Helgarpósturinn - 17.09.1987, Side 34

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Side 34
DAGSKRÁRMEÐMÆLI Föstudaginn 18. september kl. 20.40. Á einum klukkutíma fá unn- endur kvikmyndalistarinnar smáinn- sýn í þaö sem í boöi er á Kvikmynda- hátíð Listahátíðar. Efni bíómyndar kvöldsins er at- hyglisvert. Myndin, Arftakinn (The Chosen), gerist skömmu eftir siöari heimsstyrjöld, en þá var Ísraelsríki stofnaö. Ólikar skoðanir feðra tveggja gyðingspilta stofna vináttu drengjanna í hættu. Laugardaginn 19. september kl. 16.00 hefst spænskukennsla á ný. Fyrst verður upprifjun á fyrra efni en síðan hefst ný þáttaröð. Bíómyndir kvöldsins eru tvær. Sú fyrri, Glaðbeittar gengilbeinur (The Harvey Girls), hefst kl. 21.25. í aðal- hlutverkum eru þokkadísirnar Judy Garland og Angela Lansbury. Seinni biómynd kvöldsins, Stríðsrakkar (Dog Soldiers), hefst kl. 23.05. Aðal- hetjan er stríðsfréttaritari sem leik- inn er af Nick Nolte. Hann reynir að smygla heróíni heim til Bandaríkj- anna að loknum hildarleiknum í Víetnam. Lofar góðu. Hin sígilda kvikmynd Akira Kurosawa, Rashomon, verður sýnd sunnudaginn 20. september kl. 16.30. Það má eng inn missa af þessu gullkorni kvikmyndanna. Sunnudaginn 20. september kl. 17.05 fáum við að kynnast myndun flókinna tilfinningatengsla hjá ung- börnum í þættinum Unduralheims- ins (Nova). Er hægt að komast fyrir vandamál á tilfinningasviðinu síðar á ævinni með fyrirbyggjandi aðgerð- um? Góð mynd fyrir borgarstjórann. Um kvöldiö kl. 22.05 hefst siðan framhaldsmyndaflokkur í sex þátt- Nick Nolte leikur aöalhlutverkiö í seinni laugar- Þarfasti þjónninn í myndinni Ást í austurvegi á dagsmynd sjónvarpsins „Hvar faldi ég nú Stöð 2 sunnudaginn 20. september kl. 22:05. aftur... áíf um, Ástir í austurvegi (The Far Pavil- lions). Ástarsaga með svikum, prett- um og hetjudáðum. Aðalhlutverkin eru í góðum höndum þeirra Bens Cross, Omars Sharif og Johns Giel- gud. Lofar góðu. Þriðjudaginn 22. september kl. 23.25 leikstýrir Jack Nicholson sjálf- um sér og John Belushi í myndinni Haldið suður á bóginn (Goin' South). Gamansamur vestri. Hjóna- bandið bjargar mörgu! wmmmmmm 19.19 1 kvöld hefst nýr þáttur í sjón- varpsmálum landsmanna. Fréttaþyrstir ættu að verða ánægðir. Þá hefur göngu sína fréttamagasín á Stöö 2. Frétta- þátturinn hefur fengið nafnið 19.19, en það er sá tími sem hann hefst á hverju sinni. „Þetta verða fréttir og frétta- tengt efni. Þátturinn verður byggður á fréttum dagsins, fréttaskýringum og umfjöllun um menningu og listir. Þetta verður ekki fyrirfram unnið eins og Kastljós sjónvarpsins, © í kvöld, fimmtudag 17. septem- ber, kl. 20.00 heimsækjum við land kondórsins, Bólivíu, með leiðsögn Ara Trausta Guðmundssonar. Örugglega skemmtilegt og fræðandi ferðalag. Skömmu síðar eða kl. 23.00 kynnumst við arabískri tónlist. Spennandi. kannski eitt slíkt innslag. Þetta verður önnur blanda og meira beint. Hugmyndir að þessum þætti eru dregnar að víða og reynsla okkar hér nýtist að auki. Öll stöðin verður undir- lögð við þetta og við munum einnig fá utanaðkomandi gagnrýnendur til liðs við okk- ur,“ sagði Helgi Pétursson um- sjónarmaður 19.19. Honum til aðstoðar við kynningu verður