Helgarpósturinn - 17.09.1987, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Qupperneq 14
EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR TEIKNING JÓN ÓSKAR UNKTASÖFNUN 0 Þeir eru ófáir, fuliorðnu íslendingarnir sem nú í vetrar- byrjun eru að setjast á skólabekk. Og námið sem þeim stendur til boða er afar fjölbreytt, svo ekki sé meira sagt. Allt frá undirstöðuatriðum í lestri og málfræði til flókins sérnáms á ýmsum sviðum, bæði bóklegum og verkleg- um. Að maður tali ekki um þær lexíur, sem kroppar kyrr- setufólks eiga eftir að læra á næstu mánuðum í líkams- ræktartímum af ýmsu tagi. Kostnaðurinn er líka mjög mismunandi; allt upp í að vera 80 þúsund krónur fyrir skrifstofutækninámskeið. Ráðningarstjórar fullyrða hins vegar, að þetta dýra námskeið skili nemendunum engan veginn jafnglæstri framtíð og þeim hefur verið talin trú um að tæki við að námi loknu. ÝTT UNDIR FALSVONIR HJÁ NEMENDUM Umrætt skrifstofutækninámskeið er haldið á vegum tölvufyrirtækis í Reykjavík og, eins og fyrr segir, kostar hvern þátttakanda litlar 80 þúsund krónur. Námskeiðið tekur þrjá mánuði, en kennt er í fjóra tíma á dag og getur fólk valið um morgun-, eftirmiðdags- og kvöld- námskeið. Kenndar eru tólf náms- greinar, m.a. ýmislegt varðandi tölvur, íslenska, viðskiptaenska, verslunarreikningur, bókfærsla og almenn skrifstofutækni. Allt er þetta auðvitað virðingar- vert og enginn mótmælir því, að skrifstofufólki ætti að gagnast þekking á þessum fræðum. Þegar við hringdum til tölvufyrirtækisins og spurðumst fyrir um hvaða undirstöðu maður þyrfti að hafa til að sækja námskeiðið var svarið hins vegar: „Engin undirstaða nauðsynleg!" Það eru skrítnar fréttir, þó ekki væri nema sökum þess að viðkomandi á m.a. að nema viðskiptaensku þar sem lögð er „áhersla á tæknileg orð úr viðskiptalífinu og tölvufræðum". Einnig má spyrja sig að því hvaða tilgangi það þjónar að kenna manneskju með enga undir- stöðumenntun stjórnun. Hún kemur tæpast til með að fara í stjórnunarstöðu eftir þriggja mánaða kvöldnámskeið í skrifstofutækni. Aðspurður um hvað nemendurnir gætu búist við að ,,fá út úr“ námskeiðinu sagði starfsmaður fyrirtækisins það vera „öryggi og sjálfstraust". Síðan bætti hann því við, að allir útskrifaðir nemendur væru búnir að fá góða vinnu og þeir, sem hefðu verið í vinnu fyrir, hefðu fengið nokkurra launaflokka hækkun að námskeiðinu loknu. Þetta hljómar vissulega vel, en því miður kannast fólk, sem starfar við mannaráðningar, ekki Tugþúsundir fullorðinna þgóðfélacfsþegna eru um þessar mundir að skrá sig á námskeið eða i skóla, sem þeir hyggjast stunda i vetur, ásamt þvi að vera í vinnu. Það er hins vegar afar misjafnt efftir hverju fólk er að sækjast og hvað það „græðir" á stritinu. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.