Helgarpósturinn - 17.09.1987, Síða 15
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL.
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING
STAÐNUM.
Á FLEST-
FÆST Á
BÍLPLAST
tognhöfte 19, •fmi 688233.
PóstMfidum.
ódýrir sturtubotnar.
Tökum aö okkur tr*f)aplMtvinnu.
Valjlð iatanakt.
9 PENINGAPLOKK
alveg við þessa lýsingu. Einn
slíkur aðili, sem við ræddum við,
taldi fyrirtækið „gefa
nemendunum of mikið undir
fótinn og láta þá fá bólgnar hug-
myndir um framtíðiná'. Þessar
„falsvonir" sagði hann m.a.
fólgnar í því, að fólk stæði í þeirri
trú að það gæti krafist tiltekinna
lágmarkslauna eða gengið beint
inn í ákveðin störf að
námskeiðinu loknu. Þetta reyndist
hins vegar oft fjarri sannleikanum,
samanber lítið, grátbroslegt dæmi
um konu, sem taldi sig geta
sparað vinnuveitandanum ráðgjöf
við tölvuvæðingu fyrirtækisins.
Hún væri nefnilega útskrifaður
skrifstofutæknir og gæti hæglega
séð um málið! Það er óvíst að
sprenglærðir verkfræðingar, sem
starfa á sviði tölvuráðgjafar, tækju
undir þetta með konunni.
SMÍÐANÁMSKEIÐ
FYRIR KONUR
Sem betur fer er dæmið um
skrifstofutækninámskeiðið undan-
tekningin en ekki reglan, því full-
orðinsfræðsla er víða rekin með
miklum sóma. Tómstundaskólinn
hefur nýverið auglýst haustnám-
skeið, þar sem boðið er upp á
kennslu í öllu milli himins og
jarðar, allt frá bílaviðgerðum til
aðventukransagerðar. „Trésmíði
fyrir konur" heitir líka eitt
námskeiðið. Ekki svo að skilja að
konur hafi einhverjar sérþarfir í
þeim efnum, heldur mun orðið
kona í þessu tilviki tákna
„byrjandi", samkvæmt
upplýsingum skólastjórans. Er þá
gengið út frá því að fullorðnar
konur hafi átt leið um skólakerfið
á þeim tíma þegar stelpur
prjónuðu utan um herðatré og
saumuðu svuntur, en strákarnir
smíðuðu hinar klassísku skútur.
Tæplega þúsund nemendur sóttu
námskeið Tómstundaskólans á
síðasta vetri og líklegt er að
einhver aukning verði í ár. Kostar
hver kennslustund um 260 krónur,
þó það sé svolítið misjafnt eftir
greinum. (Meðlimir verkalýðs-
félaganna VR og Ibju hafa mögu-
leika á að sækja um styrk til
greiðslu skólagjalda í
Tómstundaskólanum, upp að
ákveðinni hámarksfjárhæð.)
NÍTJÁN TUNGUMÁL,
HÚSGAGNAVIÐGERÐIR
OG FLEIRA
Það kennir líka ýmissa grasa hjá
Námsflokkum Reykjautkur.
Gubrún Halldórsdóttir skólastjóri
bjóst við því að um 200 manns
yrðu við nám í svokallaðri
prófadeild í vetur. í
Námsflokkunum er hins vegar líka
boðið upp á almenna kennslu
fyrir fólk, sem ekki er að „safna
punktum" eða keppa að tilteknum
áfanga. Þar er hægt að nema
hvorki meira né minna en 19
tungumál, fyrir utan nám í
vélritun, bókfærslu,
myndbandagerð og ferðamanna-
þjónustu — svo eitthvað sé nefnt.
Sagði Guðrún, að tungumálin og
verklegu greinarnar væru alltaf í
efsta sæti vinsældalistans og benti
blaðamanni t.d. á nýtt og
áhugavert námskeið í
húsgagnaviðgerð. En svo
skemmtilega vill til að smíða-
kennarinn er kona, Aubur Odd-
geirsdóttió. Eitthvað hlýtur hún að
kunna meira fyrir sér í
handmennt en að sauma svuntur!
