Helgarpósturinn - 28.08.1986, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 28.08.1986, Blaðsíða 23
Aggi og Eggert sem þessa dagana eru að stíga sin fyrstu spor í kvikmyndaleik. Skyttur Friðriks Þórs Friðrikssonar: SÓMAMENN TIL MUNNS OG HANDA SEGJA ÞEIR AGGI OG EGGERT SEM LEIKA AÐALHLUTVERKIN, TVO SJÖARA SEM DELERA í REYKJAVÍK AÐ LOKINNI VERTÍÐ Þeir eru ekki beint árennilegir, þeir Aggi og Eggert þegar þeir koma inn í veitingasal Hótel Borgar. Annar yggldur á brún og dökkur yfirlit- um, hinn rauöbirkinn, stór og mikill en heldur blídlegri á svipinn. Þeir setjast við borðið þar sem ég er fyrir og drekk kaffi. Þjónninn kemur að ogspyr hvað megi bjóðaþeim. ,,Kaffi,“ segir Eggert kurteislega. ,,Hreint út sagt, vil ég te,“ segir Aggi hátt og snjallt. Þjóninum bregður, mér reyndar líka. „Jœja, spurðu," hreytir Aggi út úrsér við mig, ,,og við munum reyna að fara í kringum það.“ Aggfeda Þórarinn Óskar Þórarinsson ljós- myndari og Eggert Guðmundsson blikksmiöur eru í aðalhlutverkum í nýjustu framleiðslu ís- lensku kvikmyndasamsteypunnar þar sem Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðar- maður er höfuðpaur. Kvikmynd þessi hefur hlotið nafnið Skytturnar og er fyrsta leikna kvikmynd Friðriks og fjallar um tvo sjóara á hvalveiðiskipi sem koma í land að lokinni ver- tíð, fara suður til Reykjavíkur að lyfta sér upp og delera í næturlífi höfuðborgarinnar. ,,Reykjavíkurblús sem endar í örvæntingu," sagði leikstjórinn nýlega í blaðaviðtali og bæt- ir því við að þetta sé hörkumynd sem innihaldi bæði spennu og skemmtun. Handritið unnu hann og Einar Kárason rithöfundur. En hvern- ig stendur á því að þeir kumpánar, sem ekki hafa gengið í leiklistarskóla, eru í aðalhlut- verkum? ,,Við pössuðum inn í týpurnar að því er leik- stjórinn áleit,“ segir Aggi. ,,Ja, ég vann með Frikka fyrir 17 árum í garðyrkju," segir Eggert, ,,og við höfum hist, svona annað hvert ár, bara fyrir tilviljun og heilsast eins og gamlir kunn- ingjar. Fyrir svona 7 árum spurði hann mig hvort ég væri ekki til í að leika í kvikmynd hjá sér og ég kvað já við þótt ég héldi að hann segði þetta svona meira í gamni en alvöru. Fyrir ári, eftir að ég hafði verið lengi úti í Noregi, hitti ég hann aftur og þá spurði hann hvort ég væri ekki enn til í þetta. Og svo hringdi hann í mig, rétt eftir síðustu áramót, og sagði að það væri komið að þessu. Ég er þó ekki algjör nýgræðingur í leiklist. Þetta byrjaði eiginlega þegar ég fór á Dale Carnegie-nám- skeið fyrir tveimur árum og fékk viðurkenn- ingu fyrir leikhæfileika. Upp úr því sótti ég um inngöngu í Hugleik og lék Jón sterka í Skugga- Björgu og sjórekið lík í Sálu Jónanna sem margir höfðu gaman af. Ég var svolítið ógeðs- legur, með netadræsu yfir mér.“ — Þú kemur inn í gegnum Einar Kárason, Aggi? „Jah..., við Kárason erum miklir félagar en við Friðrik könnuðumst hvor við annan frá því við vorum mótherjar í fótbolta í gamla daga og eins í gegnum sameiginlega kunningja okkar, eins og Einar Má, Halldór Guðmundsson og fleiri sem bjuggu um svipað leyti og ég í Dan- mörku." — Er það rétt að þú sért fyrirmynd Einars Kárasonar að ruddalegu braggadrengjunum í Djöflaeyjunni og Gulleyjunni? „Nei, það er bara mannorðsþjófnaður að halda því fram. En það er eins og gengur og gerist á þessu landi, alls staðar eru mannorðs- þjófar og farísear." Eggert hlær en Aggi heldur groddalegur áfram. „Nei, ég er engin fyrir- mynd en Kárason tileinkar mér fyrri bókina. Við vorum saman í skóla í gamla daga en leiðir okkar skildi þegar við vorum 12 ára og við hitt- umst ekkert fyrr en árið 1980 í Danmörku. Þessi ár sem liðið höfðu á milli voru eins og mínútur frekar en hitt og við byrjuðum strax að segja hvor öðrum sögur og það hefur kannski orðið kveikjan að einhverjum hug- myndum hjá honum. Hvort ég hef leikið eitt- hvað? Jah. . . það var nú bara í einhverjum skólaleikritum í gamla daga, lék einn af vitr- ingunum þremur í barnaskóla og eitthvað í gagnfræðaskóla en það er óþarfi að tina það til. Það eru draugar fortíðarinnar." — Nánar um söguþráð myndarinnar? „Ja, hún gerist á einum sólarhring," segir Eggert, „og fjallar um þessa tvo sjómenn, Sem eru orðnir leiðir á sjónum og langar að fara í land að lyfta sér upp. Fara í bæinn án þess að hafa nein ítarleg plön, fá sér bara að borða og vín með. Svo rekur hver atburðurinn annan, eins og títt er í Reykjavík...