Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 28
28 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Aston Villa með nýjan fr'amkvæmdastjóra Brian UttJe tekur við liðinu Brian Little var á föstudag ráð- inn framkvæmdastjóri enska úr- valsdeildarliðsins Aston Villa, og tekur hann við af Ron Atkinson sem var rekinn fyrir skömmu. Little hætti sem framkvæmdastjóri Leic- ester fyrr í vikunni sökum óánægju í starfi. Leicester tók þessum frétt- um illa og hótar nú að stefna Aston Villa fyrir dómstóla. I yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að það hafi fengið skriflega yfirlýsingu frá Little þess efnis að hann yrði ekki næsti framkvæmdastjóri Villa. Lögfræð- ingar Leicester eru þegar byrjaðir að undirbúa málsókn.B Formula í kappaksturinn Hugsan- legar reglu- breytingar ádöfínni Nú er talið hugsanlegt að nýjar reglur verði kynntar í Formula t kappakstrinum áður en næsta keppnistímabil hefst. Þær eiga að koma í veg fyrir árekstra í loka- keppninni, líkt og gerðist í haust, er tveir efstu keppendurnir, Michael Schumacher og Damon Hill, rák- ust saman í lokakeppninni með þeim afleiðingum að Hill missti af titlinum og Schumacher varð sig- urvegari. Það atvik vakti upp deilur og var mikið skrifað um málið á sínurn tíma. Meðal annars leiddu sum blöðin líkum að því að Schu- macher yrði sviptur titlinum í kjöl- far atviksins.B Paul Gascoigne á leið í enska boltann? Segist vilja vera áfram áfíaiíu Enski miðvallarleikmaðurinn Paul Gascoigne ber til baka sögu- sagnir þess efnis að hann sé á leið frá ítalska liðinu Lazio. Fyrir viku síðan var haft eftir honum í sjón- varpsviðtali að hann gæti vel hugs- að sér að fara aftur í ensku úrvals- deildina, jafnvel þótt hann eigi tvö ár eftir af samningi sínum hjá Lazio. „Ég hef aldrei sagst vilja fara frá Lazio,“ sagði Gascoigne við fréttamenn er þetta var borið upp við hann. Hann hefur ekki leikið með liði sínu síðan hann fótbrotn- aði í apríl, og ekki er búist við að hann leiki fyrr en í mars á næsta ári.H ÍR-ingar hafa verið lítt áberandi í körfuknattleik síðustu ár og hafa ekki unnið titil 1 hartnær tvo áratugi. Það sem af er vetrar hefur liðið komið mjög á óvart og virðist ætla að vera í baráttu um titilinn í ár. Rafn Marteinsson rifjaði upp hin gömlu gullaldarár ÍR-inga og velti fyrir sér, með aðstoð góðra manna, hvort von væri á annarri slíkri. NýgtmoU mvændum landslið Islands á þessum tíma og hefur verið kallaður „faðir“ nútíma körfubolta hér á landi, enda eru menn sammála því að líf hans snú- ist um körfubolta. Helgi man vel eftir þessum tíma: „Þetta var alveg ógleymanlegt tímabil. Maður lifði og hrærðist í körfuboltanum og hugsaði ekki um annað. ÍR-liðið kom geysisterkt upp í kringum í 1960 og hafði þó nokkra sérstöðu. Við höfðum mikla yfirburði yfir önnur lið og á tímabili var orðið formsatriði að spila leikina, svo sig- urvissir voru menn. Þetta var orðið svo einhliða að menn voru hættir að komast í keppnisstuð. 