Þegar Námsflokkar Reykjavíkur
voru stofnaðir var fólk ekki byrjað
að „safna punktum", heldur litu
menn á þetta sem styrkingar-
námskeið fyrir viðkomandi
nemendur. Það var sem sagt ekki
endilega verið að sækjast eftir
vinnumarkaðsviðurkenningu, eins
og nú er svo algengt. Eða eins og
Guðrún Halldórsdóttir orðar það:
„Nú nægir ekki eigin styrkur,
heldur þurfum við að hafa punkta
upp á allt sem við kunnum!
íslendingar eru orðnir svo
uppteknir af vinnukapphlaupinu
og þá vill mannræktin gleymast.
Það er mjög hættuleg þróun."
Aðspurð um álit sitt á göllum
fullorðinsfræðslu þeirrar, sem nú
er starfrækt á landinu, sagði
Guðrún m.a.: „Það skortir t.d.
samhæfingu og síðan mætti
stuðningur ríkisvaldsins að ósekju
vera meiri. Núna gerir ríkið lítið
annað en greiða laun kennara í
öldungadeildum fram-
haldsskólanna. Námsflokkar
Reykjavíkur hafa að undanförnu
fengið árlegan ríkisstyrk sem
nemur um 100 þúsund krónum á
núvirði. Samt erum við hér m.a.
að aðstoða fólk, sem af
einhverjum orsökum missti af
kennslunni í ríkiskerfinu. Ég á þó
ekki við að það hafi endilega
verið kerfinu að kenna. Það geta
ýmsar ástæður legið þarna að
baki.“
Og varðandi framtíðina sagði
Guðrún Halldórsdóttir: „Næstu
árin er nauðsynlegt að stórefla
starfsnám hvers konar, sérstaklega
fyrir ófaglærða fólkið í
þjóðfélaginu. Ég á þó ekki
einungis við þjálfun, sem nýtist á
hagnýtan hátt í starfinu. Við
megum líka til að halda mann-
eflingarsjónarmiðin í heiðri og
vinnuveitendur verða að gera sér
grein fyrir þeim „gróða", sem felst
í starfsmönnum sem orðnir eru
sterkari og sjálfsöruggari
persónur."
í ÖLDUNGADEILD TIL
AÐ SPARA FÉ
Kostnaður við þátttöku í Náms-
flokkunum er svolítið mismunandi
eftir kennslustundafjölda og í
hvorri deildinni numið er. I
prófadeild getur fólk lokið
grunnskólaprófi, hafi það af
einhverjum ástæðum ekki komið
því við fyrr á lífsleiðinni. Einnig
geta menn lokið þarna forskóla
fyrir sjúkraliðanám og lært
hagnýta verslunar- og skrifstofu-
fræði, svo sem vélritun,
tölvufræði, bókfærslu og fleira.
Skólagjöld eru 2.400 krónur á
mánuði fyrir þá sem eru í 16
tímum á viku, en 3 þúsund krónur
á mánuði fyrir 20 stundir á viku. í
almennu flokkunum eru
kennslugjöldin frá 2.600 krónum
og upp í 5 þúsund, eftir því hve
löng viðkomandi námskeið eru.
Öldungadeildir framhalds-
skólanna fullnægja þörfum fjölda
fólks, sem af einhverjum ástæðum
fór ekki í framhaldsnám fyrir
tvítugsaldurinn. Flestir hafa heyrt
sögur um margra barna
útivinnandi mæður, sem lagt hafa
á sig mikið erfiði til þess að ná
stúdentsprófi og komast í háskóla.
Aðrir fara í öldungadeild „fyrir
sjálfa sig", án þess að stefna
endilega á háskólanám eða betri
stöðu á vinnumarkaðnum. Og til
eru þeir, sem setjast á skólabekk í
öldungadeildum landsins til að
spara peninga! Skólagjaldið er
nefnilega 5.500 krónur á önn,
hvað svo sem nemandinn stundar
nám í mörgum greinum. Fyrir þá
upphæð getur viðkomandi þannig
fengið heilmikla kennslu, sem
hann þyrfti að borga mun meira
fyrir, ef hann borgaði sig inn á
námskeið í hverju fagi sérstaklega.
ALLT FRÁ
BROSNÁMSKEIÐUM TIL
ÁRUTEIKNINGA
Fjöldi allra hinna ólíku nám-
skeiða, sem nú eru að hefja göngu
sína, er slíkur, að ógjörningur er
að henda reiður á þeim öllum.