“ „Já, viltu ekki bara afhenda henni handrit- ið,“ segir Aggi storkandi. „Nei, ég hef það ekki hér,“ segir Eggert og hlær vandræðalega. — Og eru þessir menn sem þið leikið voða- leg rustamenni? „Nei, þetta eru sómamenn til munns og handa," svarar Aggi. „Þeir eru félagar og ut- angarðsmenn, sjóaðir sjóarar sem þekkja ekkert annað en púl og djöfulskap." — Drykkjumenn og slagsmálahundar? „Nei, mikil ljúfmenni sem drekka ekkert meira en gengur og gerist og þurfa stundum að berja frá sér í vörn.“ „Þeir heita Búbbi og Grímur," bætir Eggert við, „og ég er Búbbi. Búbbi stólar á Grím og getur eiginlega ekki verið án hans. Búbbi er þannig." — Er Búbbi svolítið þunnur? „Ja, þegar ég uppgötvaði að hann var svolít- ið heimskur, fór ég að skilja þetta betur og leika eðlilega. Hann er svolítið lengi að hugsa og er viðkvæmur." „Er ekki betra að segja að hann sé svolítið ósjálfstæður?" spyr Aggi. — Átti hann erfiða œsku? „Nei, það kemur ekki fram,“ segir Eggert. „Við verðum nú bara að láta sænsku sósíal- pedagógana um að túlka hann, þeir verða sjálfsagt æstir í það,“ segir Aggi. — Hvernig er Grímur? „Hann er iíderinn. Nei, við eigum lítið sam- eiginlegt, ég hef t.d. aldrei verið sjómaður, en ég þykist þekkja týpuna,“ segir Aggi. „Hvort hann er lúser? Jah... ég held að það myndi nú aldrei liggja fyrir Grími að verða fasteignasali, hann er ekki sú týpa sem gengur um í jakka- fötum með stresstösku. Nei, ég veit ekkert hvort hann hefur farið illa út úr lífinu, hann hefur upplifað eitt og annað og kann að svara fyrir sig. Eins og ég? Við skulum nú bara sleppa því.“ — Eru þeir ekkert svo gassalegir að þeir hneyksli viðkvœmt fólk? „Hvað, finnst þér við vera svona gassalegir hérna við borðið," spyr Aggi. „Já, hafðir ímyndað þér þá þannig. Nei, þetta er náttúr- lega öðruvísi mynd en framleidd hefur verið hér á íslandi, þetta er aksjónmynd, það er eitt- hvað að ske. Viðkvæmt fólk, já? Það eru ef- laust til einhverjir þrýstihópar sem láta sér bregða. En það er bara þeirra tebolli." „Það eru örugglega margir sem sjá sjálfa sig í þeim,“ bætir Eggert við, „og konur munu líka skilja þá því kvenfólk spilar stóra rullu í lífi þeirra." „Þetta er mynd fyrir alla fjölskylduna," segir Aggi, „og holl ungviðinu." — Finnst ykkur erfitt að stökkva inn í aðal- hlutverk, í fyrsta sinn sem þið leikið í kvik- mynd? „Nei, en auðvitað er þetta hörkuvinna. Þetta er ekkert bíó," segir Aggi. „Það tók okk- ur líka tíma að venjast kvikmyndatökuvélinni og starfsliðinu," bætir Eggert við, „og það tók sinn tíma að lifa sig inn í hlutverkið. Maður þarf alla vega að vera í góðu jafnvægi til að láta daginn ganga upp. Með texta og allt slíkt.“ — Eitthvað sérstakt sem hefur komið upp á þessum þremur vikum sem tökur hafa staðið? „Jú, ég grenntist fyrstu vikuna um 6 kíló,“ segir Eggert, „og varð að borða og borða svo ég næði sömu þyngd aftur. Svona má auðvitað ekki ske, því myndin gerist öll á einum sólar- hring.“ „Nei, ég hef ekki gengið í gegnum svona próblem," segir Aggi, „ég á bara að vera eins og ég er.“ — Svo á að frumsýna um jólin. Eruð þið spenntir? „Ég hafði nú orð á því að ég myndi ekki mæta,“ segir Eggert og hlær. „Ég veit það ekki, þetta er pís of keik, ætli ég verði ekki spenntari fyrir jólunum. Jú, jú, þetta verður garnan," segir Aggi, ,,og við ætl- um að reka smiðshöggið á að sýna að ómennt- aðir leikarar eru fullboðlegir og það hafa líka ýmsar týpur sýnt fram á. Annars hafa þessir karakterar sem við leikum birst oft í litteratúr og bíómyndum og óþarfi að segja neitt meira um það. En þetta hefur allt gengið vel, við erum með ekta fagmenn í kringum okkur. Og frábært handrit." leftir Margréti Rún Guömundsdóttur mynd Jim Smarti HELGARPÖSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.