Helgarpósturinn - 30.04.1997, Blaðsíða 6
6
smm
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997
■f-
P
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997
Hótel Cabin við Borgartún
verður opnað 10. maí.
Húsið er upphaflega
byggt sem skrifstofuhús-
næði en hefur nú verið
breytt í hótel. Eins manns
herbergin eru inni í miðju
húsi og hafa einungis
glugga fram á gang.
Tveggja manna herbergin
eru svo lítil að breyta
þurfti reglugerð sérstak-
lega fyrir hótelhaldarann.
Rúmin á tveggja manna
herbergjunum þurfa að
hlið við hlið til
að ná löglegri lág-
marksbreidd.
Hótelhaldarinn í Valhöll og Örkinni opnar hótel meö míníbar á míníher-
bergjum. Umhverfisráöherra breytti reglugerð samkvæmt pöntun. Eins
manns herbergi inni í miðju húsi meö glugga fram á gang.
Hótel Cabin ■ í Reykjavík
verður opnað 10. maí. Þar
verða minni herbergi en áður
hefur tíðkast á íslenskum hót-
elum. Eins manns herbergin
verða inni í miðju hússins og
hafa einungis glugga fram í
hótelganginn. Reglugerðar-
ákvæði um stærð herbergja
var breytt 11. apríl, að því er
virðist sérstaklega fyrir Jón
Ragnarsson, sem rekur hótei-
ið. Byggingarnefnd Reykjavík-
ur hefur raunar enn ekki sam-
þykkt öll atriði í skipulaginu.
Jón Ragnarsson, hótelhaldari á
Þingvöllum og Örkinni í Hvera-
gerði, leigir þetta hús af hluta-
félagi sem heitir B-32 ehf. Einn
maður situr í stjórn þess fyrir-
tækis. Það er Guðjón Ármann
Jónsson, sem undanfarin tutt-
ugu ár hefur hagnast vel á lög-
mannsstörfum og innheimtu
fyrir íslandsbanka og þar áður
Álþýðubankann.
Jón Ragnarsson hefur tekið
húseignina á leigu af hlutafé-
laginu B-32. Húsið var upphaf-
lega byggt sem skrifstofuhús-
næði og hefur því þurft að gera
umtalsverðar breytingar á því
áður en hægt er að opna það
sem hótel. Svo virðist sem Jón
Ragnarsson hafi einnig þurft
allmargar undanþágur til að
opna hótelið og eru raunar
ekki allar undanþágur fullfrá-
gengnar enn. Byggingarnefnd
Reykjavíkur heldur næst fund
7. maí, þremur dögum fyrir
opnun hótelsins,.og þarf þá að
taka afstöðu til umsóknar um
undanþágu varðandi bílastæði
ásamt því hvort leyft verður
að herbergin við útveggi húss-
ins verði tveggja manna.
Reglugerðarbreyting á
heppilegasta tíma
Samkvæmt þeirri heilbrigð-
isreglugerð sem verið hefur í
gildi undanfarin ár máttu
tveggja manna herbergi ekki
vera minni en tólf fermetrar að
flatarmáli. Hótel Cabin uppfyll-
ir ekki þessi skilyrði. Þar eru
öll herbergi svipuð að stærð,
eða rúmir níu fermetrar. Svo
heppilega vildi hins vegar til
að 11. apríl, eða tæpum mán-
uði fyrir opnun, tók umhverfis-
ráðherra sig til og breytti
reglugerðinni.
Samkvæmt nýja reglugerðar-
ákvæðinu er heilbrigðisnefnd
heimilt að veita undanþágu frá
stærðarreglunni þannig að
tveggja manna herbergi geta
nú verið allt niður í níu fer-
metra að stærð.
Einungis næturgisting!
Að vísu gildir þessi undan-
Einnig hægt að senda til Henson, Brautarholti 8, pósthólf 1015.
