Helgarpósturinn - 03.09.1987, Page 22

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Page 22
INNLEND YFIRSÝN eftir Kristján Kristjánsson HP hefur heimildir fyrir því ad Svavar muni styðja Steingrím í barátt- unni fyrir formannssæti og að hann muni beita sér hart í slagnum sem fyrirsjáanlegur er. Formannsslagur í aðsigi Eftir að Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, gaf út þá yfirlýsingu að hann myndi ekki óska eftir að nýta sér und- anþágu til þess að framlengja setu sínu í for- mannsstóli flokksins hafa menn farið á stúf- ana og ræða af mikilli alvöru um hugsanleg- an eftirmann. Flokkurinn hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar að undanförnu, svo ekki sé meira sagt, og skemmst er að minnast þess að hann tapaði fylgi í síðustu skoðanakönn- un HP, þrátt fyrir að hann væri í stjórnarand- stöðu og hefði farið mjög halloka í síðustu al- þingiskosningum. Svavar gaf þá yfirlýsingu að hann teldi ekki rétt að sitja áfram sökum þess að hann væri einn þátttakenda í þeim hörðu átökum sem verið hafa innan flokksins. Að það væri rétt að þeir sem mest hefðu barist drægju sig í hlé til að skemma ekki meira en skemmt hefði verið. Ekki er hægt að skilja þessa yfir- lýsingu formannsins öðruvísi en svo að það sé réttast, að hans mati, að andstæðingar hans, yfirlýstir sem og aðrir, Iáti það hjá liggja að seilast til valda innan flokksins meðan hann er í sárum, þar hlýtur fyrst og fremst að vera átt við Ólaf Ragnar Grímsson. Með þessu er formaðurinn að setja fram þá hugmynd að eftirmaður hans verði einhver sem ekki er brennimerktur af stríðandi fylk- ingum og hópum, heldur hafi á sér blæ hlut- leysis og sátta og möguleiki er að samkomu- lag verði um. Þessi maður er að öllum líkind- um Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður flokksins af Norðurlandi eystra. HP hefur heimildir fyrir því að Svavar muni styðja Steingrím í baráttunni fyrir formannssæti og að hann muni beita sér hart í slagnum sem fyrirsjáanlegur er. Heimildir HP herma einn- ig að Ragnar Arnalds hafi hug á að styðja Steingrím og ef svo fer, þá hefur hann á bak við sig tvo af helstu þungavigtarmönnum í flokknum. Ekki er þó talið að Ragnar muni ganga fram fyrir skjöldu fyrir Steingrím, en stuðningur hans, bak við tjöldin, án þess að vera þó bak við tjöldin, er talinn skipta Steingrím miklu máli. Steingrímur er nokk- uð óumdeildur í flokknum, þ.e.a.s. hann hef- ur reynt að halda sig miðsvæðis og ekki látið draga sig í dilka með neinni hreyfingu eða afli innan flokksins. Að auki er hann ungur og kemur utan af landi og talið er að í reynd sé helsti styrkur hans að menn hafa í raun fátt út á hann að setja. Það er þó ekki þar með sagt að menn telji hann formannsefni, enda þarf slíkt ekki að fara saman. Ekki er líklegt að lýðræðiskynslóðin svo- kallaða sætti sig við að Steingrímur verði for- maður næstu 6 árin, enda hafa margir innan hennar þá skoðun að hann sé það handgeng- inn Svavari að hann verði jafnvel handbendi hans. Ólafur Ragnar Grímsson hefur helst verið nefndur til að ógna framboði Stein- gríms, ef af því verður, en Ólafur hefur reyndar ekki gefið svar um það hvort hann ætlar í framboð. Ólafur nýtur nokkuð víð- tæks stuðnings meðal yngra fólksins í flokknum, einkum og sérílagi þeirra sem taldir eru tilheyra