Helgarpósturinn - 28.08.1986, Blaðsíða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Egill Helgason og Sigmundur
Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn:
Gunnar Smári Egilsson, Friðrik
Þór Guðmundsson, Jóhanna
Sveinsdóttir, Jónína Leósdóttir,
Margrét Rún Guðmundsdóttir og
G. Rátur Matthíasson.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarsoii
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Steinþór Ólafsson.
Auglýsingar:
Hinrik Gunnar Hilmarsson,
Sigurður Baldursson.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími 74471).
Berglind Björk Jónasdóttir.
Afgreiðsla:
Ölöf K. Sigurðardóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 68-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Fornleifaupp-
gröftur á
Islandi
íslendingar hafa jafnan reikn-
að sér til tekna að láta sér annt
um eigin sögu; þegar mikið
liggur við kalla þeir sig sögu-
þjóð. En hversu vel eru þeír að
þessu saemdarheiti komnir?
Hlúa islendingar að menning-
ararfleifð sinni sem skyldi?
I Helgarpóstinum í dag er
fjallað um fornleifarannsóknir á
Islandi, og þótt ef til vill sé of-
mælt að tala hér um svarta
skýrslu, þá mun hitt sönnu nær
að víða er pottur brotinn. Fyrst
er til að taka að deyfð og drungi
virðist umlykja hugmyndir
manna um fornleifafræðiiðkan-
ir hérlendis. Að því er lýtur yfir-
stjórn þessara mála þá er aug-
sýnilegt að hér örlar ekki á
neins konar viðleitni til þess að
marka markvissa heildarstefnu
í vörslu og rannsóknum fom-
minja. Starfseminni háir ekki
aðeins féleysi, heldur einnig al-
mennt áhugaleysi. Það er
naumast unnt að greina frá því
kinnroðalaust að mun smærri
þjóðiren islendingar, Færeying-
ar og Grænlendingar, standa
okkur töluvert framan á sviði
fornleifaupgraftrar. Þessi stað-
reynd ætti að verða okkur hvati
til að staldra við og líta í eigin
barm.
Það er löngu orðið máltæki
meðal siðaðra þjóða að til þess
að skilja samtíðina þurfi að
hyggja vel að fortíðinni. Rann-
sóknir á fyrri tíðar sögu og forn-
leifum eru ekki andstæðar
framförum, eins og einhver
kynni að álíta, heldur eru þvertá
móti þáttur af okkar nútíma-
menningu, sem ekki er vist að
allir kærðu sig um að rofnaði til
fulls. En í þessum efnum er ekki
hægt að leyfa sér þann munað
að vera vitur eftir á, því að það
sem eitt sinn glatast verður
ekki fengið aftur. Hér vantar
stórátak. Og vitaskuld eiga yfir-
völd að stíga fyrsta skrefið og
marka stefnuna. Þjóðminja-
safnið býr við slíkt fjársvelti að
það ris ekki undir nema mjög
takmörkuðum fjölda verkefna í
einu. Einnig er bágt til að vita
að alltof oft vill brenna við að
upplýsingar dagi þar uppi,
vegna þess að ekki er höfð
ræna á að afla fé til að gefa út
niðurstöður þeirra fornleifa-
rannsókna sem þó hafa verið
gerðar. Ýmsar leiðir eru til úr-
bóta — en brýnasta verkefnið
er eflaust að vekja almennan
áhuga. Það verður ekki gert á
feimnislausrar umræðu.
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Athugasemd
vegna athuga-
semdar
arkitekts
Eftirfarandi athugasemd birtist í
Morgunblaðinu síðastliðinn laugar-
dag:
Morgunbladinu hefur borist eftir-
farandi athugasemd frá Manfreö
Vilhjálmssyni, arkitekl:
Hr. ritstjóri. 22- á8úsi 1986
Vegna skrifa í einu vikublaði borg-
arinnar um tengsl mín við Þorvald
S. Þorvaldsson, einn dómnefndar-
manna í samkeppni um nýbyggingu
Alþingis, vil ég vinsamlegast fara
þess á leit við þig, að blaðið birti eft-
irfarandi tilkynningu, sem kom í
Lögbirtingarblaði nr. 78:
„Það tilkynnist til firmaskrár
Reykjavíkur, að þann 1. apríl 1984
hætti Þorvaldur S. Þorvaldsson
störfum hjá firmanu Arkitektar
Manfreð og Þorvaldur sf. Fyrirtækið
hefur ekki starfað frá sama tíma, er
hætt starfsemi og óskast því tekið út
af firmaskrá. Reykjavík 15. mars
1986.“
Jafnframt kom fram í sama viku-
blaði að teiknistofur okkar Þorvald-
ar S. Þorvaldssonar væru „hlið við
hlið“. Teiknistofa mín er á Berg-
staðastræti 52 en stofa Þorvaldar á
Borgartúni 3 hér í borg.