Líkamsrækt af ýmsu tagi hefur í
síauknum mæli rutt sér til rúms á
undanförnum árum og á þeim
vettvangi er boðið upp á lengri og
styttri námskeið í eróbikk,
megrunarleikfimi, jassballett,
kvennaleikfimi, fimleikum,
öldungaleikfimi, dansi, karate,
júdó, lyftingum og hvað þetta
heitir nú allt saman.
Vilji fólk bæta málakunnáttuna
eru bæði í boði einkatímar, mála-
skólar, námsflokkar, bréfaskólar og
eflaust enn aðrir möguleikar. Svo
eru það tölvurnar sívinsælu.
Tölvunámskeið eru víða á
boðstólum, bæði fyrir byrjendur
og lengra komna, almenn
námskeið og sérhæfð.
Stjórnunarfélagib er síðan með
alls kyns námskeið fyrir skrif-
stofufólk, stjórnendur og fleiri
aðila. Svokölluð brosnámskeið
Flugleiða voru t.d. á þeirra vegum.
Þeir sem eru handlagnir geta
líka fundið ýmislegt við sitt hæfi.
Auglýst hafa verið námskeið í leir-
list, körfugerð, saumum, smíðum,
matreiðslu og ýmsu í þeim dúr,
fyrir utan alls kyns
myndlistarnámskeið fyrir fólk með
áhuga á listum. Hinir andlega
sinnuðu ættu heldur ekki að vera í
vandræðum. Þeir geta lært að lesa
í lófa, spá í stjörnurnar og teikna
árur, svo eitthvað sé nefnt.
Það er greinilegt, að enginn þarf
að vera í vandræðum með að
finna námskeið við sitt hæfi, því
komið er til móts við hinar
fjölbreytilegustu þarfir. Tími og
peningar eru eflaust meiri
Þrándur í Götu fyrir margan
manninn en skortur á framboði
fræðslu. En jafnvel þeir erfiðleikar
eru yfirstíganlegir, ef marka má
þann gífurlega fjölda fólks sem á
hverju ári nýtir frístundir sínar til
þess að bæta við þekkingu sína og
hæfni á einhverju sviði. Eða eins
og segir í greinargerð með tillögu
til þingsályktunar um fullorðins-
fræðslulög sem Guðrún Halldórs-
dóttir lagði fram á næstsíðasta
löggjafarþingi: „Eftirspurn eftir
fullorðinsfræðslu vex ár frá ári. Þó
að nýjar fullorðinsfræðslustofnanir
rísi minnkar sjaldan aðsókn að
þeim sem fyrir eru og sýnir það
best hina miklu þörf sem er fyrir
þessa fræðslustarfsemi. Sívaxandi
kröfur um próf og réttindi eru að
hluta uppspretta þessarar
eftirspurnar en fullorðinsfræðslan
sinnir einnig öðrum námsþörfum
fólks, sprottnum af margs konar
efnahagslegum og félagslegum
rótum."
Sfmi 27644 box 1464 121 Reykjavík
Handmenntaskóli fslands er sex óra gömul stofnun,
sem yfir 1250 fslendingar alls staöar a landinu og
einnig erlendis, hafa stundað nam við. Skolinn
býður uppó kennslu i teikningu,skrautskrift og barn-
ateikningu^É BRÉFASKÖLAFORMI. Þu fœrð send
verkefni fró okkur og lausnir þinar verða leiðrettar
og sencbr til baka. Innritun \ skólann fer fram fyrstu
tvœr vikur hvers mónaðar.- Biðjið um kynningarrit
skólans með þvf að senda nafn og heimilisfang til
okkar eða hringið i 27644 milli kl 17 og 19 (Ath„
breyttur sfmatrmi). Þetta er tœkifœrið^ fyrir þig að
reyna þig við ofannefndar jgreinar \ ró og nœði
heima hjó þér,hvar sem þu byrð a landinu. Þu
getur þetta líka,einaskilyrðið er ahugi þinn.
ÉG ÓSKA EFTIR AD FA SENT KYNNINGARRIT
HMÍ MÉR AÐ KOSTNADARLAUSU
NAFN.
I
I
^HEIMILISF..
KÉRASIASE
'FRÁ L’ORÉAL PARÍS
ÁTT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ.
LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU-
MEISTARANUM.
SPURÐU HANN UM KERASTASE.
FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM.
HELGARPÓSTURINN 15