Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 22
Tígrisdýr úti á landi „íslendingar eru svo yndislega nýjungagjarnir." Alþýðuleikhúsið hefur eins og kunnugt er sýnt leikritið Eru tígris- dýr í Kongó? um alllangt skeið og ávallt fyrir fullu húsi. Munu sýning- ar á verkinu vera komnar yfir fjöru- tíu. Nú stendur fyrir dyrum leikferð um landið hjá þeim félögum Viðari Eggertssyni og Harald G. Haralds- syni, farin með stuðningi og tilstyrk heilbrigðisráðuneytis og landlækn- is. Við spurðum Viðar nánar um hana. „Já, ætli það verði ekki bara slag- ur á hverjum stað: Eru tígrisdýr á Isafirði? Eru tígrisdýr á Hvamms- tanga? o.s.frv. Eg hugsa það. þetta verður ein lengsta leikferð sem nokkurn tíma hefur verið farin á Is- landi, mánaðartúr. Að vísu voru svona ferðir farnar í gamla daga en lögðust svo nærri af. Þetta er náttúr- lega svo dýrt fyrirtæki að fólk legg- ur ekki í það, en við erum myndar- lega styrktir af heilbrigðisráðuneyt- inu. Ferðin verður alveg frá Borgar- nesi og á Höfn í Hornafirði; við för- um Vestfirði, Norðurland og Austur- land. Við sýnum alltaf á hverjum degi, stundum tvisvar eða þrisvar. Það er nú bara einu sinni sem betur Rokk er Það hefur verið hljótt um Bubba Morthens um stund. Hann hefur þó ekki setið aðgerðalaus því mörg járn eru í eldinum. Við spurðum Bubba um Svíþjóðarævintýrið. „Já, það er rétt. Ég er nýkominn frá Svíþjóð þar sem ég var að taka upp stóra plötu, þá fyrstu í þriggja platna pakka sem ég gerði samning fer sem við erum þrisvar. En það verður mjög stíft. Við ætlum að prófa að vinna þetta í samvinnu við leikfélögin á hverj- um stað fyrir sig. Við höfum ekki sama snið á og hér í bænum með að sýna í hádeginu, því þá vinna allir svo vel að undirstöðuatvinnuvegunum. um þarna úti. Það á svo að markaðs- setja hana fljótlega." Að sögn Bubba verða á plötunni þrjú eða fjögur lög af plötunni Frelsi til sölu og sex eða sjö önnur. Bubbi gerir sem fyrr öll lög og texta sjálfur, en helsti hjálparmaður hans núna eins og á síðustu plötu er hinn mjög svo fjölhæfi Christian Falk, sem spil- Við ætlum í staðinn að setja verkið upp á kvöldin, nokkurs konar kaffi- leikhús. Við ætlum að skapa kaffi- húsastemmningu. Með því móti fá leikfélögin sjálf nokkuð í aðra hönd — við ætlum ekki að vera svona tveir reykvískir leikarar sem koma og hirða allan ágóðann sjálfir. ar á flest hljóðfæri og útsetur mörg laganna. Að auki kemur svo við sögu fjöldinn allur af „session- mönnum. Bubbi minntist á að von væri á plötunni á Skandinavíumark- að en vildi ekki staðfesta neitt fyrr en mál væru komin í höfn. „í millitíðinni er þó meiningin að ég geri sjónvarpsþátt með norska Nei, aldeilis ekki. Þetta verður mjög skemmtilegt. Annars erum við þrjú sem förum þessa ferð, Ingibjörg Björnsdóttir er sýningarstjórinn okkar. Ferðin hefst 26. júní og lýkur 25. júlí. En þar með er ekki öll sagan sögð, því í ágúst ætlum við svo að leggja aftur upp og fara á þá staði sem náðust ekki í fyrri túrnum. Sýningarnar eru orðnar 42 hjá okkur núna áður en við leggjum af stað og ná með ferðalaginu vel á átt- unda tuginn. Svo að hundraðasta sýningin er í sjónmáli í haust. Þessi sýning er ekki bara vinsæl hér á landi heldur fer hún núna eins og eldur í sinu um öll Norðurlönd. Verkið var fyrst tekið til sýningar í Lilla teatern í Helsinki, þar sem Borgar Garðarsson starfar, og svo á íslandi. Við renndum alveg blint í sjóinn með hádegissýningarnar — ætluðum að sjá hvernig fólk tæki okkur — en það gekk upp. Við vit- um núna að ekki má vantreysta áhorfendum, þeir eru pft langt á undan leikhúsunum. íslendingar eru svo yndislega nýjungagjarnir." -shg músíkantinum Áke Alexander, en hann fæst við hluti sem eru ekki langt frá því sem ég er að gera sjálf- ur. Eg þekki samt manninn ekkert. Það var haft samband við mig eftir að ég kom fram í sjónvaprinu sænska og þeim leist sæmilega á það sem ég var að gera. Þetta er dá- lítið spennandi. Þetta verður ísiensk-norsk samvinna og Egill Eðvarðsson er milligöngumaður fyrir íslands hönd. Þetta kemur svo líklega bæði í íslenska og