Símbréf 562-6499
jirvferð
fyrir húsið. Um leigusamning-
inn við Jón Ragnarsson sagði
Guðjón aðeins að hann hefði
verið gerður til allmargra ára.
Fjársterkt félag
Þegar B-32 keypti húsið í
Borgartúni 32 fyrir rúmar 90
milljónir króna virðist þetta
hlutafélag hafa verið nokkuð
fjársterkt þótt það væri ný-
stofnað og ekki skráð með
nema hálfa milljón í hlutafé.
Svo mikið er víst að félagið hef-
ur ekki þurft að taka lán fyrir
öllu kaupverðinu. Þótt fram-
kvæmdir hafi staðið yfir í heilt
ár voru ekki tekin fleiri lán út á
húsið fyrr en fyrir þremur vik-
um.
Það voru að vísu hæg heima-
tökin hjá hlutafélaginu að taka
50 milljóna króna lán hjá ís-
landsbanka, þar sem fram-
kvæmdastjóri félagsins, Guð-
jón Ármann Jónsson, er jafn-
framt lögmaður bankans.
Þessar fimmtíu milljónir eru
tryggðar með 1. veðrétti sam-
kvæmt veðbókarvottorði og
var láninu þinglýst 15. apríl í
fyrra eða um sama leyti og
kaupin voru gerð. Tveimur
handhafaskuldabréfum var
svo þinglýst á húsið í maí og
júní á síðasta ári. Þessi skulda-
bréf nema samtals 26 milljón-
um króna. Á hinn bóginn hefur
eignin ekki verið veðsett frekar
fyrr en nú í þessum mánuði
þegar kostnaðarsamar fram-
kvæmdir við húsið eru langt
komnar.
Þann 10. apríl var þinglýst
tólf handhafabréfum sem öll
eru tryggð með 2. veðrétti í
húsinu. Þessi bréf eru til 25 ára
og bera 6,8% vexti. Samtals
hafa þannig nú verið tekin lán
að upphæð nærri tvö hundruð
milljónir með veði í þessu
húsi.
þága einungis ef „um er að
ræða gististað, þar sem ein-
göngu er gert ráð fyrir nætur-
gistingu, þ.e. að einungis sé
dvalið í herbergjum yfir nótt“.
Undanþágan skal ennfremur
bundin því skilyrði „að á her-
bergi sé opnanlegur gluggi á
útvegg".
Síðasta orðið vekur óneitan-
lega athygli. Tveggja manna
herbergi má sem sagt vera allt
niður í níu fermetrar að stærð
ef opnanlegur gluggi fylgir
með, en hann verður að vera á
útvegg. Glugginn þarf sem sagt
Guöjón Ármann Jónsson:
limheimtuauðurinn komúm í
svæðinu.
Fram að þessu hefur þó ekki
borið mikið á Guðjóni og um-
svif hans á fjármálamarkaði
farið heldur hljótt. Þó er á
vitorði ýmissa að hann hefur á
síðari árum keypt allgott safn
málverka og mun meðal þeirra
mega finna málverk eftir ýmsa
íslenska málara í hærri verð-
flokki.
Skrifstofuhús varð hótel
Húsið sem nú stendur við
Borgartún 32 var byggt á rúst-
um Klúbbsins gamla eftir að
hann brann. Þetta hús átti að
verða skrifstofubygging og var
hverri hæð skipt í þrjá eignar-
hluta. Húsbyggjandinn varð
hins vegar að gefast upp í miðj-
um klíðum og eignarhlutarnir,
sextán talsins, voru seldir á
nauðungaruppboðum síðast á
árinu 1995.
Allmargir aðilar eignuðust
húsið á þessum uppboðum og
sagði Guðjón Ármann Jónsson
í samtali við Helgarpóstinn í
gær að hlutafélagið B-32 hefði
verið stofnað í þeim tilgangi að
ná húsinu aftur saman á eina
hendi.
