Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 30
MATKRÁKAN
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
Blóðugt þríhjól í Tarsanleik
Sú spaklega lýsing sem ég setti fram fyrir
nokkrum vikum á skrykkjóttu suðvestur-
hornsveðri hefur gengið eftir og er enn í
fullu gildi. Hitastigið, birtan og gróðurinn
taka að vísu af öll tvímæli um að náttleysu-
sumar er gengið í garð, en enn er hlutfallið
milli sólskins og dumbungs afskaplega óhag-
stætt. Hér er komin skýringin á öllu því fólki
sem skríður um bæinn á fjórum fótum, eða
haltrar um í 65-70 gráðu horni fram á við,
eða gengur pinnstíft með 20 gráðu horn út
frá miðju, allt saman með hvern andlits-
vöðva strekktan í píslarvættisgrettu, stífnar
af og til og grípur annarri hendi um bakið en
hinni um næsta grindverk eða ljósastaur,
stendur þar frosið eins og Calais-höggmynd-
irnar eftir Rodin.
Semsé: eina frumorsökina fyrir einum
elsta þjóðarsjúkdómi landsmanna, vöðva-
bólgu eða brjósklossaðkenningu i mjóbaki,
má rekja til sólarleysis. Það er engin tilviljun
að Rodin-myndastyttunum skuli fjölga svo
sem raun ber vitni einmitt á vorin þegar fólk
hefur lítið D-vítamín í kroppnum. C- og D-
vítamín eru nauðsynleg til að líkaminn geti
nýtt sem skyldi kalkið úr fæðunni og það er
jú kalkið sem styrkir hrygg og tengivefi. Og
sólin er einhver besti D-vítamíngjafi sem um
getur. Erfitt er að áætla nákvæmlega það D-
vítamínmagn sem maður drekkur í sig í
hverri sólarglennu fyrir sig, það fer m.a. eftir
styrkleika ljóssins og eðli loftsins sem það
skín í gegnum. En til viðmiðunar má geta
þess að áætlað er að hörundsljós kona þurfi
15-60 mínútur af sólskini daglega til að taka
inn nauðsynlegan D-vítamínskammt.
Tiltölulega fáar fæðutegundir eru mjög
auðugar að D-vítamíni, en þær helstu eru
feitur fiskur, smjör, egg, lifur og mjólk. I fljóti
bragði mætti ætla að Islendingar neyttu ein-
mitt þessara fæðutegunda í nægulega ríkum
mæli en svo virðist þó ekki vera ef marka má
hina tjáningarríku myndastyttu. Formúlan
að slíkum skúlptúr er semsé: sól h- C- og
D-vítamín h- stein- og snefilefni + ofurvinna
+ streita + rangir líkamsburðir = „þursabit"
í æðra veldi. Það liggur náttúrulega í hlutar-
ins eðli að bót og betrun felast í því að breyta
formerkjum formúlunnar, gera mínusa að
plúsum og öfugt. Varðandi steinefnin vill ég
geta þess að gnótt þeirra fæst úr mysu og
skyri, svo og sölum og þar af leiðandi þara-
töflum. Þá hljóðar einfalt húsráð upp á að
drekka daglega eina matskeið af eplaediki í
hálfu glasi af vatni fyrir aðalmáltíð. Hvað
líkamsburðina varðar er ákaflega hollt fyrir
hrygginn að hanga, annað hvort á höndum
eða fótum. Gefið mál að mannskepnan hefur
aldrei getað aðlagast því ástandi að vera með
báða fætur á jörðinni. Við vorum sköpuð til
að hanga, sveifla okkur í trjám, svalahand-
riðum, Ijósastaurum — ég líki þessu við end-
urfæðingu og læt mér í léttu rúmi liggja þótt
sumir líti á mig sem fuglahræðu, laskaða fall-
hlíf eöa geðsjúkling. Fyrir utan að vera búin
að uppgötva hinn eina sanna þyngdarpunkt
er unaðslegt að finna blóðið renna sér til höf-
uðs en ekki skyldunnar. Splash!
