Helgarpósturinn - 03.09.1987, Page 30

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Page 30
DAGSSCRARMEÐMÆLI Föstudagur 4. september kl. 20.40 Lifi polkinn. Tékknesk mynd án oröa um upphaf polkans og fyrstu viö- brögö við honum fyrir 150 árum. — Hljómar mjög skemmtilega. — Þar strax á eftir er svo Derrick sem klikk- ar aldrei. Laugardagur 5. september kl. 15.00 Endursýndur þáttur Guöna Braga um Nicaragua og svo kl. sex þáttur um slavneskar þjööir. Þættir eins og þessir oftast nær mjög góöir. — Kl. 23.05 þetta sama kvöld viðtal viö bandaríska skáldiö Kurt Vonnegut í tilefni af komu hans hingaö til lands v. bókmenntahátíöarinnar. Þaö verö- ur gaman aö sjá og heyra og strax á eftir er sýnd myndin Slaughter- house Five eftir samnefndri skáld- sögu Vonneguts. Þaö verður enn betra. Sunnudagur 6. september kl. 16.35 Sænsk heimildamynd um Inúíta, grænlenska íbúa Thule. — Ein af þessum góöu. Kl. 20.55 er svo sýndur þáttur frá Norðurlandakeppni ungra einleik- ara. Þar brillerar Sigrún Eðvaldsdótt- irá fiölu og aö öðru ólöstuðu held ég aö þaö veröi rjóminn af því sem er í boöi þessa vikuna. — Á eftir Sigrúnu er þátturinn Borgarvirkiö — skemmtilega breskur — og svo Lát- únsbarkaveislan hans Jakobs Magg. Hvort tveggja veröur gaman að sjá. í sjónvarpi á sunnudagskvöld er sýnt frá Norðurlanda- keppni ungra einleikara. Sigrún Eðvaldsdóttir er verðugur fulltrúi okkar þar. Sophia Loren og Richard Burton saman í mynd eftir leikriti Noels Coward, Leynifundum (Brief Encounter). Á Stöð tvö á sunnudagskvöld. Sunnudagur 6. september kl. 21.15 Þá erá dagskrá myndin Leynifundir (Brief Encounter). Söguþráöurinn er kannski ekkert til aö hrópa húrra fyrir, en aöstandendur eru góðir; myndin byggö á leikriti eftir Noel Coward og aöalhlutverk í höndum þeirra Sophiu Loren og Richard Burton. Og þó aö annað klikki má alltjent njóta þess aö heyra hina velsku bassarödd Burt- ons hljóma. Kl. 22.55 strax á eftir Leynifundum er breski myndaflokkurinn Vanir menn (The Professionals). — Bretar alltaf skemmtilegir og sérstakt aö- dráttarafl í hugum íslendinga hlýtur aö vera leikarinn Gordon Jackson, sem lék eftirminnilega yfirþjóninn í framhaldsþáttunum um Húsbænd- ur og hjú. © Fimmtudagurinn 3. sept. kl. 21.30 Þá er á dagskrá Þátturinn Leikur aö Ijóðum og fjallar um Ijóöagerö Hall- dórs Laxness. Að vísu er þetta fjóröi þáttur, en hlýtur samt aö vera gam- an aö fylgjast meö honum, þar sem þjóöin er ekki nærri eins kunnug Ijóöum Laxness og öörum verkum hans. Þátturinn er í umsjón Símonar Fimmtudaginn 3. september kl. 22.20 er þáttur í ríkisútvarp- inu þar sem Sigurður Hróarsson ræðir við sænska bókmennta- manninn Peter Hallberg. Við báðum Sigurð segja okkur að- eins af efni þáttarins. „Hallberg er auðvitað fyrst og fremst þekktur fyrir að vera mikill Laxness-fræðingur, en í þessum þætti horfum við vísvitandi framhjá Laxness, spjöllum um Hallberg sjálfan, iíf hans og list. Hann tengist nefnilega íslandi á margvíslegan hátt. Hann hefur unnið að rannsóknum á íslensk- um bókmenntum og kennt þær í Svíþjóð, hefur búið hér á landi og er mikill íslandsvinur, í bestu merkingu þess orðs. — Þetta er semsagt bara almennt spjall um störf Hallbergs tengd íslandi og reyndar allt sem hann hefur tek- ið sér fyrir hendur — allt nema Laxness! -shg J. Jóhannssonar og lesari meö hon- um er Ragnheiður Steindórsdóttir. Kl. 22.20 sama kvöld er svo viö- talsþáttur viö sænska