Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN MENNING 25 Tríóið Unun var að gefa frá sér diskinn 5>Æ“ sem hefur hlotið lofsamlega dóma. Frontari hlj ómsveitarinnar er hörku rokktútta, sem heitir Heiða. Þrátt fyrir ungan aldur á hún fjöl- skrúðugan feril að baki í hljómsveitar- mennsku og sem trúbador. Unun samanstendur af þeim Pór Eldon, Gunnari L. Hjálmarssyni og Heiðu Eiríksdóttur. Þór og Gunnar eru gamalreyndir í rokk- inu, en Heiða er ekki eins þekkt. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir frísklega sviðsframkomu, en hún lemur stoðgítar af miklum móð og syngur hástöfum. Heiða er greini- lega enginn nýgræðingur í rokkinu, enda kemur í ljós að hún á litríkan feril að baki. MORGUNPÓSTURINN náði tali af henni upp úr hádegi á föstudegi en þá var hún að rísa úr rekkju, enda var hún í hörku út- gáfupartýi í Keflavík nóttina áður. Þetta partý var að sjálfsögðu að undirlagi sjálfs Rúna Júl, guðföður rokk & rolls á íslandi. Heiða, sem er tuttugu og þriggja ára, hóf ferilinn sextán ára. Hún byrjaði eins og margur góður á því að bjarga sér ókeypis inn á útihátíð með því að stofna hljómsveit og taka þátt í hljómsveitakeppni. „Mig og nokkra félaga mína langaði til að komast ókeypis inn á verslunarmannahelgarhátíð, sem haldin var í Húsafelli. Þeir sem tóku þátt í hljómsveitakeppninni þurftu ekki að borga sig inn á svæð- ið. Við settum því sarnan hljóm- sveit, sem við kölluðum „Candy- man“, tókum tvær æfmgar í skáta- húsinu í Keflavík og mættum á svæðið. Candyman var undanfari hljómsveitarinnar Útúrdúr, en það var meiri alvara að baki hennar: Við tókum þátt í Músíktilraunum, vorum með myndband í Önnum og appelsínum fyrir hönd Fjöl- brautaskóla Suðurnesja og eitthvað svoleiðis en þetta er um 1987-88.“ Heiða er sem sagt Keflvíkingur, sem hlýtur að teljast sterkt bakland í poppheiminum, en árið 1989 fór hún utan til Frakklands sem skipti- nemi. Hún var varla lent þegar hún var búin að koma sér í spila- mennsku. „Fyrsta skóladaginn minn hitti ég gítarleikara, sem sat við hliðina á mér í þýsku. Honum leiddist greinilega mikið og við komumst fljótlega að þessu sameiginlega áhugamáli, sem var tónlistin. Hljómsveitina, sem hann var í, vantaði söngkonu og ég fór að ota mínum tota og spurði hvort að ég mætti ekki bara prófa. Það fékk ég og var ráðin. Við fórum að spila út um allt og gáfúm út spólu, en þetta var algjört neðanjarðarband þannig lagað, þó að hljómsveitin héti „So- mething else“. Heiða var, eins og lög gera ráð fyrir (þegar skiptinemar eru annars vegar), í eitt ár úti í Frakklandi. Þegar hún kom heim fór hún í hljómsveit, sem kallaði sig furðu- legu nafni. „Emm A A Té mons, Enn eins og í Nanna.“ „Maatmons“? „Já. Við spiluðum á nokkrum tónleikum. Eina manneskjan, sem er eitthvað þekkt í því bandi, olli mér miklum vonbrigðum en það er trommuleikarinn í „Vinum vors og blóma“. Ég hata Vini vors og blóma, þú mátt alveg skrifa það. Ég skammast mín ekkert fyrir að láta hafa það eftir mér. Hann var æðis- legur í Maatmons en síðan hefur leiðin legið niður á við hjá honum.“ Heiða fór aftur út til Frakklands, til Marseilles þar sem hún þekkir fullt af fólki. Hún reyndi að fá sér sumarvinnu, en það gekk ekki að fá atvinnuleyfi vegna þess að Island er ekki í ESB. „Til að redda því að þurfa ekki að fara heim þá ákváðum við í „So- mething else“ að gera gott úr ástandinu og æfðum upp rokk- ný- bylgjublandað prógramm með „co- ver-lögum“ eftir „Cure“, „Smiths“, „Ú2“ út í „Rolling Stones“ og „Hendrix“ auk frumsamins efnis. Við fengum ágætis díl, vorum að spila í níu vikur á sama barnum og fengum 1.000 franka fyrir kvöldið.