Helgarpósturinn - 03.09.1987, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Halldór Halldórsson
Helgi Már Arthursson
Ritstjórnarfulltrúar:
Egill Helgason
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir,
Friðrik Þór Guðmundsson,
Gunnar Smári Egilsson,
Jónína Leósdóttir,
Kristján Kristjánsson,
Sigríður H. Gunnarsdóttir
Prófarkir: Sigríður H. Gunnarsd.
Ljósmyndir: Jim Smart
Utlit: Jón Óskar
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Auglýsingar:
Bergþóra Sigurbjörnsdóttir,
Sigurrós Kristinsdóttir
Dreifing: Garðar Jensson
Guðrún Geirsdóttir
Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir
Sendingar: Ástríður Helga Jónsd.
Ritstjórn og auglýsingar
eru í Ármúla 36, Reykjavík, sími
68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru í Ármúla 36,
sími 68-15-11
Útgefandi: Goðgá h/f.
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
LEIÐARI
Skemmdarverk á Akureyri
Verndun húsa og heilla íbúöarhverfa er
merki um heilbrigöa íhaldssemi, holla rækt
við fortíð og sögu liöinnar tíðar, um leiö og
viöhaldið er tengslum fortíðar og nútíöar. I
húsaverndunarmálum hafa sjónarmiö
manna yfirleitt ekki farið eftir flokkslegum
línum, eins og flest á íslandi. Þó má e.t.v.
segja, að húsafriðun hafi fremur verið fólki á
vinstra kanti stjórnmálanna hugleikin, en
hægri menn svokallaðir fremur verið kenndir
við „jarðýtuhugsunarháttinn".
Eitt er þó víst. Húsafriðunarmenn komu úr
öllum áttum, en hi ns vegar voru vinstri menn
mest áberandi í opinberri baráttu.
En hvað svo sem líður flokkunum af þessu
tagi, þá er það ekki pólitísk lífsskoðun, sem
ræður í þessu efni, heldur aðallega peninga-
legir hagsmunir. Þannig tókst að eyðileggja
Austurstrætið í Reykjavík á sjötta áratugnum
og raunar nánasta umhverfi, þegar reist voru
mörg verslunarhúsin þar auk Morgunblaðs-
hallarinnar, sem eyðileggur ekki einvörðungu
götumynd Aðalstrætis, heldur allt svipmót
miðbæjarins. Og nú hefur Fjalakötturinn ver-
ið rifinn fyrir nútímalegra hús, í jaðri heilleg-
asta „þorpsins" í Reykjavík, Grjótaþorpsins.
Það væri hægt að nefna mörg dæmi um
niðurrifs- og eyðileggingarstarfsemi í
Reykjavík á liðnum árum.
En Reykjavík er ekki miðdepill alheimsins.
Á Akureyri eru mörg gömul, falleg og heil-
leg hús. Þar hafa bæjaryfirvöld stundum séð
ástæðu til þess að vernda gömul hús, eink-
um af sögulegum ástæðum, eins og t.d. Lax-
dalshús, Nonnahús og Eyrarlandsstofu.
Önnur hafa verið rifin eins og Carolina Rest
og Rosenborg og mörg önnur. Allt vegna
skipulagsins.
Innbærinn á Akureyri og Fjaran hafa hing-
að til fengið að vera í friði og stafar það senni-
lega fyrst og fremst af því, að í þeim bæjar-
hluta, hefur búið fólk, sem haldið hefur
tryggð við bæjarhlutann, auk þess, sem at-
vinnu- og þjónustufyrirtæki hafa ekki sótt
þangað. Raunar rekur KEA útibú í Innbæn-
um, nánar tiltekið í Hoephners-húsi, og á
kaupfélagið hrós skilið fyrir einstaka ræktar-
semi við þau gömlu hús, sem eru í eigu þess.
Vegna 125 ára afmælis Akureyrar sem
kaupstaðar kom frú Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands norður. Hún flutti ræðu, þar
sem hún vék að ræktarsemi Akureyringa við
umhverfi sitt og hús. í gærmorgun, miðviku-
dag, varð slys á Akureyri. Þá var hafist handa
við að jafna við jörðu gamalt og tignarlegt
hús við Strandgötu 29 þar í bæ. Eigandi
hússins er Dagur, sem ætlar að fara að
stækka við sig í nútímastíl.
