Helgarpósturinn - 03.09.1987, Side 12

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Side 12
EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON Hús Snorra Jónssonar snemma í morgun — heilt en meö brotnum rúöum og klaeðningu utan á útveggjum. Byrjaö aö maska húsiö — gekk hægt i fyrstu. 1m/pli íllifc fij '"■■"i 'V--^ Áv>. ,"r- jp. Tfe — sagöi Sverrir Hermannsson eöalsmiöur „Ég nærri grét, þegar ég horfði á hamarinn dynja á húsinu,“ sagði Sverrir Hermannsson húsasmíðameistari á Akureyri í samtali við Helgarpóstinn, en hann varð ásamt fjölda manns vitni að því, þegar verktakar á vegum Dags á Akureyri hófu að brjóta niður Strandgötu 29 í gærmorgun. „Maður fékk sting i hjartað við hvert högg,“ sagði Sverrir og bætti við, að svo vel hefði þetta hús verið byggt og innviðir sterkir, að það hefði þráast lengi við þrátt fyrir bylmingshöggin, sem látin voru dynja á húsinu. „Þetta minnir mann á það, þegar þeir aka 300 lestum af nautakjöti á haugana," sagði Sverrir. Hann sagði við Helgarpóstinn, að viðurinn í húsi Snorra Jónssonar væri fyrsta flokks, ófúinn, og panellinn eihs og nýr. Um er að ræða verðmæti upp á hundruð þúsunda króna. „Hús Snorra Jónssonar var reisulegasta húsið á Eyrinni," sagði Sverrir Hermannsson, sem er kunnur fyrir endursmíði sína og viðgerðir á t.d. Lax- dalshúsi og Grundarkirkju. Snorrahús var reist að Ííkindum árið 1897, en Snorri Jónsson var útgerð- armaður og byggingarmeistari. Hann lést 1918. Samkvæmt heimildum Helgarpóstsins var það nær samdóma álit þeirra, sem fylgdust með niðurbroti húss Snorra Jónssonar í dag, að þarna væri unnið óþurftarverk. „ÉG NÆRRIGRÉT" Innheimtuaöferöir ríkisútvarpsins Úr öskunni i eldinn? Þessa dagana er verið að bera út mikinn fjölda af uppboðstil- kynningum frá Borgarfógetaembættinu. /tilkynningunni kemur fram aö þar sem vidkomandi hafi ekki greitt afnotagjöld Ríkis- útvarpsins verdi sjónvarpstœki hans flutt á uppboösstad til- greindan dag þar sem þaö veröi boöiö upp. Þetta er aöferö viö innheimtuna sem tekin var upp í kjölfar kœru vegna innheimtuaögeröa Ríkisútvarpsins frá því í des- ember síöastliönum. Þá kœröi kona ein innheimtudeild Ríkisút- varpsins og Sigurmar K. Albertsson, héraösdómslögmann, fyrir ólöglega gjaldtöku vegna innheimtu afnotagjaldanna. Helgarpósturinn greindi ítar- lega frá þessu máli í greihum um síðustu áramót. Ástæðan að baki kæru konunnar er sú skoðun hennar að óheimilt sé að krefja hana um að greiða lögmanni þóknun samkvæmt taxta Lög- mannafélags íslands vegna inn- heimtu á áfnotagjöldum Ríkisút- varpsins. Afnotagjöldunum fylgir, eins og mörgum opinberum gjöld- um, lögveðs- og lögtaksréttur. Samkvæmt lögum eru þau því að- fararhæf og því hægt að inn- heimta veðið með aðstoð fógeta, án þess að málið þurfi að hafa við- komu á skrifstofu lögmanns. Við rannsókn málsins hjá Rann- sóknarlögreglunni kom fram að Ólafur Sigurgeirsson, aðalfulltrúi borgarfógetans í Reykjavík, hafði krafist þóknunar vegna vörslu- sviptingar sem konan taldi að