Með þökk,
Manfreð Vilhjálmsson,
arkitekt.
Eins og lesendum HP mun vera
kunnugt á Manfreð Vilhjálmsson
við Helgarpóstinn þegar hann talar
um grein í „einu vikublaði borgar-
innar".
Tilefni þessarar athugasemdar er
grein sem birtist í síðasta tölublaði
HP og fjallaði um samkeppni um ný-
byggingu Alþingis. Meginþættir
þeirrar greinar voru að dómnefnd
samkeppninnar hafði ákveðið að
fórna öllum gömlum húsum á lóð-
um Alþingis og síðar verðlaunað
hús sem voru mun stærri en gat um
í útboðsskilmálum keppninnar (hús-
LAUSN Á
SPILAÞRAUT
Það vandamál getur skapast, að
ef austur kemst inn á spaðakóng,
þá skipti hann um lit og spili tígli.
Þá minnka möguleikarnir sem við
reiknuðum með. Ef þú gengur út
frá því að kóngarnir, sem vantar,
séu skiptir hjá andstæðingunum,
þá munu þeir taka með tígulásn-
um og vona að spilin liggi 3—3 í
spaða, sem jafnvel getur orsakað
þvingun. Þá uppgötvum við of
seint að spaðinn liggur 4—2 og að
austur á báða kóngana sem vant-
ar.
Til þess að verja tígul-klípuna
verðum við að svína spaðanum
„öfugt". Rétti spilamátinn er að
taka tromp og enda í borðinu. Þá
er síðasta hjartað trompað heima.
Svo spilum við spaða að ásnum og
síðan litlum spaða til drottningar-
innar. Komi kóngurinn siglandi frá
austri, getum við losnað við tap-
slaginn í tígli í spaðadrottninguna.
Ef spaðadaman verður tekin með
kóng vesturs. En ljósi punkturinn
er þó alltaf sá, að við þurfum ekki
að taka ákvörðun um tígulinn, áð-
ur en við vitum um legu spaðans
og hvort við getum losnað við
tígulinn með því að henda honum
í spaðann.
Þannig voru öll spilin:
S Á-G-2
H 10-6-3
T D-5
L D-G-9-5-4
S K-5 S 10-9-8-3
H G-9-7-2 H Á-K-D-8-5
T K-10-9-6-4-3 T 8-7-2
L _ 2 L 6
S D-7-6-4
H 4
T Á-G
L Á-K-10-8-7-3
ið er hlaut 1. verðlaun er um 60%
stærra en ráðgert var að nýbygging
Alþingis yrði við upphaf keppninn-
ar). Fyrri þátturinn er mikið deilu-
mál meðal arkitekta og þeirra, er
áhuga hafa á umhverfi miðbæjarins,
og því kannski dálítið óeðlilegt að
dómnefnd í þessari samkeppni skuli
geta tekið þessa ákvörðun án sam-
ráðs við aðra. Seinni þátturinn stríð-
ir í raun gegn öllum samkeppnis-
reglum. Það er óskiljanlegt að dóm-
nefnd, sem sent hefur frá sér út-
boðsskilmála þar sem tilgreind er
ákveðin stærð skuli síðar í störfum
sínum auka við þessa stærð skuli
síðar i störfum sínum auka við þessa
stærð. Þar sem stór hluti af vinnu
arkitekta felst í því að koma ákveðn-
um þáttum fyrir í fyrirfram ákveð-
inni stærð, er auðséð að þeir sem
fylgdu upphaflegum útboðsskilmál-
um sitja ekki við sama borð og þeir
sem teiknuðu mun stærri hús (bæði
1. og 2. verðlaun). Um þetta gildir í
raun sama og ef knattspyrnudómari
breytti leikreglum í hita leiksins,
öðru liðinu til framdráttar. HP er
kunnugt um að innan dómnefndar
var ekki einhugur um þessa ákvörð-
un, þó svo að þeir fjórir alþingis-
menn sem sæti áttu í nefndinni hafi
verið henni fylgjandi og aukið með
•því kostnað við byggingu hússins
um tugi prósenta.
