Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 35

Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 35
FRÉTTAPÓSTUR Utanríkisráöherrafundur NATÓ-ríkjanna var haldinn á Hótel Sögu á fimmtudag og föstudag í síðustu viku. Mikil hjartsýni ríkti um árangur fundarins og var niðurstöðu hans beðið með mikilli eftirvæntingu. í tilefni fundarins komu hingað til lands á fjórða hundrað blaða- og frétta- manna og höfðu þeir aðstöðu i Hagaskóla eins og á leiðtoga- fundinum í október á síðasta ári. Meðan á fundinum stóð var öryggisgæsla stóraukin og strangt eftirlit haft með ferð- um útlendinga hingað til lands í þó nokkurn tima fyrir fundinn. Einnig var svæðinu kringum Hótel Sögu lokað allri utanaðkomandi umferð. í lokayfirlýsingu fundarins gengu ráðherrarnir mun lengra en gert hafði verið ráð fyrir og voru helstu niðurstöð- ur þær að fundurinn veitti Ronald Reagan forseta Banda- ríkjanna fullt umboð til áframhaldandi samningaviðræðna risaveldanna um takmörkun vígbúnaðar. Samþykkt var að stefna að eyðingu skammdrægra og meðaldrægra eldflauga í Evrópu, hin svokallaða tvöfalda núll-lausn. Einnig var hvatt til að meðaldrægum eldflaugum yrði einnig eytt utan Evrópu. Utanrikisráðherrarnir urðu lika sammála um helmingssamdrátt langdrægra endflauga, útrýmingu efna- vopna og jafnvægi í hefðbundnum herafla. Stjórnarmyndunarviðræðurnar Stjórnarmyndunarviðræðum var fram haldið í síðustu viku og það sem af er þessari. Fyrir helgi var rætt um að- gerðir í ríkisfjármálum og hvernig væri hægt að minnka halla ríkissjóðs. Þessum tillögum var síðan komið í nefnd þriggja hagfræðinga sem reiknuðu út áhrif aðgerðanna á þjóðarbúið. Þeir skiluðu síðan af sér á mánudaginn og komu með tillögur um aðgerðir. Helsta niðurstaða nefndarinnar var aukin skattheimta á hina ýmsu hluti eins og eignar- skattur á bila og sérstakt gjald á krítarkortanotkun. Einnig var lagt til að fækkað yrði undanþágum frá söluskatti og hætt yrði að endurgreiða söluskatt til atvinnuveganna. Fall- ið hefur verið frá hugmyndum um að leggja á stóreigna- skatt. Flokkarnir eru nú að ræða þessar tillögur og er búist við að niðurstöður liggi fyrir siðar í þessari viku um hvort af stjórnarmyndun verður. • í síðustu viku var komið upp um eitt stærsta smygl á hassolíu hingað til lands. Var olíunni komið hingað á- þann hátt að hún var látin í smokka og siðan gleypti Eng- lendingurinn sem smyglaði henni til landsins þá. Ásamt Englendingnum stóðu þrir íslendingar að smyglinu. Var magnið sem reynt var að smygla til landsins um 750 grömm. • Á mánudaginn tók til starfa í Hafnarfirði fiskmarkaður, sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Fyrsti togarinn sem seldi afla sinn þar var Otur HF 16 og voru boðnar upp um 170 lestir. Meðalverð sem fékkst fyrir fiskinn var 33,00 krónur fyrir kílóið. • í síðustu viku var handtekinn i Mývatnssveit Austur- ríkismaður með ein fimmtán andaregg í fórum sínum sem hann hafði ætlað að smygla úr landi. • Frá og með fimmtánda júní er fiskverð á íslandi frjálst. • Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra hefur lagt til að á næsta ári hefjist framleiðsla á glasabörnum og þannig verði hjónum sem ekki geta átt börn saman gefinn kostur á að eignast sín eigin börn. • Nokkrar kýr hafa drepist úr garnapest í Austur-Húna- vatnssýslu i siðustu viku. Þegar er byrjað að bólusetja eftir- lifandi dýr en ekki útséð um árangurinn. • Á föstudaginn voru úrslit í samkeppni um hönnun ráð- húss i Reykjavik tilkynnt. Ráðhúsið á að standa á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu og féllu fyrstu verðlaun í skaut tveggja ungra arkitekta, þeirra Margrétar Harðardóttur og Steve Christer. Önnur verðlaun hlaut Guðmundur Jónsson. 