Helgarpósturinn - 28.08.1986, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 28.08.1986, Blaðsíða 7
KIRKJAN FLæKT I SKULDAHALA SKÁLHOLTS Þjódkirkjan fœr aukafjárveitingu frá ríkissjódi til þess ad greiða skuldir Skálholtsútgáfunnar og bjarga henni frá gjaldþroti. Starfsemin lögð niöur. Skálholt komst í þrot eftir fimm ára líftíma vegna vanþekkingar stjórnenda á útgáfumálum, rangra fárfestinga og óhóflegrar yfirbyggingar. Tapið allt að 20 milljónum króna. Kirkjurád, œðsta stjórn þjóðkirkj- unnar; hefur fengið aukafjárveit ingu úr ríkissjóði til þess að bjarga Skálholtsútgáfunni frá gjuldþroti og kirkjunnar menn neyta nú atlra ráöa til þess að hreinsa upp þœr skutdir er útgáfan safnaði á fimm ára líftímá sínum. Þegar endurskoð-_ andi fór yfir ársreikninga Skálholts eftirsíðustu áramót korn í Ijós að fé- lagið skuldaði á bilinu 15—17 millj- ónir króna og útséð var um að það gœti haldið áfram rekstri. Þessi mikla skuldasöfnun á stuttum tíma á sér margar ástœður; óhóflega yfir- byggingu, vanþekkingu yfirmanna á útgáfumálum, rangar fjárfesting- ar og þráa stjórnendanna við að taka á vandamálunum þegar allt var komið í óefni. Fyrir þetta er nú þjóðkirkjan að borga með aðstoð frá ríkissjóði og söfnuðum víðsveg- ar um landið. Skálholtsútgáfan, sem áður var umfangsmikið útgáfufyrirtaeki, er nú lítið annað en ógreiddir reikningar f skúffu biskupsritara. (Mynd og uppstilling Helgarpóstsins). RANGAR FJÁRFESTINGAR Skálholtsútgáfan liggur nú í dvala í skúffu á biskupsstofu og eina verk- efni hennar er að gefa út Víðförla, tímarit þjóðkirkjunnar. Þegar útgáf- an var stofnuð árið 1981 var henni ætlað að sjá um alhliða útgáfu á kristilegu efni. Skálholt er sjálfs- eignarstofnun og níu manna stjórn ber ábyrgð á starfseminni en tengsl hennar við biskupsstofuna hafa ver- ið þó nokkur og meðal annars hefur biskupsstofa gengið í ábyrgð fyrir skuldum fyrirtækisins. Tengsl Skál- holts við Hjálparstofnun kirkjunnar hafa einnig verið þó nokkur; t.d. sitja tveir hjálparstofnunarmenn í þriggja manna framkvæmdastjórn Skálholts, þeir Guðmundur Einars- son, framkvæmdastjóri Hjálpar- stofnunar, og Ottó A. Michelsen, stjórnarmaður sömu stofnunar og eigandi Skrifstofuvéla. Níu manna stjórn félagsins hafði alla tíð lítið að segja um rekstur út- gáfunnar og öll ákvarðanataka var í leftir Gunnar Smára Egilsson höndum framkvæmdastjórnar og framkvæmdastjóra liverju sinni. Fljótlega eftir stofnun félagsins var ráðist í kaup á prentvél, setning- arvéium og tækjum til íilmugerðar og var þá talað um að nú hefði kirkj- an eignast sína prentsmiðju aftur. Þessi prentsmiöja nýttist hins vegar Skálholti ekki sem skyldi. Prentvél- in var það lítil að hún réð ekki við prentun á öðru en sneplum og bækl- ingum, en megnið af útgáfu Skál- holts voru bækur. Tækin til filmu- gerðar voru sömuleiðis óhentug þar sem þau réðu ekki við filmugerðir bóka og því þurfti útgáfan að fara í samkeppni við aðrar prentsmiðjur um verkefni á frjálsum markaði. Fljótlega varð þó ljóst að prent- smiðjuþátturinn gerði lítið annað en safna skuldum og það var langt frá því að hann stæði undir þeim fjár- magnskostnaði er kaup á tækjunum höfðu í för með sér. Prentsmiðjan var þó ekki seld íyrr en síðastliðið haust en skuldahalinn sem hún leiddi af sér átti sinn þátt í að koma útgáfunni í strand. MIKIL YFIRBYGGING Þó svo að Skálholt hafi gefið út margar ágætar bækur og plötur voru gerð mörg afdrifarík mistök í útgáfumálum. Á þeim fimm árum sem liðin eru frá stofnun hennar hefur aldrei setið neinn í stjórninni með staðgóða þekkingu á þeim málum. Framkvæmdastjórarnir sem ráðnir voru til fyrirtækisins voru heldur ekki sóttir til útgáfu- fyrirtækja; t.d. var síðasti fram- kvæmdastjórinn, Kristinn Agúst Friðfinnsson, prestur, og forveri hans, Gunnlaugur Snœvarr, kenn- ari. Því voru margar bækur, sem ýmist voru illséljanlegar eða gengu hægt i sölu, gefnar út á sama tíma og útgáfan stóð það illa að hún hafði ekki efni á því að sitja uppi með dýr- an lager. Þá voru gerðir óhagstæðir samningar við prentsmiðjur, útgáfu- tíminn var oft ónákvæmur, dreifing- arkerfið sem komið var upp var flókið og því öll innheimta erfið. En eins og um fleiri íslensk fyrir- tæki þandist starfsemi Skálholts út á sama tíma og fjárhagsstaða þess versnaði. Félagið jók við skrifstofu- húsnæði sitt, tók meðal annars yfir glæsilegt skrifstofuhúsnæði Asks á efstu hæð hússins að Klapparstíg 27 er hann flutti þaðan, og flutti sig síð- an niður um eina hæð þar sem