Það atriði í greininni sem Manfreð
Vilhjálmsson gerir athugasemd við
snýst um 20. gr. samkeppnisreglna
Arkitektafélagsins er hljóðar svo:
„Auk dómara og ritara er þátttaka
óheimil þeim, sem er félagi (komp-
anjon), þ.e.a.s. arkitektar, sem reka
að jafnaði sameiginlega teiknistofu,
eða er nátengdir dómara". Nú hefur
aldrei reynt á túlkun þessarar
klausu þar sem arkitektar, er telja
sig hugsanlega geta fallið undir
hana, hafa lagt fram fyrirspurn til
samkeppnisnefndar Arkitektafé-
lagsins í upphafi keppni og fengið úr
því skorið hvort þeir hafi þátttöku-
rétt. Þó svo að þeir arkitektar, sem
HP ræddi við, hafi álitið að Manfreð
hefði átt að leggja fram slíka fyrir-
spurn og sömu arkitektar talið að
honum hefði við það verið meinuð
þátttaka, þá lagði Manfreð enga
slika fyrirspurn fram.
Það má benda lesendum HP á að
auglýsingin í Lögbirtingablaðinu
birtist þann 24. júní 1986 en skila-
frestur í samkeppninni rann út tólf
dögum áður, eða þann 12. júní 1986.
Dagsetningin í auglýsingunni er 15.
mars 1986 en samkeppnin hófst
tæpum mánuði fyrr, eða þann 17.
febrúar 1986. Einnig má benda á að
Manfreð og Þorvaldur S. Þorvalds-
son teiknuðu saman þjóðarbók-
hlöðuna, sem er enn í byggingu, og
fleiri hús, og teiknistofa Þorvaldar
er enn skráð að Bergstaðastræti 52
í símaskránni, þó svo að Manfreð
segi að hann hafi flutt hana fyrir
rúmum tveimur árum.
Hvort þetta er nægilegt til þess að
svipta Manfreð þátttökurétti hefur
ekki fengist úr skorið, þar sem hann
lagði ekki fram fyrirspurn til sam-
keppnisnefndarinnar eins og siður
er.
Til samanburðar má geta þess að
þegar Guðrúnu Jónsdóttir var boðið
sæti í dómnefndinni spurðist hún
fyrir um hvort Knúti Jeppesen, sem
hefur starfað með henni að ýmsum
verkefnum, yrði við það meinuð
þátttaka. Samkeppnisnefndin kvað
upp þann úrskurð að Knútur fengi
ekki að taka þátt og Guðrún afþakk-
aði því sætið í dómnefndinni.
Þótt þáttur Manfreðs sé kannski
ekki stór, er hann einn af mörgum
sem gerir þessa samkeppni afskap-
lega tortryggilega og starfshættir
dómnefndar hennar hafa dregið úr
gildi hennar og allrar slíkrar sam-
keppni í framtíðinni.
ritstj.
KAMSRÆKT
þú finnur örugglega flokk við þitt hæfi hjá okkur!
Haustnámskeið hefjast 1. sept.
LIKAMSRÆKT OG MEGRUN
fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
FRA MHA L DSFL OKKA R
Þyngri timar, aðeins fyrir vanar.
KERFI
wmf\
\
# RÓLEGIR TÍMAR
fyrir eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega.
MEGRUNARFLOKKAR
4x í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakilóin núna.
AEROBIC J.S.B.
Okkar útfærsla af þrektimum með góðum teygjum. Hörku púl- og svitatimar
fyrir ungar og hressar.
NÝ OG GLÆSILEG AÐSTAÐA
Suðurver
83730
INNRITUN
HAFIN
Hraunberg
79988
Ath. vetrar-
námskeið hefst
29. september
Lokaðir og framhaldsflokkar.
Staðfestið pantanir fyrir veturinn.
LIKAMSRÆKT
JAZZBALLETTSKÓLA
BÁRU
10 HELGARPÓSTURINN