Talandi um blóð rifjast upp fyrir mér
draumur sem mig dreymdi fyrir skemmstu.
Hann var á þá leið að þríhjólið sat að snæð-
ingi: Steingrímur og Þorsteinn álútir mjög og
þungir á brún skjótandi stjórnarkryppunum
upp í loftið, en J.B. æðimun sperrtari með
augun á stilkum. En sammerkt áttu þeir fé-
lagar að út um munnvikin runnu stríðir blóð-
og fitutaumar, enda stóð á milli þeirra stórt
fat hraukað rjúkandi kjöti. Af sjálfu leiðir að
ég vaknaði upp hríðskjálfandi með . . . í háls-
inum.
Ekki er ég það draumspök að ég treysti
mér til að skera úr um hvort draumur þessi
hafi ótvírætt tákngildi fyrir lyktir þess Tars-
anleiks sem framangreindir forsprakkar eru
í um þessar mundir og oftast er kallaður
stjórnarmyndunarviðræður — þeir berja sér
allir á brjóst og æpa: ,,Me Tarsan, you Jane,“
— en auðsæjar eru tilvísanir til þeirra sem
við kjötkatlana sitja annars vegar og hroll-
vekjandi atriða í myndum Hrafns Gunn-
laugssonar hins vegar, enda horfði ég á
Hrafninn flýgur enn eina ferðina í sjónvarp-
inu um daginn. Það tekur aldrei á taugar
mínar að horfa á platvíg og platblóð, en þeg-
ar kemur að þeim átsenum sem Hrafni eru
einkar hugleiknar: að láta persónurnar
slafra í sig í alvöru feitt, rjúkandi kjöt með
guðsgöfflunum umturnast í mér innyflin og
ég gríp báðum höndum fyrir augun. Ekki af
pempíuskap, heldur bara vegna þess að mér
býður svo við því þegar Hrafn leikstýrir
soðnu, feitu kjöti. Vonandi láta kvikmynda-
fræðingar ekki undir höfuð leggjast að rann-
saka í djúpsálarfræðilegu samhengi þessa at-
hyglisverðu tematík í myndum Hrafns þegar
fram líða stundir: Rennur blóð eftir slóð og
sýg ég þig fita. . .
Og vonandi sannreynist hið fornkveðna að
oft sé Ijótur draumur fyrir litlu efni. En fyrr-
nefndur draumur varð mér þó tilefni til að
setja saman blóðrauðan matseðil, upplagð-
an til jákvæðra þjóðhátíðarhalda á morgun.
Eg læt þríhjólið um að bruna kringum kjöt-
katlana, en sting fyrir mitt leyti upp á hlað-
borðsskrúðgöngu rauðra rétta með Campari
í fylkingarbrjósti, auk þess sem ég mæli
fremur með heilnæmum Tarsanleik en
streitumyndandi skrúðgöngu og fánýtum
blöðrublæstri á 17. júní. Blóðrauða þjóðhá-
tíð!
BLÖÐRAUTT SOLARLAG
Hér er um að ræða feikilega svalandi og
hagkvæma Campari-bollu sem hentar vel
hvort heldur sem er til fordrykkjar eða sí-
söturs. Uppskriftin miðast við eina flösku af
Campari.
1 vatnsmelóna (u.þ.b. 2 kg) / 1 flaska
Campari (0,7 1) / u.þ.b. 40 ísmolar / 1
flaska þurrt kampa- eða freyðivín / 2
lítrar sódavatn.
Skerið melónuna í báta og fjarlægið innan
úr henni kjarnana. Skerið hýðið utan af og
aldinkjötið í teninga og setjið í stóra skál.
Hellið Campariinu yfir og látið standa á köld-
um stað í 20 mínútur. Setjið ísmolana út í,
hellið kældu víninu og sódavatninu saman
við og berið fram.