bókmennta- fræöinginn Peter Hallberg, sem er helstur Laxness-fræöingur þessa heims. Siguröur Hróarsson ræöir við Hallberg um allt nema Laxness. Laugardagur 5. september. Klukkan 15 er þáttur Eddu Þórarins- dóttur, Nóngestir, á dagskrá. Þar kemur og spjallar við hana enginn annar en Stefán íslandi. Þaö verður gaman aö heyra í þessum aldna meistarasöngvara þar sem veriö hefur hljótt um hann þó nokkurn tíma. Hann velur tónlistina í þættin- um og bregöur vonandi skífum meö sjálfum sér á fóninn. í útvarpinu á rás 1 eru svo alltaf alls konar vökur; kvöldvökur, sumar- vökur, morgunvökur og hvaö þetta nú heitir allt saman. Það er ótrúlega gaman aö hlusta einstaka sinnum á þessa þætti og verður enginn verri fyrir vikið. — Þá eru alltaf ógrynnin öll af góðri klassískri tónlist flutt á þessum vettvangi, þó flestir vilji heldur hlusta á þessa sömu tónlist heima hjá sér í rólegheitum en í út- varpinu. Rás tvö, Bylgjan, Stjarnan Mest viö þaö sama — allt í léttari kantinum og allt í lagi með þaö. Þó standa breytingar fyrir dyrum á Bylgjunni, nýrri rás bætt við, og veröur gaman aö vita hvort sú verö- ur öðruvísi eöa al veg eins og allt hitt. — Ýmsir góöir þættir innan um á öll- um þessum stöðvum. ÚTVARP eftir Kristján Kristjánsson Af kínverskum spurningaleik — Góðan daginn. Þetta er Hringiðan. A rás 2. Veist þú hvað lagið heitir og höfund- ur þess? — Nei, það veit ég ekki. En ég er með nafnið á þessum kínverska utanríkisráð- herra. (Barnung stúlka í símanum og um- sjónarmenn taka upp voðaertudugleg-tón- inn.) — Jæja, já, ertu með það, láttu okkur heyra. — Hann heitir (ofanskráðan brestur minni). — Það er bara alveg hárrétt, en þú veist ekki hver samdi lagið og flytur? — Nei, ég veit það ekki. — Þakka þér samt kærlega fyrir. — Góð- an daginn, þetta er Hringiðan á rás 2. Veist þú hver flytur lagið? —■ Nei, ég veit það ekki, ég var aftur á móti með nafnið á þessum Kínverja, en nú er búið að svara þvi. (Eldri maður í síman- um og umsjónarmenn koma me„ð heimsk- urgamallkall-varíasjónina.) — Já, en ertu ljóðaunnandi? Veistu hver orti þessa vísu og af hvaða tilefni hún birt- ist nýlega í blöðum? (Umsjónarmaður fer með vísu eftir alþekkt skáld.) — Ég hef gaman af vel ortum vísum en þetta hefur örugglega ekki verið Skagfirð- ingur, ég veit ekki eftir hvern hún er. — Það þrengir hringinn (umsjónarkonu þrýtur örendi af hlátri yfir þessari hnittnu athugasemd sinni.) — Nei, þetta var ekki Skagfirðingur en þakka þér fyrir að hringja. — Næsti hlustandi gjörðu svo vel, veist þú hver samdi lagið sem við erum að spila hér undir? — Nei, það veit ég ekki, en ég veit hvern- ig á að stafa nafn kínverska utanríkisráð- herrans. (Hróðugur Reykvíkingur, hefur á að giska fjóra um tvítugt.) — Jæja (umsjónarmaðurinn orðinn hálf- leiður, vill fara að komast burt frá þessum Kínverja), en eftir að hróðugi drengurinn hefur stafað nafn Kínverjans gellur í um- sjónarkonunni: Nei, þetta er bara alveg rétt skrifað hjá mér. Þessi símaleikur á rás 2 leiddi hugann að því hvaða tilgangi slíkir leikir þjónuðu. Að vera í góðu sambandi við hlustendur verð- ur sjálfsagt svarað, og það er mikilvægt slíkum útvarpsstöðvum verður bætt við með þjósti. Það eru þó tæplega nein rök fyrir þessari endaleysu sem hringingar hlustenda inn á stöðvarnar eru orðnar. Þetta er í besta falli orðið ódýr leið til að komast hjá því að sinna dagskrárgerðinni þannig að viðunandi geti talist, enda er það