Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 17
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYND JIM SMART Björgvin Halldórsson söngvari og framkvœmdastjóri á Stjörnunni í HP-viðtali. BJAGAÐ MALFAR ekki bara á nýju miölunum! Hann er búinn aö uera á toppnum í nœstum tuttugu ár. Pangaö skaut honum allskyndilega eftir popphátíö í Laugardalshöll áriö 1969. Par sat hann fyrst meö ýmsum hljómsueitum — en þó aö mestu leyti aleinn. Eins og þeir sem ná toppnum þekkja er þaö ekki tekiö út meö sœldinni aö uera þar. Raddir rógburöar og öfundar eru alltaf á nœstu grösum og þaö þarf sterk bein til aö komast óskaddaöur út úr hringiöunni — huaö þá aö lifa í henni áfram. „Þetta byrjaði allt fyrir tilviljun," segir Björg- vin Halldórsson söngvari og framkvæmdastjóri og virðist ekki alltof hress að líta yfir liðnu árin „enn einu sinni" eins og hann segir og andvarp- ar um leið. „Þegar ég var í Flensborg í Hafnar- firði lék þar skólahljómsveit og ég þóttist vera nokkuð góður í ensku og fór að finna að textun- um hjá þeim. Þeir bentu mér á að ef ég væri svona góður enskumaður þá skyldi ég bara skrifa niður textana fyrir þá eftir plötum. Ég gerði það og nokkru síðar færði ég mig upp á skaftið og gagnrýndi sönginn hjá þeim, án þess þó að hafa lært nokkuð í þeim efnum. Það end- aði með að þeir buðu mér hlutverk söngvarans í hljómsveitinni!" Það var upphafið að söngferlinum og Björgvin kom fyrst fram með hljómsveitinni Bendix „á dansæfingu í Flensborgarskóla. Mér er einkum minnisstætt að ég þurfti að læra textann að „Penny Lane" utan að og enskukennarinn minn, Inga Blandon, var á ballinu svo það var mikið i húfi, enda enginn smátexti við þetta lag!“ En varstu svona góður í ensku? „Ja — svona ágætur, enda byrjaði ég mjög snemma að læra ensku, bæði með því að hlusta á Keflavíkurútvarpið og horfa á sjónvarp og kvikmyndir með ensku tali." Eftir að hafa sungið með Bendix í nokkurn tíma lá leiðin í Flowers og síðan í hljómsveitina Ævintýri. Sú hljómsveit tók þátt í popphátíð sem haldin var í Laugardalshöll fyrir 18 árum og þar féllu tveir titlar í skaut Ævintýris og söngv- ara hennar, titlarnir „Söngvari ársins" og „Hljómsveit ársins". Björgvin skaust upp á topp- inn með þvílíkum ógnarhraða að margir furða sig á að hann skuli ekki hafa farið illa út úr frægðinni: „Þetta getur verið óhollt fyrir ungan mann," segir hann hiklaust, spurður um hvernig áhrif svona mikil og skyndileg frægð hafi á óharðnað- an ungling. „Það beinist skyndilega svo mikil at- hygli að manni að það verður óhjákvæmilega röskun á lífinu. Ég held að það geti ekki allir axl- að svona skyndilega breytingu. Sjálfur lenti ég milli tannanna á fólki og fjölmiðlum. Oft voru meira að segja búnar til fréttir um mig, eða ég látinn segja eitthvað sem ég hafði aldrei sagt. Það sem bjargaði mér var að ég var ungur og léttur á þessum tíma og „gaf bara skít í þessar sögur" eins og sagt er. Þetta vandist fljótt..." Hann segist telja að tímar eins og á dögum hippahreyfingarinnar komi aldrei aftur: „Ég hef enga trú á því. Þetta var einskonar vakning hjá ungu fólki. Það var mikill boðskapur í tónlistinni og textunum og mikill uppgangur í tónlist. Stóru stjörnurnar eins og Jimi Hendrix, Brian Jones, Janis Joplin og fieiri kórónuðu þetta auðvitað, kvikmyndin Woodstock var gerð og tónlistin var gríðarlega stór þáttur hjá ungu fólki eins og hún er enn, en það var kannski á annan hátt." Síðustu