Helgarpósturinn - 03.09.1987, Síða 28

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Síða 28
EFTIR ÖNNUR KRINSTINE MAGNÚSDÓTTUR TEIKNING JÓN ÓSKAR A snaga fatahengis fyrir framan skrifstofudyrnar mínar hangir svört alpahúfa. Hún hangir þar vegna þess ad hún er ,,out‘‘. í nœsta herbergi vid mig situr eig- andi alpahúfunnar. Hann er ,,in‘‘ eða að minnsta kosti „in his room". Hann segist ekki geta not- að alpahúfuna lengur því hún sé ,,out" gjörsamlega komin úr tísku og vonlaust að sýna sig með hana. A snaganum hangir líka úlpa. Þröng, hneppt úlpa, sem eig- andinn lœtur ekki sjú sig í lengur. Hann gekk heim d skyrtunni dag- inn sem hann uppgötvaði aö það vceri ,,out‘‘ að sýna sig i slíkri yfir- höfn. Og fékk sér frakka. Hvaða „in“ og „out-tal er þetta? Hvað er verið að sletta ensku á prenti? Jú, þetta eru orð sem not- uð eru dags daglega um það hvort fólk sé í tískunni eða ekki. Hvort fólk kunni yfirleitt að fylgjast með. Það er mikið fjallað um hvað sé smart og þess vegna ætlum við í þessari grein að taka fyrir það sem er ekki smart. Það köllum við að vera „out“. Við leituðum til nokkurra aðila og báðum þá að draga upp mynd fyrir okkur af fólki sem væri gjörsamlega „out“ nú til dags, ásamt því sem við skjótum hér inn öðrum athuga- semdum sem okkur hafa borist. Þetta eru bæði okkar skoðanir og annarra sem álit höfðu á þessum málum en vildu ekki láta nafns síns getið. Báru því jafnvel við að verið væri að leggja dóm á fólk og í þessari umfjöllun fælist ákveðin mannfyrirlitning. EN — til þess að enginn hætti að lesa núna og hugsi með sér að við séum að setja okkur á háan hest og dæma aðra skal þess strax getið að sam- kvæmt lýsingum er greinarhöf- undur alveg hundrað prósent „out"! Þannig að ef lesendur þekkja sjálfa sig af lýsingunum býð ég þá bara velkomna í hóp- inn! „Hópurinn" sem við tilheyr- um er nokkuð stór og virðast satt að segja 90% íslensku þjóðarinnar tilheyra honum! MEST „IN" AÐ VERA KALLAÐUR UPP í KALL- KERFI FLUGSTÖÐVAR Meðal þess sem er greinilega í tísku um þessar mundir er að eignast barn um fertugt. Því fleiri börn sem fólk á, því meira „in" er það. Það þykir alveg meiriháttar í dag að hitta karlmenn sem eiga svona þrjú, fjögur börn. Og ef þeir eignast barn um eða eftir fertugt, þá er það „it“. En ef kona á þrjú, fjögur börn er það ,,out“. Hvað er manneskjan eiginlega að hugsa? Ætlar hún að binda sig yfir börn- um og bleium næstu árin? Sím- svararnir eru líka ,,in“ þessa dag- ana, en þó ekki næstum eins mikið og bílasímarnir. Bílasímar eru svo 'gjörsamlega „in“ að það skiptir ekki máli þótt enginn þurfi að ná í þig í bílnum. Bara það að eiga símann er málið. „Ég tel að símsvarar séu „out". Sjálfur er ég með símsvara og finnst það fer- lega hallærislegt," sagði Heiöar Jónsson snyrtir, sem eðlilega var leitað til, maðurinn sem kennir fólki að hanna sjálfsmyndina dag- inn út og inn. „Hins vegar eru 28 HELGARPÓSTURINN bílasímar í tísku, á því er enginn vafi." „OUT" AÐ TALA UM HAFSKIPSMÁLIÐ En hvað talar fólk um nú til dags? Það er ljóst að það er gjör- samlega ,,out“ að tala um Haf- skipsmáliö, það er löngu komið úr tísku. Útvegsbankamálið er ,,in“ þessa dagana, en varir sjálfsagt ekki lengi. Gæti þess vegna verið orðið hallærislegt þegar blaðið kemur út. Það er líka „in“ að tala um húsleiguna í Kringlunni og þeir sem hafa ekki myndað sér skoðun á þeim málum eru „out". Svo eru það reykingar. Auðvitað eru þeir sem reykja sígarettur gjörsamlega úr öllu samhengi