Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 29

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 29
IWk 0 W Bikil óánægja er nú meðal kaupenda að íbúðum í húsinu á Vesturgötu 69 vegna byggingar- verktakans Hólabergs. Fyrirtækið stendur illa við gerða samninga og kemur það hart niður á íbúunum. Þarna virðist sagan vera að endur- taka sig. Fyrir stuttu riftu íbúar í fjöl- býlishúsi við Miðleiti samningum við Hólaberg eftir að fyrirtækið hafði margsinnis brotið gegn samn- ingnum. Alþýðubankinn tengdist því máli. íbúarnir höfðu leitað upp- lýsinga um stöðu fyrirtækisins hjá bankanum og fengið mjög jákvæð svör. Það kom hins vegar í ljós að fyrirtækið gat ekki staðið við greiðslur til undirverktaka og kunnu íbúarnir bankanum því litlar þakkir fyrir aðstoðina. Eftir að samningum var rift önduðu íbúar við Miðleiti léttar en Hólaberg sneri sér að byggingarframkvæmdum við Vesturgötu ... fréttaritari ríkisútvarpsins í Brussel í Belgíu, þar sem ekki sitja minni valdastofnanir en Evrópubandalag- ið og Nató. Nú auglýsir Stjarnan hins vegar að Kristófer hafi tekið að sér að flytja pistla frá Belgíu í morg- unþætti, sem eru í umsjón Þorgeirs Ástvaldssonar. Hingað til hefur það verið stefna að menn tali bara í eina útvarpsstöð í einu, en kannski stendur það til breytinga og bóta. Já, kannski væri ráð að láta sama fólkið tala í allar útvarpsstöðv- arnar. . . Þ __ ar sem Sambandið hefur nú gert hundruð milljóna tilboð í Út- vegsbankann velta menn því fyrir sér hvers vegna það lætur ekki eitt- hvað af þessu peningum í dótturfyr- irtæki sín sem mörg hver eru með öfugan höfuðstól. Listinn yfir slík fyrirtæki er langur: Kirkjusandur, Meitiilinn, Hraðfrystihús Kefla- víkur, Grundarfjarðar og Pat- reksfjarðar og Búlandstindur, svo fyrirtæki í sjávarútvegi séu nefnd. Þessi fyrirtæki eiga mörg í miklum rekstrarerfiðleikum og vantar tilfinnanlega aukið eigið fé til þess að rétta höfuðstólinn við... Þ ólitískar stöðuveitingar eru fyr- ir iöngu orðnar viðtekin venja sem enginn kippir sér upp við. Ráðherr- ar Alþýðuflokksins hafa að und- anförnu gefið út yfirlýsingar þess efnis að þeir ætli sér ekki að fylgja ressari venju, heldur að velja hæf- asta manninn í hvert sinn. Eftir um- sækjendum um deildarstjórastöðu ÁTVR á Akureyri að dæma virðist almenningur taka þessum yfirlýs- ingum rétt mátulega. Af 33 umsækj- endum gengu flestir í Alþýðuflokk- inn áður en þeir skiluðu inn um- sóknum sínum. Þegar síðan Hauki Torfasyni, sem aldrei hafði unnið hjá ÁTVR, var úthlutað starfinu framhjá ýmsum gamalreyndum starfsmönnum fóru menn að reyna að rekja hann til flokksins. Það reyndist auðvelt. Haukur er tengda- sonur Gunnars Gunnarssonar sem aftur er tengdasonur Stein- dórs Steindórssonar, skólastjóra og stórkrata. Jón Baldvin Hanni- balsson fjármálaráðherra virðist því ekki hafa brugðið út af venjunni sem hefur verið í heiðri höfð varð- andi stöðuveitingar hjá ÁTVR frá Ragnari Arnalds í gegnum Albert Guðmundsson og Þorstein Páls- son og Iöngu fyrir tíð þessara manna... Gisting Veitingasala Bar Bíó Fundarsalir Ráöstefnur Dans HÖTEL VALASKJALF EGILSSTÖÐUMs 97-11500 Wm | Laugav 67 S:12880 Vr ■ HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.