lýðræðiskynslóðinni svo- kölluðu. Samt er ekki einhugur um Ólaf inn- an hennar, enda telja margir þar að helsti andstæðingur flokksins sé Kvennalistinn og það sé fyrst og fremst þaðan sem flokkurinn þurfi að ná fylgi sínu til baka. Af þeim sökum eru margir á þeirri skoðun að það þurfi konu í formannsembættið. Þar ræða menn um Guðrúnu Helgadóttur, alþingismann, og víst er að hún nýtur einnig töluverðs fylgis en ekki nærri nægs til að ógna Steingrimi, nema að hún verði eina konan í framboði. Guðrún hefur og oft rekist illa í flokknum og flokkseigendafélagið hefur á henni illan bif- ur, að því er heimildir okkar telja. Aðrar kon- ur eru nefndar til sögunnar; Margrét Frí- mannsdóttir, nýkjörin þingmaður Suður- lands, og Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri. Hvorug þessara þykir líkleg til að fara í framboð ef Steingrímur Sigfússon gefur kost á sér. Nafn Kristínar Á. Ólafsdóttur hef- ur einnig borið á góma, en ekki er talið lík- legt að hún bjóði sig fram, en hinsvegar er líklegt að hún muni styðja framboð Ólafs Ragnars, ef hann fer fram. Hið sama má segja um Guðrúnu Helgadóttur, hún er ekki líkleg til að fara fram gegn Ólafi Ragnari. Hinsvegar telja menn að hún muni ekki sætta sig við að Steingrímur fái „rússneska kosningu" og bjóði sig fram gegn honum ef Ólafur Ragnar gerir það ekki. Varðandi afstöðu Svavars og hans manna til Ólafs Ragnars telja menn ekki að málið sé það að þeir séu alfarið á móti því að hann verði formaður flokksins. Þeir telja einfald- lega að hann geti beðið. Hann þurfi ekki að verða formaður strax heldur geti beðið eftir því að Steingrímur ljúki kjörtímabili sínu. Þegar því lyki, eftir 6 ár, yrði Ólafur fimm- tugur og menn telja að þá gæti hann vel axl- að þá ábyrgð að leiða flokkinn. Vafalítið eru þó stuðningsmenn Ólafs ekki sammála því að hann geti beðið, enda telja þeir að flokk- urinn hafi goldið afhroð í kosningum m.a. vegna þess að forystumenn hans gátu ekki tekið afstöðu í veigamiklum verkalýðsmál- um, forystan sé ólýðræðisleg og afturhalds- söm í baráttuaðferðum sínum. Olafur Ragn- ar muni hinsvegar geta lagt upp aðrar bar- áttuaðferðir sem dugi betur. ERLEND YFIRSYN Leikni Mikhails Gorbatsjoffs sovétleiðtoga á sviði alþjóðamála hefði sómt Machiavelli, segir Alton Fryes hjá bandarísku utanríkis- málastofnuninni Council on Foreign Relali- ons. „Þessi maður skorar slíkan stigafjölda á svo mörgum mismunandi leikvöngum, að erfitt er að hafa reiðu á þeim,“ er niðurstaða Fryes. Fréttamaður Washington Fbst skýrir frá því, að ræða Reagans forseta um utanrík- ismál í miðju orlofi í Kaliforníu í síðustu viku hafi verið tilraun Bandaríkjaforseta til að rétta hlut sinn gagnvart sovétleiðtoganum, eftir að skoðanakönnun í Vestur-Evrópu leiddi i Ijós að Evrópumenn telja Gorbatsjoff miklu fremri Reagan og álíta hann sér í lagi þarfari heimsfriði. Þessi er staðan, þegar dregur að úrslitum í tilraunum risaveldanna til að ganga í Genf frá samkomulagi um fyrstu ráðstöfun sem um getur til raunverulegrar kjarnorkuaf- vopnunar. Yrði hún í því fólgin, að þau út- rýmdu úr vopnabúrum sínum kjarnorku- skeytum á landi sem kallast skammdræg og meðaldræg, draga 500 til 5.700 kílómetra. A lokaspretti samningaviðræðnanna hefur staða sovétmanna enn styrkst, eftir að kansl- ari Vestur-Þýskalands ákvað á sitt