við tiskuna. Það er nefnilega ekkert smart að reykja og er langt síðan það fór úr tísku. Smávindlar eru þó svolítið ,,in“, einkum ef fólk reykir í hófi, til dæmis bara „soci- elt“. Sá sem hefur aldrei verið kall- aður upp í kallkerfi á flugstöð er algjörlega „out“ því slíkur við- burður hendir einungis þá sem eru mikilvægir...! Að vísu kom einn með þá skýringu að ef fólk vissi hvað væri verið að segja þeim sem kallaðir eru upp í kall- kerfinu, þá þætti það ekki lengur smart. Yfirleitt væri verið að til- kynna þeim að þeir hefðu gleymt einni ferðatöskunni heima eða að þeir hefðu gleymt að skilja bíl- lyklana eftir. „Það er mín skoðun að útilokað sé að fastákveða hvernig fólk eigi að hegða sér í daglega lífinu," sagði Armann Reynisson forstjóri hjá Ávöxtun sf. þegar HP leitaði svars við því hvað væri að vera „out“. „Hver einstaklingur verður að vera frjáls og sjálfstæður í hegðan og gjörðum innan marka laga og siðferðis. Eðlilegt er að einstaklingurinn njóti sín til fulls. Einstaklingur sem breytir ekki eft- ir eðli sínu og er stöðugt á varð- bergi verður þvingaður, óeðlilegur og leiðinlegur. Þvílíkt fólk er hall- ærislegt." Ármann segist persónulega mynda sér skoðanir á flestum sviðum. „Mínar skoðanir eru óháðar því hvað aðrir hugsa og gera. Þó tek ég strax rökum þegar ég uppgötva að ég hafi á röngu að standa. Ég legg áherslu á hegðan og hluti sem kallast tíðlaus. Skoð- anir þróast og breytast með árun- um, bæði vegna aukinnar þekk- ingar og reynslu." Varðandi það hvort hann myndi sér skoðanir ájrví sem er ,,in“ og „out" svaraði Ármann: „Auðvitað flýgur það í hug mér hvort mér þykir eitthvað ,,in“ eða „out“ eins og það er oft orðað. Þá er átt við tíðarandann á þeim tímum sem við lifum. Þegar ég hugsa um þessa hluti þá fer það eftir eðli aðstæðna, stað og stund. Eitt get- ur verið hallærislegt við ákveðið tækifæri en glæsilegt við aðrar aðstæður. Hver og einn þarf að hafa næmt auga fyrir slíku, það skiptir sköpum." KJUKLINGUR MEÐ TÓMATSÓSU Eitt af því sem er ,,in“ núna er að kaupa tilbúinn kvöldmat, eink- um um helgar. Þá er ekki sama hvar verslað er. Allir sem fylgjast eitthvað með bæjarlífinu kaupa að sjálfsögðu pizzu í Eldsmiðjunni. Óg vita hvar Eldsmiðjan er. Þurfa ekki að spyrja, bara laumast í símaskrána þegar lítið ber á. En hvað borða þeir sem eru ,,out“? „Eftirlætisréttir þeirra sem eru „out“ eru kjöt í karríi, saltfiskur með sinnepi og vellingur með kanil," sagði Olafur Gunnarsson rithöfundur um það atriði. „Og kjúklingur með frönskum og mik- illi tómatssósu en þeir sleppa hrá- salati," segir Heiðar Jónsson. „Þeir drekka maltöl og appelsín með matnum og fá sér vodka í kók á eftir." Ólafur hélt að sá sem væri „out“ fengi sér örugglega „tvöfald- an sjenna í kók eða bacardi í kók, biður um „cuba libra“. „Já, gæi sem er „out" býður dömu út að borða á Torfuna eða Lækjar- brekku," segir Felix Bergsson í Greifunum. „Þau borða rollukjöt og skola því niður með Anháuser- hvítvíni. Á eftir drekka þau lrish coffee. Að sjálfsögðu hefði steik á Hard Rock Café verið allt annað mál. Það er ,,in“.“ Bára Kemp hár- greiðslukona sagði sitt framlag til þessarar umræðu vera: „Sumir eru ,,out“ en aðrir reyna æðislega mikið til að vera „in“ — en ná því aldrei. Verða þar af leiðandi ennþá meira „out“. Til dæmis allt þetta gervi sem fólk setur á sig. Sumum er alveg sama þótt þeir þyki hallærislegir. Þeir hafa bara uppgötvað önnur verðmæti í lífinu en þau að vera ,,in“ eða ,,out“. Ég held satt að segja að þeir sem eru „out“ borði bara heima hjá sér, fari ekki út á veitingastaði. Það er hins vegar alveg Ijóst að þeir þykja „out“ nú til dags sem eiga ekki nýjan Benz eða amerískan jeppa." „Þeir sem eru ,,out“ fara örugg- lega í Þjóðleikhúskjallarann. Þeir vilja borða á sama stað og þeir skemmta sér á,“ segir Asdís Lofts- dóttir fatahönnuður. Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmað- ur tekur undir orð Báru og segist telja að þeir sem eru „out“ fari ekki á veitingahús að borða. Ar- mann Reynisson leggur hins vegar ekki dóm á ákveðna veitingastaði en segist persónulega telja að óholl fæða almennt sé „out': „Sjálfur legg ég áherslu á heilsu- fæði, grænmeti, ávexti, ferskan fisk og ferskt kjöt," segir hann. Um hvaða drykkir séu „out“ segir Ármann: „Long drinks. Þeir eru til þess að fólk finni á sér sem fyrst. Ég legg áherslu á góð, létt vín.“ SÓLARSTRENDURNAR „OUT" — ÞRIGGJA DAGA FERÐIR „IN" Talandi um gervihluti. Gerviúrin sem seld voru hér á landi til skamms tima, eftirlíkingar af fræg- ustu úrum heims, þóttu svo mikið „out" hjá vissum hópi fólks, að það tók því ekki að tala um þau. Stöðutáknið er nefnilega „in“ núna. Maður sem er með Rolex- eða Cartier-úr, í peysu merktri „Boss“ eða öðru þekktu merki, hann er ,,in“. Á því leikur enginn vafi. Sá maður á líka bíl af bestu gerð og í fríum skreppur hann til ad vera giftur haridavinnukennara heimsborga — en aðeins í nokkra daga. Hann hefur alltof mikið að gera í vinnunni til að mega vera að því að slappa virkilega af. Hann bregður sér til dæmis til Parísar þar sem hann snæðir á Maxim’s, eitthvað sem ,,out“fólkið myndi aldrei gera. Hann ferðast um á Saga Class og staðgreiðir ferðina sína. Það er „in“. Við hin sem erum ,,out“ reynum auðvitað að greiða ferðina með Visa-kortinu okkar, á eins löngum tíma og hægt er. Við förum á sol- arströnd, eina staðinn sem vinn- andi íslendingar hafa í rauninni ráð á að heimsækja: „Þeir sem eru ,,out“ fara alltaf á sama stað- inn í frí “ segir Heiðar Jónsson. „Þeir fara til Costa del Sol og dvelja á Santa Clara á Torremolin- os. Þeir vilja fremur fara á staði sem þeir þekkja og vita að þeim líður vel á heldur en að skreppa í nokkurra daga ferðir í ys og þys stórborganna- en verða með því móti „out“.“ Ólafur Gunnarsson segist halda að sá sem er ,,out“ fari í sumarbú- stað í fríinu sínu. Hann passi sig á að hafa nóg af nesti með sér og myndi aldrei detta í hug að kaupa matinn í kaupfélagi á leiðinni. Felix Bergsson segist aftur á móti halda að þeir sem eru ,,out“ hafi aldrei komið á sólarströnd: „Þeir eru hvítir," segir hann. Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmað- ur sagðist telja best að lýsa sjálf- um sér, hann væri svo „out': „Sá sem er „out“ fer til Cannes í sum- arfrí. Er þar í heilan mánuð — á móteli." Armann Reynisson segir um þetta atriði: ‘Sólarlandaferðir eru ,,out“ sem og dvöl í orlofshús- um hér og þar.“ Asdís segist telja að allar pakkaferðir séu „out". „Það held ég hljóti að vera," segir hún. „Svo finnst mér alltaf Skandi- navíudýrkandi fólk ferlega púkó. En ég held það hljóti að vera út í hött að fara í sólarlandaferðir, það er ábyggilega far out\“ En hvert er farið á dansleiki: „1 Þjóðleikhúskjallarann," segir Frið- rik Þór qg í sama streng tekur Ásdís. „í Abracadabra eða Þórs- café," segir Felix. „Það er algjör- lega ,,out“ að fara á ball í Ártúni," segir Heiðar. „Annars má benda á að það er algjörlega „in“ þessa dagana að fara alls ekki á ball, heldur vera í heimaklúbb þar sem er skipst á að bjóða vinum heim. Svo virðist vera ,,in“ fyrir konur að vera fráskildar og fara á Sögu.