GAZPACHO
Þetta er afbrigði af spænsku grænmetis-
súpunni vinsælu. Hún er borin fram köld og
er afskaplega bragðsterk og svalandi.
Uppskriftin er handa tólf.
2 kg tómatar / u.þ.b. 1 kg rauðar paprik-
ur / 1,5 kg gúrkur / 8 msk. ólífuolía / 2
msk. tómatkraftur / 'A 1 rauðvín / salt /
sykur / pipar úr kvörn / 3 hvítlauksrif /
6 sneiðar ristað brauð / 1-2 laukar.
Skerið kross í tómatana ofanverða og fjar-
lægið „naflana". Setjið tómatana ofan í sjóð-
andi vatn í tvær, þrjár mínútur, veiðið þá upp
úr og stingið ofan í kalt vatn, afhýðið þá,
skerið í fjórðuparta og fjarlægið kjarnana.
Þvoið paprikurnar. Skerið tvær þeirra í
litla teninga og leggið rakan klút yfir. Skerið
hinar paprikurnar í stærri teninga. Afhýðið
gúrkurnar, skerið þær langsum í tvennt og
skafið úr þeim kjarnana. Skerið hálfa gúrku
í litla teninga og leggið yfir þá rakan klút.
Skerið afganginn af gúrkunum í stærri ten-
inga.
Búið til mauk úr tómötunum og stóru
gúrku- og paprikuteningunum í tætara og
hrærið að því búnu 6 msk. af olíu saman við
ásamt tómatkraftinum og rauðvíninu.
Bragðbætið með salti, sykri og pipar. Afhýð-
ið hvítlaukinn og merjið tvö rif saman við
súpuna. Hrærið vel í og látið standa í ís-
skápnum í nokkra tíma eða yfir nótt.
Fjarlægið skorpuna af ristaða brauðinu og
skerið í teninga. Hitið afganginn af olíunni á
pönnu og steikið brauðteningana upp úr
henni ásamt þriðja hvítlauksrifinu mörðu.
Hrærið vel í á meðan.
Berið súpuna fram ískalda ásamt söxuðum
lauknum, litlu gúrku- og paprikuteningun-
um og ristuðu brauðteningunum.
ROÐAGYLLTIR TÓMATAR
Þetta er einfaldur og óhemjugóður heitur
réttur. Uppskriftin handa tólf.
Tólf heilhveiti- eða kornbrauðssneiðar
smurðar / salt / 4 egg / 500 g óðalsostur
eða annar bragðsterkur ostur / 100 g
Parmesanostur / u.þ.b. 3 msk. basil /
400 g sýrður rjómi / 1,75 kg tómatar.
Smyrjið ofnskúffu eða álíka stórt fat og rað-
ið smurðum brauðsneiðunum þétt í. Stráið
u.þ.b. helmingnum af basilinu yfir og að því
búnu gróft rifnum óðalsostinum. Hrærið
saman eggjum, sýrðum rjóma og parmesan-
osti og jafnið yfir. Þvoið tómatana og skerið
í sneiðar og raðið yfir. Stráið afganginum af
basilinu yfir og saltið. Bakið á neðstu rim í
ofninum við 200 gráður í u.þ.b. 30 mínútur
og berið fram heitt.
PASTASALAT MEÐ REYKTUM
LAXI
Einfalt salat og skrautlegt, rauði liturinn
enn í fyrirrúmi. Uppskriftin miðast við einn
skammt, margfaldist eftir þörfum.
2 dl ósoðið pasta, gjarnan af mismun-
andi lögun: skrúfur, fiðrildi o.s.frv. / 1
blaðsellerístilkur 'A rauð paprika /
gúrkubiti / 50 g reyktur lax.
Sósa:
1 msk. vínedik / 2 msk. olía / salt og
pipar.