“ Heiða vill þó ekki skrifa undir það að hún hafi verið orðin ffæg at- vinnumanneskja í frönsku poppi. „Nei, við vorum ekkert fræg. Það voru kannski 300 manns sem vissu um okkur en þetta var skemmtilegt og fastur kjarni sem mætti.“ Heiða kom aftur heim og tók til við að klára framhaldsskólann í Keflavík. Hún var pirruð vegna þess að það var ekkert að gerast í tónlistinni, en eftir árið er hringt í hana. „Það voru menn í Reykjavík sem höfðu séð mig í Maatmons og vildu fá mig í hljómsveitina „Sovkhoz“, (annað erfitt hljómsveitarnafn — Ess, O, Vaff...) en nafnið þýðir rík- isrekið samyrkjubú. Við spiluðum nokkru sinnum opinberlega. Auk þess kom ég fram með hljómsveit- inni „Texas Jesus", en kærastinn minn er söngvari í henni. Þar söng ég eitt lag og kom fram sem upphit- unarnúmer: trúbadorinn Heiða.“ Heiða leggur á það þunga áherslu að Texas Jesus sé ekki sama hljómsveitin og „Quicksand Jesus“. Texas Jesus er eldri hljómsveit þó Quicksand Jesus sé orðin stærri núna. Það var einmitt á þessu tíma- bili, sem Þór og Gunnar tóku eftir þessari ungu tónlistarkonu og í júlí hringdi Gunnar í hana og bauð henni til samstarfs. Hvernig varð þér við þegar poppstjarna á borð við Dr. Gunna hringir í þig? „Ég féll saman og fékk taugaáfall. Hann er náttúrulega kyntákn og hefur verið átrúnaðargoð mitt til langs tíma. Ég kiknaði í hnjáliðun- um og mér lá við yfirliði.“ Já. Síðan gerast hlutirnir hratt og í endaðan júlí byrjuðum var byrjað á því að taka upp söng á plötuna æ. Þór og Gunnar eru báðir gamlir pönkarar og Heiða er verulega pönkuð útlits. Eru rætur tónlistar Ununar í pönki? „Ja, mínar rætur liggja í uppeldi foreldra minna og þá í hippatónlist. Síðan hef ég náttúrulega gengið í gegnum pönktímabil, þar sem ég hlustaði bara á Purrk Pillnik. Svo gekk ég í gegnum gítarsólótímabil þar sem mér fannst rosalega flott að hafa löng og flókin gítarsóló í lög- um og Jimi Hendrix var mjög vin- sæll þá.“ En nú hefúr MORGUNPÓST- URINN öruggar heimildir fyrir því að dr. Gunni þolir ekki gítarsóló? „Einmitt, og ég er alveg sammála honum. Nú þoli ég ekki gítarsóló, þetta var bara tímabil. En þó að ég sé með pönkklippingu núna þá er ég eiginlega enginn pönkari. Ég er bara venjulega stelpa sem klæði mig í venjuleg föt og geri mjög venjulega hluti.“ Heiða er mjög metnaðarfull í tónlistinni og vill gera vel á því sviði. Hún er í ensku við Háskóla íslands og fyrir liggja 18 einingar. „Stórir staflar verkefna horfa glott- andi á mig,“ segir Heiða, sem ekki gerði sér grein fyrir því hvað það er tímafrekt að fylgja eftir geisladiski. Hún ætlar því að láta námið að bíða um sinn og einbeita sér að tónlistinni. „Það þýðir ekkert að gera hlutina með hálfum huga.