Helgarpósturinn - 28.11.1994, Qupperneq 5

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 5 Mál Lífeyrissjóðs starfsmanna Áburðarverksmiðjunnar Rannsóknin vel á veg komin .Rannsóknin er vel á veg komin og málið mun fara til ríkissak- sóknara þegar henni hefur verið lokið. Annað hef ég ekki um þetta að segja,“ segir Hörður Jóhann- esson yfirlögregluþjónn hjá RLR aðspurður um hvernig rannsókn máls Þorsteins V. Þórðarsonar, fyrrverandi sölustjóra Áburðar- verksmiðjunnar og umsjónar- manns Lífeyrissjóðs starfsmanna þar, miðar. Eins Og MORGUNPÓSTURINN sagði frá í síðasta tölublaði er hætta á að Lífeyrissjóður starfs- manna Áburðarverksmiðjunnar tapi allt að 70 milljónum króna vegna heimildarlausra og hæp- inna fjárfestinga Þorsteins, sem keypti á 18 mánaða tímabili skuldabréf af ýmsum einstakling- um og fyrirtækjum fyrir það bil 115 milljónir króna. Þorsteinn er auk þess grunaður um að hafa haft verulegan persónulegan ávinning af þessum viðskiptum, en í bókhaldi sjóðsins eru afföllin af skuldabréfakaupunum skráð mun minni en seljendurnir segjast hafa mátt þola. Þorlákur Einarsson, sölu- rnaður í lausamennsku, var í flest- um tilvikum milligöngumaður í skuldabréfakaupunum. Hann sagði við blaðamann eftir að greinin birtist að Þorsteinn hefði fullyrt við sig að stjórn sjóðsins hefði vitað af öllum kaupunum og verið þeim samþykk. Samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum blaðsins komu stjórnarmenn hins vegar af fjöllum þegar upp komst Grétar Haraldsson lögfræðing- ur var milligöngumaður í hluta skuldabréfakaupanna, hann hefur verið sviptur lögmanns- réttindum sínum og er nú skráð- ur gjaldþrota. um tilfæringar Þorsteins. Nýjar upplýsingar blaðsins herma að Grétar Haraldsson lögfræðingur hafi einnig verið milligöngumað- ur í skuldabréfakaupunum, en hann var ekki eins stórtækur og Þorlákur. Samkvæmt heimildum blaðsins átti Grétar.fyrst og fremst þátt í kaupum Þorsteins í bygg- ingum í Berjarima 20-28 sem Kristján Magnason húsasmiður er í forsvari fýrir. Heimildir blaðs- ins segja að forráðamenn Áburð- arverksmiðjunnar hafi þungar áhyggjur yfir því að Grétar er með til innheimtu skuldabréf í eigu líf- eyrissjóðsins upp á rúmlega 2 milljónir króna. Áhyggjur þeirra stafa af slæmri fjárhagsstöðu Grétars en hann hefur komið ná- lægt ýmsum vafasömum viðskipt- um á ferli sínum og er nú skráður gjaldþrota. -jk Óánægðir hluthafar í Sameinuðum verktökum kanna hug almennra hluthafa til stjórnar félagsins. Krefjast hluthafafundar og ætla að bera upp vantrauststillögu á stjórnina. Mikill meirihluti óánægður með stjómina Mikil óánægja er með fjárfesting- ar fslenskra aðalverktaka meðal hóps hluthafa í Sameinuðum verk- tökum en fyrirtækið á 32 prósent í íslenskum aðalverktökum. í rúmt ár hefur stjórn íslenskra aðalverk- taka staðið í ýmsunt fjárfestingum erlendis fyrir um það bil 140 millj- ónir króna í bága við félagasamning félagsins og samþykktir Samein- aðra verktaka. Það sem fer helst fyr- ir brjóstið á hluthöfum Sameigin- legra verktaka er að hvorki var leit- að samþykkis þeirra áður en ráðist var í þessar fjárfestingar né þær yf- irhöfuð kynntar. Frá þessu var sagt í MORGUNPÓSTINUM