ár hefur Björgvin starfað hjá veitinga- húsum Ólafs Laufdal, aðallega Broadway, þar sem hann hefur séð um framkvæmdir, auglýs- ingar og fleira fyrir stærri sýningar en einkum hefur hann séð um að fá stórstjörnur hingað til lands. Þá hóf Björgvin nýlega störf sem fram- kvæmdastjóri dagskrár- og kynningardeildar Stjörnunnar og við spyrjum hvort þessi störf séu eðlilegt framhald af fyrri störfum eða hvort hann sé viljandj að framlengja poppárin: „Ég byrjaði að spila í Broadway fyrir rúmum fimm árum með hljómsveit minni og í framhaldi af því var ég beðinn að setja upp fyrstu sýning- una þar, sem var rokkhátíðin fræga. Síðan hef ég unnið fyrir Olaf Laufdal og hans fyrirtæki. Öðruvísi er þetta ekki," segir hann og virðist þykja óþarft að leita eftir skýringum á starfsvali sínu. Broadway hefur haft á sínum vegum marga kunna kappa úr skemmtanabransanum erlendis og Björgvin er spurður hvernig gangi almennt að fá stórstjörnur til að koma og skemmta á ís- landi: „Það gengur upp og niður," segir Fíann bros- andi. „Sumir hafa engan áhuga á að koma hing- að nema vel sé borgað fyrir það, hugsa semsagt aðeins um peninga. Annars hefur gengið betur núna en áður að fá stóru nöfnin hingað og það á eftir að ganga ennþá betur. Það kemur til af fundinum fræga... Sumir sem standa að ferða- málum hér á landi halda að allir séu svo hrifnir að komast hingað, sjá Gullfoss og Geysi og kaupa sér lopapeysu, en málið er ekki svona ein- falt. Þarna vantar margra ára markaðssetningu inn í. Margir hafa ekki hugmynd um hvar þetta iand er og hafa ekki nokkurn áhuga á að koma hingað — nema þá bara til þess að vinna og fá vel borgað fyrir. Hins vegar eru flestir sem hafa komið hingað á annað borð reiðubúnir til að koma aftur. Þeir trúa ekki hvað „standardinn" er hár á íslandi fyrr en þeir sjá það sjálfir." í starfi Björgvins felst að sjálfsögðu að kunna að skipuleggja, kunna að beita áhrifum og vera snöggur að hugsa og snöggur að taka ákvarðan- ir. Þegar Björgvin heyrði í útvarpsfréttum í bíln- um sínum að John Travolta væri að lenda á ls- landi brá hann skjótt við, skrifaði honum bréf og sendi út í flugvélina: „Mér fannst upplagt að bjóða honum og fjölskyldu hans á „Allt vitlaust" í Broadway, skemmtidagskrá sem minnir á kvik- myndirnar sem hann sló í gegn í, Saturday Night Fever og Grease. Ég hringdi síðan á hótelið en náði ekki í hann og í staðinn ræddi ég við mömmu hans og síðan systur sem tóku skilaboð til hans. Skömmu síðar hringdi John Travolta til mín og sagði: „I accept your kind offer," og þau mættu öll í Broadway og skemmtu sér vel.“ Björgvin er í fullu starfi á Stjörnunni og leysir þess vegna skyldur sínar við Broadway af hendi þess á milli og um helgar: „Það kemur mikið til vegna mismunarins á tíma,“ segir hann og við- urkennir að þeir séu stöðugt að leita að þekkt- um stjörnum til að koma. „Nú eru umræður í gangi við ýmsa listamenn," segir hann með þannig svip að ljóst er að það er vonlaust að fá uppgefin nöfn þeirra...! „Það þarf að finna tíma- setningar sem henta þeim bandarísku, annað- hvort þannig að þeir séu að fara frá Bandaríkj- unum til Evrópu eða öfugt, þannig að það henti þeim að koma við hér og að sá tími henti líka okkar gestum." Af þeim gestum sem Björgvin hefur fengið til að koma og skemmta á Broad- way segist hann vera einna ánægðastur með að hafa náð Fats Domino og Jerry Lee Lewis: „Þó svo að þeir hafi verið upp á sitt besta fyrir minn tíma þá eru þetta stærstu núlifandi goðsagnirnar í rokkinu. Jú, og Shadows, ég var ánægður með að þeir skyldu koma..." Fáum viö Cliff nœst? „Við sjáum til...