Helgarpósturinn - 03.09.1987, Síða 29
4
Ert þú ,,out“? Eöa „in“? Pú
kemst að raun um það eftir
lestur þessarar greinar. Hressir
landar rœða um það sem þykir
smart nú til dags — en einkum
þó það sem þykir hallœrislegt
halda alltof margar konur að þær
séu ,,in" með þennan háralit."
„Mér finnst ósmekklega klætt
fólk almennt vera ,,out“,“ segir
Armann. „Skapa fötin ekki mann-
inn? Föt þurfa ekki að vera frá
ákveðnum framleiðanda til að þau
séu ,,in“. Ég legg sjálfur áherslu á
að merkið sjáist ekki. Ég nefni
sem dæmi um ósmekklega klætt
fólk pönkara, blómabörn, hippa
og ýmsa íslenska hvitflibba. Varð-
andi hárgreiðslu finnst mér druslu-
legt og illa hirt hár vera „out". Hár-
ið hefur allt að segja varðandi
skúlptúrinn í andlitinu. llla hirt
hár gerir fallega persónu ljóta.
Hárgreiðslan á að fara eftir per-
sónunni."
EFTIRLÍKING AF
„HARRIS TWEED"
ALVEG VONLAUS
Karlmaður sem er out: „Hann
klæðir sig þannig að honum líði
vel,“ segir Ólafur. „Hlýtt klæddur
á veturna og létt klæddur á sumr-
in. Hann hugsar ekki mikið um
föt.“ „Það er ótrúlega erfitt að
vera „in“ þessa dagana," segir
Felix. „Eitt smáatriði og þú ert
gjörsamlega úr stæl. Miklagarðs-
klæðnaður, svo sem útvíðar galla-
buxur, hettuúlpur og stígvél er
alveg glataður fatnaður. En maður
má heldur ekki vera of glæsileg-
ur...“ „Karlmaður sem er out er
með skrefsíddina í buxunum niður
undir hnjám," segir Heidar. „Hann
er í þröngum jakka, tvíhnepptum
með tveimur klaufum að aftan.
Hann þarf helst að vera frá gömlu
jakkafötunum. Hvítir sókkar við
þetta gera manninn alveg ,,out“.
„Stakur jakki, eftirlíking af Harris
Tweed, er vonlaus" segir Friðrik
Þór. „Ef maður er svo glataður aö
raka sig að fullu, þ.e. að skilja ekki
eftir Don Johnson-broddana, fer
lyktin að skipta máli," segir Felix.
„Menn verða að vera með sama
merkið á sér, til dæmis Kouros. Ef
maður er með Yves Saint-Laurent
undir höndunum en Kouros á
andlitinu lyktar maður eins og
myglaður ostur og er þar af leið-
andi „out“. Hins vegar er maður
með sama merkið um allan líkam-
ann hrókur alls fagnaðar." Það
virðist gilda eitthvað svipað um
konur: „Chanel-merkið er ,,in“ en
allar ódýrar snyrtivörur ,,out“,“
segir Heiðar.
Nærföt skipta líka máli: „Nærföt
frá Sævari Karli eru ,,in",“ segir
Felix. „Hvítu Marks og Spencer-
nærfötin orsaka hláturskast hjá
þeim sem sér þig fara úr fötun-
um.“ „Ég sé fyrir mér karlmann-
inn í fótlaga skónum og galla-
buxunum með uppábrotunum,"
segir Asdís. „Hann er samt fínn,
verkfræðingur eða kennari. Þetta
er fólkið sem lifir í gamla mis-
skilningnum um að það þurfi að
bylta þjóðfélaginu vegna þess að
allir séu svo fátækir." Á hvernig
tónlist hlusta þeir sem eru hallær-
islegir? „Afríkanska tónlist" segir
Friðrik Þór. „Heim í Búðardal,"
segir Heiðar.