“ Heiða segir að það sé voða gaman að vera eina stelpan í hljómsveit og taldi blaðamanni MORGUN- PÓSTSINS trú um það að Þór og Gunnar væru mjög góðir við sig og tillitssamir. Það er margt í mörgu. JBG Birthmark heldur útgáfutónleika í íslensku óperunni á miðvikudagskvöldið með tíu manna hljómsveit Gætum stórtapað á þessu Birthmark ertiltölulega lítt þekktur poppdúett en tvímenningarn- ir Svanur Kristbergsson og Valgeir Sigurðsson ætla samt aö fylgja fyrstu hljómplötu sinni eftir með stórtónleikum í (slensku óperunni á miðvikudagskvöldið. Á plötunni, sem ber heitið Unf- inished Novels, koma fram yfir tuttugu hljóðfæraleikarar, allt frá djassgeggjurum til blásturssveitar úr Caput-hópnum. Það segir sig því sjálft að þeir leggja mikið f tónlistina. Á tónleikunum munu þeir verða með tiu manna hljómsveit sér til fulltingis þannnig að þeir ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Raunar eru aðstoðarmennirnir margir hverjir mun þekktari en þeir sjálfir. Af þeim má nefna Birgi Bragason bassaleikara Milljónamæringanna, Matthias Hemstock trommuleikara, Kjartan Valdímarsson píanóleikara, sem spilaði með Todmobile, og Óskar Guðjónsson saxafónleik- ara. Svanur og Valgeir hafa starfað saman í fimm ár og þar til nýlega kölluðu þeir sig The Orange Empire. Þeir eru þó aðeins að koma fram í sjötta sinn á miðvikudaginn. „Það er erfitt fyrir okkur að koma fram þar sem við erum bara tveir,“ segja þeir. „Þeir sem aðstoða okkur eru líka mjög uppteknir á öðrum sviðum og þess vegna er erfitt fyrir okkur að setja saman hljómsveit til að spila á tónleikum. En þar sem þetta er útgáfukonsertinn Víldum við vanda sem mest til hans.“ En voru þeir, nánast óþekktir mennirnir, að leigja jafn stórt hús og Óperuna? „Þetta er þannig tónlist að það hentar betur að fólk sitji á tón- leikum. Við erum alveg óhræddir við að spila í þessu húsi og það verður bara að koma í Ijós hvort við fyllum húsið. Við gætum að vísu stórtapað á þessu en við treystum á að fólk láti sjá sig.“ Þeir félagar lýsa tónlist sinni sem lágstemmdu og angurværu poppi, ambient-poppi svokölluðu. Textarnir eru á ensku sem vekur alltaf grunsemdir um að hljómsveitir stefni á heimsfrægð. „Við höfum valið ensku sem okkar tungumál í tónlistinni, vitandi það að ef við höfum hug á því að lifa af tónlistinni þá þurfum við að ná inn á stærri markaði en (sland eitt. Við höfum ver- ið í sambandi við erlenda aðila síðastliðin þrjú ár en við viljum ekki hafa uppi stór orð um það. En við hyggjumst koma þessari plötu á markað erlendis." Látið Dr. Gunna leiða ykkur um frumskóg dagskrárinna Rikissjónvarpið Stöð 2 Mánudagur 28. nóvember 15:00 Alþingi 17.00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Þytur í laufi (9:65) 18.25 Hafgúan (2:13) 19.00 Flauel 19.15 Dagsljós 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.40 Danska Þorpið (2:12) 21.10 Tölvun kennt að hugsa Equinox: Teaching Computers to Think Bresk heimildarmynd 22.00 Hold og andi (5:6) 23:00 Ellefufréttir 23.20 Viðskiptahomið 23.30 Dagskrárlok 09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn Nú er ég hræddur um að ég verði að hringja mig veikan upp í vinnu. 12.00 Hlé 17.05 Nágrannar 17.30 Vesalingarnir 17.50 Ævintýraheimur Nintendo 18.15 Táningarnir i Hæðagarði 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 20.20 Eiríkur 20.50 Matreiðslumeistarinn 21.35 Vegir ástarinnar (4:10) 22.30 Þjóðaratkvæðagreiðsla í Noregi 22.55 Ellen (7:13) 23.20 Windsorættin 00:10 Hundaheppni 01.45 Dagskrárlok Þriðjudagur 29. nóvember 13.30 Alþingi 16.45 Viðskiptahornið (e) 17.00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Glókollar 18.30 SPK(e) 19.00 Eldhúsið 19.15 Dagsljós 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.40 Staupasteinn (23:26) 21.05 Uppljóstrarinn (4:5) 21.55 Umheimurinn með Ólafi Sig. 23.00 Ellefufréttir 23.15 