eindæmi að leggja í púkkið 72 eldflaugar af gerðinni Pershing-IA og Reagan forseti sá sig tilknú- inn að taka aftur tillögur um eftirlit með eyð- ingu flauganna, eftir að sovétstjórnin hafði gert honum þann grikk að fallast á þær. Þegar vestur-þýska stjórnin ákvað, eftir innbyrðis deilur og togstreitu samstarfs- flokka, að standa ekki í vegi fyrir að önnur ríki NATÓ legðu blessun sína yfir samþykki Bandaríkjanna við tvöfaldri núll-lausn, eyð- ingu skammdrægra og langdrægra skeyta risaveldanna, fylgdi sá skilmáli að undan yrðu dregnar 72 PersiTÍng-ílatlgar í eigu Vest- ur-Þýskalands. Kjarnorkusprengjurnar í þær eru í eigu og umsjá Bandaríkjamanna. Sovét- menn tóku því strax fjarri, að þeir gætu sam- þykkt fyrirkomulag, sem eftir þeirra túlkun þýddi að Vestur-Þýskaland væri viðurkennt kjarnorkuveldi til jafns við Bretland og Frakkland, en vopnabúnaður þeirra er und- an núll-lausninni skilinn. Hófust þá nýjar erj- ur í Bonn. Stjórnarandstaðan kvað fjarstæðu að Vestur-Þýskaland léti um sig spyrjast að það legði stein í götu afvopnunar. Martin Bangemann, formaður frjálsra demókrata, eins stjórnarflokksins, tók í sama streng. Reynsla fékkst af því í kosningum til fylk- eftir Magnús Torfa Ólafssoa Vestur-þýski kanslarinn á Strauss að mæta hvað sem fylkisþingakosning- um líður. Reagan og Kohl féllu bádir á eigin brögðum í afvopnunartafli isþinga fyrr á árinu, að frjálsir demókratar græddu atvkæði á eindregnu fylgi við tvö- földu núll-lausnina á kostnað kristilegra demókrata, flokks Helmuts Kohl kanslara, sem þá var svo klofinn i málinu að þvældist fyrir samkomulagi i NATÓ. Reynslan þá í Hamborg og Rinarlöndum-Pfaíz var þess valdandi, að Kohl sá sér nú ekki annað fært en að taka af skarið og fallast á eyðingu eld- flauganna 72 fyrir fylkisþingskosningar ann- an sunnudag. Þá ganga kjósendur í Bremen og Slésvík-Holtsetalandi að kjörborði. Síðar- nefndu fylki hafa kristilegir demókratar stjórnað í 37 ár samfleytt, en standa nú höll- um fæti. Óánægja bænda hefur fætt af sér framboð óháðs lista, sem er líklegur til að taka einhver prósent frá kristilegum demó- krötum, án þess þó að koma mönnum á fylk- isþingið. Svo getur einnig farið, að frjálsir demókratar nái ekki þeim 5% sem tilskilin eru til þingsetu, og kæmi þá fyrir ekkert fyrirheit þeirra um að mynda samsteypu- stjórn með kristilegum. Kosningarnar í Siésvi'k-Hoiiseiaiandi erii þeim mun mikilvægari fyrir Kohl og flokk hans, að ósigur þar væri verulegt áfall fyrir Gerhard Stoltenberg fjármálaráðherra. Hann var fyrir fylkisstjórninni í Kiel um langa hríð við mikinn orðstír. í Bonn hefur hann svo gerst hægri hönd Kohls og er talinn standa næst því að verða eftirmaður kanslar- ans, þegar hann dregur sig í hlé. En einn aðili að vestur-þýsku stjórninni lætur sig engu varða kosningahorfur í fylkj- um við Norðursjó né gengi þeirra Kohls og Stoltenbergs. Það er Franz-Josef Strauss, for- ingi Kristilega félagsmálabandalagsins. Ríki hans er suður í Bajern, og gamlar væringar eru með þeim kanslara. Þar að auki eru þeir erkiféndur Strauss og Hans-Dietrich Gensch- er utanríkisráðherra, sem stýrt hefur Kohl með lagni, fyrst til samþykkis við núll-lausn- ina og nú afsal Pershing-flauganna. Strauss reis því upp í öllu sínu veldi, áfelld- ist Kohl harðlega, bæði fyrir efni ákvörðunar hans og