38 tillögut bárust í keppnina. • Alþjóðlegt friðarboðhlaup hófst fyrir utan Höfða á fimmtudaginn og var það Steingrimur Hermannsson sem tendraði kyndil sem hlaupið er með og hljóp hann einnig fyrsta spölinn. Þegar er búið að hlaupa i nokkrum löndum síðan hlaupið hófst í apríl síðastliðnunm í New York. Alls verða hlaupnir um 43.000 kílómetrar og komu 3.300 í hlut íslendinga. • Þessa dagana stendur yfir í Reykjavik þing norrænna heimilislækna. • í sumar fara fram á Norður-Atlantshafi mjög ítarlegar rannsóknir á hvalastofnum. Eru það Færeyingar, Norð- menn, Grænlendingar og íslendingar sem standa að þeim. Markmiðið er að finna út hve stór hvalastof ninn er og verða hvalirnir taldir og tegundagreindir. • Kolbeinsey, nyrsti grunnlínupunktur landsins, er smátt og smátt að hverfa vegna ágangs sjávar. Eyjan er mjög mikil- væg fyrir samninga Islendinga og Norðmanna um miðlínu milli íslands og Jan Mayen. • Hlutabréf ríkisins í Útvegsbanka íslands eru nú til sölu á almennum markaði og seld á nafnverði. • Meðalaldur íslenska kaupskipaflotans er um 13,95 ár. • Á sjómannadaginn var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslu ís- lands heiðruð i Keflavik fyrir frækilega björgun skipverja á Barðanum GK, sem strandaði á Sngefellsnesi í mars síðast- liðnum. • Á þessu sumri verður um 212 milljónum varið til þess að lagfæra slit á götum Reykjavíkurborgar, sem voru óvenju illa farnar eftir veturinn. • Stefáni Valgeirssyni, fyrrum þingmanni Framsóknar- flokksins og núna eina þingmanni Samtaka jafnréttis og fé- lagshyggju í Norðurlandskjördæmi eystra, hefur verið boð- ið að ganga í þingflokk Framsóknarmanna að nýju. Hann hefur enn ekki tekið ákvörðun í málinu. • Námsgagnastofnun hefur verðlaunað höfunda fyrir gerð lesefnis fyrir þá sem eru að byrja að læra að lesa. Þeir höf- undar sem hlutu verðlaun voru Friðrik Erlingsson, Ragn- heiður Gestsdóttir og Torfi Hjartarson. • Um daginn eyðilögðu grasmaðkar kartöflugrös á stóru svæði iÞykkvabænum. Þetta tefur verulega fyrir vexti kart- aflnanna þannig að búast má við að þær verði minni en eðli- legt er í haust þegar þær verða teknar upp. os Langholtsvegi 109 (í Fóstbræöraheimilinu) Sækjum og sendum Greiðslukorta þjónusta Sími 688177 Smokkur? Hann gœti reddad GEGN EYÐNI -8 Aukin Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir hafa valið tölvuvædda telexkerfið frá Pegasus. Kerfið eykur hag- ræðingu og sparar eigendum sínum ómældar fjárhæðir. Þeir völdu tölvuvædda telexkerfið frá Pegasus. Sveinn Egilsson hf. Gunnar Eggertsson hf. Byko hf. Hekla hf. Vélsmiðjan Héðinn hf. Andri hf. Asiaco hf. Iðnaðarbankinn. Samvinnubankinn. Skipadeild SÍS. Kreditkort hf. Utanríkisráðuneytið. Nesskip hf. Skipamiðlunin hf. Bókaforlagið Iðunn hf. íslensk Ameríska Verslunarfélagið. Kaupskip hf. Marbakki hf. Sportvöruþjónustan. Bjöminn hf. Bananar hf. JS Heildverslun hf. Verslunardeild SÍS. Karl K. Karlsson. Þór hf. Carlsberg umboðið. Valfoss hf. Samband Sparisjóða. John Lindsey hf. Bræðurnir Ormsson hf. Farfugladeild Reykjavíkur. Heildverslunin Goddi hf. Verkfræðiþjónusta G. Óskarssonar. Alþjóða Fjárfestingarfélagið hf. Hampiðjan hf. Póstur og Sími. Tollvörugeymslan hf. Skipafélagið OK hf. Vífilfell hf. Reykvísk Endurtrygging. Eimskip hf. Ferðaskrifstofan Útsýn. Samvinnuferðir Landsýn. Ferðaskrifstofan Úrval. Skeljungur hf. íslenska Álfélagið hf. TÖLVUSTÝRÐ TELEXKERFI FRAMTÍÐARINNAR PEGASUS PEGASUS ™ uraiUUí. m í|v m Pegasus hf. Skipholt 33 105 Rvík Sími (91) 688277 Telex 2238 Jayell IS Prtir HELGARPÓSTURINN 35

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.