Hefur FIDE runnið sitt 09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn 12.00 Hlé 17.05 Nágrannar 17.30 Pétur Pan 17.50 Ævintýri Villa og Tedda 18.15 Ráðagóðir krakkar 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 20.20 Sjónarmið Stefáns Jóns 20.50 Visasport 21.30 Handlaginn heimilisfaðir 22.00 Þorpslöggan 22.50 New York löggur (4:22) 23.40 Á hálum ís skeið? Cutting Edge Rusl. Gaman væri að fá að vita 01.15 Dagskrárlok hvernig harðfullorðnir karlmenn nenna að hanga yfir taflborðinu. 23.35 Dagskrárlok Miðvikudagur 30. nóvember 13.30 Alþingi 17.00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Myndasafnið 18.30 Völundur 19.00 Einn-X-tveir 19.15 Dagsljós 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.40 í sannleika sagt 22.00 Finlay læknir (4:6) 23.00 Ellefufréttir 23.15 Þingsjá 23.35 Einn-X-tveir (e) 23.30 Dagskrárlok 09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn 12.00 Hlé 17.05 Nágrannar 17.30 Litla hafmeyjan 17.55 Skrifað í skýin 18.15 Visasport 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 20.20 Eiríkur 20.50 Melrose Place (18:32) 21.45 Stjóri 22.35 Tíska 23.05 Kennarinn To Sir With Love Töffsixtis- mynd með Lulu og Sidney Po- itier. 00.45 Dagskrárlok lega að gerði sig ekki. Tangafólkið er mælandi mætt á svið, reist upp úr fjórum bókum á leikfætur, af- klætt umvefjandi texta og stendur eftir á nærklæðunum, nágengt og ágengt. „Sá skáldskapur er bestur sem segir ekkert sjálfur, heldur vekur ímyndunaraflið af svefni" segir Katrín á bláum nærkjól sem segir ekkert sjálfur; áhorfandinn klæðir hana hugsunum sem leikgerðar- maður hefur afklætt persónuna frá hendi höfundar. Leikgerð er skáld- saga á nærklæðum. Textinn stend- ur eftir nær nakinn og fær ekki skjól í hugleiðingum höfundar þó hann tregur (í sinni Laxness-fó- bísku sviðsfælni) fái að prjóna utan á verkið nokkrar pjötlur með eigin rödd úr hátalara og formála í leik- skrá. Leikrit er skáldsagan nakin. Af hverju semur Guðbergur ekki leik- rit? Frægar línur Önnu öðlast nær Shakespeare-legan hljóm þegar þær eru fluttar af leikkonu: „Ef ég skrif- aði bók um lífið hérna...“ Uppsetning Viðars er heppnuð með snjöllum innskotum á kvik- myndatjaldi, í réttu ljósi Ásmund- ar Karlssonar og sparlegum en hnitmiðuðum ramma leikmyndar Snorra Freys Hilmarssonar, reyndar ögn Gíó-leg á kafla; uppr- aðandi hópsenur í erfidrykkju og: Nú er mikið í tísku að láta leikarana dansa um sviðið með stóla. Er það til að túlka efa og óvissu leikstjóra á okkar tímum? Hann viti ekki hvernig á að setja verkið upp, hvar hann eigi að setja leikarana, hvar þeir eigi að setjast? Best bara að láta þá ramba um með stólana? Þóra Friðriksdóttir er óborgan- leg í ókunnu kellingunni, sem og Herdís Þorvaldsdóttir í hlutverki Sveinu sveinamóður. Sveinn sjálfur góð týpa frá hendi Björns Karls- sonar og Kristbjörg Kjeld jafn týpísk Tobba. Guðrún S. Gísla- dóttir er ffábær Katrín og algjör- lega hillaríus í eftirhermu sinni á Guðbergi í upplyftandi uppbroti verksins: Sögunni af Gunnu og Tótu. Sigurverk sýningarinnar er þó Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir í hlutverki þroskaheftrar Dídíar. Slíkan leik hef ég ekki séð á íslensku sviði. Veikasti hlekkur sýningarinnar er Ingrid Jónsdóttir í aðalhlut- verkinu: Önnu. Leikstíll hennar var á skjön við önnur hlutverk. Hún lifði sig ekki inn í persónuna heldur var meðvituð og