Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 12

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 12
TROMPREIKNIN GUR SPARISJÓÐANNA »ÖRUGGUR með raunvöxtum og verðtryggður reikningur » VEXTIR trompreiknings og verðtrygging er borin saman við sérstaka trompvexti á 3ja mánað fresti og U& ífeafö Iþau lteemii omi ^ EKKERTúttektargjald ‘3’©' EUgrípur til peninganna hvenær sem þú þarft á þeim að halda því HiPömpFeíkninguiiinn -er;álltáf ilaus ÚTRÝMINGARBÚÐIR Aids-búðir Við birlum ísumar opnuviðtal við Leif Muller, eina Islendinginn sem dvaldi í Sachsenhausen-fangabúð- unum í síðari heimsstyrjöldinni. Ný- lega rákumst við á heilmikla grein sem fjallaði um þessar fangabúðir, en þó ekki á þann hátt sem fólk á að venjast. Tveir blaðamenn frá danska blað- inu Press brugðu á leik um daginn og fengu til liðs við sig arkitekt til að teikna upp Sachsenhausen-búðirn- ar í nýtískulegri útgáfu. í rauninni var teikningin næstum alveg eins og gömlu teikningarnar af búðunum, nema hvað nýtískulegri nöfn voru sett inn á. Blaðamennirnir útbjuggu því næst fyrirtækjakort með nafni „fyrirtækis" síns Medlnvest í Belgíu. Þeir lögðu síðan leið sína til Þýska- lands þar sem þeir hittu að máli tíu menn sem voru í forsvari fyrir jafn- mörg bæjarfélög. Tilgangurinn var að kanna undirtektir við því að reist yrði lokuð sjúkrastöð fyrir Aids- sjúkiinga í viðkomandi bæjarfélagi eða nágrenni þess. Sjúkrastöðin átti að geta tekið á móti 1.000 Aids- sjúklingum í einangrun, kosta á bil- inu frá 2,1 milljarði króna upp í 6,5 milljarða en geta í staðinn veitt 700 manns atvinnu. Til að gera söguna trúverðugri urðu blaðamennirnir sér úti um að- stoðarmann innan heilbrigðisráðu- neytisins, aðeins til að fyrirbyggja að leikurinn yrði eyðilagður, óskaði einhver eftir að ná tali af ráðuneyt- inu og fá byggingu Aids-stöðvarinn- ar staðfesta. Af þeim tíu sem talað var við var aðeins einn sem spurði hvort heilbrigðisráðuneytið tengd- ist þessu, allir hinir tóku söguna trú- anlega í fyrstu atrennu, án þess að efast nokkru sinni. Einn borgarstjór- inn sagðist ekki vilja fá þessa stöð nálægt sinni borg af „prinsipp- ástæðum, sem hann skýrði ekki nánar, og annar borgarstjóri, sem samþykkt hafði hugmyndina, var stöðvaður af samstarfsmanni sín- um. í nágrenni einnar borgarinnar hafði verið fyrirhugað að reisa golf- völl, en borgarstjórinn þar skipti strax um skoðun þegar hann heyrði af Aids-stöðinni upp á 6,5 milljarða, sem honum fannst mun betri fjár- festing í! Forsvarsmenn bæjarfélag- anna létu sig ekki muna um að eyða drjúgum tíma í að leita að hentugu byggingarstæði á umráðasvæði sínu, leita ráðlegginga símleiðis og þar fram eftir götunum. Það eina sem strandaði á hjá öllum sem sam- þykktu að byggt væri Aids-sjúkra- hús í þeirra bæjarfélagi var kirkju- garður. Þeir samþykktu ekki að not- aður yrði borgarkirkjugarður undir lík þeirra sem ættu eftir að látast úr Aids inni á stöðinni. NÝJA ELDAVÉLIN FRÁ vörumerki hvers heimilis i 50 ár. LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.