Hjálparstofnunin hafði áður verið til húsa og innréttaði þar nýja skrif- stofu á vormánuðum 1985. Um tíma störfuðu á skrifstofunni auk fram- kvæmdastjóra tvær skrifstofustúlk- ur og fólk í lausamennsku og í prent- smiðju fimm manns þegar mest var. Útgáfa félagsins stóð engan veginn undir þessari yfirbyggingu enda komast fyrirtæki af svipaðri stærð- argráðu og Skálholt af með mun minna húsnæði og færra starfsfólk. SKULDIRNAR NÁMU 15—17 MILLJÓNUM Á haustmánuðum í fyrra varð Kristni Ágústi, framkvæmdastjóra og framkvæmdastjórninni, — en auk Guðmundar og Ottó átti sr. Bragi Friðriksson, prófastur í Garða- bæ, sæti í stjórninni, — ljóst að grípa þurfti til aðgerða til að bjarga útgáf- unni frá gjaldþroti. Gripið var til þess ráðs að selja prentsmiðjuna og fengust fyrir hana 3 milljónir króna, sem mun vera mun lægra verð en hún var upphaflega keypt á. Þegar svo ársreikningar voru end- urskoðaðir í byrjun árs kom í ljós að skuldir félagsins voru á bilinu 15—17 milljónir króna þrátt fyrir söluna á prentsmiðjunni. Þá var ljóst að félagið átti ekki fyrir skuld- um og rekstur þess var í þannig ástandi að sýnt þótti að áframhald- andi rekstur gerði einungis illt verra. Biskupsstofa greip þá inn í, enda hafði hún gengist í ábyrgð fyr- ir stórum hluta Skálholtsskuldanna, og hóf að leita leiða til þess að grynnka á skuldasúpunni. Það mun sjálfsagt aldrei verða ljóst hversu mikið Skálholt skuldaði í raun á þessum tíma. Þar sem útgáf- an var nátengd þjóðkirkjunni báru viðskiptavinir hennar mikið traust til Skálholts og ófáir samningar eru ekki til nemá í munnlegri geymd. Til dæmis gerði Pálmi Gunnarsson ekki skriflegan útgáfusamning við Skálholt vegna plötunnar sem kom út um síðustu jól, hjá fyrirtækinu. RÍKIÐ BORGAR Eftir að Ijóst var í hvaða óefni var komið lét Kristinn Ágúst af störfum sem framkvæmdastjóri og nær öll starfsemi félagsins lá niðri. Eftir á skrifstofunni sat einn starfsmaður, Svavar Jónsson, og tók hann á móti þeim er áttu ógreidda reikninga hjá Skálholti við tóman peningakass- ann. Margir fóru illa út úr því að fé- lagið hætti starfsemi sinni svo snögglega. Til dæmis þurfti Eðvarð Ingólfsson rithöfundur að endur- kaupa víxil sem hann hafði fengið fyrir höfundarlaunum vegna bókar- innar um Reyni Pétur eftir að banka- stofnun hafði gefist upp á því að rukka Skálholt sem var útgefandinn að víxlinum. Biskupsstofa og framkvæmda- stjórn Skálholts beittu ýmsum ráð- um til þess að greiða skuldir félags- ins niður. Kirkjuráð fékk aukafjár- veitingu frá ríkissjóði í nafni Kristni- sjóðs til útgáfumála þjóökirkjunnar. Fjárveitingin hljóðaði upp á 7 millj- ónir króna og hún fór að mestu í að greiða fyrir gamlar syndir Skálholts. Reynt var að ganga til samninga við þá aðila er útgáfan skuldaði og vegna velvilja í garð kirkjunnar fékkst umtalsverð niðurfelling á skuldum. Enn sér ekki fyrir endann á skuldunum sem Skálholt skildi eft- ir sig og hefur meðal annars verið skorað á söfnuði í landinu að láta eitthvað af hendi rakna til þess að hægt verði að greiða þær niður að fullu. Áætlanir eru einnig uppi um að koma bókalager Skálholts í verð með einhvers konar kostaboðum á markaðnum en ómögulegt er að segja til um hvernig það kann að ganga og hvað á endanum fæst fyrir bækurnar. ÁLITSHNEKKIR FYRIR KIRKJUNA Ástæðan fyrir því að biskupsstofa gekk jafn röggsamlega og raun bar vitni fram i því að bjarga sjálfseign- arfélagi, sem ekki tengist henni formiega, frá gjaldþroti er fyrst og fremst sú að hún hafði gengist í ábyrgð fyrir töluverðu af skuldum útgáfunnar. En sú viðskiptavelvild sem Skálholt naut er að mestu til komin vegna tengsla fyrirtækisins við þjóðkirkjuna og því hefði gjald- þrot félagsins orðið kirkjunni mikill álitshnekkir. En kirkjan hefur ekki yfir digrum sjóðum að ráða og því þurfti hún að leita á náðir ríkisins til þess að geta borgað skuldirnar eftir fimm ára rekstur Skálholts. Nýverið auglýsti biskupsembætt- ið lausa stöðu fjármálafulltrúa. Fjár- mál þess hafa hingað til heyrt undir biskupsritara en hann hefur margt annað á sinni könnu og hafa fjár- málin verið eins konar aukageta hjá honum. Núverandi biskupsritari, sr. Magnús Guðmundsson, hefur geng- ið fram í því að gera upp skuldir Skálholts og eru leifar útgáfunnar nánast í skrifborðsskúffu hans. En með tilkomu fjármálastjóra mun biskupsembættið sjálfsagt endur- skoða fjármál sín og þeirra félaga og stofnana er því tengjast. mynd Jim Smartl HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.