Það varð úr að hlutafélagið
B-32 keypti allt húsið. Öllum
eigendum virðist hafa verið
gert sams konar tilboð um
kaup á eignarnlutum fyrir 30
þúsund krónur hvern fer-
metra. Húsið er alls yfir þrjú
þúsund fermetrar að stærð og
heildarverðið var því rífiega 90
milljónir króna. Guðjón Ár-
mann staðfesti það í samtali
við HP í gær að þessi upphæð
væri nálægt lagi.
Hann vildi hins vegar ekkert
segja um kostnað við fram-
kvæmdir þær og breytingar
sem gerðar hafa verið á húsinu
né segja nokkuð um leigugjald-
ið sem Jón Ragnarsson greiðir
Regkm
fynr,
Cuðjón Ármann Jónsson,
lögmaður fslandsbanka, er
kominn í hóp auðmanna lands-
ins eftir tuttugu ára innheimtu-
störf, fyrst fyrir Alþýðubank-
ann en síðan íslandsbanka.
Guðjón er framkvæmdastjóri
og prókúruhafi eignarhaldsfé-
lags hússins sem hýsir Hótel
Cabin og á verulegan hlut í því
félagi. Hann og kona hans eiga
auk þess verulegar eignir, all-
mikið fé þeirra er í húseignum.
Guðjón er einn stærri hluthafa
í bílaumboðinu Jöfri og hefur
líka á síðari árum komið sér
upp allstóru málverkasafni.
Húseignin við Borgartún 32,
sem í daglegu tali hefur verið
kallað Klúbbhúsið, er nú í eigu
einkahlutafélagsins B-32.
Stofnendur þess félags eru tvö
önnur einkahlutafélög, Hafra-
fell ehf. og Torghöllin ehf. Einn
maður situr í stjórn B-32. Það
er Guðjón Ármann Jónsson en
hann er jafnframt skráður
framkvæmdastjóri félagsins og
prókúruhafi. Varamaður í
stjórn er Hörður Jónsson
byggingaverktaki. Það er Hörð-
ur sem hefur séð um fram-
kvæmdir við húsið í Borgar-
túninu og hann mun nú orðinn
stærsti einstaki eignaraðilinn.
200 fermetrar á hálfa
milljón
B-32 keypti húseignina við
Borgartún á 30 þúsund krónur
fermetrann eða fyrir samtals
rúmar 90 milljónir króna, sem
er nokkru undir verðmæti
hússins samkvæmt fasteigna-
mati. Fasteignamat er sem
kunnugt er yfirleitt allmiklu
lægra en brunabótamat, sem
oftar er nær markaðsverði
eigna. í þessu tilfelli er þó ekk-
ert brunabótamat til. Það er yf-
irleitt ekki gefið út fyrr en hús
eru fullbyggð, en húsið við
Guðjón Ármann Jónsson er orðinn
vel fjáður eftir 20 ár sem inn-
heimtulögmaður.
Borgartún 32 var ekki nema
rúmlega fokhelt þegar B-32
eignaðist það.
Það vekur athygli að hluta
þessa húss keypti Guðjón Ár-
mann Jónsson af sjálfum sér
og mun hafa hagnast vel á
þeim viðskiptum persónulega,
a.m.k. ef hann hefur greitt sjálf-
um sér sama fermetraverð og
öðrum. Guðjón Ármann og
Guðrún nokkur Jóhannesdótt-
ir keyptu 200 fermetra á fyrstu
hæð hússins á nauðungarupp-
boði 1. des. 1995 fyrir hálfa
milljón króna. Fermetraverðið
var 2.500 krónur sem má bera
saman við þau 30 þúsund sem
B-32 greiddi fyrir hvern fer-
metra í húsinu.
