Helgarpósturinn - 03.09.1987, Page 4

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Page 4
ÞJOÐLEIKHUSIÐIUP Helmings samdráttur á sídastliðnum 10 árum. Fjárhagsstaða leikhússins aldrei jafn slæm og ná. Framlög ríkisins minnkað jafnt og þétt á undangengnurn 10 árum. Hásið í niður- níðslu og búnaður allur meira og minna úr sér genginn. Hreint neyðarástand að skapast. í nepjunni á þridjudagsmorguninn stillti starfsfólk Þjóbleikhússins sér upp fyrir Ijósmyndarann á tröppum hússins í tilefni af þuí ab nýtt leikár var ab hefjast. Þjób- leikhúsib, sameign þjóöarinnar, gnœfbi yfir leikara, saumakonur, smiöi og sminkara og í fljótu bragbi var ekki annab aö sjá en allt væri í himnalagi í þessu húsi. En þegar nánar er ab gáö er alls ekki allt í lagi. Þetta brjóstvirki íslenskrar menningar, þar sem andi listarinn- ar á ab blómgast og dafna, er aö hruni komib og er þá sama hvort litiö er til hússins sjálfs eöa starfsemi þess. Langur skuldahali hvílirsem mara á leikhúsinu, húsiö er oröiö fólki hœttulegt og öll tœki, búnaöur og starfsaö- staöa löngu oröin óviöunandi. íslendingar státa sig gjarna af því að vera mikil menningarþjóð og eitt af því sem oft er nefnt til sög- unnar þegar menningin er rædd og um hana ritað er hvað við erum dugleg að fara í leikhús. Heimsmet segja menn og halda ekki vatni yfir áhuganum. Þessi mikli áhugi al- mennings á leikhúsinu, sem greini- lega er til staðar, virðist þó ekki skipta máli fyrir ráðamenn. Þjóð- leikhúsið, sameign þjóðarinnar og brjóstvirki leiklistarinnar í landinu, hefur verið látið sigla sinn sjó, án þess að hafa verið sýnd sú ræktar- semi sem þarf. Því er málum svo komið innan stofnunarinnar að þar ríkir nánast neyðarástand um þess- ar mundir. Leikhúsið hefur verið rekið með halla mörg undangengin ár, en vandi þess hefur verið leystur til skamms tíma á hverju hausti með aukafjárveitingu. Nú er ástandið verra en nokkru sinni fyrr, enda helst fjárhagsvandi leikhússins í hendur við stöðugt lækkandi hlut- fall framlags ríkisins. A síðasta ári var framlag hins opinbera innan við 40% af heildartekjum leikhússins, hefur reyndar verið það síðan 1985. Þess má geta að í nágrannalöndun- um eru framlög hins opinbera til rík- isleikhúsa oftast á biiinu 85%—95%. Lægst er það í Noregi, 85%, en fer síðan yfir 90% í Svíþjóð og Dan- mörku. Af þessum samanburði má ljóst vera að hið íslenska þjóðleik- hús á við ramman reip að draga þeg- ar fjárveitingavaldið er annarsveg- ar. Háttsettur maður innan leikhúss- ins sagðist halda að vegna mjög góðrar aðsóknar í leikhúsið gæti gengið að reka það á 75% framlagi af hálfu ríkisins, jafnvel 70%, en lægra væri bara ekki hægt að fara ef endar ættu að nást saman. Og ann- ar innanbúðarmaður benti á að málið vær einfalt. íslendingar væru bara einfaldlega ekki nógu margir til þess að standa undir rekstri Þjóð- Ieikhússins með óbreyttum framlög- um ríkisins. nógu hagkvæmur og það hljóti að vera hægt að spara í rekstrinum inn- an hússins. Gísli Alfreðsson, Þjóð- leikhússtjóri, mótmælti því kröftug- lega. Staðreyndin er sú, sagði Gísli, að við erum allsstaðar undirmönn- uð. Ástandið er þannig sem stendur, þegar leikhúsið hefur tekið til starfa, að sárlega vantar smiði á smíða- verkstæði og Gísli sagði vera á því einfalda skyringu. Þeir fái einfald- lega miklu betra kaup annars staðar. Að auki séu aðstæður sem tækniliði hússins er boðið upp á þannig að þær eru ekki verjandi. Saumakonur