glottandi að línum hinna, en þó ekki nógu skýrlega til þess að sú væri pælingin. Óvissa hennar var óþægileg áhorfanda. Hún var fyndin, og tókst betur upp, í hlutverki Gunnu. Valdimar Örn Flygenring var og ekki sannfærandi Magnús; of- leikinn leikur hans var utanáliggj- andi. Hin ámátlega einræða hans um piprun sína varð ósannfærandi vegna þess að hann lék ekki á móti textanum heldur gerði hann enn aumlegri með vælutóni. (Ef til vill leikstjórnarlegt atriði.) Jón St. Kristjánsson oflék einnig illilega hinn heimska Bjössa, sem varð enn meira áberandi við hlið Steinunnar. Höskuldur Eiríksson og Sverr- ir Örn Arnarson voru góðir sem sami Hermann. Jóhann G. Jó- hannsson fann rétta tónlist og búningar Ásu Hauksdóttur voru hárréttir fyrir leikgerð á þessum skáldsögum eins og áður kom fram. ■ Gerðu það Guðbergur, skrif- aðu leikrit. - Hallgrímur Helgason Bikiní og brjóstkassar Strandverðir RÚV ★ Af hreinræktuðum höfðings- skap hefurz RÚV nú fest kaup á 22 þátta pakka með Baðvörðunum, einum frábærasta þætti sem sést hefúr. Hér reika glæsilegir fúlltrúar hvíta kynstofnsins um sandana og lenda í stórkostlegum ævintýrum. Þetta fólk er því sem næst allsbert og ekki fúrða að kynsoltnir fái fró- un yfir þessu skemmtilega efni, eins og margoft hefur komið fram í skoðanakönnunum. Að sjá þetta lambakjöt, sem sumt er næstum vandskapað af fegurð, veltast um sandana og skutla sér á appelsínu- gulum kútum í funheitar öldurn- ar, er það næsta sem RÚV kemst í útsendingu á forboðnu kynlífsefni, og áhorfendur fá stundum sögu- þráð til að berja kjötið yfir. Á ströndinni hefúr lítið breyst síðan siðast. Á laugardaginn var hætta á ferð þegar djöfulóður glæpamaður kom út úr hinu vin- sæla holræsi og olii usla á strönd- inni. Strandlögga sagði David Has- selhoff að við hliðina á þessum væri kjötætan Flector algert pela- barn. Kom það snarlega í ljós þeg- ar vondi kallinn rændi tveimur barbídúkkum og hafði í haldi í strandkofa. Vondi var þó ekkert svakalega vondur enda greinilega slappur skapgerðarleikari hér á ferð. Hann var aðallega leiðinlegur og kaldrifjað hláturskast hans í lok myndarinnar — þegar hann var dreginn burtu aflöggunni, hafandi lútið í lægra haldi fyrir góðu köli- unum — var álíka gæsahúðarvekj- andi og litlu börnin og Hemmi. David Hasselhoff hefur full- komið TV-fés enda vinsæll popp- ari í Þýskalandi. Kubbslaga kjálk- arnir minna á meistara Michael Landon, en að öðru leyti væri guð- last að líkja þeim saman. Þó slapp- ur sé, ber Hoffi höfuð og herðar yftr aðra leikara í þessum þáttum. Sérstaklega eru ungu baðverðirnir óþolandi vitlausir og það tekur á að heyra þá tala. En hvað, í klámmyndum skiptir leikurinn litlu máli, það er aksjón- ið sem blífur. Á meðan Barbí- og Kenkjötið hlunkast um sandana, þurfandi Islendingum til fróunar, er Innkaupadeildinni fyrirgefið. Auglýsing KRAFr-ÞVOTTAEFNI ★ ★★★★ Ég veit ekki hvort mig var að dreyma, en um daginn sá ég aug- lýsingu þar sem fjallkona kynnti Kraft-þvottaefni og brosti svo skein í hvítar tennurnar. Auglýs- ingin var stórkostlegri en orð fá lýst og án efa besta auglýsing sem hér hefur sést síðan á árdögum Sjónvarpsins. Þrátt fyrir stífa áhorfun á auglýsingatímana hefur Kraft-fjallkonan ekki birst aftur og því er Gvend farið að gruna ýmis- legt. Þessa sýn verður líklega að af- skrifa sem stundarbrjálæði. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.