Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 30

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 30
MAL OG MENNING Hvalamál (1) Fyrirsögn þessa þáttar er tvíræð. Ég hefi ekki hugsað mér að fjalla um þær deilur, sem íslendingar hafa átt í vegna hvalveiða sinna nú undanfarið, heldur um ýmiss konar orða- far, sem tengist hvölum. Það má meðai ann- ars sjá á ýmsum örnefnum, t.d. Hualfjördur og Hvalsnes, að íslendingum hafa verið hvalir hugstæðir allt frá upphafi. Einnig mætti minna á örnefnið Reydarfjörður, en að því vík ég betur í næsta þætti. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr leikur ekki vafi á því, að íslendingar hafa hagnýtt sér hval til matar allt frá landnáms- öld. Þennan sið hafa þeir flutt með sér úr heimahögum sínum í Noregi. Orðasamband- ið að skjóta hval er kunnugt þegar í norskum lögum. Og í lögum þjóðveldisins (Grágás) eru ákvæði um hvalveiðar og hvalreka. Víð- tæk löggjöf um þessi efni sýnir, að mikilvægt hefir þótt, að nákvæm ákvæði væru i lögum um þessi mál. Svo er að sjá sem veiðiaðferðir forfeðra okkar hafi einkum verið tvenns konar. Ýmist voru hvalir veiddir með skutli eða þeir voru reknir á land. Orðið skutull, sem í fornmáíi var skutilt, kom einnig fyrir í samsetta orðinu selskutill. Táknar það orð vafalaust skutul, sem notaður var við sel- veiðar. Orðið *hvalskutill finnst hins vegar ekki í fornum orðabókum, en fyrir kemur orðið hvaljárn, sem flestir telja, að verið hafi veiðarfæri notað við hvalveiðar. Orðin sel- skutill og hvaljárn koma bæði fyrir í lýsingu á Flóamannabardaga (1244) í Sturlungu: Þá var ok skotit selskutlum ok hvaljárnum. Sturl. II, 60 (útg. 1946). Enginn vafi leikur þó á um, að skutill var einnig notað um veiðar- færi hvalveiðimanna. Örnefnið Skutulsfjörö- ur er án efa dregið af veiðarfæri til selveiða eða hvalveiða. Svo segir í Landnámu (Sturlu- bók): Hann fann fjörð einn ok hitti þar skutil t flœðarmáli. Þat kallaði hann Skutilsfjörö. ísl. fornr. 1,187. í fornsögum segir ekki af hvalveiðum. Yfir- leitt gefa sögurnar ekki góða mynd af at- vinnuháttum landsmanna. Þær greina frem- ur frá því, sem deilum olli og hafði eitthvað sögulegt í för með sér. Þannig var því háttað um hvalreka. Frá því segir t.d. í 12. kafla Grettlu, að hallæri mikið hafi komið á ís- landi. Vera má, að átt sé við óaldarveturinn 975. í GretUiyegir m.a.: Þorsteinn hét maðr, er bjó á BT^^esi; hann fann hval rekinn innan frab^^tinu. ísl.fornr. VII, 29. Út af þessum hvSMta urðu síðan miklar deilur, sem hér verða ekki raktar. Hvalreki hefir verið mikið happ matfangasnauðu heimili, enda hefir orðið fengið merkinguna „óvænt stórhapp" (sbr. Orðabók Menningarsjóðs, undir hvalreki). Frá síðari öldum er orðið hvalreki kunnugt í ýmsum föstum orðasam- böndum eða orðtökum, t.d. þetta var nú eins og hvalreki fyrir okkur, eitthvað er hvalreki á fjörur einhvers og eitthvað er hvalreki fyrir einhvern (eitthvað), t.d. fyrirtæki, flokk, mál- stað o.s.frv. Til hvalreka vísar einnig málshátturinn Það kemur ekki hvört ár hvalur til lands, en hann er kunnur frá 17du öld úr málshátta- safni Guðmundar Ólafssonar (GOThes. 169). í Orðabók Menningarsjóðs er tilgreint orðið hvalsaga og þýtt „stórfrétt (um hvað sem er)“, en einnig „frétt um hvalreka". Síðar greinda merkingin er vitanlega uppruna- legri. Orðið er kunnugt úr gömlum máls- hætti: fer fiskisaga, flýgur hvalsaga, sbr. fyrr greint málsháttasafn Guðmundar Ólafssonar (GOThes. 