„Alveg örugglega tólf ára gömul
lög,“ segir Ásdís ,,Það þykir ,,in“
að vera af týndu kynslóðinni. Það
er sem sagt allt í lagi að vera í
tískunni sem var fyrir 20 árum en
að finnast eitthvað smart sem er
svona 10-15 ára gamalt, fatnaður,
tónlist og hvað sem er, það er
„out“.“
UMRÆÐUR UM ÞJÓÐ-
FÉLAGSBYLTINGU
„OUT"
Stjórnmálaskoðanir þeirra sem
eru „out'? „Kommúnistinn með
kapítalíska hugsunarháttinn er
„out'V' segir Heiðar. „Ég held að
þeir sem eru „out“ i dag standi
fyrir margt af því sem þótti svo
jákvætt á hippaárunum," segir
Olafur. „Þú verður að hafa hug-
sjón ef þú vilt vera í tískunni,"
segir Heiðar. „Þeir sem eru „out"
hafa engar skoðanir á stjórnmál-
um“ segir Friðrik Þór. Eins og
fram kom áðan hjá Felix mun
Kvennaframboðið vera toppurinn
á hallærinu því konur eiga ekki að
trana sér fram. „Þeir sem eru
„out" tengja öll mál þjóðfélagsbylt-
ingunni," segir Ásdís. „Þetta fólk
hefur frá því í menntaskóla talað
um að breyta þjóðfélaginu, en hef-
ur aldrei nokkurn tíma gert annað
en að tala. Það er algjörlega ,,out“.
Þetta fólk drekkur ódýrt rauðvín
og talar um þjóðfélagsbyltingu og
kvennabaráttu."
Ármann Reynisson segir: „Karl
Marx-istar og ofstækismenn eru
„out". Sjálfstæðisstefnan er ,,in“ í
dag — en hvernig er komið fyrir
Sjálfstæðisflokknum?"
íþróttir skipta líka máli: „Hallær-
isgæjar eru í körfubolta eða frjáls-
um íþróttum," segir Felix. „Töffar-
arnir leggja stund á bowling eða
squash. Fótboltabygging er „in“,
samanber Maradona."
Varðandi það sem er „out" í
menningu og listum segir Ár-
mann: „Allt sem ekki er fagmann-
lega unnið er „out". Það er ekki
fagmannlegt að kalla sig lista-
mann en standa ekki undir nafni.
Það er fagmannlegt að standa upp
úr meðalmennskunni."
Eitt atriði nefndu bæði Ólafur
Gunnarsson og Ásdís Loflsdóttir.
Það var að þeim fyndist fólk í dag
ekki horfa nægilega gagnrýnum
augum á lífið: „Fólk lætur medí-
una og peningabransann mata
sig," segir Ólafur. „Það tekur gagn-
rýnislaust við því sem blöðin boða
þeim varðandi fatastil, hárgreiðslu
og margt fleira. Það er engin and-
spyrna eins og var á hippatíman-
um. En í rauninni er hippabylgjan
það sama og uppabylgjan — það
kemur alltaf eitthvað nýtt." „Þetta
fólk sem heldur alltaf að það sé
ekki að eltast við ákveðna tísku
en gerir það samt er „out". Það
fólk fer í tískuverslanir og kaupir
tilbúna vöru, lætur mata sig á því
hvað er í tísku og hvað ekki. Eng-
in sjálfstæð hugsun."
Friðrik kom með fremur hressi-
lega fullyrðingu i lokin: „Maður-
inn sem er „out" er giftur handa-
vinnukennara. Það er ekki hægt
að vera meira ,,out“!“
Og Ármann á lokaorðin: „Hver
og einn á að vera ánægður með
tilveruna eins og hún er því flestir
skapa sér hana sjálfir. Að vera
„out" er að vera: með hendur í
uösum, vera latur, lengi að hugsa,
hugmyndasnauður, íhaldssamur í
starfi og trúlaus í þess orðs fyllstu
merkingu."
HELGARPÓSTURINN 29