Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 36

Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 36
lýlega var fölsun á skulda- bréfum kærð til Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Málavextir eru þeir að Hallgrímur Jóhannesson keypti veitingastaðinn Greifann í Kópavogi og greiddi með skulda- bréfum. Hallgrímur gekk sjálfur í sjálfskuldarábyrgð fyrir bréfunum ásamt föður sínum og Páli Sigurðs- syni frá Keflavík. Þegar þessi bréf fengust ekki greidd leitaði seljandi Greifans til lögfræðings. Sá kannaði hverjar eignir sjálfskuldarábyrgðar- mennirnir ættu, þegar venjuleg inn- heimtuleið bar ekki árangur. Kom þá í ljós að bæði Hallgrímur og faðir hans áttu iitlar eignir, en hins vegar var Páll eignamaður. Lögmaður krafðist þá löghalds á eignir hans svo hann gæti ekki selt þær áður en skuldabréfin fengjust greidd. Þegar lögmaðurinn og fulltrúi fógetans mættu hins vegar á heimili Páls sagðist hann aldrei hafa skrifað und- ir skuldabréfin. Hann segir að Hall- grímur hafi beðið sig að skrifa undir, en hann ekki viljað. Síðan hafi hann ekkert af þessu vitað fyrr en leggja átti löghald á eignir hans. Lögmað- urinn fór því erindisleysu til Kefla- víkur, en kærði málið þess í stað til Rannsóknarlögreglunnar. Seljandi Greifans, sem !eit á skuldabréfin sem ónýta pappíra, óskaði þar næst útburðar á Hallgrími af veitinga- staðnum og riftunar sölusamnings- ins. Það gekk greiðlega eftir. Hins vegar mun Hallgrímur þessi vera gjaldþrota og eignalaus. í ofanálag hefur hann áður verið dæmdur fyrir athæfi líkt þessu.. . ^^ri I yrir dyrum stendur aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi. Gísli Óiafs- son, sem nú er fprmaður bankaráðs Útvegsbanka íslands hf., hefur gegnt embætti formanns fulltrúa- ráðsins undanfarið, en nú herma heimildir HP innan Sjálfstæðis- flokksins á Reykjanesi, að hann muni ekki verða endurkjörinn eftir niðurstöður kosninganna í apríl. . . T, öluverð reiði ríkir nú meðal starfsmanna Brauðs hf. vegna framgangs Rannsóknarlögreglu ríkisins í máli er þeir hafa kært þangað. Þannig er mál með vexti, að starfsmennirnir stofnuðu starfs- mannasjóð til að standa straum af árshátíðarskemmtun og öðrum sameiginlegum veisluhöldum. Her- mann Guðmundsson, sölumaður hjá fyrirtækinu, var settur sem um- sjónarmaður sjóðsins. Stuttu eftir árshátíðina var Hermann hins veg- ar rekinn frá fyrirtækinu þegar upp komst að hann hafði sett nafn Kökuborgar, dótturfyrirtækis Brauðs, á skuldabréf vegna bifreiða- kaupa. Hermann hafði heimild til að gefa út ávísanir í nafni fyrirtækisins, en hafði enga heimild til að stefna því í skuldbindingar. Þegar Her- mann fór frá fyrirtækinu tók hann starfsmannasjóðinn með sér, um 130 til 140 þúsund krónur. Brauð hf. þurfti því að greiða reikninga vegna árshátíðarinnar. En starfsmennirnir hafa þurft að draga úr sameiginleg- um veisluhöldum þar til Hermann skilar aftur sjóðnum. Þeir hafa hins vegar ekkert heyrt frá Rannsóknar- lögreglunni frá því þeir kærðu mál- ið, fyrir þó nokkru síðan. Frá því Hermann fór frá fyrirtækinu hefur ýmislegt komið í ljós. Kaupmenn hafa haft samband við forsvars- menn þess og tjáð þeim að Her- mann hafi boðið í bíla þeirra með kökum. Lofað að greiða fyrir bílana með stórri kökuúttekt hjá fyrirtæk- inu. Þá hefur komið fram að ýmis- legt er enn óuppgert frá þeim tíma að Hermann var framkvæmdastjóri Matarlistar ’86, sýningar veitinga- húsanema í Laugardalshöll, síðast- liðið sumar. .. Þ að reynist sumum dálítið erf- itt að lifa við vaxandi samkeppni í fréttum. Þegar Helgarpósturinn birti grein um lögbrot bandaríska sendiráðsins á íslenskum starfs- mönnum þess misstu aðrir fjölmiðl- ar áhugann á fréttinni. Stöð 2, Morgunblaðið