aldrei hefði farið fram. Sá þáttur málsins er enn til meðferðar hjá Rannsóknarlögreglunni. Hins vegar vísaði ríkissaksóknari hluta af kærunni frá. Hann taldi það ekki brjóta í bága við lög að lögmaður notaðist við taxta Lög- mannafélagsins þegar hann ákvarðaði verð á þeirri þjónustu er hann veitti við aðstoð við inn- heimtu á afnotagjöldunum, jafn- vel þó að þeim fylgdi lögveðs- og lögtaksréttur. Hins vegar hefur embættið enn ekki úrskurðað um það hvort löglegt sé að krefja skuldarann um andvirði reikn- ingsins frá lögmanninum. Tveir dómar hafa gengið í svip- uðum málum á því tímabili sem liðið er síðan kæran var lögð fram. í bæjarþingi Ólafsvíkur kvað Jón Magnússon upp dóm um að óheimilt væri að krefja skuldara um greiðslu vegna þóknunar lög- manns þegar kröfunni fylgdi lög- taksréttur. Þá neitaði Þuríður Kr. Halldórsdóttir, fulltrúi fógeta á ísa- firði, að framkvæma lögtak til tryggingar innheimtulaunum lög- manns og kostnaðar vegna ritun- ar lögtaksbeiðni, vegna inn- heimtu hans á afnotagjöldum Rík- isútvarpsins. Báðir þessir dómarar komust að sömu niðurstöðu og komið hefur fram í greinum Helg- arpóstsins; það er óheirnilt að krefja skuldara um greiðslu á þóknun til lögmanns vegna inn- heimtu á lögtaks- og lögveðs- kröfum. VÖRSLUSVIPTINGAR LAGÐAR AF Það virðist því margt benda til þess að sá skilningur sem Helgar- pósturinn hefur lagt í þetta mál eigi sér æ fleiri fylgismenn. Það er athyglisvert, þar sem stjórn Lög- mannafélags íslands hafði úr- skurðað þveröfugt fyrir nokkrum misserum. Áðan var minnst á þátt Ólafs Sigurgeirssonar, sem nú er til með- ferðar hjá Rannsóknarlögregl- unni. Þegar Helgarpósturinn greindi frá þeirri staðreynd og einnig því að um tugur kraftlyft- ingamanna hafði aflað sér fjár til utanlandsferðar með því að vinna að vörslusviptingum með Ólafi brást Ólafur við á þann hátt að hann sendi öllum lögmönnum í Reykjavík bréf þar sem hann til- kynnti að hann hefði hætt vörslu- sviptingum. í bréfi sínu tilgreinir Ólafur kæru fyrrnefndrar konu sem ástæðuna fyrir þessari ákvörðun sinni. Frá þeim tíma hafa engar vörslusviptingar verið framkvæmdar í Reykjavík. Þar sem vörslusvipting er ákveðið stig á þeirri leið lánar- drottna að tryggja sig fyrir fjár- hagstjóni vegna lána sinna hefur þessi ákvörðun Ólafs að sjálfsögðu mælst misjafnlega fyrir. Það kann líka mörgum að þykja einkenni- legt að eitt af dómstigum landsins skuli gefa út tilkynningu um að það hafi lagt af framkvæmd ákveðinnar dómsgerðar. En þar sem vörslusviptingar hafa verið aflagðar í Reykjavík hafa lögmenn og aðrir þeir sem stunda innheimtu þurft að finna nýja leið til þess að knýja á um greiðslu krafna sem eru aðfarar- hæfar beint. HÆSTIRÉTTUR HEFUR ÚRSKURÐAÐ Eins og áður sagði hafa skuldar- ar afnotagjalda Ríkisútvarpsins nú fengið sendar uppboðstilkynning- ar, þar sem tilgreint er að ef þeir greiði ekki afnotagjöld sín muni sjónvarpstæki þeirra verða flutt á uppboðsstað og boðin upp. Én þessi uppboðstilkynning er um margt einkennileg. í henni er til dæmis ekki tilgreint hver upp- boðsheimildin er. Vanalega er þa.