Sjóðið pastað, látið renna á það kalt vatn
og látið svo drjúpa vel af því. Þvoið grænmet-
ið og skerið í litla bita. Blandið grænmetinu
saman við pastað, hrærið sósunni saman við
og leggið að lokum laxinn yfir í litlum bitum.
OSTAKAKA MEÐ
JARÐARBERJUM
Klassísk ostakaka handa sex. Hana má
auðvitað framreiða með öðrum ferskum
ávöxtum en jarðarberjum, hún er ekki síst
ljúffeng með kiwi.
Skelin
250 g heilhveitikex / 1 tsk. kanell / 100 g
bráðið smjör.
Fylling
500 g rjómaostur / 2 dl sykur / 3 egg / 2 tsk.
vanillusykur.
Aukinheldur
3-4 dl sýrður rjómi og ferskir ávextir, t.d.
jarðarber eða kiwi, skornir í sneiðar.
Myljið kexið vel og hrærið kanel og
bráðnu smjörinu saman við. Þrýstið þessu í
botninn og upp með barminum á lausbotna
formi sem er u.þ.b. 24 cm í þvermál. Bakið
við 175 gráður í 5 mínútur.
Hrærið ostinn til að mýkja hann og að því
búnu saman við hann eggjum, sykri og van-
illusykri. Hellið fyllingunni yfir botninn og
bakið í 45 mínútur. Látið kökuna kólna í
10-15 mínútur. Hrærðið sýrða rjómann svo
hann verði meðfærilegri og smyrjið honum
svo yfir kökuna og bakið í 5 mínútur til við-
bótar.
Losið kökuna varlega frá brúnum forms-
ins. Látið hana kólna áður en hún er losuð úr
forminu. Látið kökuna standa í kæliskáp í
nokkra tíma áður en hún er borin fram fag-
urlega skreytt með niðurskornum ávöxtum.
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 19.-21. JÚNÍ
nmnnnnmamsmm
Föstudagurinn veröur þér eitthvaö erfiöur á
heimavelli og þú ættir ekki að þvinga þar fram neinar
breytingar. Heppnin verður hins vegar með þér á
laugardag og þá muntu hafa góö áhrif á fólkið í kring-
um þig. Nýttu síðan ímyndunaraflið á sunnudag, en
þá verður það einmitt afar frjótt. Allt er varðar fjármál
gengur einnig vel þann dag.
nnmnxMBMmmmmm
Hafðu bæði augu og eyru galopin á föstudag. Þá
muntu komast að svolitlu, sem þú getur nýtt þér.
Snúðu þér að nýjum og framandi hlutum, því nú gef-
ast tækifæri til að bæta upp fyrir ýmislegt sem miður
fór í fortíðinni. Þú verður hins vegar sjálfur að hrinda
atburðarásinni af stað. Næsta vika verður aldeilis frá-
bær og þú bókstaflega verður að taka tilboði, sem
þér berst, þó því fylgi einhver áhætta.
TVÍBURARNIR (22/5-21/6]
Snúðu þér að fleiru en þú hefur gert að undan-
förnu, t.d. með því að rækta vinskap við fólk, sem
kann að meta kosti þína. Ekki viðhalda samböndum
af eintómum vana. Leggðu þig fram um að hlusta á
félaga, sem vill ræða ákveðið mál úr fortíðinni. Það
gengur mikið á í einkalífi þínu og þess vegna reynist
þér erfitt að sjá hlutina í samhengi og úr fjarlægð.
Þú stendur frammi fyrir óþægilegu vali á milli eigin
langana og annars, sem taka verður tillit til. Heilsan
er að skána, en þú mátt til að láta óþolinmæðina ekki
koma þér í koll. Á laugardag þarftu ekki að hafa mikið
fyrir hlutunum og færð ef til vill frábærar hugmyndir,
sem nýtast þér í vinnunni. Einhver misskilningur
gæti komið upp á milli þín og ástvinar á sunnudag.