þó ekki síður fyrir að hafa ekki sam- ráð fyrirfram við sinn flokk, heldur einvörð- ungu frjálsa demókrata. Bannar Strauss full- trúum Kristilega félagsmálabandalagsins að sækja boðaða samráðsfundi stjórnarflokk- anna, sem áttu að gerast tíðir nú í lok sumar- leyfis Sambandsþingsins. Þegar þessi rimma bætist ofan á það sem á undan er gengið, hriktir svo um munar í innviðum vestur-þýska stjórnarsamstarfsins. Fyrir var hörð deila um örlög 15 pólitískra fanga í Chile, sem óskað hafa flóttamanna- hælis í Vestur-Þýskalandi. Norbert Blúm, einn af varaformönnum Kristilega demó- krataflokksins og verkalýðsmálaráðherra, hefttr kyiillt sér má! fanganna á vettvangi og hvetur eindregið til að Vestur-Þjóðveijar bjargi lífi fólksins með því að veita því hæli. Friedrich Zimmermann innanríkisráðherra úr Kristilega félagsmálabandalaginu segir hins vegar, að um sé að ræða réttdræpa hermdarverkamenn, og vill ekki hlýða á vitnisburði sem Blúm aflaði um að svokall- aðar játningar fanganna séu fengnar með pyndingum. í ræðu sinni sem áður er getið fagnaði Reagan forseti boði Kohls kanslara um að fórna eldflaugunum 72 fyrir samkomulag í Genf. Við annan tón kvað hjá embættis- mönnum í Washington og samningamönn- um Bandaríkjanna í Genf. Þessir aðilar höfðu allt á hornum sér. Kvörtuðu þeir yfir að vestur-þýski kanslarinn hefði ekki haft til- hlýðilegt samráð við bandamenn sína vestan hafs. Sér í lagi lýstu þeir þó gremju yfir að Kohl hefði veikt samningsstöðu Bandaríkj- anna í Genf, nú væri ekki kostur lengur að toga tilslakanir út úr sovétmönnum fyrir að láta samkomulag ná einnig til vestur-þýsku flauganna. Sovétmenn kvarta fyrir sitt leyti um að ákvörðunar Kohls sjái enn engan stað i af- stöðu bandarísku samninganefndarinnar. ' Hún láti eins og allt sitji við sama og áður en vestur-þýski kanslarinn lét frá sér heyra. Það sé þeim mun bagalegra, þar sem tilboðið frá Bonn sé bundið skilmálum varðandi tíma- setningu og gildistöku, sem fá þurfi á nánari skýringar. En mest eru vandræði bandarísku samn- . inganefndarinnar út af þvi, að hún hefur orð- ið að taka aftur fyrri kröfu sína um eftirlit með eyðingu kjarnaeldflauga, af því sovét- menn gerðust svo ónærgætnir að fallast á hana. Var þar um að ræða aðgang að eld- flaugasmiðjum og samsetningar- og geymsluskálum auk fyrirvaralausra skoðun- arferða á hverja þá staði, sem öðrum aðiia þætti ástæða til að kanna hjá hinum. Nú er bandarísku samninganefndinni í Genf falið að segja sovétmönnum, að þarna sé alltof langt gengið í gagnkvæmri hnýsni risaveldanna. Takmarkaður eftirlitsréttur nægi og hann þurfi ekki að standa nema fimm til tíu ár. Bandaríkjastjórn réttlætir kú- vendinguna með að auðveldara sé að fylgj- 2SÍ með framkvæmd núll-lausnar en samn- ings sem heimilað hefði hvoru veiui að uaida eftir 100 flaugum. Bandarísk blöð kalla þessa skýringu fyrirslátt. Þau segja að leyniþjón- ustur Bandaríkjanna hafi rokið upp til handa og fóta, þegar sovétmenn samþykktu stranga eftirlitið, og krafist þess að tillögurn- ar yrðu teknar aftur, því ráðamenn í ríkis- stjórninni hafi fullvissað sig um að sovét- stjórnin gengi aldrei að þeim. Á þeirri for- sendu hafi leyniþjónustumenn með tregðu gefið samþykki sitt, en við það sé ómögulegt að standa í raun. 22 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.