Helgarpósturinn - 03.09.1987, Page 32
Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, i
gær kom í ljós að hann er engu nær
um lausn Útvegsbankamálsins.
Ástæðan fyrir því að hann boðaði
fundinn var sú að tilkynna frétta-
mönnum að Valur Arnþórsson og
SÍS annars vegar og Kristján
Ragnarsson og lið hans hins vegar
myndu taka upp viðræður í dag.
Með þessu virðist Jón vera að kaupa
sér tíma. Það virðist vera mat hans
að allar ákvarðanir geti snúist í
höndunum á honum og því hefur
hann tekið þá stefnu að fresta þeim
í lengstu lög.. .
■ yrir tveimur árum skrifaði Helg-
arpósturinn greinaflokk um ólög-
legar fasteignasölur. Meðal þeirra
sem þar voru nefndir til sögunnar
var Lárus Valdimarsson sem rek-
ur Aimennu fasteignasöiuna, þó
Jóhann Þórðarson héraðsdóms-
lögmaður sé skráður fyrir henni. Á
sínum tíma brást Lárus hinn versti
við skrifum Helgarpóstsins, keypti
stórar auglýsingar í Morgunblaðinu
þar sem hann lýsti skrifum Helgar-
póstsins sem atvinnurógi og níði.
Lárus kærði Helgarpóstinn einnig
fyrir þessi skrif, en kærunni var vís-
að frá. Nú hefur Lárus hins vegar
verið kærður til Rannsóknarlög-
reglunnar fyrir að stunda fast-
eignaviðskipti án tilskilinna rétt-
inda, en það var einmitt innihald
greina Helgarpóstsins. . .
Góða
helgi!
Pú átt
■ þaö skiliö
irV’piZZAHCSH)
Grensásvegi 10, 108 R.
S: 39933
N
I okkur taugatitringur gerði
vart við sig hér nýskeð hjá fólki sem
starfar við gerð ófrumsýndrar ís-
lenskrar kvikmyndar sem hlotið
hefur nafnið Foxtrott. Mun tækni-
liði og leikurum hafa þótt súrt í broti
að fá ekki greidd laun skilvíslega og
kom meðal annars til stutts verkfalls
af þessum sökum. Það sem þó mun
hafa fyllt mælinn var þegar starfs-
fólkið komst að því að tæpur helm-
ingur þeirra tíu milljóna sem Kvik-
myndasjóður veitti til gerðar
myndarinnar var fastur í banka í
Noregi. Þangað höfðu aðstandend-
ur myndarinnar lagt peningana í
góðri trú, en þegar á reyndi kom í
ljós að innstæðan hafði verið_ fryst í
banka. Ástæðan var sú að Ásgeir
Bjarnason, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, hefur átt í viðskiptum í
Noregi sem hafa gengið það brösu-
lega að bankinn vildi halda fénu.
Málið leystist þó farsællega að lok-
um. Þeir Kari Óskarsson og Jón
Tryggvason halda áfram að kvik-
mynda, en Ásgeir mun ekki lengur
starfa við Foxtrott...
1
FRAMDRIFSBILL
Á UNDRAVERDI
Lada Samara hefur alla kosti til aö bera sem
íslenskar aöstœöur krefjast af fólksbíl í
utanbœjar- sem innanbœjar akstri. Þaö er ekki
aö ástœöulausu sem Lada Samara er
metsölubíll, því veröiö er hreint undur og ekki
spilla góö greiöslukjör.
Lada Samara 5 gíra
Lada Samara 4 gíra |
Opiö alla daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá 1
10—1 Beinn sími söludeildar 31236 z
VERIÐ VELKOMIN í
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
Stundum verður bókvitið í askana látið
á við um
OG METBÓK
[TBUNAÐARBÁNKINN
\/ l / TRAUSTUR BANKI
32 HELGARPÓSTURINN