Helgarpósturinn - 03.09.1987, Qupperneq 9

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Qupperneq 9
ÉG, HVERAGERÐI / Hverageröi eru Grund og Ás skráö fyrir rúmlega áttatíu fasteignum. Þaö er talið uera nálœgt tíunda hluta þorpsins. í Hveragerði eru elli- og hjúkr- unarheimilið Grund og dvalar- heimilið Ás skráö fyrir áttatíu og þremur fasteignum. Meöal fast- eignanna eru vistheimili, en auk þess um fjörutíu íbúdarhús. Hinn helmingurinn af skrádum fast- eignum stofnananna er gródur- hús, idnaðarhúsnœdi, trésmíða- verkstœði, geymslur, bílskúrar og lóðir. Meðal annars á elliheimið Grund fjóra og hálfan hektara af jarðhitalandi. Það er álit yfirvalda í Hveragerði að eignir stofnan- anna sem Gísli á Grund veitir for- stöðu eigi um 10% af bœnum. Gisli upp ákveðinn hluta af Hvera- gerði. Þetta eru hús í elsta hluta þorpsins, byggð á þeim tíma þegar gert var ráð fyrir að íbúar Hvera- gerðis gætu haft gróðurhús í garð- inum til búdrýginda. Lóðir við þessi hús eru því hátt á annað hundrað fermetra. KEYPTI UPP HJARTA HVERAGERÐIS Til þess að gefa mynd af því hversu skipulega Gísli hefur keypt fasteignir í Hveragerði er sjálfsagt auðveldast að nefna þær fasteign- ir sem stofnanir Gísla eiga við standa í umfangsmiklum fjárfesting- um. ísjöunda tölublaði Helgarpóstsins 1979 birtist úrdráttur úr minnisblöð- um fyrrverandi starfsmanns á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund undir fyrirsögninni „Gaukshreiður ellinn- ar“. Þar var vísað til bókar Kens Kesey um fylkissjúkrahús fyrir geð- sjúka í Bandaríkjunum og kvik- myndar sem gerð var eftir bókinni. í þessum minnisblöðum er farið hörðum orðum um aðbúnað gamla fólksins á Grund. Á eftir fylgdu harðar deilur í fjölmiðlum og skipt- ust menn nokkuð í tvö horn; töldu stofnunina sinna vel sínu starfi eða að þar væri aðbúnaður aldraðra vistmanna fyrir neðan allar hellur. í þessari umræðu kom fram að Skúli Johnsen, borgarlæknir, hygðist standa fyrir opinberri rannsókn á þjónustu elliheimilisins. Sú rannsókn fór ekki fram á ann- an hátt en þann að Skúli og Ólafur Ólafsson, landlæknir, heimsóttu Grund og gerðu athugasemdir við nokkur atriði sem auðvelt reyndist að kippa í liðinn. Að þeirra dómi var megnið af þeim ásökunum sem fram höfðu komið í blaðaskrifunum ekki á rökum reist. ÞJOÐSAGNA- PERSÓNAN GÍSLI Hin lágu daggjöld sem Grund fær hafa sjálfsagt ýtt undir þá trú margra að aðbúnaðurinn þar væri slæmur. Eins og áður sagði hefur Gísli aldrei sótt um halladaggjöld. Daggjaldanefnd hefur því aldrei séð ástæðu til þess að hækka daggjöldin til Grundar. Að þessu leyti sker Gísli sig frá flestum öðrum sem reka stofnanir á daggjöldum og í raun flestum fyrirtækjum sem eru komin upp á framlög frá hinu opinbera. Þetta kerfi hefur að miklu leyti verið byggt upp með hliðsjón af því að rekstraraðilarnir geti fengið halla- rekstur sinn greiddan. Það hefur leitt til þess að margir taka þann pól í hæðina að betra sé að skila af sér hallarekstri en láta enda ná saman. Með því fær viðkomandi stofnun hærri fjárframlög frá ríkinu. Gísli hefur hins vegar miðað reksturinn við fjárframlögin og skipulagt hann út frá því. Önnur ástæða fyrir því hversu margir lögðu trúnað á ásakanir á hendur Grundar og Gísla er sjálfsagt sú að Gísli hefur farið einförum í þann dag í dag reynst ófáanlegur til að selja eitt einasta frímerki af öll- um forðanum, þrátt fyrir töluverðan ,ágang frímerkjakaupmanna. starfi sínu og mikil þoka hvílir yfir aðferðum hans. Á sama tíma og hann rekur um 30 prósent af vist- rými aldraðra fyrir mjög lítil fjár- framlög