53). Málshátturinn merkir greini- lega, að fréttir um fiskgengd og hvalreka ber- ist fljótt. Orðasambandið flýgur hvalsagan mun ekki tiðkast í nútímamáli, en enn segja menn, að fiskisagan fljúgi, og er þá átt við, að fréttir, ekki sízt hviksögur, berist fljótt. Þegar rætt er um hvalamál má ekki gleyma orðinu hverfihvalur. Það er kunnugt úr orðtakinu eitthvað verður hverfihvalur, sem merkir „eitthvað reynist ódrjúgt, eyðist, fyrr en ætlað er“. Blöndal hefir af Austur- landi eftirfarandi dæmi: Það vill ná verða hverfihvalur hjá manni á vorin þetta blessað smjör. Einnig þekki ég af Austurlandi af- brigðið eitthvað er eins og hverfihvalur. Theódór Friðriksson rithöfundur segir svo í skáldsögu sinni Valur. Brot. Sögur úr ís- lenzku þjóðlífi(Rvk. 1916): ,,Éghefi heyrt það sagt, aö efmenn svíkjast um að vaka á hval- fjöru, gœti hvalurinn horfið og vœru það nefndir hverfihvalir" (bls. 69). Eg hygg, að þetta sé aðeins skýring Theódórs og fái hún ekki staðizt. Ég fékk fróðleik um orðið hverfihvalur 1958 og birti hann í þætti, sem ég skrifaði fyrir Tímann (sbr. Tímann 19/10 1958,5). Samkvæmt því, sem heimildarmað- ur minn sagði mér, er orðtakið dregið af því, að við bræðslu á gömlu hvalspiki verður lýs- ið ódrjúgt vegna sápumyndunar, froðan vell- ur út úr bræðslupottinum. Þá er ekki úr vegi að minnast á, að orðið hvalablástur merkir ekki aðeins „blástur hvala“, heldur er orðið einnig notað í mynd- hverfri merkingu um „mikinn blástur, mik- inn hávaðá'. A þessari öld hefir orðið til orötakið að taka einhvern á hvalbeiniö, einnig í mynd- inni taka einhvern á beinið. Þetta merkir „að taka einhvern til yfirheyrslu og áminningar". Sú saga liggur til þessa, að Sigurður Guð- mundsson skólameistari hafði hvalbein á skrifstofu sinni. Upp kom sá kvittur, að Sig- urður léti nemendur, sem til yfirheyrslu voru, sitja á hvalbeininu, meðan hann læsi þeim pistilinn. Enginn fótur var þó fyrir þessu, en skólafólk í MA vildi gjarna hafa þetta fyrir satt, og því var það kallað að fara á hvalbeinið (beinið) eða vera tekinn á hval- beinið (beinið), þegar einhver var kallaður fyrir skólameistara. Síðan hefir þetta dreifzt út frá MA. HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA? GUÐMUNDUR JÓNSSON STARFSMAÐUR I HLJÓMPLÖTUVERSLUNINNI STEINAR, GLÆSIBÆ „Ég verð að vinna til klukkan fjögur á laug- ardaginn. I sumar lék ég með hljómsveit Siggu Beinteins í Broadway um hverja helgi og þess vegna er öruggt að ég fer ekki í Broadway til að skemmta mér! Ef ég fer á ball verður Borgin sennilega fyrir valinu en ég hefekkert farið út að skemmta mér í allt sum- ar og nota líklega tœkifœrið núna. Að öðru leyti er helgin óráðin. Ætli ég reyni ekki aö slappa eitthvað af og svo fer ég á œfingar með nýrri hljómsveit sem er að fœðast um þessar mundir. Það fara flestöll kvöld og helgar í œfingar og þessi helgi verður engin undantekning." STJÖRNUSPÁ HELGIN 18.-20.9. HRUTURINN 121/3-20/4 Taktu enga áhættu á næstunni varðandi fiármál. Einkum skaltu varast að fjárfesta i dýrum hlutum. Nú er rétti tíminn til að breyta til og farðu eftir innsæi þínu í þeim efnum sem öðrum. Ástamálin eru við- kvæmog þú verðuraðtaka ákvörðun um hvernig þú ætlar að láta þau þróast. Það gerist ekki af sjálfu sér. Njóttu þeirra breytinga sem verða í lífi þínu þessa dagana. Það er óþarfi að hafa áhyggjur, jafnvel þótt þínum nánustu finnist þú of kærulaus varðandi mál- efni. Þú þarft að koma skoðunum þinum til skila og skalt gera það, jafnvel þótt þú þurfir að notfæra þér ákveðna persónu i þeim tilgangi. Fjárhagsstaða þín fer batnandi. TVÍBURARNIR (22/5-21/6! Núna, þegar öllum áhyggjum varðandi heimilislifið hefur verið af þér létt, er rétti tíminn til að endur- skipuleggja lífið. Þú veist nokkuð vel hvar þér hefur mistekist og ætti ekki að verða skotaskuld úr að bæta það sem þarf. Gerðu þér grein fyrir óskum þin- um og skipuleggðu út frá þeim. Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. KRABBINN (22/6-20/71 Enn einu sinni gerirðu þau mistök að eyða um efni fram. Þú ætlar seint að læra en í þetta skipti geturðu beðið með ákveðnar framkvæmdir sem munu kosta þig stórfé. Þótt þér bjóðist freistandi starf sem gefur af sér góðar tekjur ættirðu að hugsa þinn gang vel. Það er ekki allt gull sem glóir. Þér líður óvenjulega vel um þessar mundir enda hef- urðu tamið þér að líta framhjá vandamálum sem þú veist að þú getur ekki leyst á þessari stundu. Allir vilja vera vinir þínir en framtiðarsambandið sem þú óskar eftir virðist ekki í sjónmáli. Þú rekur þig einnig á að fólk sem þú treystir á að fá stuðning frá bregst þér, jafnvel þótt þú eigir aðstoð inni hjá þeim. Um þessar mundir ertu ekki í nokkurri aðstöðu til að segja fólki fyrir verkum. Sýndu þolinmæði því það líður ekki á löngu þar til fólk uppgötvar hæfileika þína. Þótt eitthvað haf i valdið þér miklum vonbrigð- um nýlega og þú sért enn í sárum veistu innst inni að þú ert á réttri braut. Það er betra að standa einn en treysta á einhvern sem er ekki þess virði. Vinur þinn leitar eftir aðstoð þinni, sennilega varð- andi peningamál. Sýndu ákveðni í þetta eina skipti, því aðstoðin á ekki eftir að leiða gott af sér. Þér veitir enda ekkert af peningunum um helgina þvi hún á eft- ir að verða þér kostnaðarsamari en þú gerðir ráð fyrir. Þú kynnist nýrri hlið á persónu sem hefur verið þér kunnug árum saman. SPORÐDREKINN (23/10-22/11 Einhver reynir að hindra að þú náir fram markmiðum þínum. Þú verður uppstökkur af þessum sökum en ekki er æskilegt að þú beitir ákveðni í þessu tilviki. Slakaðu á kröfunum og þá mun vel fara. Þér eldri per- sóna sýnir velvilja sem kemur þér á óvart. Það er lík- legt að þú farir í stutt ferðalag á sunnudaginn sem hressir upp á skapið. BOGMAÐURINN (23/11-21/12 Allt bendir til að síðustu dagarnir í september verði þér fremur erfiðir og það verður krafist mikils af þér. Ástvinur þinn er einmana vegna starfs þíns og þú verður að beita sterkum rökum til að halda áfram á þeirri braut sem þú hefur kosið. Með örlitlum skiln- ingi og þolinmæði ætti þér að takast að komast hjá alvarlegu ósamkomulagi. STEINGEITIN (22/12-21/1 Vandamál skýtur upp kollinum en það er ekki eins alvarlegt og lítur út fyrir í fyrstu. Þú ættir að sinna fjölskyldunni af kostgæfni enda hefur þér gefist lítill tími til þess að undanförnu. Einhver þér kærkominn særir tilfinningar þínar. Það er ekki með vilja gert og þú verður að muna að fleiri eru í heiminum en þú. VATNSBERINN (22/1-19/2 Ákvörðun sem þú tekur verður tilefni til afskiptasemi vina þinna. Svo virðist sem þeir álíti að þú sért að flýja af hólmi og gera h vað þeir geta til að stöðva þig. Þú skalt halda þínu striki enda munu þessir vinir skipta um skoðun þegar þeir sjá hvað breytingarnar leiða af sér. Varaðu þig á að draga rangar ályktanir og gerðu ekki of miklar kröfur til annarra. FISKARNIR (20/2-20/3; Nú reynir á hæfileika Fiskanna vilji þeir ekki láta kaf- færa sig af þeim sem eru óreyndari. Þú veður i óvissu varðandi framtíðina og verður að taka þig á, viljirðu ekki láta spilla heilsunni. Þótt allt virðist hafa gengið þér í haginn upp á síðkastið ke mur einhver afturkipp- ur næstu dagana. Það er undir sjálfum þér komið hversu lengi óviðunandi ástand varir. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.