Guðrún Jóhannesdóttir vildi
í samtali við Helgarpóstinn ekki
gefa neinar upplýsingar um að-
ild sína að þessum fasteigna-
viðskiptum. Sjálfur nefndi Guð-
jón hins vegar þá skýringu að
þau Guðrún hefðu bæði átt
skuldabréf á sama veðrétti í
þessum eignarhluta og hefðu
því sameinast um tilboð. Varð-
andi hið lága kaupverð sagði
Guðjón að í raun hefðu þau
Guðrún allt eins getað verið að
tapa peningum á þessu upp-
boði, það færi allt eftir upp-
hæð veðskuldarinnar.
Þetta var þó ekki eini eignar-
hlutinn sem Guðjón Ármann
átti í húsinu þegar B-32 keypti
það. Rishæðina átti Guðjón
sjálfur í heilu lagi, en hún telst
að vísu ekki nema 190 fermetr-
ar. Þessari eign afsalaði Guð-
jón til B-32 ehf. 2. maí í fyrra.
Undir afsalið skrifaði Guðjón
tvisvar, fyrst sem seljandi og
síðan, fyrir hönd B-32, sem
kaupandi.
Hógvær auðmaður
Guðjón Ármann Jónsson er
48 ára að aldri, upprunninn
austur á Norðfirði og var í
gagnfræðaskóla á Eiðum. Hann
varð stúdent frá MR 1970 og
útskrifaðist úr lagadeild Há-
skóla íslands 1976. Sama ár hóf
hann störf hjá Inga R. Helga-
syni, sem þá sá um innheimtu
fyrir Alþýðubankann. Guðjón
tók við rekstri stofunnar 1981.
Fyrir ungan lögfræðing mun
það á þessum árum ekki hafa
verið ósvipað því að eignast
gullnámu að komast í inn-
heimtu fyrir bankastofnun.
Guðjón virðist hafa efnast vel á
þeim tuttugu árum sem liðin
eru síðan hann hóf störf við
innheimtu- og lögmannsstörf.
Auk íbúðarhússins í Ljárskóg-
um 29, þar sem hann býr, á
hann efstu hæðina í húsi ís-
landsbanka við Suðurlands-
braut, þar sem lögmannsstof-
an er til húsa. Guðjón á einnig
allstóran hlut í bílaumboðsfyr-
irtækinu Jöfri auk þess sem
hann og kona hans eiga all-
nokkrar íbúðir á höfuðborgar-
W ® RLD S ® CCER SUPPQRTERS CLUB
Gordon Banks welcomes you to join the unique club that works for
all who care about the world's No. 1, sport regardless where you live
When entering you receive a beautiful pereonalized plaque, pin, sticker and
membership card that can make á dlfference to you as a fan, player,
manager or referee.Endorsed by some of the worlds greatest soccer
personalities.
I endose cheque/PO for US$ 75.00 made payable to W.S.S.C. or debit
_______________________Exp. Date:_______________________
_______________________DateofBirth:___________________
_______________________Country: ________________________
Please allow 28 days for delivery from receipt of entry ----------------
W.S.S.C Oakridge House, Wellington Road, Cressex Ind. Estate, Signature
High Wycombe, Bucks HP12 3PR, England Fax 44-1494-481456
m
Card no.: _
Name:____
Address:_
að opnast út úr húsinu. Það er
ekki nægjanlegt að hann opn-
ist fram í ganginn.
Það er einnig sérkennilegt
við þessa reglugerðarbreyt-
ingu að gert virðist vera ráð
fyrir að gestirnir á Hótel Cabin
njóti ekki sömu réttinda til af-
nota af hótelinu og ferðamenn
sem gista á öðrum hótelum. Út
úr orðalaginu virðist einna
helst mega lesa að hótelgest-
unum sé alls ekki ætlað að
dvelja í hótelherberginu nema
rétt yfir blánóttina.
Reglugerð breytt eftir
pöntun?