ríkisins stendur hann í fjár- festingum, gefur stórgjafir til líknar- félaga og er sagður eiga stóran hluta af inneigninni í útibúi Búnaðar- bankans í Hveragerði. Gísli er því nokkurs konar þjóðsagnapersóna. ÁHUGAMÁLIN: VÍSINDI OG FRÍMERKI Þá þykir fortíð hans nokkuð dul- arfull. Hann var fylgismaður þjóð- ernissósíalismans á yngri árum. Hann hefur átt mikil samskipti við Þýskaland. Margir þeirra erlendu vísindamannasem Gísli hefur boðið að starfa á rannsóknarstofu sinni í Hveragerði eru Þjóðverjar. Rann- sóknarstofan er síðan enn eitt dæm- ið um hversu illa Gísli rúmast i mót- inu af meðalmanninum. Það að standa fyrir rannsóknum í náttúru- vísindum og gefa út langa ritröð af niðurstöðum þeirra er ekki dæmi- gert áhugamál. Meðal annars hefur Gísli verið sagður eiga feiknadýrmætt frí- merkjasafn. Áður en hann tók við rekstri Grundar var hann frímerkja- kaupmaður, sá eini á landinu í þann tíma. Frá þessum tíma á hann gríð- arlega mikið af frímerkjum, en fróð- ir menn um þau mál telja þau þó ekki verðmæt. Gísli á til dæmis eng- in verðmæt söfn. Það er kannski lýs- andi fyrir Gísla að hann hefur enn Gísli á Grund hefur takmarkað eignakaup sín í Hveragerði við það svæði sem merkt er með hring á myndinni. HREPPSNEFND STÖÐVAÐI FREKARI KAUP GÍSLA Dvalarheimilið Ás var stofnað á sjötta áratugnum af Gísla Sigur- björnssyni. Allt frá stofnun þess og fram til 1978 stóð Gísli fyrir kaup- um á fasteignum í Hveragerði, ýmist í nafni Áss eða Grundar. 1978 samþykkti hreppsnefnd Hveragerðishrepps að sveitarfé- lagið hefði forkaupsrétt að öllum lóðum í landi Hveragerðis. Hvorki á þeim tíma né síðar hefur það verið launungarmál að þessi sam- þykkt var gerð fyrst og fremst til þess að sporna við frekari kaupum Gísla á húsum og lóðum. Eftir þessa samþykkt hefur dregið úr vexti Áss og Grundar í Hvera- gerði. Eins og áður sagði eignuðust Grund og Ás um fjörutíu hús á þeim aldarfjórðungi sem leið frá stofnun Áss og þar til sveitarstjórn Hveragerðis setti Gísla stólinn fyr- ir dyrnar. Þessar eignir eru ekki dreifðar um bæinn, heldur keypti fimm götur í þorpinu. Við Blá- skóga eru þessar stofnanir skráðar fyrir eignum númer 6, 11, 13, 15 og 17. Grund og Ás eru eiga hús við Bröttuhlíð númer 9, 11, 13, 14, 15, 16, 17, 18, 20 og 22. Við Frum- skóga númer 1, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 12, 13, 14 og 16. Þá eiga þessar stofnanir fasteignir við Heiðmörk númer 23, 30, 32, 34 og 36 og við Hverahlíð eru Ás og Grund skráð- ar fyrir einunum númer 4, 7, 8,15, 17, 19, 21 og 23. Fyrir utan þessar fimm götur eiga stofnanirnar tvö hús við sitt hvora götuna og auk þess fyrrgreint jarðhitaland. Eins og sjá má af upptalningunni hér að ofan eiga Ás og Hveragerði bróð- urpartinn af hjarta Hveragerðis. Ástæðan sem hreppsnefnd Hveragerðishrepps gaf fyrir þeirri ákvörðun sinni að eigna sér for- kaupsrétt að öllum lóðum í þorp- inu á sínum tíma var meðal annars rökstudd með þvi að kaup og eign- arhald Gísla á Grund á lóðum og húsum stæðu í veginum fyrir end- urnýjun á skipulagi þorpsins. Það getur þó varla verið eina ástæðan, Elli- og hjúkrunarheimilið Grund við Hringbraut. VELFERÐARRÍKIÐ OG GI'SLI En að persónu Gísla slepptri, þá er það aftur lýsandi fyrir íslenska vel- ferðarkerfið að sjálfseignarstofnan- irnar sem Gísli veitir forstöðu skuli vera svo umfangsmikill hluti af öldr- unarþjónustunni. Þrátt fyrir um- kvartanir margra um mikil ríkisum- svif er stór hluti heilbrigðiskerfisins undir slíkum stofnunum. Dvalar- heimili aldraðra sjómanna, SÍBS og Krabbameinsfélagið