Nokkuð hefur dregist, að Dagsmenn
munduðu kylfuna, þrátt fyrirósk(l) bæjaryfir-
valda um að klára verkið áður en að 125 ára
afmælinu kæmi.
Þessi niðurrifsstarfsemi verður vart talin til
ræktarsemi við umhverfi sitt. Raunar mætti
líkja maskinu á Snorra-húsi við það, að dregin
væri nær heil framtönn úr manni.
Sverrir Hermannsson eðalsnikkari norðan-
manna hefur lýst yfir því, að viðurinn í
Snorra-húsi nægi í 4 einbýlishús eða 20
sumarbústaði, Finnur Birgisson skipulags-
stjóri Akureyrar hefur lýst sig persónulega
andvígan niðurbrotinu og Þór Magnússon
þjóðminjavörður hefur sagt það skoðun sína,
að húsið eigi að standa. Götumynd Strand-
götunnar er nær óskemmd og kemst Helgar-
pósturinn ekki hjá því að lýsa vanþóknun
sinni á aðgerð Dags og bæjaryfirvalda á Ak-
ureyri. Niðurbrot húss Snorra Jónssonar er
Akureyrarbæ til skammar. Það er ekki að
spyrja að peningaöflunum. Samvinnumenn
hafa löngum verið sterkir á Akureyri og nú
birtist styrkur þeirra heldur betur. í bæjarráði,
þar sem íhald og kratar eru í meirihluta, tekst
KEA að fá samþykkt skemmdarverk.
^i
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
AFTUR KOMINN í 40% FYLGI
A-flokkarnir tapa báöir. Alþýöubandalagiö minnstur þingflokka. Fram-
sókn og Kuennalisti halda sínu. Borgaraflokkurinn tapar litillega.
Þjóöarflokkurinn meö mann inni.
VALUR KR — JAFNTEFLI
AIMENNINGUR VILl EKKI SEIJA
BUN AÐARBANKANN
h^r" hnfifu h f’-i y m .• |.. „..
j Uignði.'no.
J»>h» oð.u.1
UppboA
Siglingamála-
stjóra svarad
í HP 13. þ.m., undir „bréf til rit-
stjórnar", lætur Magnús Jóhannes-
son, siglingamálastjóri, hafa eftir
sér fullyrðingar varðandi deilur
þær, sem stofnun þessi stendur í
vegna húsnæðis í JL-húsinu, sem
stofnunin hefur tekið leigunámi; og
undirr. neyðist til að svara nokkrum
orðum. Ekki var ætlun undirr. að
setja deilur þessar í fjölmiðla, en
siglingamálastjóri byrjaði á því, í
Þjóðviljanum, snemma sumars.
Húsnæðið var upphaflega leigt
Siglingamálastofnun skv. tilboði
þeirra að loknum eigin mælingum
og athugunum í margar vikur. Hús-
næðið hafði ekki verið auglýst til
leigu, en stofnunin gekk hart eftir
að fá leigt og væri þeim „lífsspurs-
mál“ að vera við sjóinn. Ekki þótti
ástæða til að vantreysta mælingum
svo „virtrar" stofnunar og var því til-
boði þeirra tekiö og leigt frá 1.10.
’80. Fyrirvari var gerður um endur-
skoðun 460 m2 „geymsluhúsnæðis”
til hækkunar, þar sem grunnflötur
var yfir 700 m2, og skyldi slíkt gert
af báðum aðilum saman. Greiða átti
18 mánuði fyrirfram og er sú
greiðsla loks kom, ca. 75 dögum eft-
ir eindaga, var neitað greiðslu
dr.vaxta og samningur hafði verið
„falsaður" í 316,9 m2 fyrir geymslu-
húsnæðið svo og engu bætt við í
„sameign" og var því kvittað fyrir
með fyrirvara.