Valgerður Matthíasdóttir og svo Páll með fréttirnar á sínum stað. - JGG Föstudaginn 18. september kl. 19.30 leitum við svara við spurning- unni hvort suðurlandsskjálftinn á upptök sín á Reykjanesi. Við skulum skreppa í Náttúruskoðun með Sveini Jakobssyni jarðfræðingi. Fyrir foreldra skólabarna er rétt að benda á athyglisverðan þátt um skólabyrj- un, en hann kemur frá Akureyri sunnudaginn 20. september kl. 8.35. Drífið ykkur nú einu sinni snemma fram úr. Fyrir þá sem vilja vera „in", eða þannig, má benda þeim hinum sömu á tískuþátt Katrínar Pálsdóttur fimmtudaginn 17. september kl. 22.05. Þeir sem ætla Út á lífið ættu að hlusta á Andreu Jónsdóttur laug- ardagskvöldið 19. september kl. 22.07. Tónlist og fleira hnossgæti. Annars er allt við það sama á rásinni, létt tónlist og rokkbomsa. Laugardaginn 19. september kl. 15.00 byrjar Pétur Steinn að kynna 40 vinsælustu lög vikunnar en úrval þeirra má síðan hlusta á og virða flytjendur fyrir sér á Stöð 2 eftir kvöldfréttirnar. Hressum upp á til- veruna og bregðum okkur í Óláta- garð með Erni Árnasyni spaugara sunnudaginn 20. september kl. 13.00. Laugardagsljónið lífgar upp á daginn ki. 10.00 laugardaginn 19. september. Kristján söngvari kemur í heimsókn til Randvers í Stjörnu- klassik sunnudagsins 20. septem- berkl. 21.00. Tónlistin ífyrirrúmi eins og vanalega. ÚTVARP eftir Jón Gunnar Grjetarsson Umferðarútvarpssaga SJÓNVARP Enn um ofnotkun Sumarið er að baki og grámóska hausts- ins hefur tekið við. Litadýrð trjágarðanna læðist fram og við fáum að njóta fjölskrúð- ugra laufblaða í andarslitrunum, en sú dýrð stendur ekki lengi. Áður en varir standa trén eftir í allri sinni nekt. Dagurinn styttist og skammdegið hellist yfir. Upp að hlið mér skýst hvítur sportbíll. „Kappakstursbíll," segir sonur minn, en ég neita. í útvarpinu má heyra fréttamann segja frá alvariegu umferðarslysi gærdags- ins. „Gáleysislegur akstur er orsök flestra umferðarslysa," segir viðmælandi frétta- mannsins. Hvíti sportbíllinn brunar nú fram úr mér, bætir tveimur bílum til viðbót- ar fyrir aftan sig og er kominn að rauðu ljósi. Þar verður hann að snögghemla. „Það verður að draga úr umferðarhraðan- um,“ heyrist sagt í fréttunum. Ökumaður sportbílsins trommar með fingrunum á stýrið og höfuð hans hvílist á öxlunum til skiptis, í takt við tónlist. Tón- listin hefur tekið við að loknum fréttum og ég færist í annarlegt ástand. Gleymi stund og stað. „Ég skal sýna þessum drjóla," hugsa ég með mér. Kitla pinnann rækilega og fyrir aftan mig stígur hvítur reykur til himins þegar ég æði af stað við græna Ijós- ið. Ég hækka útvarpið og er búinn að gleyma litla farþeganum mínum. „Pabbi, erum við á kappakstursbíl?" Ég slæ snar- lega af. Hvað var ég eiginlega að hugsa? „Það má ekki keyra hratt. Það er hættu- legt,“ heyrist sagt fyrir aftan mig. Ég lækka í útvarpinu og skipti um rás. Kemst inn í raunveruleikann á ný og önnur ljós fram- undan. „Kappakstursbíllinn komst yfir pabbi. Má hann keyra svona hratt?