn f Listapósti. Sýnd kl. 7, 9 og 11. LAUGARÁSBÍÓ Salur A Smábiti (Once Bitten) ★ — sjá umsögn í Listapósti. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur B Ferðin til Bountiful ★★★ Alveg bráðskemmtileg og Ijómandi vel leikin mynd með óskarsverðlaunahafan- um Geraldine Page í aðalhlutverki. Hreint engin tfmaeyðsla þetta! Leikstjórn: Peter Masterson. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur C Jörð f Afríku (Out of Afrika) ★★ Streep og Redford fara á kostum í glæsi- lega vel og fallega leikinni kvikmynd. Of mikill glans og ósanngirni gagnvart Karen Blixen tekur þó sinn toll. Framleiðandi/leikstjóri: Sidney Pollack. Sýnd kl. 5 og 8.45. REGNBOGINN I návígi (At Close Range) ★★★ Stórvel leikin, æsispennandi þriller í óvenjulegum umbúðum og með mann- lega þáttinn skemmtilega „innbundinn". Aðalleikarar: Sean Penn og Christopher Walken. James Foley leikstýrir, Madonna syngur. Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15. Moröbrellur (Murder by lllusion) ★ Brellukarl hundeltur af eigin viðskiptavin- um — sniðugt plott en gloppótt handrit dregur myndina niður fyrir meðal- mennskuna. Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.10. Geimkönnuðirnir (Explorers) ★★ Amrísk garanteruð spekúlasjón-súkks- ess-filma. Leikstjóri: Joe Dante. Aðalleik- arar: Ethan Hawke og River Phoenix. Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15. Sæt ! bleiku (Pretty in Pink) ★ Molly Ringwald vekur upp spurningar — er ekki komið nóg af þessari gegndar- lausu lágkúru? sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Örvæntingarfull leit að Susan ★★★ Hin stórskemmtilega mynd með Madonnu og Rosönnu Arquette endur- sýnd í einhverja daga. Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og 11.15. STJÖRNUBÍÓ Járnörninn ★ — sjá umsögn f Listapósti. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15. Kvikasilfur (Quicksilver) ★★ Ágætlega heppnuð Rocky-mynd á reið- hjólum — Bacon á þeysireið. Aðalhlut- verk; Kevin Bacon. Leikstjórn: Tom Don- elly Bönnuð innan 12 ára. sýnd kl. 5 og 9. Bjartar nætur (White Nights) ★★★ Andsovéskur áróður en hrein snilld þegar best lætur. Dansararnir Baryshnikov og Hines fara vel með aðalhlutverkin. Leik- stjórn: Taylor Hackford. Sýnd kl. 9. Eins og skepnan deyr ★★★ Sjarmi myndarinnar felst einkum f töku og leik. Edda Heiðrún, Þröstur Leó og Jóhann Sigurðsson fara með hlutverkin og Hilmar Oddsson leikstýrir þeim f sinni fyrstu mynd. Verður að kallast mjög góð mynd. Sýnd kl. 7. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.