“ segir Björgvin en það er eitt- hvað dularfullt við hann þegar hann svarar. Hann segir að störf sín séu lifandi og skemmti- leg og hann vildi ekki skipta og fara yfir í eitt- hvað annað. Að vísu er vinnutíminn gífurlega langur, „en ég þekki ekki annað," segir hann. „Ég hef alltaf unnið svona mikið. Þá sjaldan maður fer í frí er ég í vandræðum með hvernig ég á að slappa af. Ég kann það bara ekki. Finn mér alltaf eitthvað til að gera." Nú hefur þú sloppið furðuvel frá frœgðinni miðað við marga aðra. Þú hefur til dœmis alveg sloppið við sukk og eiturlyf og... „Ér það??!“ segir hann og glottir. „Hver segir það?‘ Er þetta ekki rétt? „Jú, jú, sem betur fer er þetta rétt. Ég hef reynt að láta gleðskapinn ekki ná yfirhendinni. Frá því ég byrjaði í þessum bransa hef ég verið mikið innan um vín en ég er alls ekki fanatískur, síður en svo. Hins vegar fer ég ekki á ball ef ég á frí um helgi. Ég fer heldur út að borða með kon- unni minni." Björgvin er giftur Ragnheiði Reynisdóttur og eiga þau börnin Svölu 10 ára og Odd Hrafn 8 ára, en áður átti Björgvin soninn Sigurð Þór sem nú er 16 ára. Við spyrjum hvaða þýðingu það hafi fyrir mann sem lifir svona umrótssömu lífi að eiga fjölskyldu: „Það hefur geysimikla þýðingu. Ef menn eiga ekki góða fjölskyldu og hlakka til að koma heim að afloknum vinnudegi er auðvelt að leiðast út í einhverja vitleysu. Það segja það allir, stórir sem smáir í þessum bransa, að fjölskyldan sé það sem heldur mönnum gangandi. Það að eiga fjölskyldu er númer eitt, tvö og þrjú." Verður konan þín aldrei leið á þessum störfum þínum? „Alveg örugglega. Ég yrði að minnsta kosti leiður á þeim ef hún gegndi þeim!" Nú hefur alls konar árásum verið beint að þér gegnum tíðina, bœði beinum og óbeinum. Þar á meðal er texti sem Bubbi söng umpað leyti sem hann kom fram á sjónarsviðið: „Eg er löggiltur öryrki, hlusta á HLH og Brimkló." Með öðrum orðum; hann nefnir tvœr hljómsveitir þar sem þú varst í fararbroddi. Tekurðu svona nœrri þér?' „Auðvitað hafði þetta einhver áhrif á okkur alla í hljómsveitinni á þeim tíma. Annars ættirðu að spyrja Bubba sjálfan hvað honum hafi gengið til með þessum texta, því ekki veit ég það. Ég held hann hafi ekki verið að fella dóm yfir okkur með þessari setningu, heldur fólkið sem hlustaði á tónlistina okkar — og þar af leiðandi á fólk sem hlustaði á hans tónlist líka." Hver er munurinn á framkvœmdastjóranum og poppstjörnunni Björgvini? „Enginn munur," svarar hann að bragði. „Ég er um þessar mundir að ljúka við undirbúning á jólaplötu þar sem margir söngvarar koma við sögu og ennfremur hef ég verið með plötu í smíðum upp á síðkastið sem ég ætlaði reyndar að vera búinn að taka upp en tími hefur ekki gef- ist til. Ég tek hana upp á næsta ári. Þetta er plata sem verður svolítið öðruvísi en við eigum að venjast þar sem stórhljómsveit leikur undir og þar verða flutt öll helstu „standard-Iögin. Síðan hefur mér nýlega verið falið mjög áhugavert verkefni, sem tengist byggingu tónlistarhallar- innar nýju og það verkefni lítur dagsins ljós fyrir jólin." Þú ert sem sé alltaf tengdur tónlistinni á ein- hvern hátt? „Já, ég verð alltaf tengdur tónlistinni hvað sem á dynur. Ég „pródúseraði" báðar plöturnar hans Kristjáns Jóhannssonar, þar af aðra í fyrra, og einnig