Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 11
gamalla þingmanna
(sem raunar eru ekki allir svo ýkja
gamlir) hélt mikið hóf fyrir viku og
var því valinn staður í helsta helgi-
reit íslensku þjóðarinnar, í þjóð-
garðinum á Þingvöllum. Líkt og
margsinnis komið hefur fram í frétt-
um standa nú til margháttaðar
breytingar í þjóðgarðinum, sam-
kvæmt tillögum Þingvallanefndar
og arkítekta hennar. Þar ber einna
hæst að til stendur að rífa Hótel
Valhöll, eða einmitt húsið þar sem
þingmennirnir gömlu sátu hinn dýr-
lega fögnuð. Hugmyndir Þingvalla-
nefndar voru enda mjög til umræðu
þá um kvöldið. Þórarinn Sigur-
jónsson, gamall framsóknarþing-
maður af Suðurlandi og formaður
Þingvallanefndar, ávarpaði sam-
komuna og útlistaði framtíðarskipu-
lag Þingvalla ítarlega og í miklum
smáatriðum. Varð honum meðal
annars mjög tíðrætt um salernisað-
stöðu þarna fyrir austan, en hún
hefur löngum þótt til vansa, sem og
skolplagnir. Munu ekki allir þing-
skörungarnir hafa verið jafnhrifnir
þegar ræða Þórarins tók að dragast
á langinn og er sagt að einn þeirra
hafi haft á orði að máski hefði hann
getað skrifað undir framtíðarplön
Þingvallanefndar áður en Þórarinn
hóf tölu sína, en nú hefði hann tekið
algjörum og fullkomnum sinna-
skiptum. . .
s
^^^parnaður 1 rikisrekstri er
nokkuð sem allir vilja berjast fyrir.
Þetta getur þó farið út í öfgar. Þann-
ig mun nýi og hraðskreiði tollbát-
urinn ekki vera tryggður nema út
að Gróttu. Þetta setur tollyfirvöld að
sjálfsögðu í nokkurn vanda. . .
VORUÞROUN
• •
ATAK
IÐNTÆKNISTOFNUNAR ISLANDS
Vöruþróunarátaki Iðntæknistofnunar íslands er ætlað að efla
nýsköpun í atvinnulífinu. Unnið verður að afmörkuðu verkefni og er
megináhersla lögð á að þátttakendur markaðsfæri afurð í verkefnislok.
Verkefnið er styrkt af Iðnaðarráðuneytinu og Iðnlánasjóði.
Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn 22. september næstkomandi
kl. 15.00 hjá Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti.
Fyrirtækjum og einstaklingum sem óska eftir að gerast þátttakendur
í verkefninu er bent á að hafa samband við stjórnanda þess, Karl Friðriksson,
ísíma (91) 687000. ^
Umsóknareyðublöð fást hjá Iðntæknistofnun íslands og öðrum aðilum
verkefnisins. Einnig munu þau liggja frammi á kynningarfundinum.
Umsóknarfrestur rennur út 15. október 1987.
Í1 Iðntæknistofnun íslands
Keldnaholti, 112 Reykjavík. Sími (91) 687000.
í verkefnisstjórn silja fulltrúar
Félags íslenskra iðnrekenda,
Landssambands iðnaðarmanna,
Iðnlánasjóðs,
Alþýðusambands íslands og
Iðntæknistofnunar íslands.
.
4:
HELGARPÓSTURINN 11