— Að liðnum um 7 árum af 12 ára
leigutíma hefur „stofnun" þessi enn
ekki leiðrétt „fermetrafalsanir" og
að auki ekki staðið við verðtrygg-
ingarákvæði svo og ekki greitt
krónu í „öryggisgjald”, sem um var
samið á sínum tíma að greitt yrði
fyrir húsvörzlu og afnot af bruna-
skynjarakerfi, sem tengt var beint á
slökkvistöð og er enn. Borið var við
í mörg ár, að sífellt væri sótt um
LAIISNIR Á
SKÁKÞRAUTUM
69 Tuxen. Hér eru skemmtilegar
leppanir á ferðinni. Eftir 1 Dc2! er
svartur í leikþröng:
1 - Dxa3 2 Hd3 tvískák og mát.
1 • De3 2 Hg5 (mát)#
1 - Ke3 2 Hxb3 (mát) #
70 Zepler
1 Re3l Kd8 2 Rd5 og 3Hf8#
Ke7 2 Hf8 Ke6 3 He8#
10 HELGARPÓSTURINN
sama ,,á fjárlögum”, en síðan sent
bréf og sagt að „umsókn á fjárlögum
hefði verið neitað". Þetta eru nú
helztu atriði baráttu undirr. við
skrímsli þetta, sem hefir mörg „höf-
uð“, en sýnir sig í andliti „lítilla”
manna og kvenna, sem fá þarna
kjörið tækifæri að sýna valdahroka
og fá útrás fyrir afbrigðilegar tii-
hneigingar sínar; að því er bezt
verður séð. Er svo komið, að leigu-
samningi hefur verið rift á löglegan
hátt með stefnum pr. 1. maí sl., en
staðfesta þarf með málssókn, enda
fógeti neitað löglega umbeðnum út-
burði í þriðja sinn nú nýlega. Undirr.
telur fógeta ekki hafa farið að húsa-
leigulögunum með þessari neitun
útburðar og þarf þar því til sérstaka
„málaþvælu" í viðbót við riftunar-
mál og matsmál.
— Er því svo komið, að „stofnun-
in“ situr húsnæðið leigunámi og
skammtar sér sjálf mánaðargreiðsl-
ur, sem hún „deponerar" eftir hent-
ugleikum, og þar sem verðtrygging
er hundsuð nemur sú greiðsla ca.
175.00 á m2 í stað t.d. 420.00 á m2
sem auglýst er í næsta nágrenni fyr-
ir húsnæði á 4. hæð. Sjá því allir því-
líkt gjörræði er hér í gangi af hálfu
„skrímslisins”. Ymislegt fleira mætti
upp telja, en því verða gerð betri
skil í viðtali við undirr., sem birtast
mun í bók, sem til stendur að komi
út með haustinu, og verður þá send
þeim, sem þess óska; meðan upplag
leyfir og skv. auglýsingu í HP síðar.
28. ágúst 1987,
Loftur Jónsson.
Leiðrétting
með viðauka
Mistök urðu í framsetningu á nið-
urstöðum skoðanakönnunar í síð-
asta Helgarpósti. I töflunni „Ef kosið
yrði til alþingiskosninga núna,
hvaða flokk myndir þú kjósa?” eru
tölurnar í dálkinum „% af þeim sem
tóku afstöðu" rangar.
Réttar tölur eru:
Alþýðuflokkur 11,9%
Framsóknarflokkur 18,8%
Bandalag jafnaðarm. 0,3%
Sjálfstæðisflokkur 39,9%
Alþýðubandalag 8,2%
Kvennalisti 9,8%
Flokkur mannsins 0,5%
Borgaraflokkur 8,5%
Þjóðarflokkur 2,1%
Munurinn á þessum tölum og
þeim sem birtust fyrir viku felst í því
að í þær vantaði svör tíu manna á
Reykjanesi, sem aðspurðir sögðust
ætla að kjósa Framsóknarflokkinn
ef gengið yrði til kosninga nú. Hlut-
aðeigandi eru beðnir velvirðingar
og þá einkum framsóknarmenn.
Villan hafði það í för með sér að sá
flokkur var skráður með tveimur
prósentustigum minna fylgi í könn-
uninni en hann hafði í raun. Aðrir
flokkar skiptu síðan þessum
prósentustigum á milli sín, hver eftir
sínum styrk.