ð íiigreint á slíkum tilkynningum hvort uppboðsheimildin er sam- kvæmt veðskuldabréfi, fjárnámi, lögtaki eða einhverju slíku. Upp- boð getur ekki farið fram nema fógeti kanni uppboðsheimildina, en af þessum uppboðstilkynning- um er ekki að sjá að hann hafi kannað hvort hún var fyrir hendi eða ekki. Þá er dálítið einkenni- legt að prentað er á tilkynninguna að skuldarar geti gert upp skuld sína á lögmannsstofu Sigurmars K. Albertssonar á Klapparstíg. Enn furðulegra er að plaggið er ekki undirritað. Það er aðeins hringlaga stimpill frá borgar- fógetaembættinu undir bréfinu, ekkert nafn. En það sem er kannski furðuleg- ast við þessa innheimtuaðgerð er að Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm í svipuðu máli, þar sem upp- boði á lögtakskröfu var hafnað. Mál þetta kom upp þegar Bæjar- sjóður Eskifjarðar ætlaði að bjóða einn íbúa bæjarins upp vegna van- goldinna gatnagerðargjalda. Gatnagerðargjöldum fylgir lög- veðsréttur. íbúinn sætti sig ekki við úrskurð Boga Nilssonar, bæjar- fógeta á Eskifirði, og áfrýjaði upp- boðsúrskurðinum til Hæstaréttar. Hæstiréttur komst að þeirri niður- stöðu að til þess að beita lögveðs- aðferðinni þyrfti að fara eftir lög- um þar um. I þeim er tilgreint að fyrst skuli birta almenna áskorun um greiðslu gjaldanna í dagblöð- um með mánaðarfyrirvara og einnig að senda viðkomandi ábyrgðarbréf þar sem tilkynnt væri að veðið yrði boðið upp ef greiðsla yrði ekki innt af hendi innan þrjátíu daga. Eftir þessum tilrnælum laganna fór bæjarstjórn Eskifjarðar ekki og því dæmdi Hæstiréttur uppboðið ólöglegt. FÓGETAR FUNDA Lögmenn á lögmannsstofu Sig- urmars K. Albertssonar hafa ekki farið eftir þessum tilmælum lag- anna heldur og þar sem þeir hafa sömu stöðu fyrir lögum og bæjar- stjórn Eskifjarðar er jafnranglega staðið að uppboðsbeiðni þeirra og bæjarstjórnarinnar fyrir sex ár- um. Það virðist því sem inn- heimtumenn Ríkisútvarpsins hafi farið úr öskunni í eldinn þegar þeir tóku upp þessa aðferð, eftir að sú eldri hafði lokast. Þrátt fyrir að þetta mál hafi ekki farið ýkja hátt hefur það dregið ýmislegt fram í dagsljósið sem bet- ur mætti fara. Þannig hafa fógetar á Stór-Reykjavíkursvæðinu haldið fundi með fulltrúum dómsmála- ráðuneytisins og reynt að komast að niðurstöðu um hvernig vörslu- sviptingum væri best háttað í framtíðinni. Þær hafa löngum ver- ið hálfgert olnbogabarn í fógeta- réttinum, þar sem lagaákvæði um þær eru afskaplega loðin. En, eins og áður sagði, er þetta eijn ti! meðferðar hjá Rannsóknar- lögreglunni og ríkissaksóknara. Það hefur því enn ekki fengist úr því skorið hvort hið opinbera ákæruvald sér ástæðu til þess að beita sér í málinu. Af fyrrgreind- um dómum í einkamálum má þó ráða að fólk hafi möguleika á að endurheimta fjármuni sína með endurkröfumálum. Byrjað að ganga á húsið og kylfan á fullri ferð. Ljósm. Rúnar Þór Björnsson. 12 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.