“ Armanni finnst ,,out“ að fara á diskótek: „Ég skil ekki í öðru en fólk sé orðið hundleitt á því. Eru þau ekki að verða tuttugu ára gömul lumma?" „OUT" AÐ EINBLÍNA EKKI Á BENZINN „Maðurinn sem er „out'? Er það ekki bara gæinn sem hættir í skóla, fer að vinna og eignast barn um tvítugt?" segir Ölafur Gunnarsson. „Er það ekki gæinn með síða hárið sem er með pósi- tíva lífssýn á önnur verðmæti en hasarinn að djöflast áfram yfir í Mercedes Benzinn og að eignast peninga? Hann er ábyggilega menningar- sinnaður, situr yfir kaffibolla og les menningarsíður dagblaðanna." Heiðar Jónsson segir þá sem eru ,,out“ lesa „Samúel og Rapport. Hinir eru með Heimsmynd í hönd- unum — en eru stundum með fyrrnefndu blöðin innan í svo eng- inn sjái'! Friðrik Þór: „Þeir sem eru „out" lesa yfirleitt ekkert, liggja í mesta lagi yfir landakort- um...“ „Vikan er gjörsamlega „out" um þessar mundir," segir Asdís „en hún gæti verið orðin mest ,,in“ eftir nokkra mánuði." Ar- mann tekur ekki svo djúpt í árinni að tiltaka eitt blað eða tímarit sem er ekki í tísku: „Hins vegar finnst mér tímarit sem fjalla um fólk almennt vera „out" segir hann. „Slík timarit villa um fyrir fólki og gera oft lífið að glansmynd sem það alls ekki er. Sjaldnast er les- andinn nokkru nær um þær per- sónur sem fjallað er um.“ PLAKÖT OG EFTIR- PRENTANIR „OUT" Varðandi innanhússtíl segir Heiðar að það sé ,,in“ núna hjá þeim sem eru að setja á stofn heimili að eyða öllum peningun- um í listaverk: „Það er lögð meiri áhersla á að eiga ekta listaverk heldur en húsgögn. Þar af leiðandi er „out“ að hafa eftirprentanir á veggjum og plaköt eru „out out“. Það er líka orðið ,,out“ að kaupa allt innbúið í sömu versluninni. Nú gildir að blanda saman gömlu og nýju.“ „Mér virðist sem 80% þjóð- arinnar einblíni á að vera „in“ það er að eiga svört leðurhús- gögn, grænar plöntur og grafík- myndir upp um alla veggi," segir Ásdís. „Sjálfri finnst mér slík heimili ,,out“.“ „OUT" AÐ VERA GÁFUÐ Um konur sem eru „out“ segir Felix: „Það er hallærislegt að vera gáfuð nú til dags. Konur eiga alls ekki að trana sér fram og Kvenna- framboðið er toppurinn á hallæris- mennskunni. Kona sem vill vera „in“ verður að gæta þess að tapa alltaf í Trivial Pursuit og hún verð- ur að kunna að elda kínverskan mat. Að öðru leyti má hún vera eins og hún vill!“ Heiðar segir að sjötug kona í minipilsi sé „in': ,,1 rauninni er það ,,in“ að vera hallærislegur svo fremi sem fólk hefur sinn eigin stíl. Ung stúlka í peysufötum er líka ,,in“. Hins vegar er konan sem fer í svarta huggulega kokkteil- kjólinn sinn, blæs hárið vel og vandlega, setur á sig bláan augn- skugga og bleikan varalit „out". Öll meðalmennska í fatavali og andlitsförðun er ,,out“ núna. Lit- greining er „in“ — en ég held að hún verði orðin „out" eftir svona þrjá mánuði." Felix nefnir að konur sem eru „out" klæðist til dæmis ekki fötum frá Company: „Föt sem fela kven- leikann svo sem buxur og víðar mussur eru „kapút". Heimasaum- uð föt eru hins vegar ,,in“, saman- ber keppnina um Ungfrú ísland." „Konur í gallabuxum eru ,,out“, segir Friðrik Þór. „Kona í snjó- þvegnum gallabuxum, háhæluðum skóm og með legghlífar er alveg „out“,“ segir Ásdís. „Rauði háralit- urinn sem var í tísku í fyrra er líka alveg ,,out“ núna. Hins vegar

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.