síðastliðinn mánudag. Forsvarsmenn óánægðu hluthaf- anna í Sameinuðum verktökum skrifuðu öllum hluthöfum félagsins bréf og báðu þá um að taka afstöðu til málsins. Hluthafarnir eru 251 talsins en svör bárust frá 100 þeirra og eiga þeir samtala um 40,1 pró- sent hlutafjár Sameinaðra verktaka. í fýrstu spurningunni var spurt um við hvað hluthafarnir teldu að starfsvið félagsins ætti að miðast og var hún þrískipt. A-liður hljómaði þannig: „Finnst þér að starfssvið Sameinaðra verktaka eigi að tak- markast við þátttöku í íslenskum aðalalverktökum eingöngu?“ Já sögðu 71 hluthafa en samtals eiga þeir 30,61 prósent hlutafjár. Nei sögðu 13 en þeir hafa 4,33 prósent hlutafjárs undir sínum yfirráðum. Eigendur 4,02 prósenta hlutafjár eða 14 aðilar voru óákveðnir og tveir eigendur 0,14 prósenta svör- uðu ekki. 1 b-lið var spurt: „Finnst þér að Sameinaðir verktakar eigi að leyfa íslenskum aðalverktökum að fara inn á starfssvið sitt með almennri verktöku innanlands?“ Já sögðu 30 sem eiga samtals 7,52 prósent í S.V. 52 svöruðu spurningunni hins veg- ar neitandi en þeir eiga 27,92 pró- senta hlutafjár og óánægðir voru 18 eigendur 4,66 prósenta hlutafjár. C-liður spurningarinnar hljóm- aði með effirfarandi hætti: „Finnst þér að Sameinaðir verktakar eigi að leyfa Islenskum aðalverktökum að færa út starfssvið sitt með verkefn- um erlendis og með því að taka þátt í stofnun nýrra hlutafélaga til slíkr- ar starfsemi?“ Já svöruðu 12 og áttu 2,05 prósent, Nei sögðu 70 og voru með 32,35 prósent, óákveðnir voru 17 hluthafar og samtals eigendur 5,58 prósenta hlutafjár. Einn eig- andi 0,13 prósenta svaraði ekki. Önnur spurningin var: „Ertu ánægður með störf stjórnar Sam- einaðra verktaka?“ Þessu svöruðu 79 af þeim 100 sem tóku þátt í könnuninni. Þeir sem svöruðu ekki eiga samtals 8,89 prósenta hlutafjár. Af þeim sem svöruðu voru tveir mjög ánægðir en þeir eiga 0,02 pró- sent í félaginu, 11 voru frekar ánægðir og eiga þeir samtals 3 pró- sent, frekar óánægðir voru 25 sem samtals eiga 5,6 prósenta hlutafjár. Mikill meirihluti var hins vegar mjög óánægður með stjórnina eða 41 eigendur 22,6 prósenta hlutafjár. Þessar upplýsingar fengust hjá Þórði M. Þórðarsyni en hann er einn af forsvarsmönnum óánægðra hiuthafa í Sameinuðum verktök- um. Þeir hyggjast rita hluthöfum Sameinaðra verktaka bréf þar sem fram kemur að samkvæmt niður- Þórður M. Þórðarson, einn for- svarsmanna óánægðra hluthafa Sameinaðra verktaka, segir mik- inn meirihluta almennra hluthafa félagsins andsnúna stjórn þess, samkvæmt skoðanakönnun sem óánægðir hluthafar stóðu fyrir. stöðum skoðannakönnunarinnar telji þeir ljóst að flestir hluthafa Sameinaðra verktaka séu óánægðir með störf stjórnar félagsins. Einnig kemur fram í bréfinu að þeir hygg- ist fara fram á að haldinn verði hluthafafundur sem fyrst og þar verði lögð fram vantrauststillaga á stjórn Sameinaðra verktaka. Verði hún samþykkt skuli gengið til kosninga um nýja stjórn fyrir félag- ið, nýja fulltrúa í stjórn Islenskra aðalverktaka og aðra trúnaðar- menn félagsins. -lae 28.11 - 2.12 ll __ __I s s með hverjum TOMMA TOMMA HAMBORGARAR LÆKJARTORGI

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.