Helgarpósturinn - 17.09.1987, Qupperneq 13
IDAGBOKIN HENNAR DULLII
Kæra dagbók.
Það er alveg makalaust hvað
glansinn fer fljótt af skólanum, þó
maður hafi verið þrælspenntur að
hitta allt liðið fyrir bara hálfum
mánuði. Nokkrir krakkar í mínum
bekk ætla að halda áfram að vinna
í vetur og mig er farið að dauðlanga
til þess líka, en pabbi og mamma al-
gjörlega harðbanna mér það. Samt
vántar ekki röflið í þeim þegar ég
bið um pening og þau myndu alveg
losna við það vesen! Ég held að þau
séu nú SJALF komin á þennan mót-
þróáaldur, sem alltaf er verið að
ásaka mig um að vera á. Ég sé heil-
margt sniðugt við þetta, a.m.k. ef
það er rétt sem krakkarnir segja.
Þau eru á næturvöktum í Hampiðj-
unni og fá rosasniðug heyrnartæki á
hausinn, sem eru með útvarpi í.
(Þ.e.a.s. tækin, ekki hausarnir . . .)
Krakkarnir rölta svo bara um og
fylgjast með einhverjum vélum í ró-
legheitunum, hlusta á næturútvarp-
ið og fá helling af pening í hverjum
mánuði. Æði, maður!!!
Ragga í næsta húsi prufaði þetta í
fyrra, en hún gafst upp. Hún sagði
að það væri svo mikið að gera að
hún hefði alveg verið að drepast.
Það voru ógeðslega margar vélar
þarna, sem hún átti að sjá um, og
hún var víst á hlaupum alla nóttina.
(Þetta hlýtur að hafa verið algjör
undantekning. Annars eru krakk-
arnir stundum með alls konar
skurði og sár eftir beitta hnífa, sem
þau nota. Þau þurfa greinilega eitt-
hvad að gera þarna!) Hún var líka
alltaf að sofna af þreytu í skólanum
og kennarinn skammaði hana
stundum fyrir framan allan bekk-
inn. Grey Ragga, sem roðnar svo
hryllilega! En hún gat bara ekkert
að þessu gert. Mamma hennar er
fyllibytta og á aldrei pening, svo
stelpugreyið varð að redda sér.
Núna er hún í einhverjum heima-
vistarskóla.
Kannski væri betra að vera í
„ræstingum" eins og Stebba systir.
Hún græðir rosalega á þessu. Það er
víst fullt af stelpum í menntó, sem
skúra svona hjá fínum lötum kell-
ingum úti í bæ. (Mamma tryllist,
þegar ég orða þetta svona. Hún seg-
ir, að þetta séu vinnuþrælkaðar
konur í ábyrgðarstöðum, sem búi
við fullkomið skilningsleysi á heim-
ilinu og verði að fá hjálp. Þá fær
pabbi hláturskast.) Það er hins veg-
ar soldið erfitt að vita hver á að
hjálpa þessum útjöskuðu kellingum,
ef allir hugsuðu eins og mamma.
Hún er nefnilega algjörlega á móti
því að „dætur hennar" séu í skúring-
um. (Stebba er bara hætt að láta
hana ráða yfir sér og gerir það sem
henni sýnist!) Pabbi segir, að
mamma vilji helst að litlir og sætir
englastrákar svífi niður af himnum
og reddi þessu, eins og öðrum
vandamálum, sem konur ráða ekki
við. Þetta er pottþétt leið til að
tryggja rafmagnaða þögn á milli
þeirra í marga klukkutíma!
Bless, bless. Dúlla.
PS Mamma var að koma inn til mín
með lausn á málinu, sem ég held að
verði að duga. Ég á að þrífa fyrir
HANA og fá kaup fyrir. Það er auð-
vitað ekki eins spennó og að fara í
eitthvert annað hús, en samt soldið
auðveldara á vissan hátt. Ég fæ 200
kall á tímann . . .
Sölustaðir:
Akranes —• Nína
Akureyri — Sporthúsið
Blönduós — Búöin
Dalvík — Kotra
Borgarnes — Borgarnes
Egilsstaðir — Agla
Eskifjörður — Sportv.
Hákonar Sófussonar
Grindavík — Bára
Hornafjörður — KASK
Húsavík — Skóbúð Húsavíkur
ísafjörður — Eplið
Neskaupstaður — Nesbær
Reykjavík — Alsport hf.
„Veiðivon"
Sauðárkrókur — Sýn
Siglufjörður — Rafbær
Hverfisgötu 105,
s. 91-23444.
jr of Loncton
frcemon/
greiðir
burðargjaldið.
POSTVERSLUN
BÆJARHRAUNI 14 220 HAFNARFIRÐI SÍMI 53 900
mm 06 mHH/wi mmtotm
HELGARPÓSTURINN 13