eru í svo litlu herbergi að þær kom- ast varla fyrir þar inni og sama má segja um sminkara og hárgreiðslu- fólk og einn benti á að líklega fengi sminkherbergið ekki viðurkenn- ingu frá hollustuvernd, enda væru þrengslin og óloftið slík að það væri heilsuspillandi að vinna þar. Góð- kunnur leikari í húsinu sagði að það virtist bara vera þannig að ráða- menn gerðu sér alls ekki grein fyrir því hvað kostaði að reka leikhús og þegar rætt væri um að launakostn- aður hússins væri óheyrilega hár væri alltaf ráðist á leikarana. Það væri hinsvegar ljóst, og það stað- festi Þjóðleikhússtjóri, að launa- kostnaður leikara væri alls ekki stærsti hluti kostnaðarins, reyndar næði hann ekki einu sinni helmingi af öllum launakostnaði hússins. Þuríður Pálsdóttir staðfesti þetta einnig og bætti við að ef að draga ætti úr launakostnaði, sem er lang- stærsti hluti rekstrarkostnaðarins, þá væri ekki annað hægt en segja upp fólki. Slíkt væri hinsvegar alls ekki á dagskrá, enda væru tækni- deildirnar undirmannaðar og upp- sagnir einhverra úr þeim geira þýddu einfaldlega að segja þyrfti upp leikurum og fækka sýningum. Það gengi því alls ekki að fara þá leið til að komast út úr þeim fjár- hagsvanda sem við blasir. ÞAÐ ER EKKI EITT, ÞAÐ ER ALLT Uppsafnaður rekstrarvandi leik- hússins á sér langa sögu, en hefur heldur aukist með árunum. Fram- lög ríkisins til hússins á árunum 1973—83 voru að sögn Þjóðleikhús- stjóra viðunandi, en síðan hefur snarlega dregið úr þeim, eins og fyrr er frá greint. Við þessu hefur verið brugðist innan leikhússins í gegnum tíðina. Fyrir u.þ.b. 10 árum voru 14 sýningar færðar upp á stóra sviðinu, í ár verða þær 7, auk þess sem ein sýning verður tekin upp frá því á síðasta ári. Vegna fjárhags- vandans var einnig tekin sú stefna að færa hina viðamiklu sýningu Rómúlus mikla eftir Dúrrenmatt aftur, en frumsýna átti verkið síðast- liðið vor, en það verður í staðinn fyrsta verkefni haustsins. Af þessu má ráða að leikhúsið getur tæpast gengið lengra í að skera niður starf- semina, ef það á að standa undir nafni sem þjóðleikhús. Þjóðleikhússtjóri sagði að í tíð Sverris Hermannssonar, fyrrver- andi menntamálaráðherra, hefði að vísu náðst fram ákveðin leiðrétting á framlögum til leikhússins, en þau hefðu samt farið hlutfallslega lækk- andi síðan 1983. Það væri sérstak- lega erfitt að kyngja þessu núna því að húsið þarfnaðist gífurlegra end- urbóta. Þetta horfði öðruvísi við ef ER VERIÐ AÐ SKOÐA MALIÐ MANNFÆKKUN EKKI ÁDAGSKRA Illar tungur hafa oft bent á að rekstur Þjóðleikhússins sé alls ekki Starfslið leikhússins á tröppunum fyrir framan leikhúsið í upphafi leikársins 1987—8 Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, hafði þetta að segja um málefni Þjóðleikhúss- ins: ,,Það er auðvitað alveg ljóst að það stendur illa. Það er mikill halli á rekstrinum annarsvegar og hins- vegar verður að leggja út í um- fangsmikið viðhald. Þetta er mál af þeirri stærðargráðu sem verður að fara vandlega ofan í og ég hef rætt það við fjármálaráðherra. Við urðum ásáttir um að okkar embættismenn færu ofan í málið til að kanna hvað hægt er að gera. Við viljum eiga okkar Þjóðleikhús og ekki láta það drabbast niður." En það hefur nú samt verið gert? ,,Já, það er rétt. Þetta er auðvit- að fyrst og fremst spurning um peninga og þær fjárveitingar sem fjárveitingavaldið og Alþingi 4 HELGARPÓSTURINN EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.