Helgarpósturinn - 17.06.1987, Page 7
FÓRNARLÖMB FLUGSLYSA:
FARÞEGAR í FÓLKSFLUTNINGABÍLUM EIGA RÉTT Á FJÖRUTÍU OG
SJÖFÖLDUM BÓTUM Á VIÐ FARÞEGA í FLUGVÉLUM. RAUNGILDI
ÁBYRGÐAR FLUGFÉLAGANNA HEFUR RÝRNAÐ FIMMTANFALT FRÁ
ÞVÍ LÖGIN VORU SETT. MATTHÍAS BJARNASON SAMGÖNGU-
RÁÐHERRA: ÞAÐ VERÐUR HVER AÐ SJÁ UM SIG SJÁLFUR.
Ef farþegi slasast alvarlega á ferð í sérleyfisbíl getur hann krafið eiganda hans
um allt að 38,8 milljóna króna bætur. Þegar farþegi sem fer sömu leið með
flugvél slasast alvarlega þarf flugfélagið ekki að greiða
nema að hámarki 832 þúsund krónur í bætur.
ÞETTA ER ÖTRÚLEGT EN SATT
Kristján Jón Guðmundsson, sjómaður frá Bolungarvík,
slasaðist illa í flugslysinu í Ljósufjöllum í fyrra. Kristján segist vera óþekkjan-
legur frá því sem áður var eftir stórfellda áverka í andliti. Hann hefur verið
undir stöðugu lækniseftirliti frá slysinu. Reynsla hans er hrikaleg, en hann
hefur mætt henni með ótrúlegri bjartsýni.
Kristján hefur enn engar bætur fengið vegna slyssins utan sautján þúsund króna
dagpeninga á mánuði frá Almannatryggingum. Hann hefur fyrir fjögurra
manna fjölskyldu að sjá. Vegna þess hversu börnin eru ung hefur kona hans
ekki getað unnið úti. Þær bætur sem Kristján fær frá flugfélaginu ná vart að
greiða fyrir þriðjung þess tekjutaps sem Kristján hefur þegar orðið fyrir. Enn
mun nokkur tími líða þar til hann getur aftur snúið til vinnu.
Kristján er aðeins eitt þeirra fórnarlamba er mátt hafa þola ótrúlegt misræmi í
tryggingum flugfélaganna og þeim bótum sem tíðkast annars staðar í samfé-
laginu. Þetta misræmi er tilkomið vegna þess að ákvæði laga um hámarks-
ábyrgð flugfélaganna hafa ekki verið endurskoðuð í tuttugu og þrjú ár.
Bæturnar hafa brunnið upp.
HELGARPÓSTURINN 7