Helgarpósturinn - 17.09.1987, Side 33

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Side 33
E^ki er ráð nema í tíma sé tek- ið. Knattspyrnufélögin í öllum deildum eru strax farin að huga al- varlega að þjálfaramálum sínum fyrir næsta sumar. Náttúrlega fjúka flestir þeir þjálfarar sem náðu léleg- um árangri en hinir sem fögnuðu betra gengi fá væntanlega meira kaup. KR-liðið í Vesturbænum stóð alls ekki við gefin fyrirheit í sumar, þrátt fyrir góðan mannskap og ágætis frammistöðu framan af móti. Hneigjast margir til að kenna Gordon Lee, Breta sem þjálfað hef- ur liðið í þrjú ár, um. Hann vanti hörku, hann hafi ekki nógu góðan aga á mannskapnum, en þó láist honum fyrst og fremst að blása keppnisanda og baráttu í leikmenn. Því er talið líklegt að Lee taki pok- ann sinn, enda þótt hann hafi kennt KR-ingum að spila skemmtilegri knattspyrnu en sést hefur í Vestur- bænum um árabil. Þær raddir heyr- ast að arftaki hans verði enginn annar en Hólmbert Friðjónsson, sem áður hefur þjálfað KR, en líka Fram og Keflavík. Hólmbert þykir með afbrigðum grimmur og harður þjálfari og sagt að þótt lið undir hans stjórn vinni aldrei meistara- titla, þá fari hann létt með að skila miðlungsliðum efsta hluta deildar- innar og í Evrópukeppnir. Hins veg- ar getur verið að KR-ingar setji það fyrir sig að lið undir stjórn Hólm- berts þykja hvorki spila skemmti- lega né áferðarfallega knatt- spyrnu . . . c stendur eru hátt í tuttugu evrópskir blaðamenn á ferð um Bandaríkin i boði menningarstofn- ana Bandaríkjanna í nokkrum Evr- ópulöndum. Um er að ræða hálfs- mánaðarferð og verður blaða- mönnum kynnt það sem efst er á baugi á hernaðarsviðinu þar í landi — og ekki er það lítið. Einn ís- lenskur blaðamaður er í ferðinni, Ingólfur Margeirsson, ritstjóri Alþýðublaðsins, og er það mikil upphefð fyrir Ingólf að hafa verið kosinn til þessarar ferðar — eða þannig... l^ins og margir vita er álagning á Coca Cola frjáls hér á landi. Drop- inn getur hins vegar orðið nokkuð dýr, gleymi fólk að versla inn til helgarinnar. Þannig kostar eins og hálfs lítra kókflaska út úr verslun 98 kr. — en í nætursölu BSÍ ,,aðeins“ 180 krónur. Þetta er ekki nema eitthvað nálægt 85% álagning ... HAUSTLAUKARNIR KOMNIR Geysilegt úrval af ýmsum tegundum t.d. garðhýasintur, jólatúlípanar liljur, krókusar, jólahýasintur. SENDUM UM ALLT LAND OPIÐ 10-22 ^^^lóTnaslíálinri Nýbýlavegi 14, á horni Nýbýlavegar og Audbrekku. Sími 40980. OPNUNARTILBOÐ 4 20 TOMMU SAMSUNG LITSJONVARRSIÆKI MEÐ ÞRAÐLAUSRI FJARSTYRINGU FYRIR AÐEINS KR. 33.900 Monitor útlit Tvöfalt hátalarakerfi Sjálfvirkur stöðvarleitari 48 rásir 6 stöðva minni Heyrnartólsútgangur Bein vídeótenging (monitor eiginleikar) Hlífðargler fyrir skermi JAPISS BRAUTARHOLT 2 KRINGLAN SiMI 27133 HELGARPÓSTURINN 33 jurii sf.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.