plötuna með Sinfóníuhljómsveitinni ásamt því að gera sjálfur sólóplötu fyrir síðustu jól." Hvernig finnst þér að starfa með klassískum tónlistarmönnum? „Mér líkar það mjög vel. Sjálfur byrjaði ég ekki að hlusta á klassík að ráði fyrr en fyrir fimm árum og hef staðið mig að því upp á siðkastið þegar ég er að kaupa plötur að ég tek klassík oft fram yfir annað og vanda valið á söngvurum. Ég er samt ekki kominn í „þungu deildina" ennþá! Mér þykir gott að setja klassík á þegar ég vil slappa vel af. Mér fannst heiður að því að vera viðriðinn báðar plötur Kristjáns sem seldust vel og mikið var vandað til. A fyrri plötunni lék „London Symphony Orchestra" og á hinni síðari „Royal Philharmonic". Manni datt ekki í hug í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði að maður ætti ein- hvern tíma eftir að „pródúsera" með svona stór- um hljómsveitum..." Hvað er nákvœmlega það að ,,pródúsera“? „Það er að stjórna upptökunum, sjá um undir- búning og koma öllum saman sem eiga að vinna að plötunni, stundum falla útsendingar til, sjá til þess að dæmið gangi frá A til Ö, hafa hönd í bagga við að velja réttu aðilana og jafnvel lög og efni í samráði við útgefanda. Það þarf að gera samninga við hljómsveitir, hvenær þær geti spilað, fá réttu samsetninguna af hljóðfæra- leikurum, í hvaða stúdíói og hvað það kostar ásamt öðrum mikilvægum þáttum. Orðið „pródúsent” útleggst í raun og veru sem verk- stjóri og framleiðandi." Við snúum okkur að Stjörnunni og störfum Björjgvins þar: „Eg sé um framkvæmd á dagskránni, er í dag- skrárgerðinni með þáttagerðarfólkinu, hjálpa til að móta þessa dagskrá í samvinnu við marga aðra. Ég er þannig gerður að ég vil vinna með fólki, hafa „stuðpúða" í kringum mig. Síðan er það mitt starf að koma dagskránni frá stöðinni út til hlustenda, sjá um auglýsingagerð, svokall- aða „trailera" þegar verið er að kynna einstaka dagskrárliði og persónulega er ég mjög hreyk- inn af að hafa átt þátt í að koma af stað þáttum með klassískri tónlist því við höfðum heyrt radd- ir stórs hóps hlustenda Stjörnunnar sem vildi eiga þess kost að hlusta á klassíska tónlist." Margirafhinum svokölluðu „hugsandimönn- um“ óttast mjög um menningararfleifð og ís- lenska tungu með tilkomu nýju Ijósvakamiðl- anna. Hvert er þitt mat? „Ég held það sé alvara á ferðum, þótt þetta verði stundum hálföfgafull fullyrðing hjá sum- um. Við gerum okkur grein fyrir því hér á Stjörnunni að það verður að vanda málfar og vanda dagskrárgerð og reynum að velja þátta- gerðarfólkið eftir því. Þótt við viljum ekki fara með dagskrárgerðina á sama stig og þekktist fyrir mörgum árum gerum við okkur grein fyrir að auðvitað verður að viðhalda málinu. Allir þeir sem ráða á þessari útvarpsstöð eru sam- mála um það. Með tímanum hefur íslenskan bjagast almennt, á því er enginn vafi. Ég held það sé ekki bara á ljósvakamiðlunum, ég held það séu brotalamir í íslenskukennslu í skólunum án þess ég fullyrði það. Það eru margir þættir sem valda þessu. Sjáðu bara tíu ára krakkana sem tala ensku án þess að hafa lært málið í skól- um, þeir hafa oft meiri orðaforða á ensku en á íslensku. Það á ekki að banna allt enskt efni, heldur gera íslenskunámið áhugaverðara." Finnst þér vera of mikið afþreyingarefni á frjálsu útvarpsstöðvunum? „Nei, mér finnst ekki of mikið af því. Við vilj- um reyna að stíla efni okkar eftir mismunandi tímum. Það má ekki hafa mjög þungt efni að kvöldlagi sem