og Dagblaðið höfðu verið að undirbúa fréttina í nokkra daga, en drógu í land eftir að Helgarpósturinn hafði birt hana. Bæði Stöð 2 og Morgunblaðið af- lýstu viðtölum er þau höfðu ráðgert við Baldur Frederiksen, þann sem stendur í málavafstri við sendi- ráðið. Dagblaðið hafði þó dug í sér að birta hana, en setti hana við hlið- ina á dánartilkynningunum. Baldur sætti sig illa við þessi viðbrögð og sneri sér því til þeirra erlendu frétta- manna er voru á landinu vegna NATO-fundarins. Þeir kipptu sér ekki upp við það þó Helgarpóstur- inn hefði birt fréttina fyrstur. Meðal þeirra sem tóku þýðingu af frétt Helgarpóstsins með sér út var út- sendari þess virta blaðs Washing- ton Post. . . FRÖNSKU '■* 1 Ír* % S- GERA H VERJA MÁUÍÐ AD HÁTÍDARMAT Frönsk smábrauð eru bökuð samkvæmt uppskrift sem fengin er frá Frakklandi. Frakkar hafa svo sannarlega vitá franskbrauði þvíþau eru hlutl af svo til hverri einustu máltíð þar í landi. Frönsk smábrauð henta viðólíkustu tækifæri. Þú lætur þau þiðna, bregður þeim nokkrar mínútur inn í ofn og útkoman erfransktbrauðeins og það gerist best. Frönsku smábrauðin eru alltaf elns og ný - beint úr djúpfrystinum. Taktumeðþérpoka, þú flnnur hann í frystiborðinu. ÉiÉ _ ^£nn hefur ekki komið í Ijós hvað Jóhannes Reynisson, fast- eignasalinn sem sat í gæsluvarð- haldi á dögunum, hefur gert við þær 20-30 milljónir sem hann sveik út úr húskaupendum. Þó Jóhannes hafi haft töluvert umleikis finnst nú hvorki tangur né tetur af öllum millj- ónunum. .. u m tvö hundruð manns sóttu stofnfund Borgaraflokksins í Reykjavík sl. mánudagskvöld. For- svarsmenn flokksins segja að fólk geri sér nú grein fyrir því að Borg- araflokkurinn sé engin bóla, heldur sé hann kominn til að vera í íslensk- um stjórnmálum. Á stofnfundinum í Reykjavík var kosin fimmtán manna stjórn og var Þórir Lárus- son, rafverktaki og fyrrum formað- ur Varðar, kjörinn formaður. Aðrir í stjórn voru kjörnir: Jóhann Al- bertsson, lögfræðingur, Auður Kristín Karlsdóttir húsmóðir, Asgeir Guðlaugsson heildsali, Sigurður Þórðarson sjómaður, Þorvaldur Sigurðsson skrifstofu- maður, Baldur Hafsteinsson lög- fræðingur, Friðrik Jónsson sölu- maður, Hulda Jensdóttir Ijósmóð- ir, Ingibjörg Helgadóttir ritari, Magnús Benediktsson endur- skoðandi, Sveiney Sveinsdóttir sjúkraliði og Nína Hjaltadóttir skrifstofumaður. . . A JI^^Bfstaða íslenskra heilbrigð- isyfirvalda til amalgams, eða silfur- fyllinga í tennur, er dálítið einkenni- leg, eins og við skýrðum frá í síðasta blaði. I því kom fram að sænsk heil- brigðisyfirvöld hafa varað við notk- un þessara fyllinga í tennur barns- hafandi kvenna og lagt á það áherslu að notkun þess verði hætt sem fyrst. Til frekari glöggvunar á því hversu alvarlega Svíar líta málið má benda á, að þeir greiða niður tannlæknakostnað þeirra sem láta spóla úr sér silfurfyllingarnar og setja í nýjar úr öðrum hættuminni efnum... meint lögbrot bandaríska sendi- ráðsins á íslenskum starfsmönnum sínum vakti að vonum athygli á þeim bæ, enda þótt forráðamönn- um sendiráðsins væri fullkunnugt um stöðu mála. Nefnd var sett í mál- ið og búast starfsmennirnir nú við því að fljótlega fái þeir notið sömu réttinda og aðrir launþegar á land- inu... VERTU ORUGGUR- VELDU VEL í LIÐIÐ ÞITT." VELDU VOLVOVARAHLUTI. .....BTllRflfl: S0WIABW|,,IW Purrkublöð í 240 kr. 339,- Kertl B-19, B-21, B-230 kr. 441,- Platínur B-19, B-21, B-230 kr. 178,- Tímarelnj í 240 KfL 582,- Framdeniparl í 240 kr. 2.992,- Afturdremparl í 240 kr. 1.570,- Framdemparl í 144 kr. 1.560,- Afturdemparl í 144 kr. 1.507,- Blaðka í blöndung kr. 305,- Dráttarkrókur á 240 kr. 5.887,- Dráttarkrókur á 740 kr. 6.872,- 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.