Ijóst að fólk hringir bara til að hringja, tekur ekki eftir spurningunum eða efninu sem það á að ræða um og er þannig alveg út í hött í útsendingunni. Einhver útvarps- maðurinn komst þó snilldarlega frá þessu þegar hann auglýsti að fólk mætti hringja ef því lægi eitthvað á hjarta! Annar gerðist sálusorgari og auglýsti eftir einmana fólki sem hefði engan að tala við! Þetta — í bland við spurningaleiki, óskalög, afmælis- kveðjur, brúðkaupskveðjur, ferðasögur, brandara og almennt nöldur — er orðið eins og ef Velvakandi fyllti þriðju hverja síðu í Morgunblaðinu og er þá mál að linni. SJÓNVARP Tuttugu fimmtíu Þessa dagana botna ég hvorki upp né niður í niðurröðun efnis á Stöð 2. Mér sýn- ist sem morðmyndir og annað sem er ,,ekki við hæfi barna" sé nú sýnt klukkan 20.50 á kvöldin, eða með öðrum orðum að sýn- ing á slíkum myndum hefjist þó nokkru fyr- ir áætlaðan svefntíma þeirra barna sem farin eru að nálgast táningaaldurinn. Þessi „tuttugu fimmtíu“tími er jafn fáránlegur fyrir sýningar á bönnuðum myndum og þegar verið er að sýna þær klukkan fimmt- án mínútum fyrir fimm á daginn þegar for- eldrarnir eru í vinnunni og börnin geta „stolist" til að horfa á sjónvarpið. Á þriðju- dagskvöldið var til að mynda kvikmynd með Elizabeth Taylor sem mun hafa flokk- ast undir „óæskilega barnamynd". Að vísu sá ég hana ekki sjálf en að sögn félaga minna sem horfðu á hana árið 1973 sváfu þau þrjú saman uppi í rúmi næstu vikuna. Voru þau þó engin börn. Nýorðin fimmtán minnir mig. Þessi mynd kom beint á eftir englinum Michael Landon og setti úr skorðum þá mynd sem blessuð litlu börnin hafa af englum sem ganga um á jörðinni og gera góðverk. Annað sem hefur setið fast í mér í þó nokkuð langan tíma er dagskrár- kynning Stöðvar tvö. Það er ekki aðeins fyrir ofan minn skilning heldur fjölda ann- arra hver tilgangurinn er með því að sjón- varpa dagskrárkynningu alla leið frá Ibiza. Að auki var kynningin sú ekki einu sinni rétt. Það heyrir til algjörrar undantekningar að stillt sé á ríkissjónvarpið hjá mér (nema þá fréttir sem ég horfi á á báðum stöðvun- um). Derrick vin minn hef ég ekki einu sinni séð svo vikum skiptir vegna þess að þá er á Stöð 2 þáttur sem kallast „Moon- lightning". Prinsessan á heimilinu sem á sjónvarpið og á afruglarann telur nefnilega flestallt efni á Stöðinni sérstaklega valið fyrir sig og sér beri skylda til að horfa á það meðan hún er í sumarfríi. Málið mun fara að vandast strax í næstu viku þegar skól- inn byrjar og slökkt verður á sjónvarpinu fyrir klukkan tíu öll kvöld virka daga hvort sem það er Dallas sem verður á dag- skránni undir miðnætti eða eitthvað ann- að. Þó er eitt efni í ríkissjónvarpinu sem ég missi aldrei af. Það er lottóið. Þar af leið- andi fá auglýsingarnar alltaf að fljóta með vegna þess að alltaf heldur maður að núna gerist það. En það gerist auðvitað aldrei. Annars sakna ég þess að sjá vandaða við- talsþætti í sjónvarpi — svona þætti eins og voru vinsælir í „gamla daga“, hm hm. Sem minnir mig á að helmingurinn af þessari grein er ósannur. Ég horfði nefnilega á þáttinn um Akureyri í umsjón Sigrúnar Stefánsdóttur á laugardagskvöldið og fannst mikið til koma. Einkum og sér í lagi að sjá það verðmæta myndasafn sem varð- veist hefur. Skyldi maður virkilega vera orðinn svo gamall í sinni að aðeins það sem er ,,gamalt“ gleddi mann? Það getur meira en verið. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.