Þar sem Dagblaðið Tíminn hefur
í fréttaskrifum haldiö því fram að
niðurstöður skoðunarkönnunar
Helgarpóstsins séu rangar er rétt að
taka fram eftirfarandi:
Allar niðurstöður könnunarinnar
voru réttar og könnunin sjálf unnin
á óaðfinnanlegan hátt. Hins vegar
urðu mistök í vinnslu blaðsins sem
höfðu það í för með sér að leiðréttar
tölur frá SKAIS komust ekki á síður
blaðsins. Allar aðrar tölur eru réttar
eins og þær birtast í Helgarpóstin-
um. Ef grein blaðamanns Helgar-
póstsins sem fylgir niðurstöðum
könnunarinnar er lesin má sjá að
þar er vitnað til réttra og óbrengl-
aðra talna. Sömuleiðis eru aðrar töl-
ur sem túlka niðurstöður könnunar-
innar réttar, bæði í þessari tilteknu
töflu og eins í hinum fjórum töflun-
um á síðunni.
Tíminn virðist því hafa látið reiði
sína yfir hinum „týndu" prósentu-
stigum hlaupa með sig í gönur.
A.m.k. er erfitt að sjá að þau mistök
sem Helgarpósturinn hefur orðið
uppvís að gefi tilefni til jafnharka-
legrar niðurstöðu og þeir Tíma-
menn komast að. Svo mikil hefur
heift starfsmanna Tímans verið að
þeir klúðruðu útskýringum sínum
sem fylgdu skrifunum svo að eftir-
minnilegt hlýtur að teljast.
Samkvæmt þeim voru í úrtaki
SKÁÍS í þessari könnun 559.100
manns! Til samanburðar má geta
þess að fjöldi íslendinga allra er
nærri því helmingi minni. Sam-
kvæmt Tímanum myndu 11,9% að-
spurða í könnuninni kjósa Bandalag
jafnaðarmanna ef gengið yrði til
kosninga í dag. Því fer að sjálfsögðu
fjarri að niðurstaða könnunarinnar
hafi verið í þá veru.
Lengi mætti þannig telja upp vill-
urnar í fréttaskrifum Tímans, en
eins og Helgarpósturinn hefur nú
viðurkennt upp á sig mistök í
vinnslu blaðsins má ætla að sama
hafi verið upp á teningnum þegar
þeir Tímamenn gengu frá sínu blaði
í prentun.
Þó er ekki hægt að skrifa alla vit-
leysuna í Tímanum á mistök í frá-
gangi blaðsins. Þannig kemst Þórð-
ur Ævar Ólafsson, sem skrifar frétt-
ina, að því að Framsóknarflokkur-
inn haldi sínu samkvæmt könnun-
inni. Hann kemst sömuleiðis að því
að Sjálfstæðisflókkurinn vinni ekki
á, heldur standi í stað. í fyrrgreinda
tilfellinu miðar hann við þá sem
tóku afstöðu. í því síðara miðar
hann við alla sem spurðir voru, jafnt
þá sem gert höfðu upp hug sinn og
eins þá sem enn voru óákveðnir.
Svona vinnubrögð flokkast ekki
undir blaðamennsku, heldur ósk-
hyggju. Ef þessari rökleiðslu blaða-
mannsins á Tímanum er snúið kem-
ur í ljós að Framsókn á að hafa tapað
fimm prósentustigum, en Sjálfstæð-
isflokkurinn hins vegar unnið ein
þrettán. Það er ekki furða að Þórður
hafi lýst því yfir í Hringiðunni á rás
tvö að beita ætti einhvers konar tak-
mörkunum svo hverjum sem er
væri ekki hleypt í það að túlka nið-
urstöður skoðanakannana.
Að lokum skal eftirfarandi tekið
fram:
Þar sem Helgarpósturinn er viku-
blað og fréttir eldast á skemmri tíma
en þeim kom til tals þegar ofan-
greind mistök urðu ljós að senda öll-
um fréttamiðlum leiðréttar tölur. En
þar sem allar hreyfingar á fylgi
flokkanna voru réttar, þrátt fyrir
mistökin, þótti ekki ástæða til þess.
Það var ekki fyrr en í gær við lestur
Tímans að ritstjórn Helgarpóstsins
varð Ijóst hversu alvarlegar afleið-
ingar þessi mistök gætu haft.
Gunnar Smári Egilsson,
blaöamaður.