Þá má ennfremur nefna nýju
stærðarmörkin sem sett eru í
reglugerðarviðbótinni. Her-
bergin í nýja hótelinu við Borg-
„Jón“ og „séra Jón“ fá ekki alltaf
sömu meðhöndlun í kerfinu eins
og dæmin sanna. Jón Ragnarsson
hótelhaldari virðist njóta sérlega
góðrar þjónustu hjá stjórnvöldum.
artún eru einmitt rétt rúmir
níu fermetrar að stærð. Að
þessu leyti virðist reglugerðin
óneitanlega sniðin að þörfum
Jóns Ragnarssonar hótelhald-
ara.
Umhverfisráðherra gaf út
aðra breytingu á heilbrigðis-
reglugerðinni 5. mars síðastlið-
inn. Þar er sérstaklega tekið
fram að loftræsting á gistiher-
bergjum skuli vera góð og
skuli meðalstyrkur koltvísýr-
ings í andrúmsloftinu ekki vera
meiri en 800 ppm og ekki fara
yfir 1.000 ppm.
Þótt að sjálfsögðu sé ekki
minnst einu orði á Hótel Cabin
í þessum reglugerðarbreyting-
um vaknar óhjákvæmilega
grunur um að þessu síðast-
talda atriði sé bætt í reglugerð-
ina vegna eins manns her-
bergjanna sem eru í húsinu
miðju og hótelgestir hafa þar
af leiðandi enga möguleika til
að loftræsta sjálfir með því að
opna glugga.
Að öllu samanlögðu virðist
þannig tæpast geta verið tilvilj-
un að heilbrigðisreglugerðinni
skyldi vera breytt svo sem
raun ber vitni aðeins mánuði
áður en Hótel Cabin er opnað.
Gildir ekki um eins manns
herbergin
Hvorki í upphaflegu reglu-
gerðinni né viðbótinni frá 11.
apríl er þess getið sérstaklega
að opnanlegir gluggar þurfi að
vera á eins manns herbergjum.
Því síður er þar að finna nokk-
urt ákvæði um að eins manns
herbergi þurfi að vera við út-
vegg. Eftir því sem best verður
séð mættu tveggja manna hót-
elherbergi einnig vera glugga-
laus eða inni í miðju húsinu ef
þau einungis eru yfir 12 fer-
metrar að flatarmáli.
Þótt ótrúlegt sé virðist það
sem sagt vera I fullu samræmi
við heilbrigðisreglugerðina að
eins manns herbergjunum á
Hótel Cabin er komið fyrir í
miðju húsinu. Þessi herbergi
eru reyndar alls ekki glugga-
laus. Gluggarnir í þeim snúa
fram á hótelganginn. Hótel-
gangarnir eru af þessum sök-
um raunar tveir, svipað fyrir-
komulag og í breiðþotum þar
sem sætaraðirnar eru þrjár,
Rúm fyrir grannvaxna
Herbergin á Hótel Cabin eru
öll eins í laginu, bæði þau sem
hafa opnanlegan glugga á út-
vegg og hin sem standa í hús-
inu miðju. Herbergin eru 2,30
metrar á breidd og rúmir 4
metrar á lengd. I tveggja
manna herbergjunum er gert
ráð fyrir að rúmin standi upp
við langveggina.
Lágmarksbreidd einstak-
lingsrúma samkvæmt gildandi
reglum er 90 sentimetrar og ef
svo breið rúm væru sett inn í
tveggja manna herbergin yrði
bilið milli þeirra ekki nema 50
sentimetrar. Rúm sem ætluð
eru tveimur þurfa að lágmarki
að vera 140 sm á breidd sam-
kvæmt sömu reglugerð.
Á þeim teikningum
sem nú liggja fyrir og
bíða samþykkis bygg-
ingarnefndar er hins
vegar gert ráð fyrir
tveimur 70 sentimetra
breiðum rúmum í
tveggja manna her-
bergjunum. Samkvæmt
reglugerðinni teldust
þessi rúm sennilega
uppfylla skilyrðið um
lágmarksbreidd tví-
breiðs rúms ef þau
væru látin standa sam-
an. En standi þau aðskil-
in, eins og raunar er
sýnt á teikningunni sem
nú bíður samþykkis
byggingarnefndar, vant-
ar 20 sentimetra upp á
að þau séu nógu breið.