1964 fóru margir góðir IR-ingar yfír í KR, leikmenn eins og Einar Bollason og Kolbeinn Pálsson, og þá var allt í einu komin mikil sam- keppni milli lið- anna. Allt voru þetta leilc- menn, sem ég hafði þjálfað sem ÍR-inga. Þessi aukna samkeppni var til góðs fyrir íþróttina því þá var komin meiri breidd en áð- ur í boltann.“ Framtíðin er þeirra Lið IR í dag er skipað úrvalsleikmönnum og nægir að nefna nöfn eins og Herbert Arnarsson, Jón Örn Guðmundsson og John Rhodes, en hann þjálfar einnig lið- ið. ÍR-ingum hefur gengið vel og Herbert Arnars- son. Er hann burðarásinn í nýju gullaldarliði ÍR- inga? stefnir allt í öruggt sæti í úrslita- keppninni. En eiga þeir raunhæfa möguleika á að verða meistarar í ár? Því svarar Kolbeinn Pálsson, formaður Körfuknattleikssam- bands Islands: „Mitt sjónarmið er að það verður erfitt fýrir þá að vinna í ár. Njarðvík og Grindavík eru með bestu liðin og það verður harðsótt fyrir ÍR að vinna þau, en í körfubolta getur allt gerst og því alltaf möguleiki. Úrslitakeppnin er þannig gerð upp að það er heildar- styrkur liðanna sem skiptir sköpum þegar upp er staðið. Leikirnir eru margir og sterkustu liðin eru þau, sem ná sem flestum góðum leikj- um. ÍR-ingar eiga marga erfiða leiki fyrir höndum og það verða allt úr- slitaleikir í ljósi þess hversu mikil- vægt það er að ná einu af efstu sæt- um riðilsins. Þeir eru í B-riðli, sem er erfiðari riðillinn, og ef þeir enda neðarlega í honum, geta þeir alveg eins fallið út í fyrstu umferð, því ef- laust munu Njarðvíkingar leika við neðsta lið hins riðilsins. Ég spái ÍR- ingum í fjögurra liða úrslit.“ Er nýgullöld ÍR-inga í vœndum? „Ég hef fylgst töluvert með þess- um ungu leikmönnum hjá IR, eins og Eiríki Önundarsyni, Márusi Arnarsyni, og Halldóri Krist- mannssyni. Þetta lið var sigurlið frá yngsta aldursflokki og upp úr, og ef rétt er á málum haldið þá þarf það ekki að óttast framtíðina. Þá er Körfuknattleiksdeild IR er mjög vel stjórnað, framkvæmd heimaleikja liðsins er alveg einstök, og mikið lagt upp úr því að fá góða aðsókn. Með þessu áframhaldi á IR effir að verða stórveldi í íslenskum körfu- bolta. Framtíðin er þeirra.“ -RM Kolbeinn Pálsson „Ég spái því að þeir nái í fjögurra liða úrslit." ÍR-ingar hafa verið óstöðvandi í körfunni það sem af er yfirstand- andi keppnistímabili og hafa unnið hvern leikinn á fætur öðrum. Langt er síðan liðinu hefur gengið eins vel og nú, og menn spyrja sig hvort ný gullöld sé í vændum, svipað og fýr- ir eins og 30 árunt eða svo, er Iiðið varð Islandsmeistari fimm ár í röð, 1960-1964, og síðan aftur 1969-1973. Með gullaldarliði ÍR gerbreyttist körfuboltinn hér á landi og tala menn um að hér hafi verið á ferð fyrsta alvöru körfuboltalið Islend- inga. Liðið beitti nýrri tækni, sem ekki hafði sést hér á landi áður, og varð það til þess að það fékk litla sem enga keppni. Voru leikmenn þess fyrirmyndir margra annarra körfuboltakappa. Það var ekki fýrr en KR-ingar komu sterkir upp, 1964, að iR-liðið fékk einhverja samkeppni. KR varð Islandsmeist- ari 1965-1968 og voru þessi tvö lið í sérflokki á Islandi. Það þarf því vart að taka það fram að landslið Islands í körfubolta á þessum tíma var nær eingöngu skipað leikmönnum KR oglR. Faðir