Það eru töluverðar líkur á að félagarnir fallist á
áætlanir þinar og aðstoði nú í stað þess að tef ja fyrir.
Tilfinningauppnám síðustu vikna gerir þig lítt mót-
tækilegan fyrir hugmyndum, sem fela í sér löng
ferðalög, en það væri synd að gefa þetta upp á bát-
inn. Sunnudagurinn er þér afskaplega hagstæður.
Notaðu tækifærið, ef það er eitthvað sem þú gætir
hugsað þér að breyta.
Eitthvað mikilvægt er um það bil að gerast og þú
verður að gera það upp við þig hvort breytingin get-
ur orðið, án þess að samband sem skiptir þig máli
hljóti skaða af. Allt mun fara vel, ef þú ert bara róleg-
ur og lætur ekki setja þig úr skorðum. Þú verður enn
um sinn háður velvild annarra, en atburðir næstu
viku styrkja stöðu þina til muna.
ithí.......iiiii miíi—
Þú getur komist að mikilvægu samkomulagi á
föstudag og tekið ákvarðanir, sem snerta framtíð
ákveðins ástarsambands. Ef þú ert óþolinmóður og
sýnir ekki umburðarlyndi geturðu hins vegar fengið
alla upp á móti þér. Afar jákvæðir straumar leika um
laugardaginn, t.d. í formi heppni og gleðilegra frétta.
Fjármálin verða i brennidepli á sunnudag.
SPORÐDREKINN (23/10-22/n
Þú verður óánægður með eitthvað í vinnunni á
föstudag, en vertu þrautseigur. Fjárhagslegur ávinn-
ingur er nefnilega mögulegur. Óvæntar fréttir á laug-
ardag koma þér kannski úr jafnvægi, þó þær geti
reynst jákvæðar þegar frá líður. Láttu aðra um að
ráða ferðinni á sunnudag. Það er heillavænlegra en
að þú sért við stjórnvölinn.
BOGMAÐURINN (23/11—21/12]
Fagnaðu því hve margt er um það bil að smella
saman þessa dagana og láttu það ekki spilla ánægj-
unni þó fólk kunni ekki endilega að meta allt, sem þú
leggur á þig. Það sem félagar þínir stinga upp á virð-
ist kannski ósanngjarnt, en það gæti verið þess virði
að láta undan þrýstingi. Brátt færðu frelsi til að
byggja á nýjum og traustari grunni.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Maki eða ástvinur getur verið mjög krefjandi á
föstudag, en á laugardag verður vinnuhagræðing of-
arlega á baugi. Ýmislegt snjallt gæti komið út úr því.
Sunnudagurinn verður einn af þessum þægilegu
dögum til hvers kyns skemmtunar. Það væri ekki svo
galið að láta yngstu kynslóðina ráða ferðinni, en vinir
eða kunningjar gætu komið í veg fyrir að áform yrðu
að veruleika.
VATNSBERINN (22/1-19/2
Eftir helgina hefst gróskumesta tímabil ársins hjá
þér hvað varðar alla vinnu. Áherslan er á nýjar hug-
myndir og verkefni og þú verður að bægja frá þér öll-
um efasemdum byggðum á tilfinningalegu mati.
Komdu fólki á óvart með bjartsýni og ákveðni. Láttu
ekki hafa þig út í að hjakka í sama farinu í einkalífinu
og kannski er tími til kominn að krefjast meiri skiln-
ings og stuðnings frá þínum nánustu.
Þó þú þarfnist öryggis og reglu á hlutunum virðist
þú nú hvetja aðra til að höggva á ákveðin tengsl og
gleyma vonbrigðum og erfiðleikum fortíðarinnar.
Sum vandamál eru hins vegar torleystari en önnur.
Reyndu nýjar leiðir og komdu ástvinum þínum á
óvart með svolítilli aðlögunarhæfni. Á sunnudag
verður þú aðnjótandi mikillar heppni, alveg óvænt.
30 HELGARPÓSTURINN