Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Blaðsíða 10
10 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Grafgotur Landsframleiðsla Eignarhaldsfélag Suðurnesja er af mörgum heimamönnum álitið vera lítil lyftistöng fyrir atvinnulíf suður með sjó eins og vonir stóðu til. Helmingur þess fjár sem farið hefur í hlutafjárkaup er talinn glataður. Líkur á því að félagið verði lagt niður Hafa ekki skilning á fýrirtækjarekstri Veitti styrk til framleiðslu hleðslutækja fyrír orku- steina Borgarráð samþykkti á fundi sín- um síðastliðinn þriðjudag að veita Karli Gíslasyni blikksmiði 200.000 króna styrk til að þróa og smíða sterka bögglabera og hleðslutaeki sem endurhleður orkusteina. Bögglaberarnir eru hugsaðir til notkunar á fjallahjólum en flest þeirra koma án slíks útbúnaðar til landsins. Steinahleðslutækið er hins vegar lítill kassi sem samanstendur af glerhúsi með pýramídalaga þaki en undirstaða tækisins er gerð úr viði. Karl segir að hugmyndin að steinahleðslutækinu hafi kviknað þegar hann sá teikningu af sambæri- legu tæki í bók. „Bróður minn lang- aði mikið í svona tæki og mér fannst ég vera kominn í mínus gagnvart honum í jólagjöfum svo ég smíðaði eitt tæki sem ég gaf honum og það hefúr reynst mjög vel,“ segir hann. Karl hyggst byrja á að kanna við- brögð við steinahleðslutækinu á innlendum markaði en stefnir síðan á útflutning. „Ég hef ekki haft fjár- magn til að sinna þessu sem skyldi og styrkurinn fer beint í að koma framleiðslunni í gang,“ segir hann. Móðir Karls hefur góða reynslu af notkun steinahleðslutækisins að hans sögn. „Hún setti stein í tækið en var síðan ekkert að hugleiða það sérstaklega en meðhöndlaði það bara samkvæmt leiðbeiningum mínum og viku síðar sagði hún mér að henni liði miklu betur. Það hefur greinilega jafnað orkuflæðið í kring- um hana.“ Karl segir tækið virka vel fyrir alla orkusteina en þeir hafi mis- munandi eiginleika. Steinahleðslu- tækið verður markaðssett í þremur stærðum og söluverð þess ódýrasta verður væntanlega urn 3.700 krónur út úr búð. Að sögn Karls eru tækin öll jafn kraftmikil og í kynningar- bæklingi sem þeim fylgir kemur fram að þau geti haft jákvæð áhrif á fólk í fjarlægum heimsálfúm. Þar segir meðal annars að vísindamenn hafi komist að því að hleðslutæki með jaspis-steini í Kaliforníu hafi læknað konu með banvænan sjúk- dóm á írlandi. Ennfremur kemur þar ffarn að steinahleðslutækið er langlífara en hefðbundin heimilis- tæki því ef það „brennur út“ vegna ofnotkunar þarf bara að skella því í ffysti í viku og þá verður það sem nýtt aftur. -lae framgang. 1 9. grein nú- gildandi áfengislaga stendur: Óheimilt er að gefa veitingamönnum afslátt frá hinu ákveðna útsöluverði til almenn- ings. Á meðan það er í gildi gefum við náttúr- lega engan afslátt.