nútíma körfubolta Á fyrrnefndu gullaldarskeiði léku með IR leikmenn eins og Þor- steinn Hallgrímsson, Agnar Friðriksson, Guðmundur Þor- steinsson, Hólmsteinn Sigurðs- son og Helgi Jóhannsson, en hann var þjálfari liðsins auk þess að leika með því. Hann þjálfaði einnig Helgi Jóhannsson „Við höfðum mikla yfirburði yfir önnur lið og á tímabili var orðið formsatriði að spila leikina." lþróttasamband fatlaðra og Ás- geir Sigurðsson h/f hafa gert með sér samning um stuðning fýrirtæk- isins við íþróttasambandið vegna þátttöku fatlaðs íþróttafólks á stór- mótum næstu tvö árin. Tilefnið er hundrað ára afmæli fýrirtækisins á næsta ári og hefur verið ákveðið að verja 5% af allri sölu á Lux snyrtivörum fram yfir áramótin 1995-1996 til hreyfingar- innar. Varlega áætlað ætti sú þár- hæð að nema þremur milljónum króna. Við undirritun samningsins þakkaði Ólafur Jensson, formað- ur sambandsins stuðninginn og sagði framlagið ómetanlegt til frek- John Aikman forstjóri Ásgeirs Sigurðssonar h/f og Ólafur Jensson handsala samninginn um stuðnlnginn við fatlað íþróttafólk. ari árangurs iðkenda. Skorri fordæmi þannig að vel væri stutt Andrew Aikman, sölustjóri fýrir- við fatlað íþróttafólk sem sífellt tækisins, sagði að samningurinn væri að vinna til verðlauna erlend- ætti að gefa öðrum fýrirtækjum is. -Bih Nýsljóm íþrottsfijjálfam Ný stjórn var kjörin í félagi frjálsíþróttaþjálfara á aðalfundi félagsins hinn 17. nóvember. Stefán Jóhannsson var kjörinn formaður félagsins og aðrir í stjórn voru kjörnir Helgi Þór Helgason, Gunnar Páll Jóa- kimsson, Rakel Gylfadóttir og Hlynur Guðmundsson. Á fundinum urðu miklar um- ræður um nýja strauma og stefn- ur í frjálsíþróttaþjálfun í Evrópu. Mikill áhugi kom fram hjá fund- armönnum á því að félagið beiti sér fyrir því að afla námskeiða og fyrirlestra þekktra þjálfara úr frjálsíþróttaheiminum á næst- unni og var samþykkt bókun þess efnis. ■ Stórveldið Manchester United í fjárkröggum Stærri stúka eða endur- uppbygging liðsins Ensku meistararnir Manchester United tilkynntu á föstudag hagn- að upp á 10,8 milljónir punda, fyr- ir skatta, en eru engu að síður uggandi yfir fjármálum sínum þessa dagana. Á árlegum hlut- hafafundi kom meðal annars fram að þeir gætu þurft að hækka miðaverð á heimaleiki til að fjár- magna áætlanir um að stækka áhorfendstúkuna á Old Trafford þannig að hún taki yfir 50 þúsund áhorfendur í stað 44 þúsund, eins og hún tekur í dag. Þá vantar einnig fjármagn til að fá nýja enska leikmenn í liðið í kjölfar út- lendingareglunnar sem gildir í Evrópuleikjum liðsins. Þá mega þeir aðeins nota þrjá „útlendinga" og kemur það illa við liðið þar sem það er með hátt hlutfall er- lendra leikmanna. Þannig þarf fé- lagið að velja á milli þess að stækka stúkuna og endurupp- byggingar liðsins. I nýlegri skýrslu kemur fram að leikmenn Manc- hester United eru metnir á sam- tals um 35 milljónir punda. Inni í þeirri tölu eru kaup liðsins á varn- armanninum David May sem keyptur var til liðsins frá Black- burn ekki alls fyrir löngu.B

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.