norska sjónvarpinu ef ekki víðar." — Þetta er ekki það eina sem Bubbi hefur fyrir stafni. Hljómsveit- in MX stendur nú í upptökum á tólf tommu plötu sem kemur út næstu daga. „Já, við erum að gera plötu í MX- inu, þriggja eða fjögurra laga.” — Er upphafleg liðskipan í hljóm- sveitinni eða hafa orðið einhverjar breytingar? „Nei, það er bara einn af fyrstu út- gáfu hljómsveitarinnar með núna, Halldór Lárusson trommari. Hinir eru Þorleifur Guðjónsson bassaleik- ari, Sigurður nokkur á hljómborð og Bergþór Morthens á gítar. Þetta eru fyrst og fremst menn sem ég fæ á bak við mig hverju sinni, þó ég haldi nafninu, allt eftir því hverjir eru lausir." — Hvernig músík er þetta. Kannski svipuð og áður hjá MX-inu? „Ja, músík. Þetta er rokk — rokk er bara rokk!“ — Hvað er svo framundan? „Ég er núna að fara í 36 daga tón- leikaferð um landið, einn með gítar- inn, svona trúbadorfíling. Og ég spila á jafnmörgum stöðum. Þeir eru alltaf góðir þessir túrar og ég reyni að fara svona hringferð ár- lega, a.m.k. annað hvert ár. Ég kem alltaf helmingi frískari til baka." — MX hyggur ekki á neitt hljóm- leikahald? „Jú, svona á 17. júní og um versl- unarmannahelgina en það verður engin keyrsla. Annars er ég að fara þennan túr núna því með haustinu ætla ég kannski að gefa út plötu í stíl við Kpnu-plötuna — trúbadorplötu." — Áttu efni í heila svoleiðis plötu meðfram öllu rokkinu? „Ég á efni á margar plötur!" -shg ÓSKAR GUÐMUNDS- SON, fyrrum blaðamaður hér á Helgarpóstinum, situr um þessar mundir við skriftir. Er þarna um að ræða bók sem varðar samtímasögu íslendinga og bókaforlagið Svart á hvítu gefur út á þessu ári. Nokkur leynd hvílir yfir efni bókarinnar en ekki kæmi á óvart þó þar yrði fjallað um átök sem orðið hafa á vinstri væng stjórnmálanna síðastliðin ár. * I VIÐEY stendur um þessar mundir yfir allóvenjuleg myndlist- arsýning. Stefán Geir Karlsson sýnir þar verk sín í Skálanum og var sýn- ingin opnuð sl. laugardag. Það sem helst einkennir verkin er stærð þeirra, en þau eru flest hver mæld í metrum. T.d. er þarna til sýn- is stærsta herðatré í heimi að mati Örnólfs Thorlacius, ritstjóra heims- metabókar Guinness á Islandi. Það er úr oregon-furu og krossviði, 4,6x2,05 að stærð. — Alls er á sýn- ingunni 31 verk, málverk og skúlp- túrar. Að sögn Stefáns eru þarna fleiri „júmbóar" en herðatréð; stórt umslag og blýantar og heljarmikill einnota hanski, sem er sérstaklega útbúinn fyrir listgagnrýnendur. Listamaðurinn segist hafa fengið hugmyndina að hanskanum þegar hann lá fyrir nokkrum árum í sjúkrahúsi og vildi tileinka verk þeim stéttum sem hann ber mesta virðingu fyrir, læknum og listgagn- rýnendum. Þetta er fyrsta einkasýning Stef- áns en hann hefur í þrígang verið með á samsýningu FIM, árin 1979, ’80 og ’81. Um helmingur sýningar- gripa er til söiu og eru nokkrir þegar seldir. T.d. stendur Stefán í viðræð- um við forráðamenn Hagkaups í Kringlunni um kaup á herðatrénu góða. Sýningin er opin alla daga frá kl. 2-6. LISTASAFN Háskóla íslands er nú að opna sumarsýningu á hluta verka sinna, svo sem undanfarin ár. Sýningin stendur í hugvísindahúsi háskólans, Odda. í aðalsal eru sýnd verk ýmissa listamanna en á ann- arri hæð hússins eru sýnd nokkur verka Þorvalds Skúlasonar. Lista- safn Háskóla íslands var stofnað ár- ið 1980 með rausnarlegri listaverka- gjöf hjónanna Ingibjargar Guð- mundsdóttur og Sverris Sigurðsson- ar, og mynduðu verk Þorvalds Skúlasonar meginuppistöðu þeirrar gjafar. Sýningin í Ödda er aðeins brot af myndaeign safnsins, en stöð- ug skiptisýning úr verkum þess er í Skólabæ við Suðurgötu. Stjórn Listasafns Háskóla íslands hafa frá upphafi skipað þeir Gylfi Þ. Gíslason prófessor, formaður, Sverr- ir Sigurdsson fyrrum iðnrekandi og Björn Th. Björnsson listfræðingur, sem veitir safninu forstöðu. Sýning- iníOdda hefst 17. júní og stenduryf- ir í allt sumar. Hún er opin daglega frá kl. 13.30—17.00 og er aðgangur ókeypis. Ásbjörn Morthens; margt framundan. ■ r ■ f •»4* ' < L*v’r4*í t 1 mktuw bara rokk 22 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.