“ Höskuldur Jóns- son, forstjóri ÁTVR. í núgildandi áfengislögum er bannað að veita afslátt á áfengis- verði til veitinga- húsa. í frumvarpi, sem lagt var fram í fyrra var því banni aflétt en frumvarp- ið náði ekki fram. segir Sigurbjöm Sigurðarson, eigandi Ventusar, um stjóm Eignarhaldsfélags Suðumesja. Fyrir ríflega ári var Eignarhalds- félag Suðurnesja stofnað í þeim til- gangi að efla atvinnulíf á Suðurnesj- um með lánveitingum og hlutafjár- kaupum í fyrirtækjum með arðsem- ismarkmið í huga. Stofnendur og stærstu hluthafar þess eru flest bæj- ar- og sveitarfélögin á Suðurnesj- um, Lífeyrissjóður Suðurnesja og Hitaveita Suðurnesja. Islenskir að- alverktakar hafa einnig lagt hlutafé í félagið. Innborgað hlutafé var í árs- lok 1993 um 118 milljónir króna. Samkvæmt heimildum MORGUN- PÓSTSINS eru margir hlutaðeigandi þess fýsandi að félagið verði lagt niður. Einnig hefur komið til tals að Keflavíkurbær og Njarðvíkurbær dragi sig úr Eignarhaldsfélaginu. Ákvarðanir teknar seint og illa Að sögn Sigurbjörns Sigurðar- sonar, eiganda byggingarfýrirtæk- isins Ventusar í Keflavík, ríkir al- menn óánægja með starfsemi Eign- arhaldsfélags Suðurnesja. „Það komu strax fram efasemdir þegar félagið var stofnað því í stjórn sitja fulltrúar hluthafanna, sem flestir eru pólitíkusar, hræddir urn frama sinn, og þeir hafa ekki næga þekkingu á atvinnulífinu. Ákvarð- anir um lánveitingar eða hluta- bréfakaup eru oft teknar bæði seint og illa. Eg veit dæmi þess að það hefur tekið þá marga mánuði að taka ákvörðun um hvort veita eigi fyrirtækjum aðstoð. Þeir hafa ekki skilning á því að í fyrirtækjarekstri ertu með mannskap á launum og verður að vinna hlutina hratt og vel,“ segir Sigurbjörn. 1 frétt í Beztablaðinu, sem gefið er út í Keflavík, eru leiddar líkur að því að Eignarhaldsfélag Suðurnesja hafi tapað um helmingi keypts hlutafjár, um 15 milljónum króna. Því tií staðfestingar er vísað í árs- reikninga félagsins en þar kemur fram að keypt voru hlutabréf fyrir 28 milljónir. í saltverksmiðju danska fyrirtækisins Saga Ingredi- ents voru lagðar 7 milljónir en fyrir- tækið er nú gjaldþrota. Byggingar- fyrirtækið Ventus hf. hefur hætt framleiðslu á skútum en í það verk- efni voru lagðar um 8 milljónir króna. Eignarhaldsfélagið keypti einnig hlutabréf fyrir lægri upp- hæðir í fimm öðrum fýrirtækjum á Suðurnesjum í fýrra. Sigurður Valur Ásbjarnarson, stjórnarformaður Eignarhaldsfé- lagsins og bæjarstjóri í Sandgerði, segir að lengi megi hártoga urn hvort þetta hlutafé sé glatað. „Það sem mestu máli skiptir er að saltverksmiðjan er nú komin í eigu Hitaveitu Suðurnesja og er enn að framleiða salt. Ventus hf. er, að því ég best veit, með hálfsmíðaða skútu á gólfrnu hjá sér. Fyrirtækið er því enn í rekstri og þar af leiðandi er hlutaféð ekki tapað.“ Hafa ekki skilning á rekstrinum Sigurbjörn Sigurðarson hjá Ventusi hf. segir að rekstur fyrir- tækisins hafi verið kominn í hnút strax eftir að fyrsta og eina skútan var seld til Sviss. „Við fórum ffarn á að Eignar- haldsfélagið lánaði okkur um 15 milljónir en fengum 8 milljónir. Keflavíkurbær útvegaði okkur hús sem við innréttuðum og í það fór stór hluti af fjármagninu. Islenskir aðalverktakar keyptu af okkur tæk- in og leigðu okkur þau síðan. Nú vill helst enginn vita af okkur. Við fengum pöntun í smíði annarrar skútu en síðan hætti kaupandinn við vegna slæmrar fjárhagsstöðu okkar. Þess vegna erum við með hálfldáraða skúta á gólfinu hjá okk- ur. Nú höldum við oldcur á floti með trésmíðavinnu. Menn átta sig ekki á því að skútuframleiðsla er annað og meira en að reka pulsu- vagn. Á Islandi vantar nauðsynlega fjármagn í áhættu og þróun. Ventus fékk þó einna mest frá Eignarhalds- félaginu þannig að ég ætti kannski ekki að kvarta. Félagið virðist því miður ekki hafa skilning á rekstrin- um og við hittumst aldrei og rædd- um málin. Eini fulltrúi þeirra sem við erum í sambandi við er lögfræð- ingur félagsins, Ásbjörn Jóns- son.