,,Lúxus“ í ódýrari
kantinum
Hótel Cabin verður þó
á sína vísu lúxushótel.
Þar verður míníbar á
hverju herbergi. Salerni
og sturta fylgja líka
hverju einasta herbergi
en eru að vísu hluti
þeirra rúmlega níu fer-
metra sem hvert her-
bergi telst vera.
Á hinn bóginn verður
nokkru ódýrara að gista
á Hótel Cabin en flestum
öðrum hótelum í Reykja-
vík. Verðlag á hótelum á
höfuðborgarsvæðinu er
reyndar nokkuð mis-
munandi, en að sjálf-
sögðu er hótelgisting
dýrust á sumrin. í sumar
kostar tveggja manna
herbergi á Hótel Cabin
7.800 kr. yfir nóttina en
eins manns herbergi (án
opnanlegs glugga á út-
vegg) 6.630 kr. I báðum
tilvikum er morgunverð-
ur innifalinn í verðinu.
Þetta verð er þó ekki
mjög stórum mun lægra
en unnt er að fá annars
staðar. Til samanburðar
má nefna Hótel City,
gamalgróið, lítið hótel
nánast í miðbæ Reykja-
víkur, sem einnig býður
upp á herbergi með sal-
erni og baði, míníbar og
sjónvarpi. Á Hótel City
kostar tveggja manna
herbergi 9.500 krónur yf-
ir nóttina í sumar en eins
manns herbergi kostar
6.600 krónur.
Tveggja manna her-
bergin á Hótel City eru
að vísu í „fullri stærð“
samkvæmt gömlu reglu-
gerðinni og jafnvel eins
manns herbergin hafa
„opnanlegan glugga á út-
vegg“. Á hótel City er
morgunverður einnig
innifalinn í verði.
Á fínni hótelum er svo
reyndar talsvert dýrara
að gista og mun ekki óal-
gengt að tveggja manna
herbergi kosti tíu til tólf
þúsund krónur yfir nótt-
ina og þeir sem hafa svo
„einfaldan smekk“ að
þeim dugar aðeins það
besta þurfa svo vafa-
laust að borga enn
meira.
Maísprengja Heimsferða
til Benidorm
og Costa del Sol
frá kr.
27.132
BéKunastate
. mai -z' ..
28. maí -18
4. júní - “PPseL
11.iúní-16sæt>
30«!^
Vikulegar brottfarir í allt sumar
Við þökkum ótrúlegar undirtektir við sumaráætlun
Heimsferða en aldrei fyrr höfum við fengið þvílík
viðbrögð, nú þegar er uppselt í margar brottfarir í
sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér glæsileg tilboð
okkar í sólina í sumar, um leið og þú tryggir þér
glæsilegan aðbúnað og trausta þjónustu fararstjóra
Heimsferða erlendis.
30 jú\i " ix
6. ágúst - uPPse Bókaðu strax og tryggðu þér sœti
Costa del Sol
Sértilboð 28. maí
Verðkr39.932
Verð m.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, Minerva
Jupiter, 2 vikur, 28. maí.
Verðkr 49.960
M.v. 2 í studio, 2 vikur, Minerva, 28. mat.
Benidorm
Sértilboð 21. maí
Verðkr.27.132
Flugsceti með sköttum m.v. hjón með 2 böm,
2-11 ára.
Verðkr 39.932
Verð m.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, Vistamar, 2
vikur, 21. maí.
Verðkr 49.960
M.v. 2 í íbúð, 2 vikur, Vistamar, 21. maí.
Austurstræti 17,2. hæð • Sími
Fáðu
bældinginn
sendan.
tvær út við glugga og ein í
miðjunni.