“ Ég dreg seiminn þegar ég segi langt og hægt neeeiii. Rigningin er farin að banka á framrúð- una og þurrkurnar eru settar í gang. I út- varpinu er sungið angurvært um eirðar- lausan vind og suðræðna pálmalundi. Ég verð dreyminn og Ijósastaurinn breytist í pálma fyrir framan mig. Mér var kippt inn í raunveruleikann á ný þegar ég hrökk við við rödd sonarins: „Pabbi, slökktu bara á útvarpinu." I síðustu viku reit ég pistil fyrir þennan sjónvarpsþátt blaðsins. Hann fjallaði um of- notkun sjónvarpsmanna á tilteknum sjón- varpsfréttamönnum, þeim Ómari Ragnars- syni og Sigrúnu Stefánsdóttur. (Að auki minntist ég lítillega á að mér þætti frétta- flutningur Ómars vera ansi hreint undar- legur oft á tíðum.) Þegar ég var búinn með þennan pistil fór ég niður á Laugardalsvöll og horfði á íslenska knattspyrnumenn vinna einskonar varnarsigur á norskum kollegum sínum. Þessi leikur var eiginlega ekki mjög fyrir augað, íslendingarnir virt- ust á stundum ekki vita á hvort markið þeir ættu að sækja, sem var undarlegt, því í þau tvö skipti sem þeir komust að marki and- stæðinganna gerðu þeir mark og fögnuðu því ákaft. Hvað um það. Þegar ég kom heim af vellinum, kaldur nokkuð, kveikti ég á sjónvarpinu. Það voru fréttir, ég nennti ekki að horfa á þær og veit þess vegna ekki hvort Sigrún Stefánsdóttir las þær eða ekki. Hitt veit ég, vegna þess að ég náði ekki að slökkva, að Ómar Ragnarsson var þar. Hann var að segja sjónvarpsáhorfend- um að það væri ekki bílnum að kenna að slys yrðu í umferð. Þetta var mjög merki- legt og undarlegt að menn skuli ekki hafa komist að þessari niðurstöðu fyrr. Til skýr- ingar gekk Ómar á gangstéttarbrún og spurði síðan áhorfendur hvort þeir héldu að þetta hefði verið að kenna skónum sem hann klæddist. Þetta var bara býsna vel leikið hjá títtnefndum Ómari, hann var svona næstum dottinn — samt ekki alveg — enda ekki hægt að fara fram á við frétta- menn á þessu kaupi að þeir fórni lífi og lim- um fyrir fréttina. Ég hef síðan hugsað nokkuð um þessa frétt, tilurð hennar og til- gang. Eftir þá umhugsun hef ég komist að eftirfarandi niðurstöðu sem hér birtist i fimm liðum. 1) Fréttastofuna vantaði efni í fréttatímann. 2) Fréttastofan taldi Ómar hafa gert merka uppgötvun með því að sýna fram á að bílar, einir sér, yllu ekki umferðarslysum og skóm væri ekki um að kenna að menn gengju á gangstéttarbrúnir. 3) Fréttastofan taldi sig vanta létt efni í fréttatímann og hver er þá betri en Óm- ar? 4) Fréttin sem Ómar átti að vera með hefur fallið og þess vegna hefur fréttastjórinn aumkað sig yfir hann og leyft birtingu á einhverju öðru. 5) Fréttastofan hefur af einhverjum sökum ekki talið að almenningur (lýðurinn) gerði sér grein fyrir því að bílar keyrðu ekki sjálfir, né því að skór stjórnuðu ekki ferðum manna. Lesendur geta valið þá skýringu sem þeir telja réttasta en geta síðan sjálfir velt fyrir sér fréttagildi viðkomandi fréttar. Ef þeir hinsvegar leiðast inn í það völundar- hús er það á eigin ábyrgð. Hér er nóg komið um þessa frétt, enda vafasamt að eyða öðru eins plássi á jafn lit- ilsigldan atburð. Þegar fréttunum var svo lokið byrjaði spurningaþáttur — í umsjón Ómars Ragnarssonar. Um miðbik þáttarins kallaði hann til sín gest. Átti við hann stutt spjall og gesturinn bar fram spurningar. Viðkomandi gestur var — Sigrún Stefáns- dóttir. 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.