“ Hluthafafundur á næstunni Sigurður Valur segir hlutabréfa- kaup Eignarhaldsfélagsins hafa gengið vel og í apríl höfðu verið keypt hlutabréf í fyrirtækjum fyrir um 36 milljónir króna og skulda- bréf fyrir 68 milljónir. „Við viljurn ekki gefa upp á þessari stundu hvaða aðilar hafa fengið skulda- bréfalán. En eftir hluthafafund sem haldinn verður á næstunni verður upplýst hverjir hafa fengið þessi lán. Það kann einnnig að vera viðkvæmt fýrir fyrirtækin sjálf að upplýsa um lánveitingar til þeirra. Það er eins og að hringja í bankastjóra og fá upplýsingar um hverjir séu við- skiptavinir bankans. Bráðlega verður tekin ákvörðun um framtíð félagsins því að aðstæð- ur hafa breyst vegna samruna bæj- arfélaganna. Ekki stendur til að leggja það niður en stjórnin hefur ýmsar hugmyndir um hvernig auka megi hlutaféð.“ -HM Borgarráð til liðs við nýöldina Verðbólga Úlfar Eysteinsson, veitingamaður spyr. „Ég vil spyrja hvenær við á veitingahús- unum fáum að kaupa vin á heildsölu- verði. Eins og staðan er nú þurfum við að greiða sama verð og sá sem kemur af göt- unni, sem er náttúrlega óeðlilegt í svona viðskiptum. Vínverð er alltof hátt og það myndi breyta vinvenjum þjóðarinnar ef við gætum boðið lægra verð. Sjálfum þætti mér ekki óeðlilegt að við fengjum vínið á um 25 prósent lægra verði og það myndi skila sér til neytenda. Þjóðverjar og aðrir útlendingar falla í yfirlið þegar þeir sjá t.d. verð á bjórnum hér á landi og með breytingu gætum við boðið léttvíns- flöskur á mun skaplegra verði.“ „Þessu get ég ekki svarað. Það er bundið í áfengislögum að Áfengis og tóbaksversluninni sé óheimilt að gefa afslátt frá skráðu verði. Mér er kunnugt um það að í fyrra var á ferðinni frumvarp, sem dómsmálaráðherra lagði sennilega fram, enda heyra áfengislögin undir hann. Þar var þessu banni aflétt, en frumvarpið fékk ekki 1994 1995 Þjóðhagsáætlun og spá Gjaldeyrismála eru nokkuð samstíga í verðbólguspám sínum. Á báðum stöðum er gert ráð fyrir 1,5 prósenta verðbólgu á þessu ári. Gjaldeyrismál gerir hins vegar ráð fyrir 2,2 prósenta verðbólgu 1995 en í þjóð- hagsáætlun er spáð 2 prósenta verð- bólgu. Mer er spurn Karl Gíslason, glaður í bragði, eftir að Borgarráð samþykkti að veita honum 200.000 króna styrk til að fram- leiða bögglabera og hleðslutæki fyrir orkusteina. Blaðið Gjaldeyrismál gerir ráð fyrir 4 pró- senta aukningu á landsframleiðslu á þessu ári en í þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir 1,9 prósent aukningu. Á næsta ári reiknar þjóðhagsáætlun með 1,4 prósent aukningu en í Gjaldeyrismálum er gert ráð fyrir aukningu upp á 2 prósentustig. Vidskjptajöfnudur rMilljarðar krona 4 1994 1995 Blaðið Gjaldeyrismál gerir ráð fyrir mun meiri afgangi á viðskiptajöfnuði en fram kemur í þjóðhagsáætlun. Gjaldeyrismál reiknar með 11 milljarða króna afgangi á þessu ári og 8,3 milljörðum á þvl næsta. i þjóðhagsspá er hins vegar gert ráð fyrir 3 milljarða króna afgangi á þessu ári og 2 milljörðum árið 1995.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.