eru allt sjálfs- eignarstofnanir. Frumkvæðið að starfsemi þessara stofnana hefur komið frá einstaklingum, en ekki úr ríkisgeiranum, þó flestar þeirra fái rekstrarfé sitt þaðan. Fjármuni til GRUND því Gísli keypti einungis hús í grónum kjarna Hveragerðis. Það er allt eins líklegt að sú staðreynd hafi spilað inn í ákvörðun hrepps- nefndarinnar, að Gísli greiðir lítil gjöld til hreppsins. Ás og Grund greiða ekki aðstöðugjöld og öðr- um opinberum gjöldum er haldið í lágmarki, vegna eðlis starfsem- innar. Vistmenn Gísla sem hafa lögheimili í Hveragerði greiða og fæstir útsvar. í Hveragerði er einn- ig heilsuhæli Náttúrulœkningafé- lags Islands sem býr við sömu að- stöðu og Ás og Grund. Það er því ekki ólíklegt að hreppsnefndin hafi með þessari ákvörðun verið að tryggja sig fyrir fjölgun skatt- lausra íbúa og stofnana sem skila litlu til sveitarfélagsins. Það er rétt að geta þess að Gísli heldur fjöl- mennt starfslið, sem að sjálfsögðu greiðir skatta sina og skyldur til hreppsins. ALÞJÓÐLEG RANN- SÓKNARSTOFA EIN AF TÓMSTU N DAIÐJ U N UM Það ber vott um ítök Gísla í Hveragerði, að þegar þessi ákvörðun hreppsnefndar var tek- in gekk sú saga um þorpið að Gísli hygðist beita Búriaðarbankanum fyrir sig í þessu máli. Útibú Búnað- arbankans í Hveragerði er stórt. Umdæmi þess spannar nokkrar nágrannasveitir þar sem landbún- aður er stundaður af myndarskap. Flestir bændur þar eiga í viðskipt- um við útibúið í Hveragerði. Þeg- ar íorkaupsréttur hreppsins var til umræðu var sagt að Gísli hefði hótað því að taka út peninga sína í bankanum, sem væri um þriðj- ungur af heildarinnstæðu útibús- ins. Þrátt fyrir öfluga starfsemi vist- heimilisins Áss fyllir hún ekki allar húseignir Gísla. Á hverjum tíma standa nokkur húsanna tóm. Gísli hefur í vinnu sinni trésmiði, raf- virkja og aðra iðnaðarmenn til þess að halda húsunum við. Vist- mennirnir eru fluttir um set reglu- lega svo endurnýjun og viðhald geti farið fram. Auk vistmanna hýsir Gílsi stóran hluta af starfs- fólki sínu. Þá er í Hveragerði rannsóknar- stofa í náttúruvísindum á vegum Gísla. í fjöldamörg ár hefur hann boðið hingað erlendum vísinda- mönnum til starfa. Þeir skrifa síð- an ritgerðir um rannsóknir sínar sem gefnar eru út í ritröð á vegum Gísla. Þeir Hveragerðisbúar sem Helg- arpósturinn ræddi við sögðust ekki skilja fyllilega hvað Gísli hygðist fyrir með allar eignir sínar í þorpinu. Eins og áður sagði standa nokkur húsa hans auð á hverjum tíma. Það húsnæði sem hann ræður yfir er mun meira en starfsemin kallar á. Þá á hann fjóra og hálfan hektara af jarðhitalandi, en Hitaveita Hveragerðis hefur einkarétt á öflun og sölu hitaveitu. Það land nýtist honum því á engan hátt. uppyggingar verða þær hins vegar að finna annars staðar. Eins og fram kemur hér í opnunni eru sjálfseignarstofnanir ekki undir neinu opinberu eftirliti. Þetta hefur verið gagnrýnt, einkum þegar þær eru með jafnumfangsmikla starf- semi og áðurnefndar stofnanir. Upp- bygging þeirra býður heldur ekki upp á mikið innra eftirlit. Það hefur því oft gerst að einstakir menn reki þessar stofnanir eins og einkafyrir- tæki sitt. Sá sem einna helst hefur verið gagnrýndur fyrir það er ein- mitt Gísli á Grund. Sem dæmi um það má nefna að dætur hans tvær, Helga og Guðrún Gísladætur, ganga næst Gísla að völdum á Grund og í Ási. Það er engu líkara en hann hafi alið þær upp til að taka við konungs- ríkinu eftir sinn dag, á sama hátt og Gísli tók við af föður sínum, sr. Sig- urbirni í Ási, sem stofnaði Grund. HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.