dæmi. Annars eru svo margar skoðanir ríkjandi í þessum efnum, hvernig á að „prógrammerá' svona stöðvar. Frjálsu stöðvarn- ar byggja afkomu sína á auglýsingum og þær verða alltaf að vera til staðar svo stöðin haldist gangandi. Það er vandrataður vegur að gera öll- um til hæfis en þessi stöð reynir að vanda valið og hafa inntak þáttanna þannig að þeir snerti menningu, það sé ekki bara síbylja allan dag- inn." Stillirðu aldrei sjálfur á Bylgjuna eða ríkisút- varpið? „Jú, jú oft. Ég hlusta mikið á útvarp og hef ein- staklega gaman af fréttum bæði í sjónvarpi og útvarpi. Eg hef meira að segja staðið mig að því að hlusta á útvarp um leið og ég horfi á sjón- varpsfréttir — en tek þá annan hvorn fréttatím- ann upp og hlusta síðar um kvöldið, heima eða í bílnum. Eg verð að fylgjast með hinum stöðv- unum vegna starfs míns hér. Ég veit hvað er að gerast á Stjörnunni þannig að í raun hlusta ég mun meira á hinar stöðvarnar." Setjum svo aö peningar vœru ekkert vanda- mál. Hvernig útvarpsstöð myndirðu hafa? „Ég myndi hafa útvarpsstöð með fjórum rás- um. Þar yrði þjónusturás, þar sem veitt yrði al- menn þjónusta fyrir hlustendur og fræðsluefni ýmislegt. Síðan myndi ég hafa hreina tónlistar- rás þar sem væri gæðatónlist, eins konar popp- tónlist fyrir fullorðið fólk í rólegri kantinum, ókynnt tónlist allan tímann. Ég myndi hafa rás þar sem eingöngu væri leikin klassísk tónlist, tónleikar o.fl., og mjög væri vandað til hennar, síðan hefði ég stöð sem væri eingöngu á nótum unga fólksins. Þetta eru nú bara draumahugleið- ingar, enda spurningin þess eðlis að maður velt- ir svona draumaútvarpsstöð ekki fyrir sér dag- lega! En að sjálfsögðu hefði ég sendi sem væri það sterkur að stöðin næði til meginlands Evr- ópu. Ef íslensk tónlist heyrðist þangað hjálpaði það íslenskri tónlistarmenningu mikið." Sú myndsem poppheimurinn og fjölmiðlarnir hafa gefið af þér gegnum árin virðist röng. Rétt? „Ja — seg þú mér það! Ég lít á sjálfan mig sem rólegan mann... En það verður að viðurkennast að það var mikið skrifað um mig og ekki alltaf rétt og satt sagt frá. Ég hef sjálfur lesið ýmislegt um vini mína sem á ekki við nein rök að styðjast og tek því alltaf fjölmiðla með fyrirvara. Ég er það jarðbundinn að ég trúi aldrei neinu fyrr en ég snerti sjálfur á því eða sé það. Það hefur viljað brenna við hér á landi að kjaftasögur og hug- leiðingar um fólk hafi vegið þyngra en sannleik- urinn." Hvað finnst þér helst einkenna íslenskt samfé- lag í dag? „Ef ég lít til þess sem vinir mínir frá útlöndum sem oft koma hingað segja um landið þá líkja þeir Islandi við „melting pot“. Hér ríkir einhvers konar samsuða alls þess sem er að gerast í heim- inum. Við fáum fréttir alls staðar að, hér ríkir há- tíska, á fáum stöðum sjást jafnmargar bílateg- undir — hér er allt það nýjasta á mörgum svið- um. Þá komum við aftur að líku máli og við ræddum áðan: Við verðum að varðveita það sem allir útlendingar öfunda okkur af, sögu okk- ar, tungumálið og bókmenntirnar. Við verðum að varðveita það sem gefur íslandi sérstöðu í heiminum." Framtíðin? „Björt. Ég hugsa aldrei til þess að ég hefði átt að gera annað en ég geri núna. Þá væri ég hvort sem er að hugsa hvort ég vildi breyta einhverju, ekki rétt!? Lífið væri kannski eitthvað öðruvísi en það er í dag en til hvers væri það. Ég er þó að minnsta kosti að starfa við það sem ég hef áhuga á...“

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.